Morgunblaðið - 10.05.1995, Side 1
72 SÍÐUR B/C/D
104. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR10. MAÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jeltsín Rússlandsforseti telur miklar og sögulegar sættir hafa orðið milli þjóða heims
Spáð erfíðleikum
á leiðtogafundi
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
HÁTÍÐARHÖLDUM í tilefni þess að hálf öld er frá stríðslokum í Evrópu
lauk í Rússlandi í gærkvöldi með mikilli flugeldasýningu í Moskvu. Borís
N. Jeltsín Rússlandsforseti hélt erlendum þjóðarleiðtogum veislu í Kreml
í gær og þakkaði þeim fyrir að sýna hetjudáðum Rússa í stríðinu virð-
ingu. „Miklar og sögulegar sættir hafa orðið milli þjóðanna. Við byggjum
einn heim og Rússar rétta fram hönd samstarfs og vináttu til allra þjóða
heimsins." Stjórnmálaskýrendur búast þó við litlum árangri og jafnvel
deilum á fundi Jeltsíns og Bills Clintons Bandaríkjaforseta í dag.
fundinum verða erfið úrlausnar.
Bandarikin og fleiri vestræn ríki
hafa gagnrýnt harðneskju rúss-
neska hersins í Tsjetsjníju og hvatt
til þess að leitað verði friðsamlegrar
lausnar með samningaviðræðum en
Rússar segja deiluna vera þeirra
eigið innanríkismál.
Reuter
ÖLDRUÐ, serbnesk kona í
Nova Topola í Bosníu huggar
frænku sína frá V-Slavoníu.
Griða-
svæði SÞ
óvarin
Sartyevo. Reuter.
FRIÐARGÆSLULIÐ Sameinuðu
þjóðanna í Bosníu viðurkenndi í
gær, að það gæti ekki varið
Sarajevo fyrir árásum Serba þar
sem yfirboðarar þess hefðu bannað
herflugvélum Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) að ráðast gegn
serbnesku fallbyssuhreiðrunum.
„Serbar eiga að komast upp með
glæpinn. Við erum augljóslega
ófærir um að veija „griðasvæði"
SÞ,“ sagði Alexander Ivanko, tals-
maður friðargæsluliðsins. Yasushi
Akashi, sérlegur sendimaður SÞ,
og Bertrand Janvier hershöfðingi
ákváðu að banna flugvélum NATO
að hefna árásar Serba á Sarajevo
sl. sunnudag en þá féllu 11 manns.
Reiði í Sarajevo
Þessi afstaða hefur vakið mikla
reiði meðal íbúa Sarajevo og marg-
ir þeirra, sem fylgdu hinum látnu
til grafar, skóku hnefann í átt til
herflugvélanna, sem flugu uppi yf-
ir. „Þetta er slátrun með góðfúslegu
leyfí SÞ,“ sagði gamall maður.
Akashi varði í gær afstöðu sína.
„Sem stendur og vegna hins ein-
staklega viðkvæma og spennta
ástands teljum við, yfirmaður
gæsluliðsins og ég, það ekki bestu
lausnina að beita loftárásum."
SÞ fluttu í gær nokkra tugi
Króatíu-Serba frá héruðum þeirra,
sem Króatíuher náði á sitt vald
nýverið, yfir til svæða Bosníu-
Serba.
Clinton og fleiri vestrænir fulltrú-
ar fluttu ávarp í veislu Jeltsíns.
Clinton sagði Rússland vera orðið
lýðræðisríki, í sameiningu gætu ríki
heims nú barist fyrir frelsi og gegn
„því sem ógnar öllu mannlegu núna
- hryðjuverkum, útbreiðslu gereyð-
ingarvopna og drápsfýsn sem nær-
ist á deilum milli þjóða, trúflokka
eða ættbálka."
Ónefndur, bandarískur embætt-
ismaður bað menn að búast ekki
við miklu af sjötta leiðtogafundi
Clintons og Jeltsíns sem verður í
dag. „Við verðum ánægðir í lokin
ef tekist hefur að tryggja áfram-
haldandi viðræður," sagði hann.
Ljóst er að þrátt fyrir þetta er lík-
legt að báðir leiðtogamir reyni að
gera sem mest úr jákvæðum þáttum
viðræðnanna og fullyrði að náið
samstarf risaveldanna tveggja, sem
bitust um völd og áhrif í kalda stríð-
inu, sé á traustum grunni.
Helstu viðfangsefnin á leiðtoga-
Kjarnaofnar til írans
Deilt er um sölu á rússneskum
kjarnaofnum og tækniþekkingu
fyrir milljarð Bandaríkjadollara til
klerkastjórnarinnar í íran sem
Bandaríkjamenn telja að íranar
ætli að nota við smíði kjamavopna.
Rússar mótmæla hugmyndum
um stækkun Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, til austurs og telja þær
ógnun við sig.
Sérfræðingar töldu að Rússar
hefðu gengið á bak orða sinna og
látið þjálfaða hermenn, suma jafn-
vel frá liðinu í Tsjetsjníju, taka þátt
í hátíðarhöldum á Rauða torginu í
gær. Erlendum leiðtogum, sem
hundsuðu mikla hersýningu til að
mótmæla framferði rússneska hers-
ins í Kákasushéraðinu, hafði verið
heitið að eingöngu yrðu notuð liðs-
foringjaefni við sýninguna á torg-
inu.
■ Stríðslokí Evrópu/17
Reuter
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti og Bill Clinton Bandaríkjaforseti
við hátíðarhöldin í Moskvu í gær, að baki þeim sést Jiang Zemin,
forseti Kína. Rúmlega 50 þjóðarleiðtogar sóttu Rússa heim.
Varað við lægri toll-
um á móttökudiskum
Islamabad. Reut«r.
PAKISTÖNSK yfirvöld gripu til
þess ráðs í gær að lækka tolla og
fella niður söluskatt á gervi-
hnattadiskum og myndbands-
tækjum, til að klekkja á smyglur-
um.
Hætt er við að með þessu kalli
stjómvöld yfir sig reiði heittrúaðra
múslima, sem hafa krafist þess
að álögur verði hækkaðar eða
tækin bönnuð en móttökudiskar
og myndbandstæki njóta æ meiri
vinsælda í Pakistan. Telja heittrú-
aðir að tækin ryðji brautina fyrir
vestræna menningarinnrás.
Ríkisstjóm Benazir Bhutto
ákvað þrátt fyrir þetta að fella
niður tolla á tækjunum og undan-
þiggja þau söluskatti til að draga
úr smygli á slíkum varningi.
RÚSSNESKIR hermenn, klæddir búningum Rauða hersins í
heimsstyrjöldinni, fyllq'a liði í gær. Að baki þeim er mynd af
tveim hermönnum úr styijöldinni, sovéskum og bandarískum.
Fyrir ofan þá eru fánar ríkjanna tveggja og hinna stórveldanna
tveggja er börðust gegn Þýskalandi; Bretlands og Frakklands.
Palestínumenn reiðir repúblikönum
Mótmæla sendi-
ráði í Jerúsalem
Jerúsalem, Kaíró. Reuter.
TALSMAÐUR Yassers Arafats,
leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu-
manna (PLO), mótmælti í gær til-
lögu leiðtoga repúblikana á Banda-
ríkjaþingi um að flytja bandaríska
sendiráðið í ísrael frá Tel Aviv til
Jerúsalem.
Bob Dole, leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni, ætlaði í gær að
leggja fram frumvarp sem kveður
á um að hafist verði handa við að
byggja sendiráðið ekki síðar en í lok
næsta árs. Newt Gingrich, forseti
fulltrúadeildarinnar, hugðist kynna
sams konar frumvarp þar.
Austur-Jerúsalem var innlimuð í
Israel eftir sexdagastríðið í Mið-
austurlöndum árið 1967. Israelar
hafa þvertekið fyrir að láta borgar-
hlutann af hendi en Palestínumenn
vilja gera hann að höfuðborg sinni
þegar fram líða stundir. Lóðin, sem
Bandarikjamenn munu nota verði
af flutningnum er í vesturhluta
borgarinnar, sem ísraelar réðu fyr-
irstríðið 1967. ísraelskur embættis-
maður sagði að reistu Bandaríkja-
menn sendiráðið í vesturhlutanum
jafngilti það yfirlýsingu um að ísra-
elar gætu aðeins gert tilkall til hans
en ekki austurhlutans.
Deilt um eignarnám
Sendiherra Jórdaníu í ísrael var-
aði við því í gær að stjórn hans
myndi grípa til aðgerða sem hafa
myndu alvarleg áhrif á samskipti
ríkjanna ef ísraelar hættu ekki við
áform sín um eignarnám á 53 hekt-
ara landi araba fyrir íbúðabyggð
og lögreglustöð í Austur-Jerúsalem.
Gad al-Haq Ali Gad al-Haq, áhrifa-
mesti trúarleiðtogi Egypta, hvatti
araba og múslima út um allan heim
til að rísa öndverðir gegn eign-
arnáminu.
Marokkó hefur beðið um bráða-
fund í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna vegna málsins og er búist við
að hann verði á morgun. Sendiherra
Bandaríkjanna hjá SÞ, Madeleine
Albright, sagði í gær stjórn sína
myndu snúast gegn öllum tillögum
eða yfirlýsingum um eignarnámið
á þeim vettvangi.