Morgunblaðið - 08.03.1995, Qupperneq 60
í
I
G
L0TT#
alltaf á
Miðvikudögnm
Opið
frá 8 til 5
ALMENNAR
MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CKNTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Viðvörunarkerfi
Máka brást
Allurbarr-
inn drapst
vegna súr-
efnisskorts
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
ALLUR fiskur hefur drepist í físk-
eldisstöðinni Máka hf. á Sauðár-
króki vegna súrefnisskorts sem
varð vegna bilunar í tækjabúnaði.
Máki hefur verið með tilraunaeldi
á hlýsjávarfiskinum barra og var
tilraunaverkefni lokið þegar
óhappið varð.
Um helgina varð bilun í dælu-
kerfi stöðvarinnar með þeim afleið-
ingum að allir fiskarnir, 2.300 tals-
ins, voru dauðir vegna súrefnis-
skorts þegar starfsmaður kom til
vinnu að morgni. Viðvörunarkerfi
sem á að gera starfsmanni boð í
gegnum boðtæki og á prentara
virðist hafa brugðist. Guðmundur
Orn Ingólfsson, líffræðingur og
einn aðaleigandi Máka hf., segir
að ef viðvörun hefði borist hefði
það tekið starfsmann örskamma
stund að lagfæra bilunina. Nægur
varasjór hafi verið til staðar og
óhappið hefði ekki átt að ógna lífi
barrans ef viðvörun hefði borist.
Hann segir að þjónustuaðili viðvö.r-
unarkerfisins hafi verið beðinn um
að finna út hvað brugðist hefði.
Þá hafi allmargir fiskar verið send-
ir til rannsókna á Keldum.
Tilraunaverkefni lokið
Máki hefur verið með tilrauna-
verkefni í eldi á barra og hafði
eldið gengið eftir áætlun fram til
þessa. Að sögn Guðmundar Arnar
lauk tilraunaeldinu raunverulega
um síðustu áramót, þá hafi fiskur-
inn verið búinn að skila þeim upp-
iýsingum sem þörf var á. Hann
segir að nú verði gengið í að flytja
inn hrogn að nýju og tefjist mat-
fiskeldið því um ár. Varla sé hægt
að tala um annað tjón en þær taf-
ir sem verða á því að fá að éta
barra. Fyrirtækið hefur fengið 15
milljónir kr. í hlutafjárframlög og
samþykkt bæjarráðs Sauðárkróks
fyrir 5 milljóna kr. lánsábyrgð til
viðbótar.
Háseta-
hlutur um
800.000
krónur
EKKI ER íjarri lagi að há-
setahlutur á rækjuskipinu
Pétri Jónssyni RE verði á bil-
inu 750 til 800 þúsund krónur
eftir 29 daga úthald.
Landað var 247 tonnum af
rækju úr skipinu fyrri hluta
vikunnar. Þar af fengust um
150 tonn á heimamiðum og
tæp 100 tonn á Dorhnbanka.
Að sögn Bjama Sveinsson-
ar skipstjóra má gera ráð fyr-
ir að verðmæti aflans sé um
75 til 80 milljónir króna.
■ Aflabrögð/C4
Metafli hjá Ósk frá Sandgerði
„35 tonn af
aulaþorski“
„ ALLIR bátar eru að moka aula-
þorski, 8-10 kílóa fiski,“ sagði Ein-
ar Magnússon, skipstjóri á Osk,
80 tonna báti frá Sandgerði, en
hún kom í gærkvöldi til hafnar
með 35 tonn af vænum þorski, sem
veiddist sunnan við Stafnnes.
„Við höfum aldrei fengið svona
mikið áður. Við vorum með 20
tonn í gær [mánudag] en þetta eru
yfirleitt svona 4 til 5 tonn á dag
og oft minna. Og þó að fiskurinn
sé stór í dag þá höfum við verið
að fá mjög blandaðan þorsk í febr-
úar og það sem af er mars. Það
virðast vera allir árgangar í þessu
og það er mjög jákvætt þvi þetta
er fiskurinn sem á ekki að vera
til. Við erum að vona að friðunin
undanfarið sé nú að skila ár-
angri. Það virðist vera nóg af fiski
hérna á svæðinu," sagði hann.
Annar sjómaður, sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær, kvað alla
dragnótabáta á Suðurnesjum hafa
aflað vel og sumir þeir smæstu
hafi tvíhlaðið sig. A sama tíma
væri Vestmannaeyin að toga i tog-
araralli Hafrannsóknastofnunar
við Reykjanes og hefði lítið fengið.
Einar tók í sama streng. „Við
erum allir að mokfiska en þeir á
Vestmannaeynni þurfa ekki einu
sinni að leysa frá pokunum af því
að þeir fá ekki neitt. Það segir
okkur að þetta togararall er ekki
alveg marktækt en út frá því er
gengið við úthlutun kvóta.“
Tap Landsbanka
á Línd aldrei und-
ir 500 milljóniim
ÞÓTT heildaruppgjöri Landsbank-
ans á eignarleigufélaginu Lind hf.
sé ekki lokið, liggur fyrir, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, að tap Landsbankans verði
aldrei undir hálfum milljarði króna.
Endurskoðendur Landsbankans
hafa ekki lokið úttekt sinni á mál-
efnum Lindar, en samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins er áætl-
að að Landsbankinn geti þurft að
afskrifa mun hærri fjárhæð en þær
500 milljónir króna sem þegar er
ljóst að eru tapaðar.
Það sem gerir heildarupþgjör
Landsbankans á eignarleigufyrir-
tækinu flóknara en önnur uppgjör
bankans eru framvirkir samningar
Lindar, sumir jafnvel nokkur ár
fram í tímann. Ekki liggur fyrir í
hve ríkum mæli Lind hefur skuld-
bundið sig á þann veg, að Lands-
bankinn þurfí að auka afskriftaþörf
sína til muna, að því er varðar end-
anlegt uppgjör á reikningum Iindar.
Þegar hefur verið greint frá því
hér í Morgunblaðinu að allt hlutafé
Landsbankans í Lind hefur verið
afskrifað, eða um 185 milljónir
króna, en nú er komið á daginn
að það tap er aðeins brot af heild-
artapi bankans vegna Lindar.
Morgunblaðið/RAX
Ríkíð hittir 19 félög opin-
berra starfsmanna í dag
ENGINN samningafundur verður í kjaradeilu rík-
isins og kennara í dag vegna þess að samninga-
nefnd ríkisins ætlar að nota daginn í að ræða
við 19 önnur félög opinberra starfsmanna. Ind-
riði H. Þorláksson, varaformaður samninganefnd-
ar ríkisins, segir að haldið verði áfram að ræða
við þessi og önnur aðildarfélög BSRB og BHMR
samhliða viðræðum við kennara.
Indriði sagði að samninganefnd ríkisins hefði
ekki áður hitt samninganefndir þessara 19 fé-
laga. Hann sagðist gera ráð fyrir að á fundunum
á morgun myndi ríkið kynna hugmyndir sínar
um efni nýrra kjarasamninga og leita eftir við-
horfum félaganna.
Indriði sagði að ekki bæri að líta á þessa fundi
á þann hátt að ríkið ætlaði að einbeita sér að því
að ná samningum við BMHR og BSRB og láta
kennara eiga sig á meðan. Hann sagðist ekki
Enginn fundur í kenn-
aradeilunni í dag
hafa trú á að þessar viðræður tefji viðræður við
kennara. „Mál kennara hefur ákveðinn forgang
hjá okkur vegna þess hvað það er brýnt. Við í
samninganefndinni munum eftir atvikum skipta
liði til að geta dekkað þetta,“ sagði Indriði.
Páll Halldórsson, formaður BHMR, sagði að
BHMR-félögin væru með ýmsar sérkröfur sem
þau vonuðust eftir að ná fram í þessum samning-
um. Sérkröfur hefðu ekki fengist ræddar um langt
skeið og umræður um þær tækju sinn tíma. Hann
sagðist því ekki vera bjartsýnn á að samningar
við BHMR-félögin tækjust á skömmum tíma.
Þetta væru einfaldlega flókin samningsatriði.
Breyting á afstöðu ríkisins gæti þó flýtt fyrir
samningum. „Það sem félögunum hefur verið
sýnt hingað til er bara lélegt afrit af þessum
samningum á almenna markaðinum og það er
ekkert til að vinna með,“ sagði Páll.
Fundir með kennurum fáir og stuttir
Samninganefndir ríkisins og kennara komu
saman á stuttum fundi hjá ríkissáttasemjara í
gær. Engin árangur varð á fundinum. Nýr fund-
ur hefur verið boðaður á morgun.
Samninganefndir kennara og ríkisins hafa hist
hjá ríkissáttasemjara nær daglega frá því verk-
fall kennara hófst 17. febrúar. Engir samninga-
fundir voru um síðustu helgi og mjög stuttir fund-
ir voru í gær og fyrradag m.a. vegna funda hjá
kennurum. Það er mat samningamanna í Karp-
húsinu að samningsaðilar séu ef eitthvað er fjær
því að ná samningum nú en fyrir nokkrum dögum.