Morgunblaðið - 11.06.1995, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 1995 B 9
MANNLIFSSTRAUMAR
VERALDARVAFSTUR /Er löngu úrelt tannvibgeróartœkni enn í notkun?
Rótaifylling
— nýma- og
hjartasjúkdómar
VISTKERFITANNROTAR
Tannbeinsgangur
Eiturefni
^ ,.lótvamareind
/ Mótvamareind
vinnur á eiturefni
lendur Haraldsson og Karlis Osis
gerðu merkilega rannsókn á þessu
fyrirbæri í Bandaríkjunum og á
Indlandi sem þeir birtu í bókinni
Sýnir á dánarbeði (Skuggsjá,
1979). Viðbrögð þeirra sem eru
að deyja eru nefnilega oft friður,
gleði og trúartilfínning. Aðspurðir
segjast þeir sjá sendiboða frá öðr-
um heimi sem eru komnir til að
sækja þá og fylgja þeim í annan
heim.
Þetta má kalla hin fimm rök
fyrir lífi eftir dauðann. En er
ástæða til að hegða sér vel vegna
möguleikans á eilífu lífi? Svarið
er e.t.v háð spumingunni um hvort
hegðun manna í þessu lífi hafi
áhrif á afdrif þeirra í næsta iífi.
Svar kristninnar er að hluta til
jákvætt „Allt sem þér gjörðuð ein-
um minna minnstu bræðra, það
hafið þér gjört mér.“ (Matt.
25.40). Og „Hvað sem þér bindið
á jörðu, mun bundið á himni, og
hvað sem þér leysið á jörðu, mun
leyst á himni.“ (Matt. 18.18).
En þetta dugar bara skammt
því það er skýrt tekið fram að
menn réttlætist ekki af verkum
sínum. Sá sem hlýðir lögmálum
og reglum er nefnilega ekkert
betur settur en sá sem gerir það
ekki. Líkurnar á því að öðlast ei-
líft líf fara ekki eftir hegðuninni
samkvæmt kristinni siðfræði held-
ur trúnni og samúðinni í garð
annarra: „Verði ykkur að trú ykk-
ar.“ (Matt. 9. 29). „Vertu hug-
hraust, dóttir, trú þín hefur bjarg-
að þér.“ (Matt. 9. 22).
Það þýðir því lítið að ætla sér
að safna prikum á himni með góð-
verkum sínum. Og ekki heldur að
reyna að vera góður vegna vonar-
innar um að öðlast eilíft líf. Það
er ástæðulaust að spá mikið í lífið
eftir dauðann, besta ráðið er nefni-
lega að safna fjársjóðum á himni
án þess að gera sér grein fyrir því.
Speki: Ekkert sigrar dauðann,
ekkert nema trúin á sigur.
NÚ ER flestum orðið það ljóst,
að tannlæknar eru ekki sammála
um amalgam tannfyllingar vegna
eiturverkana sem þær geta haft í
för með sér annars staðar í líkam-
anum og nú er komið að rótarfyll-
ingunum: Geta þær haft sömu eit-
urverkanir í þýðingarmiklum líf-
færum?
UNGUR vísindamaður, Hal A.
Huggins, skrifar í blaðið
Acres, sem gefið er út í Kansas
City, um þetta mál. Hann skoðar
málið allt til ársins 1920 þar
vestra: Þá kemur
fram í dagsljósið
rannsókn Westons
Price, fyrrverandi
forstjóra rann-
sóknarstofnunar
Bandaríska tann-
læknafélagsins.
Price eyddi 35
árum ævi sinnar í
rannsóknir á hjarta-, nýrna-, leg-,
tauga- og kritlasjúkdómum, sem
orsökuðust af eiturefnum með upp-
tök í rótarfylltum tönnum. Niður-
stöður hans sýndu fram á það að
visst hlutfall fólks er viðkvæmt
fyrir eiturefnum frá þessum dauðu
tönnum.
Væru rótfylltar tennur fjarlægð-
ar úr fólki með hjarta- og nýrna-
sjúkdóma fékkst oft bati. Hann
setti slíkar tennur undir húðina á
kanínum með skurðaaðgerð, en þær
hafa svipað mótvamarkefí og
mannslíkaminn. Við það dó kanínan
innan tveggja daga. Hann endurtók
tilraunina með sömu tönnina að
meðaltali á 30 kanínum og allar
dóu þær á 12 til 48 tímum.
Auðvitað vöktu þessar niðurstöð-
ur mikla ólgu í tannlæknastéttinni
(líkt og amalgam umræðan nú).
Innan skamms tíma kom fram ann-
ar vísindamaður sem fékk þveröf-
ugar niðurstöður (eins og er að
gerast nú ...). Sá var Perce R.
Howe og niðurstöður hans, sem nú
em 75 ára gamlar, gilda enn þrátt
fyrir rannsóknir Price í 35 ár.
Price skoðaði tilraunir Howe ná-
kvæmlega og sá skjótlega hvar
hnífurinn stóð i kúnni: Howe hafði
aðeins sett mikið magn af
streptococcus bakteríum í sínar
kanínur, sem allar lifðu tilraunina
af. Þetta em bakten'urnar sem
sýkja tennur og eru loftsæknar.
Við rótarfyllingu lokast þessar
bakteríur inni í hárfínum göngum
inni í tönninni og við það skeður
ný þróun: Þær aðlaga sig þessum
„loftlausu" aðstæðum og breyta
þannig um starfsemi. í stað lítið
skaðlegra úrgangsefna, sem fylgdi
þeim fyrr, framleiða þær nú eitur-
efni. Ónæmiskerfí okkar ræður ekki
við að stoppa þessa framleiðslu þó
að mest af henni geti hreinsast í
burtu, þá verður alltaf eitthvað af
henni eftir sem berst í ýmis líffæri.
Howe-skýrslan, sem tannlækna-
vísindi byggja á enn þann dag í
dag, hliðrar sér algerlega við þess-
um þætti málsins, en skoðar ein-
göngu venjulegu loftsæknu gerð
bakteríunnar. Með því að græða
sömu tönnina, sem hafði verið rót-
fyllt, í hveija kanínuna eftir aðra
og með því að staðfesta að þær dóu
allar úr sama sjúkdóminum hafði
Price sannað sitt mál.
Hvað veldur svo því, að ekki
nærri því allir með rótarfyllingu í
tönn(um) fá þessa sjúkdóma, sem
áður eru nefndir. Eftir rannsókn á
140 þúsund atriðum í 1.200 sjúkl-
ingum taldi Price svarið vera erfða-
fræðilegs eðlis. Hátt hlutfall á
hjarta- og nýrnasjúkdómum, sykur-
sýki eða sjúkdómum sem orsaka
ófrjósemi í ættum benda viðkom-
andi á að fjarlægja rótfylltar tennur
úr sér og sínum.
Hvað um hina, sem samt þola
ekki eiturefnin frá rótfylltri tönn,
þrátt fyrir „sterkar" ættir? Price
taldi að streituáhrif, eins og frá
áfengisneyslu, lyfja- og eiturlyfja-
neyslu og kaffídrykkju, en einnig
flensa og meðganga bams drægju
það mikið úr viðnámi líkamans, að
þá fæm þessi eiturefni að virka á
ný. Önnur streitueinkenni, sem geta
valdið þessu, em sorg, áhyggjur,
kæling, hungur og smit af ein-
hveiju tagi.
Hal A. Huggins telur það vanda-
verk að fjarlægja rótfylltar tennur
svo að árangurinn verði sá sem
eftir var leitað.
Öll þessi frásögn sannar okkur
einu sinni enn hve annarleg sjónar-
mið tengd vanafestu, heiðri ein-
hverrar stéttar og hugmyndaleysi
geta oft kæft vísindarannsóknir,
sem umbylta viðteknum venjum,
öllum til skaða. Eða eins og mað-
urinn sagði: Segðu mér hver borg-
aði fyrir rannsókn vísindastofnun-
arinnar og ég skal segja þér hver
niðurstaðan verður?
Námskeið í söng, leiklist og tjáningu
Vilja ýta undir frum-
kvæði hjá unglingum
Morgunblaðið/RAX
KRISTBJÖRG Karí Sólmundsdóttir og Margrét Sigurðardóttir.
Landsbóka-
safninu
færð gömul
íslandskort
SAMBAND íslcnskra sveitarfé-
laga minnist 50 ára afmælis sam-
bandsins um helgina. Af því tilefni
gefur sambandið Landsbókasafni
- Háskólabókasafni 12 gömul ís-
landskort úr safni Kjaitans Gunn-
arssonar apótekara. I tilefni af-
mælisins verður einnig gefin út
saga sambandsins samin af þeim
Lýð Björnssyni og Óskari Guð-
mundssyni.
Það var í samráði við Einar Sig-
urðsson yfirbókavörð og Kristínu
Bragadóttur, forstöðumann þjóð-
deildar, sem ákveðið var að gefa
safninu íslandskortin segir í frétt
frá sambandinu. Kjartan hefur
safnað kortunum víða erlendis
einkum í London, París og Kaup-
mannahöfn og er elsta kortið frá
árinu 1596 og það yngsta frá árinu
1825.
Fram kemur að íslands sé getið
á landakortum allt frá árinu 1000
e.Kr. en að lögun þess hafi verið
í litlu samræmi við raunveruleik-
ann fyrr en Guðbrandur biskup
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
KJARTAN Gunnarsson apó-
tekari, sem á stórt safn Is-
landskorta, hefur safnað
kortum víða erlendis, einkum
í London, París og Kaup-
mannahöfn.
Þorláksson gaf út kort árið 1590.
Það kort birtist í kortasafni Abra-
hams Orteliusar, Theatrium orbis
Terrarum. Kortagjöfin er liður í
að koma upp sérstakri kortadeild
í þjóðdeild safnsins og eiga þau
að auðvelda fræðimönnum rann-
sóknir á sögu þjóðarinnar, landa-
og náttúrufræði og tengslum við
aðrar þjóðir.
HINN 19. júní næstkomandi hefst
sex vikna námskeið fyrir unglinga
á aldrinum 11-13 ára og 14-16
ára, þar sem kennd verða undir-
stöðuatriði í söng, leiklist og al-
mennri tjáningu. Það eru Krist-
björg Karí Sólmundsdóttir og
Margrét Sigurðardóttir sem
standa fyrir námskeiðinu og verða
jafnframt í hlutverki leiðbeinenda.
„Hugmyndin kviknaði þegar við
vorum í vandræðum með vinnu í
sumar og vorum farnar að fylla
út umsóknir þar sem við kunnum
lítið eða ekkert fyrir okkur,“ segir
Margrét. „Þá fórum við að hugsa
okkar gang, hvort við gætum ekki
nýtt hæfíleika okkar á einhvern
hátt,“ bætir Kristbjörg við.
Báðar eru þær komnar langt í
söng- og tónlistarnámi og auk
þess hafa þær heilmikla reynslu
af því að standa á sviði og syngja
eða leika. Þær vöktu athygli á sín-
um tíma þegar þær sungu saman
í hljómsveitinni Yijunum, bæði
fyrir fallegan söng og lífiega sviðs-
framkomu. Þá fór Margrét með
stórt hlutverk í söngleiknum Hár-
inu, sem naut mikilla vinsælda í
fyrra.
Líflegt og skemmtilegt
Fyrirkomulagi námskeiðsins
verður þannig háttað að fyrstu
þijár vikurnar fer fram kennsla í
undirstöðuatriðum í söng og tján-
ingu og auk þess verður farið í
gegnum framsögn og spuna. Síð-
ari þijár vikurnar verður svo unn-
ið að uppsetningu söngleiks í
Tónabæ undir leikstjórn Magnús-
ar Geirs Þórðarsonar. Auk hans
munu fleiri góðir gestir koma að
námskeiðinu eins og Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Baltasar Korm-
ákur og Páll Óskar Hjálmtýsson.
„Við stefnum á að hafa þetta
líflegt og skemmtilegt," segir
Kristbjörg, en námskeiðið verður
haldið í samvinnu við Reykjavík-
urborg. „Markmið námskeiðsins
er ekki aðeins að kenna söng og
leiklist. Við viljum efla sjálfs-
traust og frumkvæði hjá ungling-
um. Síðan höfum við auðvitað
gaman að þessu.“ En verður þetta
árviss viðburður? „Það kemur
bara í ljós,“ segir Margrét og
brosir. „Ef þetta gengur vel og
við verðum ekki orðnar heims-
frægar næsta.sumar þá er aldrei
að vita.“
Tryggmgaskólanum slitið
TRYGGINGASKÓLANUM var slitið
miðvikudaginn 7. júní. Fjörutíu og
tveir nemendur luku námi að þessu
sinni.
Námi í Tryggingaskólanum, sem
er í eigu Sambands íslenskra trygg-
ingafélaga, er skipt í grunnnám ann-
ars vegar og hins vegar í sémám þar
sem nemendur fá kennslu á afmörk-
uðum sviðum vátrygginga og vá-
tryggingastarfsemi. Reynt er að haga
námi og þróun námskeiða í samræmi
við það að búist er við að samkeppni
um tryggingar aukist á næstu árum.
Fjórir nemendur hlutu verðlaun
fyrir góðan árangur á prófum: Lára
Jóhannsdóttir og Ásmundur Jónsson
sem starfa hjá Sjóvá-Almennum hf.,
Daði Friðriksson hjá Alþjóða líftrygg-
jngafélaginu hf. og Amgrímur Bald-
ursson hjá Tryggingu hf.
Alls hafa 895 prófskírteini verið
gefín út frá skólanum frá því hann
tók til starfa fyrir 33 ámm.