Morgunblaðið - 11.06.1995, Síða 4

Morgunblaðið - 11.06.1995, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ALLIED-DOMECQ er næststærsta áfengis- fyrirtæki veraldar og eru þrettán vöruteg- undir þess á listanum yfir hundrað mest seldu áfengis- tegundir í heimi. Langmest selda tegund Allied er Ballantine’s vi- ský. Allied er fyrsta stóra áfengis- fyrirtækið sem ákveður að stofna eigið dótturfyrirtæki á íslandi og er hægt að ganga út frá því sem vísu að sú ákvörðun muni valda nokkru umróti á íslenska áfengis- markaðnum. Framkvæmdastjóri nýja fyrirtækisins verður Rúnar Björgvinsson, sem áður starfaði hjá Olgerðinni. Jan-Erik Ráiha, aðstoðarfor- stjóri Allied á Norðurlöndunum, var staddur hér í vikunni í tilefni stofnunar hins nýja fyrirtækis. Hann segir stofnun fyrirtækisins hér vera í samræmi við heildar- stefnu Allied og hafí það sama verið gert í öðrum Evrópuríkjum á síðustu árum. Telur hann fyrir- tækið eiga mikla möguleika enda margar tegundir þess með þeim söluhæstu í sínum flokki á íslandi Ráihá hefur yfírumsjón með allri starfsemi Allied á innalands- mörkuðum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Hlutverk hans er að leggja stóru línurnar varðandi markaðsáætlanir og tryggja að dótturfyrirtæki í ein- stökum ríkjum sinni hlutverki sínu sem skyldi. Torben Vedel Anders- en, sem undanfarin níu ár hefur komið til íslands sem fulltrúi Alli- ed, mun nú einbeita sér að toll- fijálsu sölunni í fríhöfninni í Kefla- vflí. Ástæðu þess að Allied-Domecq ákvað að stofna eigið fyrirtæki MATUR OG VÍN hér á landi-segir Ráihá vera þá að þetta sé stefna fyrirtækisins um allan heim. „Áður fyrr vorum við með marga umboðsmenn fyrir tegundir okkar í öllum ríkjum en fyrir nokkrum árum ákváðum við að leggja megináherslu á öflug- ustu tegundimar okkar og sam- eina þær i einn pakka. Þegar ég hóf störf hjá Allied fyrir tíu árum áttum við einungis okkar eigin fyrirtæki á Bretlandi og í Banda- ríkjunum. Nú höfum við stofnað okkar eigin fyrirtæki í öllum ríkj- um Evrópu, nema í austurhlutan- um. Það sama á við um mikilvæga markaði á borð við Kanada, Mex- íkó og Japan. í ríkjum á borð við Úkraínu erum við hins vegar enn að þróa starfsemi okkar en mun- um væntanlega stofna dótturfyr- irtæki þar þegar markaðurinn er tilbúinn fyrir það.“ Tekið tillit til aðstæðna Ráihá segir það ekki vera stefnu Allied að ráðast inn á markaði og byggja upp fyrirtæki, sem stjórnað væri af Breta eða Bandaríkja- manni. „Við viljum laga okkur að aðstæðum og hefðum á hveijum stað og láta heimamenn, sem best Allied haslar sér völl á Islandi Morgunblaðið/Golli JAN-ERIK Raihá, aðstoðarforstjóri Allied á Norðurlöndum. um. Það er erfíðara að spá fyrir um hvað gerast mun með sterku drykkina og ég held að sala á þeim verði ávallt háð sérstöku leyfí. Það er erfítt að spá fyrir um hvaða áhrif þetta mun hafa á Noreg og ísland. Ég held að hlut- imir muni ganga hægar fyrir sig varðandi ísland, þar sem að þið hafíð ekki bein landamæri að öðru ríki. Þegar í dag eru Norðmenn farnir að fara yfír til Svíþjóðar vegna innkaupa á ekki bara áfengi heldur fjölmörgum vörum. Norð- menn munu verða af miklum tekj- um ef allir gera innkaup sín í Svíþjóð og því er líklegt að ein- hveijar breytingar verði gerðar.“ Innan skamms verður innflutn- ingur og dreifíng á heildsölustigi gefínn fijáls á íslandi og segir Ráihá að neytendur muni brátt verða varir við kosti þess. Nú sé mjög erfítt að taka inn tegundir, sem einungis seljast í litlu magni, t.d. vönduð maltviský. í framtíð- inni verði hægt að flytja þessar tegundir inn í gámum ásamt öðru- m og því komi þær hingað til lands á góðu verði. Það sama eigi við um vín, en meðal þeirra vínfyrir- tækja sem fyrirtækið flytur inn eru Calvet, Gallo, Lanson og Marques de Arienzo. Torben Vedel Andersen, sem sér um fríhafnarsölu Allied á Norðurlöndunum, segist telja að Keflavík eigi einnig mikla mögu- leika í framtíðinni. Þróunin sé sú að fólk vilji ekki bara liggja á strönd í fríinu heldur fara í spenn- andi ferðir. Það mun auka ferða- mannastraum hingað til lands og þar með fríhafnarsölu. Þá séu margir, jafnt í Evrópu sem Banda- ríkjunum, að átta sig á því að það sé sniðugur kostur að fljúga með Flugleiðum yfir Atlantshafið og eiga jafnvel stutta viðdvöl á ís- landi. „Sala í Keflavík á því eftir að aukast til muna á næstu árum,“ segir Andersen. þekkja til aðstæðna, sjá um málin í samstarfí við okkur. Uppbygging Allied er á þann veg að það er hlutverk einstakra framleiðanda, s.s. Courvoisier, Ballantine’s eða Beefeater að móta þá stefnu sem þeir telja best henta viðkomandi tegund. Okkar hlutverk er að tryggja að á íslenska markaðnum sé markaðsmálum sinnt á besta mögulega hátt. Við teljum okkur hafa sett saman hóp ungra, kraf- mikilla starfsmanna sem muni auka veg okkar hér á íslandi." Hann segir að markmið fyrir- tækisins sé að selja vandaðar gæðategundir en ekki ódýra magnvöru. Aðaláherslan verði á stærstu tegundir Allied s.s. Ball- antine’s, Beefeater, Jack Daniels, Kahlúa, Harvey’s, Courvoisier og Gallo. Þá sé ekki ólíklegt að reynt verði að efla markaðssetningu á Borzoi-vodka, þar sem helmingur allrar sölu af sterku áfengi á ís- lenska markaðnum sé sala á vodka. „Við munum nálgast mark- aðinn á nýjan hátt og reyna að koma sem mest til móts við þarfír viðskiptavina og neytenda. Éf við sjáum tískubylgju vera að koma upp í London eða París getum við með þessu fyrirkomulagi fleytt henni hingað til lands fyrr en ella. Á sama hátt þá tryggir þetta að ef einhver tilraun mistekst t.d. í Kaupmannahöfn þá þurfum við ekki að endurtaka sömu mistökin í Reykjavík," segir Raihá. Opnari markaður Aðspurður um hvernig hann sjái fyrir sér þróunina í áfengis- sölumálum á Norðuriöndum á næstu árum segir Ráihá að mark- aðurinn sé að verða miklu opnari en áður vegna Evrópusamrunans. Ríkiseinokun á öllu öðru en smá- sölu er horfín í Finnlandi og Sví- þjóð og það sama mun brátt ger- ast í Noregi og á íslandi. Þá telur hann að einkasalan í smásölu muni heyra sögunni til í Finnlandi og Svíþjóð innan fimm ára enda þurfí bæði ríkin bráðlega að semja upp á nýtt við ESB um þessi mál. „Fyrsta skrefið verður að leyfa sölu á léttvíni í matvörubúð- Sú ákvörðun Allied-Domecq að stofna eig- ið fyrirtæki á Islandi á vafalítið eftir að hafa mikil áhrif. Velta margir því fyrir sér hvort önnur stórfyrirtæki á þessu sviði muni fylgja í kjölfarið. Foster’s kominn til * Islands Nýr seðill á Hótel Borg NÝR matseðill var tekinn í gagnið á Hótel Borg í þess- ari viku og er á honum að finna flesta þá rétti, sem notið hafa mestra vinsælda á síðustu misserum. Meðal forrétta á kvöld- verðarseðli má nefna „reykt- an lax og krabbakjöt í krydd- jurtasósu með rauðbeðu „vinaigrette“, nori og salati" (1.190 kr.) og „engifer- og appelsínumarineraðan kalk- ún með stökku salati og sól- þurrkuðum tómötum” (950 kr.). Meðal kjötrétta má nefna „príme-rib-steik með saitbök- uðum skalotlauk og ætiþistU“ (1.790 kr.), „flntskorið pasta með steiktri önd, sól- þurrkuðum tómötum, furu- hnetum og jalapenopipar" (1.390 kr.) og sinnepsmarin- eraða hjúÚingabringu með hýðishrísgrjónum, flnt skornu grænmeti og hun- angssojasósu" (1.690 kr.). VIFILFELL gekk í vikunni frá samningi um umboðssölu á hinum ástralska Foster’s bjór. Er stefnt að því að hafinn verði sala á honum á veitingastöðum og krám innan skamms og að hann fari í reynslusölu í verslunum ÁTVR á næsta ári. Ástralir hafa alla tíð verið miklir bjórneyt- endur og þó að rauðvínin og hvítvínin frá Ástralíu hafa stolið senunni undanfarin ár, þá hefur bjóriðnaður þeirra ekki síður spjar- að sig vel á alþjóðavettvangi. Foster’s er mest seldi bjór Ástralíu og er fyrirtækið fimmsti stærsti bjórframleiðandi veraldar. Á Bretlandi og á írlandi er Fost- er’s næstmest selda bjórtegundin. Hefur fyr- irtækið ekki síst vakið mikla athygli á sér með miklum stuðningi við Formula 1-kapp- akstur. Markmið Foster’s hér á íslandi er að ná 5% markaðshlutdeild strax á fyrsta árinu. En hvað er það sem gerir ástralskan bjór frábrugðin öðrum? Þekktastur er hann Iík- lega fyrir að vera einstaklega ferskur og svalandi, sem kemur sér ekki illa í hinu sjóð- heita loftslagi Ástralíu. Sá Foster’s, sem seld- ur verður hér, er bruggaður í Englandi en úr áströlsku geri og humlum. Hitastigið við geijun er nokkuð hærra en venjan er í Evr- Morgunblaðið/Sverrir ANDREW Hall, markaðsstjóri Foster’s í Evr- ópu, var meðal þeirra fyrstu til að bragða á Foster’s á íslandi. ópu og humlunum er bætt út í síðar, sem leiðir til þess að bjórinn verður ekki eins bitur og hefðbundnir evrópskir bjórar. Niðurstaðan er mjög þægilegur og auð- drekkanlegur bjór sem er að sama skapi ekki jafngefandi og bestu bjórar t.d. Þýska- lands og Irlands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.