Morgunblaðið - 25.06.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ1995 B 27
I áttunda
sinn á Roll-
ing Stones
tónleikum
VILHJÁLMUR Nikulásson úr
Keflavík hefur fylgst með hljóm-
sveitinni Rolling Stones frá því
hún byrjaði, eða upp úr 1963. Þá
var hann að byrja í fyrsta bekk
gagnfræðaskólans. Vilhjálmur
segir að þeir hafi ólíkt Bítlunum
þótt „röff“ og
notið strax mik-
illa vinsælda í
heimabæ sínum.
Vilhjálmur er
mikill Rolling
Stones aðdá-
andi og var að
fara í áttunda
sinn á tónleika
með þeim, þeg-
ar hann fór til
Kaupmannahafnar. „Ég hef gam-
an af þessu eins og sumir hafa
gaman af golfi. Þetta er mitt
áhugamál," segir hann. „Reyndar
er ekki langt síðan ég fór á mína
fyrstu tónleika með hljómsveit-
inni, en það var í Köln árið 1990.
Þá þótti mér mikil upplifun að sjá
hana loks,“ segir hann ennfremur.
Samhæfingin góð
Vilhjálmi fannst tónleikarnir í
Kaupmannahöfn mjög góðir.
„Þeir félagar í hljómsveitinni hafa
verið á tónleikaferðalagfi, sem
nefnist Voodoo Lounge, síðan í
ágúst og er samhæfingin orðin
geysilega góð,“ segir Villyálmur.
En þar lætur hann ekki staðar
numið, þvi í júlí hyggst hann enn
og aftur fara af landi brott til að
sjá Rolling Stones. Þá er stefnan
tekin á Lundúnaborg, þar sem
goðin munu spila á Wembley leik-
vanginum.
Charlie fékk
mesta klappið
HELGI Bjarnason stundar nám í
Kaupmannahöfn og fór með fjöl-
skyldu sinni á Rolling Stones-tón-
leikana; eiginkonu sinni Alidu,
foreldrum og tengdaforeldrum.
Helgi var mjög hrifinn af tón-
leikunum, eins og aðrir viðmæ-
lendur Morgunblaðsins. Hann seg-
ir að stemmningin hafi verið góð
og það hafi alveg verið þess virði
að fara. Þá fannst honum áber-
andi að
trommuleikar-
inn Charlie fékk
alltaf lang
mesta klappið,
þegar verið var
að kynna þá
sem spila í
hljómsveitinni.
„Mér skilst, af
þeim sem
þekkja til, að
það sé vegna þess að hann sé eini
meðlimur hljómsveitarinnar sem
hafi komist í gegnum ferii sinn
án þess að lenda í einhverju rugli,"
segir Helgi.
Helgi segir það ekkihafa farið
á milli mála að margir íslendingar
voru á leikvanginum. „Þegar við
vorum að skáskjóta okkur á milli
áhorfendanna til að komast fram-
ar, hittum við alltaf fyrir ein-
hveija íslendinga eða þá að þeir
voru að reyna að komast fram
fyrir okkur,“ segir Helgi, en talið
er að um 400 íslendingar hafi
verið á svæðinu. Þá segist hann
hafa frétt af því að erfitt hafi
verið að kaupa danskan gjaldeyri
á íslandi vikuna fyrir tónleikana
og benti það til þess að margir
hafi farið að sjá Rolling Stones í
Kaupmannahöfn. „Ég veit um fólk
sem þurfti að fara í fleiri en einn
banka á Islandi til að geta keypt
danskar krónur," segir Helgi að
lokum.
VilJyálmur
Nikulásson
ptnrgmmMiiliili
- kjarni málsins!
„Fast“ skot
í Laxá
á Asum
ÞREMENNINGAR sem voru að veið-
um í Laxá á Ásum í byijun vikunnar
fengu 25 laxa á einum degi, allt 12
til 17 punda fiska, og er það „grimm-
asta taka“ sem frést-hefur af á þess-
ari vertíð, sem hefur verið afar kafla-
skipt það sem af er. í Elliðaánum
hafa þau tíðindi gerst, að á fimmtu-
daginn veiddust fyrstu laxamir í
ánum frá opnun 15. júní, en á há-
degi á föstudag hafði ekkert bæst
við og voru þó þaulvanir menn í ánni.
„Fast“ skot
í Laxá á Ásum
„Þetta var meiri háttar, við hittum
svona líka hárrétt á gönguna og
mokveiddum, alls 25 laxa og alla
stóra,“ sagði Ámi Baldursson. Ámi
og félagar hans Þórarinn Ragnarsson
og Pálmi Sigmarsson fengu alla lax-
ana í neðri hluta árinnar. Með afla
þeirra félaga voru á hádegi þriðju-
dagsins komnir 52 laxar á land.
Langá enn dauf
Á föstudag vom aðeins 16 laxar
komnir á land úr Langá, en Árni
Baldursson sem var þá á bökkum
árinnar, sagði að mikil torfa hefði
verið að sveima við Sjávarfossinn
síðustu daga og mætti búast við því
að hún gengi í ána er straumurinn
yrði stærstur í lok næstu viku. Áin
er enn mjög vatnsmikil, en tær og
falleg.
Elliðaárnar vakna
Segja má að Elliðaárnar séu vakn-
aðar, á fimmtudaginn veiddust þrír
laxar, tveir í Fossinum og einn í
Holunni. Allir smáir, 3,5 til 5 pund.
Áður höfðu tveir „tittir" verið bók-
aðir, 1,8 og 2,1 pund. Hallaðist
Magnús Sigurðsson veiðivörður að
því að þar hefðu verið hoplaxar á
ferð . Á föstudagsmorgun veiddist
hins vegar enginn lax og vanir menn
á borð við Garðar Þórhallsson og
Rósar Eggertsson sáu lítið líf. Menn
rýna nú á stóra strauminn 29. júní.
Veiðidagur
fjölskyldunnar
Veiðidagur fjölskyldunnar er hald-
inn í dag, sunnudaginn 25. júní, en
að þessu sinni standa að honum
Ferðaþjónusta bænda, Upplýsinga-
þjónusta landbúnaðarins, Landssam-
band veiðifélaga og Landssamband
stangaveiðifélaga. Eins og áður
býðst landsmönnum víða að renna
fyrir silung endurgjaldslaust og hafa
fjölmargir nýtt sér það síðustu árin.
Þau vötn sem standa mönnum til
boða á vegum Ferðaþjónustu bænda
eru Meðalfellsvatn í Kjós, vötnin í
Svínadal ofan Hvalfjarðar, Hauka-
dalsvatn, Syðradalsvatn, Hnausat-
jöm, Höfðavatn, Vestmannsvatn,
Ekkjuvatn, Urriðavatn, Langavatn,
Víkurflóð, Höfðabrekkutjarnir, Heið-
arvatn og Hestvatn.
Hin ýmsu stangaveiðifélög bjóða
hins vegar upp á fría veiði í Elliða-
vatni, Hítarvatni, Hvaleyrarvatni,
Kleifarvatni, Þingvallavatni, Langa-
vatni og Kringluvatni í Laxárdal,
Vesturósi Héraðsvatna, vötnum í
Svínadal ofan Hvalfjarðar og Laxár-
vatni á Ásum.
Bæklingur með tæmandi upplýs-
ingum um afhendingu veiðileyfa og
nánari útskýringum er að finna á
bensínstöðvum.
Ársfundur NSU
Á mánudag og þriðjudag verður
aðalfundur Landssambanda stanga-
veiðifélaga á Norðurlöndum (NSU)
haldinn hér á landi. Grettir Gunn-
laugsson hefur veitt NSU forystu
þijú síðustu árin. Ýmis mál verða
tekin fyrir á fundinum, en geta má
þess, að síðari dagurinn fer í umræð-
ur um æskulýðsstarf viðkomandi
sambanda.
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 25. júní
Kl. 10.30 Náttúruminja-
gangan, lokaáfangi
Djúpavatn - Selatangar
Áttundi og síðasti áfangi nátt-
úruminjagöngunnar vinsælu.
Þetta er lengsti áfanginn, en
meö þeim skemmtilegri og fjöl-
breyttari. Leiösögn verður í
höndum jarðfræðinganna Hauks
Jóhannessonar og Sigmundar
Einarssonar. Verð. 1.000 kr.
Rútan fylgir hópnum.
Kl. 13.00 Selatangar,
fjölskylduferð
Þetta er gamall útróörastaöur
með merkum fornminjum, m.a.
fiskabyrgjum, sjóbúðum og refa-
gildrum. Tilvalin fjölskylduferð.
Verð. 1.000 kr. frítt f. börn m.
fullorðnum.
Kl. 8.00 Þórsmörk
Fyrsta sunnudagsferöin í Þórs-
mörk. Stansað 3-4 klst. í Þórs-
mörkinni. Verð. 2.700 kr. (hálft
gjald f. 7-15 ára).
Brottför í ferðirnar frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinni 6.
Ferðafélag (slands.
Hjálpræðis-
Iherinn
Kirkjustræti 2
Kveðjusamkoma fyrir Sven
Fosse kl. 20.00. Allir velkomnir.
X VEGURINN
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Gestir frá Spirit Life í Flórída
ásamt Richard Perinchief, sjá
um samkomuna í kvöld kl. 20.
Ailir hjartanlega velkomnir.
Audbrcklta 2 . Kópavogur
Sunnudagur:
Samkoma í dag kl. 16.30.
Þriðjudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Nýja
postulakirkjan,
Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta alla sunnudaga
kl. 11.00.
Verið hjartanlega velkomin.
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferð sunnud. 25. júní
Kl. 10.30 Krísuvík - Herdlsarvík.
Valin leið úr póstgöngunni 1991.
Verð kr. 1.500/1.700.
Unglingad.fundur mið-
vikud. 28. júní
Kl. 20.00 Hallveigarstig 1.
Kvöldferð fimmtud. 29. júní
Kl. 20.00 Valin leið úr Þórsmerk-
urgöngunni 1990.
Dagsferð sunnud. 2. júlí
Kl. 10.30 Kvígindisfell.
Brottförfrá BS(, bensínsölu mið-
ar við rútu. Einnig uppl. í Texta-
varpi bls. 616.
Helgarferð 31 .júní-1. júlí
Básar í Þórsmörk
ATH.: Tjaldsvæði í Básum eru
fullbókuð og lokuð nema gegn
framvísun staðfestingar á pönt-
unum. Vinsamlegast hafið sam-
band við skrifstofu og sækið
staðfestingar.
Útivist.
Ungt jtóUi
YWAM - Island
Samkoma verður f Breiðholts-
kirkju í kvöld
kl. 20.00
Þorvaldur Halldórsson predikar.
Mikill söngur og lofgjörð. Og fyr-
irbænir verða í lok samkomu.
Allir velkomnir.
„Þakkiö Drottni þvi að hann er
góður, því að miskunn hans var-
ir að eilífu." (sálm. 107:1).
fcímhjólp
Samkoma i Þríbúðum, Hvertis-
götu 42, I dag kl. 16. Fjölbreytt
dagskrá. Vitnisburðir mánaðar-
ins. Allir hjartanlega velkomnir.
Fimmtudagur: Tjáning kl. 19.
Bænastund kl. 20.15.
Sunnudagur:
Samkoma kl. 16.00.
Samhjálp.
Sálarrann-
!7 sóknafélag
Suðurnesja
Skyggnilýsingafundur
Bjarni Kristjánsson, transmiðill,
verður með skyggnilýsingar
þriðjudaginn 27. júní kl. 20.30 í
húsi félagsins á Víkurbraut 13,
Keflavtk. Læknamiðlar bjóða
gestum heilun á eftir.
Allir velkomnir.
Grensásvegi 8
Samkoma í dag kl. 11.00
Richard Perinchief prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir!
Sjónvarpsútsending á OMEGA
kl. 16.30.
Hallveigarstig 1 •sími 614330
Sumarleyfisferðir
27.-30. júni Tindfjöll - Básar.
Örfá sæti laus vegna forfalla.
Fararstjóri Sigurður Sigurðar-
son.
4. -9. júlí Landmannalaugar
— Básar. Miðar óskast sóttir
Fararstjóri Árni Jóhannsson.
5. -9. júlí Djúpárdalur -
Núpsstaðarskógur. Gengið
verður að Grænalóni, um Eystra-
fjall í Súlnadal að Súlutindum og
dvalið í Núpsstaðarskógi. Bak-
pokaferð, gist f tjöldum. Farar-
stjóri Sigurður Sigurðarson.
7.-15. júlí Vatnajökull. Full-
bókað er i ferðina. Fararstjóri
Jósef Hólmjárn.
7.-12. júlí Eyðifirðir Aust-
fjarða. Gengið milli Norðfjarðar
og Reyðarfjarðar. Ævintýraleg
ferð um stórbrotið og áhugavert
svæði. Tjaldað í Viðfirði, Sand-
vík, Vöðlavík og við Karlsskála í
Reyðarfiröi. Fararstjóri Óli Þór
Hilmarsson.
Grænlandsferð.
1.-15. ágúst. Bakpokaferð um
Eystribyggð Grænlands. Gengið
og siglt milli sögustaða. Gist í
tjöldum og svefnpokaplássi.
Komið m.a. f Bröttuhlíð, Qaq- ii
ortoq, Garða, Hvalsey og Nars-
arsuaq. Feröin er eingöngu fyrir
félagsmenn. Fararstjóri Ingi-
björg S. Ásgeirsdóttir.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Brauðsbrotning ki. 11.00. Ræðu-
maðúr Svanur Magnússon. Al-
menn samkoma kl. 20.00. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson. Mikill
söngur, lofgjörð og fyrirbænir.
Allir hjartanlega velkomnir.
Samkoma í Góötemplarahúsinu,
Suðurgötu 7, Hafnarfirði, í dag
kl. 16.30. Allir velkomnir.