Morgunblaðið - 04.06.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995 B li,
HTlflMWSkMMM A I //^/ VC/K/^AD
■ ■r W/HUL7L / O// >/'—Z7s\t\
LANDSPITALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
GEÐDEILD LANDSPITALANS
Hjúkrunarfræðingur
Næturvaktir - sumarafleysing.
Hjúkrunarfræðingur óskast til að taka nætur-
vaktir á geðdeild Landspítalans við Eiríks-
götu. Starfshlutfall 60-70%. 2-3 vaktir á
viku. Unnin þriðja hver helgi.
Upplýsingar veitir Nanna Jónasdóttir, hjúkr-
unarframkvstjóri í s. 560-2600 eða 560-2646.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk í neðangreinda
leikskóla:
Bakkaborg v/Blöndubakka, s. 557-1240.
Fáikaborg v/Fálkabakka, s. 557-8230.
Heiðarborg v/Selásbraut, s. 557-7350.
IMjálsborg v/Njálsgötu, s. 551-4860.
Seljaborg v/Tungusel, s. 557-6680.
Matartæknir óskast í leikskólann Sæborg
v/Starhaga, s. 562-3664.
Upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir
vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Ljósmóðir
Sumarafleysingar
FSÍ óskar að ráða nú þegar Ijósmóður til
sumarafleysinga. Bakvaktaskylda.
Föst staða Ijósmóður
Einnig leitar FSÍ að Ijósmóður í fasta stöðu
frá 1. júlí nk. Bakvaktaskylda skiptist milli 3
Ijósmæðra.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
456 4500 á dagvinnutíma, eða heimasíma
456 4228.
FSI er nýtt, vel búið sjúkrahús sem þjónar norðanverðum Vestfjörð-
um. Við veitum skjólstæðingum okkar alla almenna þjónustu á sviði
skurð- og lyflækninga, öldrunarlækninga, fæðingarhjálpar, slysa- og
áfallahjálpar og endurhæfingar. Starfsemin hefur verið í stöðugri
sókn á undanförnum árum. Er það fyrst og fremst að þakka metnað-
arfullu starfsfólki, nýjum og góðum tækjabúnaöi, fyrirmyndar vinnu-
aðstöðu og ánægðum viðskiptavinum. Starfsmenn FSÍ eru rúmlega
90 talsins. Fæðingar eru um 100 á ári.
SAlS
Tölvunarfræðingur
Kerfisfræðingur
Visa ísland óskar að ráða kerfisfræðing eða
tölvunarfræðing til starfa í tölvudeild sinni
sem fyrst.
Þekking á eftirtöldu æskileg: IBM-stórtölvu-
umhverfi ADABAS/NATURAL gagna-
grunnskerfi, COBOL forrjtunarmáli.
Laun samkvæmt samningum SÍB og bankanna.
Umsóknir sendist Ráðningarþjónustu
Guðna Jónssonar, Háteigsvegi 7, fyrir kl.
16 þann 9. júnf.
Guðni Tónsson
RÁDGIÖF & RÁDNINGARMÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22
Barngóð kona
óskast til að gæta árs gamals barns og hugsa
um heimili í vesturbæ. Reyklaus. Langtíma-
starf fyrir rétta manneskju.
Umsóknir berist afgreiðslu Mbl. fyrir 9. júní
merkt: „Barngóð - 15808“.
Sölumaður á tækni-
og tölvubúnaði
Tækni- og tölvudeild Heimilistækja hf. leitar
að starfsmanni til að selja tækni- og tölvu-
búnað.
Um er að ræða sölustarf í verslun okkar að
Sætúni 8 þar sem seldur er margvíslegur
tölvu- og tæknibúnaður, hugbúnaður og
rekstrarvörur.
Við leitum að áreiðanlegum og traustum ein-
stakling sem hefur reynslu af sölu á tölvu-
búnaði. Einungis kemurtil greina starfsmað-
ur með áhuga og reynslu á þessu sviði, og
sem er tilbúinn að takast á við krefjandi
sölu- og þjónustustarf.
Umsóknum skal skila til afgreiðslu Mbl. fyrir
10. júní merktar: „T&T-1929“.
TÆKNI- 0G T0LVUDEILD
Heimilistæki hf.
SÆTÚNI 8-105 REYKJAVlK • SÍMI 69 15 00 • BEINN SÍMI 69 14 00 • FAX 69 15 55
§&
Sjúkrahús Skagfirð-
inga, Sauðárkróki
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki, sár-
vantar hjúkrunarfræðing eða 3. árs hjúkrun-
arnema til starfa í júlí og ágúst.
Góð laun í boði.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
455-4000, 453-5813 eða staðgengill í síma
455-4000.
Frá Fræðslustjóra
Norðurlandsumdæmis vestra
Lausar stöður við
grunnskóla á
Norðurlandi vestra
Umsóknarfrestur um eftirtaldar stöður grunn-
skólakennara framlengist til 16. júní ’95:
Grunnskóli Siglufjarðar,
almenn kennsla, sérkennsla og heimilisfr.
Grunnskólinn Hvammstanga,
almenn kennsla á mið- og unglingastigi m.a.
íslenska, tungumál, eðlisfræði, náttúrufræði
og myndmennt.
Grunnskólinn Blönduósi,
sérkennsla.
Höfðaskóli Skagaströnd,
íþróttir, handmennt og sérkennsla.
Steinsstaðaskóli,
almenn kennsla, smíðar og sérkennsla.
Grunnskólinn Hofsósi,
íþróttir og handmennt.
Upplýsingar um lausar stöður gefa skólastjór-
ar skólanna og fræðslustjóri umdæmisins.
Umsóknir skulu sendar skólastjórum viðkom-
andi skóla.
Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis vestra,
Kvennaskólanum, 540 Blönduósi.
Símar: 452-4209 og 452-4369.
Gæðaeftirlitsmaður
Vantar vanan gæðaeftirlitsmann á erlendan
togara, sem stundar veiðar á Reykjaneshrygg.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir
10. júní, merktar: „R - 600“.
Héraðsdómur Reykjaness
Dómritari
Staða dómritara hjá Héraðsdómi Reykjaness
er laus til umsóknar.
Hæfniskröfur: Mjög góð íslensku- og rit-
vinnslukunnátta (Word for Windows) skil-
yrði. Umsækjendur mega búast við því að
gangast undir hæfnispróf.
Um er að ræða fullt starf. Ráðning verður
fljótlega.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar eingöngu
veittar á skrifstofu Liðsauka sem opin er frá
kl. 9-14.
Umsóknarfrestur er til og með 9. júní nk.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustíg 1a - 101 Reykjavik - Sími SB2135S
Staða
heilsugæslulæknis
Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslu-
stöðina á ísafirði er laus til umsóknar.
Stjórn stöðvarinnar mun eingöngu ráða til
starfans sérfræðing í heimilislækningum.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 1995 og veitist
staðan eftir nánara samkomulagi.
Afleysingalæknir
Afleysingalæknir óskast við Heilsugæslu-
stöðina í ágúst og september nk.
Upplýsingar veita Ólafur Sveinbjörnsson,
yfirlæknir HSÍ og Guðjón S. Brjánsson, fram-
kvæmdastjóri, í vs. 94-4500.
lll
ALÞJOÐA
LIFTRY GGINGARFÉLAGIÐ HF.
LÁGMÚLI5 - REYKJAVÍK
Skrifstofustarf
Alþjóða líftryggingafélagið í Reykjavík óskar
að ráða starfsmann á skrifstofu félagsins.
Félagið er með elstu starfandi líftryggingafé-
lögum á íslandi, stofnað árið 1966.
Við leitum að: manni sem hefur góða tölvu-
kunnáttu og alhliða þekkingu á skrifstofu-
störfum. Byrjunartími er 1. júlí nk.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „227“ fyrir 10. júní nk.
Hagvangur hf