Morgunblaðið - 11.06.1995, Qupperneq 24
24 B SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N tf AUGL YSINGAR
Tölvusímaskráin '95
Skráningarfólk í tölvuskráningu óskast. Ná-
kvæm, hröð og samviskusöm vinnubrögð
skilyrði, auk nokkurra ára reynslu við tölvu-
skráningu. Sölufólk með mikla reynslu ósk-
ast einnig til að selja Tölvusímaskrána.
Tilboð óskast send á afgreiðslu Mbl. merkt:
„T - 16164“ fyrir 16. júní nk.
Matreiðslumaður
og þjónn
Óskum eftir að ráða matreiðslumann til
afleysinga í sumarfríum, einnig vantar fram-
reiðslumann til framtíðarstarfa íveitingasal.
Upplýsingar veitir hótelstjóri.
Hótel Isafjörður
Sími456 4111.
Framhaldsskólinn
íVestmannaeyjum
Lausar stöður
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kenn-
arastöður í dönsku, íslensku, málmsmíði,
rafmagnsfræði, stærðfræði, sérgreinum
sjúkraliða, sérgreinum vélstjóra og tölvu-
fræði er framlengdur til 18. júní.
Skólameistari.
Leikskólakennara
vantar á leikskólann Lönguhóla og Óla prik
í Hornafirði.
Hornafjarðarbær útvegar húsnæði og greiðir
flutningskostnað.
Upplýsingar gefa leikskólastjóri Lönguhóla í
síma 478 1315 og leikskólastjóri Óla priks í
síma 478 2075 og félagsmálastjóri í'síma
478 1500.
Bókhaldsaðstoð og
innheimta
Traust fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir starfs-
manni til aðstoðar í bókhaldi og til innheimtu-
starfa.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu
af tölvubókhaldi og hafi góða framkomu.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist afgreiðslu Mbl. merktar: „Aðstoð -
15815“ fyrir 23. júlí nk.
Öllum umsóknum verður svarað og gögn
endursend.
Þelamerkurskóli
Kennarar - kennarar
Kennara vantar að Þelamerkurskóla.
Meðal kennslugreina:
Kennsla yngri barna, heimilisfræði og smíðar.
Ódýrt og gott húsnæði á staðnum.
Þelamerkurskóli er í Hörgárdal í aöeins 10 km fjarlægð frá
Akureyri. Nemendur eru u.þ.b. 100, allir í heimanakstri. Flestir
kennarar búa á staðnum. Aðstaða öll er hin besta m.a. ný og
glæsileg íþróttaaðstaða.
Við leitum að áhugasömu fólki, sem hentar
vel að búa í fámennu samfélagi.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
462 17 72 eða 462 65 55.
Afgreiðsla
Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa hjá
póstverslun hálfan daginn, eftir hádegi.
Góð enskukunnátta áskilin.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir
15. júní, merktar: „F - 15060“.
„Au pair“
íslensk-ensk fjölskylda, búsett í Brussel, ósk-
ar eftir ungri manneskju til að gæta tveggja
drengja (4 ára og 1 árs) og til léttra heimilis-
starfa frá og með september nk.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af börnum,
vera sjálfstæð, kunna eða hafa mikinn áhuga
á frönsku og má ekki reykja.
Þeir, sem áhuga hafa, skrifi til afgreiðslu
Mbl. fyrir 1. júlí nk., merkt: „Börn - 15810“.
Fasteignasala -
laus störf
Sölumaður - Skemmtilegt og lifandi starf,
sem krefst frumkvæðis og dugnaðar.
Reynsla ekki nauðsynleg.
Ritari - Fjölbreytt starf, sem m.a. felst í rit-
vinnslu, innheimtu, símsvörun og móttöku
viðskiptavina.
Umsóknir merktar: „Sölumaður - 2904“ og
„Ritari - 2904“ sendist afgreiðslu Mbl. fyrir
17. júní.
HÁ SÖLUIAUN!
Óskum aö ráöa sölufólk í símasölu á kvöldin
og um helgar. Lágmarksaldur 20 ár.
Létt og skemmtilegt verkefni. Há sölulaun.
Skriflegar umsóknir óskast sendar Skjaldborg,
Ármúla 23, 108 Reykjavík fyrir 16. júní.
ISkjaldborg (^í)
Laus staða
Staða skipaskoðunarmanns í umdæmi 4 á
Akureyri er laus til umsóknar. Æskilegt er
að umsækjendur hafi menntun á sviði vél-
fræði og rafmagns og reynslu af sjómennsku.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Með upplýsingar um umsóknir verður farið
skv. ákvæðum laga nr 38/1954 um réttindi
og skyldur opinberra starfsmanna og stjórn-
sýslulaga nr 37/1993.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 16. júní 1995.
Siglingamálastofnun ríkisins.
Kennarar
Kennara vantar við Víkurskóla, Vík í Mýrdal.
Meðal kennslugreina:
Almenn kennsla, danska, enska, samfélags-
fræði, sérkennsla og tónmennt.
Umsóknarfrestur er til 19. júní.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Oskarsson,
skólastjóri, í símum 487 1242 og 487 1124
og Guðni Einarsson, formaður skólanefndar,
í síma 487 1220.
Skólastjóri.
—VÍKURSKÓLI---------
870 VÍK í MÝRDAL - SÍMI 487-1242
SAUÐÁRKRÓKSBÆR
Tónlistarkennarar
Við tónlistarskólann á Sauðárkróki er laus
til umsóknar heil staða söngkennara.
Nánari upplýsingar veitir Eva Snæbjarnar-
dóttir, skólastjóri, í síma 453 5415 og Snæ-
björg Snæbjarnardóttir, söngkennari,
í síma 553 7017.
Tónlistarskólinn á Sauðárkróki.
HÚSNÆÐISNEFND REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 30 - 108 REYKJAVÍK
SÍMI 568 1240 - FAX 588 9640
Starfskraftur óskast
íalmenna afgreiðslu og ritarastörf.
Um er að ræða fullt starf. Laun samkvæmt
kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Umsóknum verði skilað á skrifstofu Húsnæðis-
nefndar Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 30, Rvík,
fyrir 20. júní nk.
Stafið er laust nú þegar.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
Blásarakennari
óskast til starfa við Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar frá 1. september nk.
Umsóknir berist skólastjóra, Kjartansgötu
3, 310 Borgarnesi.
Upplýsingar eru veittar í síma 437 1068
(Theodóra).
Skólastjóri.
Framhaldsskóla-
kennarar
Kennarar óskast til starfa við Framhaldsskól-
ann á Laugum næsta skólaár í eftirtöldum
greinum:
íslenska ('A).
Danska (1/i).
Þýska (V2).
Ráðningartími er frá 1. ágúst
Umsóknarfrestur er til 11. júlí.
Upplýsingar veitir Hjalti Jón Sveinsson,
skólameistari, í símum 464-3112 og
464-3113.
Grunnskólinn Hólmavík
Kennarar
Kennarar óskast til starfa við grunnskólann
á Hólmavík nk. skólaár til að kenna m.a. al-
menna kennslu, íþróttir og myndmennt.
Launahlunnindi og flutningsstyrkur.
Upplýsingar gefa:
Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri, símar
451-3129 (vs) og 451-3123 (hs) og Victor
Örn Victorsson, aðstoðarskólastjóri, símar
451-3129 (vs) og 451-3262 (hs).
Umsóknir óskast sendar skólastjóra.