Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ1995 SKOÐUIM MORGUNBLAÐIÐ VINNU- OG STRESSFÍKILL fflNN FYRIRMYNDAR ÞJÓÐFÉLAGSÞEGN FÍKILLINN er á stöðugum flótta frá sjálfum sér, frá niðurbældum tilfínningum sem hann meinar að koma upp á yfirborðið. Vinnufíkill og fjölskylda hans falla mjög vel inn í kröfur þjóðfé- lagsins, segir Bima Smith, og erf- itt að viðurkenna fyrir þá sem eiga í hlut. „Varla betur á sig kominn en áfengissjúklingur “ Vinnu- og stressfíkill nær upp endorfini á kostnað annarra og ekkert einkamál þess sem á í hlut, hann er varla betur á sig kominn en áfengissjúklingur. Og hugsan- lega deyja fleiri árlega og veikjast af of mikilli vinnu og streitu en úr áfengisdrykkju og hvað fjöl- skyldu hans varðar dregur hann alla Qölskylduna með sér niður í meðvirkni og út koma vanheilir einstaklingar sem án efa eru flæktir í vef eins konar fíknar- mynsturs eða -ferlis. Ég ætla ekki að fara ítarlega út í það hvaða áhrif innilokaður sársauki, vanlíð- an og streita hafa á heilsuna, ég reikna með að okkur sé það öllum ljóst að hún hefur lamandi áhrif á orkuflæði líkamans og getur leitt af sér hættulega sjúkdóma. Ég ætla frekar að fjalla um möguleg- ar orsakir þessa mynsturs eða sjúkdóms, sem kallast vinnufíkn. Bandaríkjamenn eru komnir hvað lengst með að rannsaka þetta mynstur og vilja leggja það við hlið áfengissýki og kalla vinnusýki og að ekki sé hægt að komast út úr því nema að fara í einhvers konar meðferð eða sjálfsskoðun. En það er mun erfiðara fyrir vinnufíkil og aðstandendur hans að átta sig á og viðurkenna þetta alvarlega ásand sem vinnufíknin er, en fyrir áfengissjúkling og aðstandendur hans. Því áfengis- sýkin er jú miklu áþreifanlegri og hjálpin aðgengilegri. „Hinn fyrirmyndar þjóðfélagsþegn“ En skoðum þennan fyrirmyndar þjóðfélagsþegn, sem stendur sig hvarvetna með sóma, örlítið nán- ar. Það getur hvort sem er verið kona eða karl, en við skulum taka dæmi um eiginmann. Yfírleitt hagræðir hann hlutun- um þannig að hann verður að vinna mikið. Hleður endalaust upp skuldum sem hann kemst ekki út úr, segist ekki hafa efni á að taka sér frí. Ef hann tekur sér frí gæt- ir hann þess að hafa nóg fyrir stafni í fríinu. Ef hann fær sér áhugamál verður það að vinnu en ekki stund til ánægju og slökunar. Hann vinnur frekar að niðurrifi líkama síns en uppbyggingu, borð- ar óhollan mat, mat sem nærir sálina frekar en líkamann, ef hann fer í líkamsrækt snýst hún yfír- leitt yfír í andhverfu sína: ofreynslu á líkamann án slökunar. Gerist yfírleitt frétta- og sjón- varpsfíkill, horfír annaðhvort á spennumyndir eða kappleiki, þar sem endorfin líkamans er þanið til hins ítrasta, eða horfír á inni- haldslausar myndir, þar sem ekki er tekist á við tilfinningar, því það hrærir upp í hans eigin tilfinningum. Hann kemur yfírleitt seint heim úr vinnu, tekur gjarnan vinnuna með sér heim. Er allt- af boðinn og búinn til að hjálpa öðrum. Hvers kyns þeytingur á vel við hann (þó hann sé heima er hann ekki til staðar fyrir fjölskyldu sína, er yf- irleitt of fjarri sjálfum sér til að geta gefið öðrum af sér). Ef hann er heima án athafna kemur hann gjaman óróleika á andrúmsloftið með Hina sönnu gleði og hamingu fínnur þú hvergi annars staðar, segir Birna Smith, en í þínu eigin hjarta. hegðun sinni og stressar aðra upp í kringum sig, sakar aðra um leti. Hann leitar að hamingju í stöðu- tákni og efnisleg gæði verða að- alatriðið og lifir lífínu án þess að vera raunverulega að lifa því og er yfírleitt í litlum tengslum við skapara sinn. Vinnufíkillinn á sér yfirleitt nokkrar hliðarfíknir, svo sem: reykingar, drykkju, mat, skemmtanir, framhjáhald, svo eitt- hvað sé nefnt. Hverjar hliðarfíkn- imar em er mjög einstaklings- bundið. Hvað ungur nemur gamall temur Þeir sem hafa rannsakað þetta fíknarmynstur hvað mest, vilja meina að þessi flótti stafi af því að þetta séu yfírleitt miklar tilfínn- ingaverur, sem gætu hafa lent í einhverskonar áföllum sem börn, þó þarf það alls ekki að vera. Þeir gætu einfaldlega hafa verið Iátnir bæla tilfínningar sínar niður snemma í bamæsku, aldir upp hjá tilfínningalokuðum og yfirborðs- kenndum foreldrum sem voru ekki til staðar fyrir þá tilfinningalega og ekki í stakk búnir til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Þeir máttu hvorki gráta, sýna reiði sína, vonbrigði, eða þarfír. Sektarkennd var oft eina tilfínningin sem þeir máttu hafa. Þeir loka þá fyrir að tjá tilfínning- ar sínar opinskátt. Þeir fínna þeim annan farveg eða flóttaleið. Flóttaleiðin getur verið hver sem er, en í þessu tilfelli verður vinnan og annað amstur aðalatriðið. Þeir verða yfírborðskenndir og reyna stöðugt að standa sig í þjóðfélag- inu, þ.e. út á við. Þeir hirða ekki um að sinna eigin þörfum, vegna þess að þörfum þeirra var ekki sinnt. Ástæðan fyrir þessum flótta er sú að um leið og slaknar á at- inu, s.s. í hvíld og slökun, fara Birna Smith tilfinningar að leita upp á yfirborðið, nið- urbældur gamall sársauki, sem aldrei hefur verið hlúð að, innibyrgð vanlíðan eða óuppgerð mál leita fram í dagsljós- ið. Maður í þessu ástandi tjáir sig rök- rænt, þ.e. út frá höf- uðstöðinni en ekki hjartastöðinni og get- ur að sjálfsögðu ekki gefíð fjölskyldu sinni þá tilfinningalegu umönnun sem hún þarfnast og hún verð- ur óhjákvæmilega meðvirk, líkt og þar sem áfengissjúklingur á í hlut, allt snýst um að þóknast fíklinum í von um betri tíð, þetta er jú allt þeim að kenna. Meðvirka eiginkonan Hin tilfínningalega vanrækta eiginkona, fellur engu að síður vel inn í íslenskt-þjóðfélag. Yfírleitt skortir hana ekkert að annarra mati og sé hún meðvirk, hefur hún sérstakt lag á að láta líta út sem svo sé ekki. Hún hleður gjama upp varnarvegg sem hún felur sig á bak við og virkar jákvæð út á við. Talar ekki um sínar eigin til- finningar né líðan, verður yfír- borðskennd, veltir sér frekar upp úr vandamálum annarra en sínum eigin, keppist við að vera hinn fullkomni þjóðfélagsþegn sem hvergi fellur skuggi á. Hugsar um aðra á áráttukenndan hátt, hugsar betur um heimilið en sjálfa sig, sinnir ekki þörfum sínum, en sekk- ur sér niður í óþarfa hreingeming- ar, matseld og bakstur, er víðs- fjarri sjálfri sér, verður fíkninni sjálf að bráð, hellir sér út í vinnu, ofát, reykingar, áfengi, skemmt- anir, kaup, blaður, sjónvarpsgláp eða hvað sem er á áráttukenndan hátt. Fíkn virkar eins og deyfílyf á sálina og ef við hættum t.d. að reykja er sárið ódeyft, þannig að það er ekki beint gott að hætta bara að reykja og drekka og gera ekkert annað. Best er að leita að orsökinni með það að markmiði að geta hætt þessari fíkn svo hún flytjist ekki bara yfír á aðra fíkn. Það má þó ekki misskilja þetta þannig að allir sem fá sér vínsopa, horfa á sjónvarpið, fara í búðarráp séu að deyfa vanlíðan. Þeir gætu verið að örva gleði sína. Þetta em sömu lyfin. Þau deyfa vanlíðan en örva vellíðan. Spumingin er bara hvort um áráttuhegðun sé að ræða. Blóraböggullinn Yfirleitt fínnur fíkillinn ein- hvern fjölskyldumeðlim sem söku- dólg, einhvern sem liggur vel við höggi. Það getur verið hver sem er á heimilinu. Ef um barn er að ræða verður það oft reiði föður síns og kröfum að bráð, hugmynd- ir þess era heimskulegar og lang- anir vitlausar. Það er sama hvað það gerir það er ekkert í lagi, það er stöðugt gefíð í skyn að það sé ekki í lagi og það síast inn í undir- meðvitund þess og það fer að hegða sér eftir því sem heilaforrit þess meðtekur. í heilaforriti þess er það ómögulegt og fer að hegða sér sem slíkt, nær oft athyglinni með því að vera til vandræða og tekur þar með athyglina af hinu raunveralega vandamáli á heimil- inu. Það fær stöðugt að fínna að það sé ekki til nógur tími fyrir það, tími foreldranna meira virði en það sjálft. Bamið á oft erfitt með að einbeita sér, verður utan við sig, gengur yfirleitt ekki vel í skóla, er uppfullt af skömm, reiði og sorg, sem það bælir með sér eða flýr svo aftur á áráttukenndan hátt, vítahringurinn hafínn: áfengi, sígarettur, spennumyndir, sælgætisát, skemmtanir eða árás- argirni verða oft aðal tómstunda- iðja þess. Áfengis- og vímuefna- neysla unglinga og að horfa á óhuggulegar spennumyndir er því afleiðing en ekki orsök að mínu mati. Foreldrar era oft of uppteknir við áráttuhegðun sína til þess að geta gefíð sér tíma til að sýna börnum sínum þann aga sem böm þurfa í þessum freistingarfulla heimi í dag. Ef böm eiga að vaxa og dafna sem heilsteyptir einstakl- ingar þurfa þau að fínna að þau era einhvers virði. Þarfír þeirra og langanir virtar, þó þær séu öðruvísi en annarra í fjölskyld- unni. Ef þau finna að einhver ber virðingu fyrir þeim eins og þau era, bera þau virðingu fyrir sjálf- um sér og öðram. Að græða særða barnið hið innra Öll erum við fullkomlega meðvit- uð um það að það er eitthvað mikið að í þessu velferðarþjóðfé- lagi okkar, en viljum gjarnan kenna einhveijum öðram um en okkur sjálfum, skellum skuldinni gjarnan á þjóðfélagið, en áttum okkur ekki á því að það erum við sem eram þjóðfélagið, þú og ég, lesandi minn góður. Áð kenna sjónvarpinu, áfenginu og öðrum vímuefnum um, er að fría sjálfan sig ábyrgð sem góðir uppalendur og er vítavert kæraleysi að mínu mati. Hjónaskilnaður, ótímabær veik- indi, andlát, ungt fólk fremur glæpi, fólk í blóma lífsins sér ekk- ert annað en svartnættið og tekur sitt eigið líf, vill hverfa til fegurri heimkynna, þar sem sálin er metin að verðleikum. Af hveiju fremja svo margir íslendingar sjálfsmorð? Af hveiju fremja karlmenn oftar sjálfsmorð en konur? Hafa þeir þurft að bæla tilfínningar sínar frekar niður? Era meiri kröfur gerðar til þeirra? Era þeir kannski ekki sterkara kynið þegar allt kemur til alls? Við erum öll að flýja sært barns- eðli okkar, hvert á okkar máta og mismikið að vísu, því við höfum mismikinn sársauka að flýja og það er ekki meining mín að ásaka neina foreldra, við erum öll sek og gerðum ekki betur en við gát- um. Það sem skiptir máli er að við skiljum ábyrgð okkar sem for- eldrar og reynum að græða hið særða barnseðli okkar, svo að við getum grætt það sem við höfum þegar sært hjá okkar eigin böm- um. Vítahringurinn mun rofna, friður og skilningur mun ríkja á milli einstaklinga - fjöl- skyldna - í ríkisstjórn og að lokum milli ríkja: Friður mun loks ríkja á hnettinum Jörð. Það era margar leiðir til þess að græða hið særða barn hið innra. Það era margir kærleiksríkir aðilar sem fást við að hjálpa fólki til sjálfskönnunar allt í kringum okkur. Það sem hentar einum hentar kannski ekki öðrum: I húsi föðurins era margar vistarverur, leitið og þér munuð fínna, biðjið og þér munuð bæn- heyrðir verða, sagði Kristur forð- um og þessar setningar era í fullu gildi enn í dag. Eitt get ég þó ráðlagt sem hentar öllum: Farðu að sinna og hlúa að barninu hið innra með þér, elskaðu það og umvefðu, fínndu þarfír þess og fullnægðu þeim, þá átt þú auðveld- ara með að elska og umvefja aðra. Staldraðu við og leyfðu þér að finna til, gráturinn er meðal sem hreinsar og græðir. Kyrrðu hug- ann og hlustaðu á viskuna sem býr innra með þér, engin viska er henni fremri. Hina sönnu gleði og hamingju fínnur þú hvergi annars staðar en í þínu eigin hjarta, sama hvað þú leitar og hvaða meðal sem er notað. Sá sem hyggur á ferðalag sjálfs- könnunar, þarf á mikíum styrk að halda og bið ég algóðan Guð um styrk, þor og ljós honum til handa. Að lokum ætla ég að benda á nokkrar bækur sem geta verið hjálplegar: Working ourselves to death, Work Additiction, Healing the Child within, Heimkoma og Aldrei aftur meðvirkni. Birna Smith vinnursem sjálfstæður meðferðaraðili

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.