Morgunblaðið - 05.07.1995, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, í fjögurra daga heimsókn í Namibíu
Aðstoð Islendinga nemur
240 milljónum á 4 árum
Windhoek, Namibíu. Morgunblaðið.
NAMIBÍUMENN meta aðstoð Islendinga í sjáv-
arútvegsmálum mikils, að því er fram kom í
ávarpi Sam Nujoma, forseta Namibíu, við upp-
haf fjögurra daga opinberrar heimsóknar Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra, til Namibíu í gær.
Fram kom, að aðstoðin næmi um 4 milljónum
dollara (240 milljónir króna) á árunum 1995-
1998. Davíð Oddsson lagði í ávarpi sínu áherslu
á að enn þyrfti að auka samstarf þjóðanna, sem
nú beindist að menntun og þjálfun heimamanna
í sjavarútvegsmálum.
Á annað hundrað íslendinga eru nú búsettir
5 Namibíu.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, kom í fjög-
urra daga opinbera heimsókn til Namibíu í gær
ásamt eiginkonu sinni, frú Ástríði Thorarensen,
og sjö manna föruneyti. Tekið var á móti forsæt-
isráðherra og fylgdarliði hans með mikilli við-
höfn á flugvellinum í Windhoek, höfuðborg
Namibíu, laust fyrir kl. 8 í gærmorgun.
Hage Geingobe, forsætisráðherra Namibíu og
eiginkona hans, tóku á móti íslensku forsætisráð-
herrahjónunum, ásamt Qölda ráðherra og hátt-
settra embættismanna. Skotið var nítján fall-
byssuskotum til heiðurs íslensku forsætisráð-
herrahjónunum, Davíð kannaði heiðursvörð og
flöldi namibískra bama stóð í röð á flugvellinum,
veifaði íslenska fánanum og söng. Einnig dans-
aði hópur namibískra ungmenna þjóðdansa sína,
i skrautlegum klæðum með drumbuslætti.
Þjóðvegurinn frá flugvellinum til höfuðborgar-
innar er skreyttur fánum og myndum af Davíð
Oddssyni og Sam Nujoma, forseta Namibíu og
götur höfuðborgarinnar eru einnig skreyttar
myndum af þeim.
Forsætisráðherra og fylgdarliði hans var ekið
að embættisbústað forsetans, þar sem dvalið var
í nótt.
Þar hitti Davíð Nujoma forseta og áttu þeir
óformlegar viðræður. Því næst var ekið á
Okapuka búgarðinn, sem er griðland fyrir villt
dýr. Síðdegis hófust formlegar viðræður um
samskipti. ríkjanna.
Fleiri möguleikar á samstarfi
í ávarpi Sam Nujoma, forseta Namibíu, við
upphaf viðræðnanna, kom fram að Namibíumenn
mætu mikils þá aðstoð sem íslendingar veittu í
sjávarútvegsmálum, en hún næmi nú um 4 millj-
ónum bandaríkjadala (240 milljónir króna) á
árunum 1995-1998.
Hann sagði einnig möguleika á auknu sam-
starfi í heilbrigðisþjónustu og hvað varðaði
stjómun og tækni í sjávarútvegsmálum, auk
þess sem íslensk og namibísk fyrirtæki ættu
ýmsa frekari möguleika á auknu samstarfí í sjáv-
arútvegsmálum.
Davíð Oddsson lýsti sérstakri ánægju íslensku
ríkisstjórnarinnar með samstarf þjóðanna og
lagði áherslu á að auka þyrfti það enn. Á annað
hundrað íslendingar væru nú búsettir í Namibíu
og samstarf þjóðanna væri nú að beinast meira
að menntun og þjálfun heimamanna í sjávarút-
vegsmálum.
I gærkvöldi buðu Nujoma forseti og eiginkona
hans til kvöldverðar til heiðurs íslensku forsætis-
ráðherrahjónunum. í dag flýgur Davíð og fýlgd-
arlið til Lúderitz, sem er fískibær í suðurhluta
Namibíu, en þar búa nú 58 íslendingar.
Þar skoðar forsætisráðherra m.a. fyrirtækið
Seaflower Whitefish,_ samstarfsfyrirtæki namibí-
skra stjómvalda og íslenskra sjávarafurða, sem
eiga 20% í fyrirtækinu. Davíð hittir einnig íslend-
inga í Lúderitz, en síðdegis heldur hann til bæjar-
ins Swakopmund, en þar er einnig fjöldi íslend-
inga.
Nú er vetur í Namibíu og í höfuðborginni
Windhoek, sem er á hásléttu í miðju landinu, var
í gær sól og 15 stiga hiti.
■ Verið að byggja upp/8
Svifdrekamaður fót-
brotnaði í lendingu
Sagði brand-
ara þegar
félagarnir
komu á slys-
staðinn
Selfossi. Morgunblaðið.
_EINN reyndasti þátttakandinn
í íslandsmótinu í svifdrekaflugi,
sem fram fer í Landsveit þessa
dagana, varð í gær fyrir óhappi í
lendingu og fótbrotnaði.
Atvikið átti sér stað skammt frá
Brúarlandi á mjög ójöfnu land-
svæði. Svifdrekamaðurinn var
ásamt fleirum í punkt-lendingar-
keppni og fór síðastur þátttakenda
af stað frá Skarðsfjalli og átti að
lenda við Brúarland. Aðstæður
breyttust hjá honum á leiðinni við
það að vindur jókst með ókyrrð í
lofti er hann fékk á móti sér rign-
ingarbakka. Hann ákvað því að
lenda fyrr en ætlað var.
Bleyta þyngdi drekann
Að sögn félaga hans magnaðist
ókyrrðin í loftinu af landslaginu
auk þess sem bleytan hefur þyngt
svifdrekann. Þegar hann var um
það bil að lenda fékk hann hnút
undir annan vænginn sem neyddi
hann í krappa hægri beygju. Við
það rakst drekinn í jörð og maður-
inn fór hreinlega stangarstökk á
öðmm vængnum. Þannig lýstu
félagar hans atvikinu en þeir
fylgdust með flugi drekans. Þeir
gerðu ráð fyrir að hraði drekans
hefði verið um 20 kílómetrar þeg-
ar hann rakst í jörðina.
Hlupum af stað
„Við hlupum allir af stað þegar
við sáum þetta gerast og vissum
auðvitað ekkert hvernig honum
hefði reitt af. En þegar við komum
á staðinn þá sagði hann bara
brandara og var hinn rólegasti,“
sagði einn félaganna. Sjúkrabíll
sem kom á staðinn flutti svifdreka-
manninn til Reykjavíkur á sjúkra-
hús.
GUÐMUNDUR Ólafur landaði í Krossanesi í gær.
Bræðsla hafin
í Krossanesi
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
FYRSTA loðna sumarsins kom
á land í Krossanesi í gær þegar
Guðmundur Ólafur frá Ólafs-
firði kom þangað með um 570
tonna afla.
Jóhann P. Andersen, fram-
kvæmdastjóri Krossaness, sagði
að þetta væri allt að vonum;
Ioðna hefði tekið að veiðast og
berast að í júlíbyrjun á undan-
förnum árum.
Leitað að Ioðnu
Hann sagði loðnuna kær-
komna en óljóst væri hvenær
Krossanesi bærist meira af
henni. Þessi tæplega 600 tonn
væru rúmlega sólarhrings vinna
í verksmiðjunni, sem ella væri
keyrð á beinum þessa dagana.
Eftir ágæta veiði aðfaranótt
þriðjudags höfðu 15 til 20 loðnu-
skip á loðnumiðunum norður
af Kolbeinsey lítið uppúr krafs-
inu í gærdag. Viðar Karlsson,
skipstjóri á Víkingi AK, sagði
að Ioðnan hefði týnst og verið
væri að leita hana uppi.
Þó veiðin hefði verið lítil
hefðu einhver skip skrapað
nægilega mikið saman til að
fylla sig eftir ágæta veiði í fyrri-
nótt, til dæmis væri Svanur á
leið til hafnar og ekki væri langt
í Keflvíking. Viðar Karlsson
spáði brælu síðustu nótt. Hann
sagðist hafa landað fullfermi,
1.300 tonnum af loðnu á Seyðis-
firði, og komið aftur á miðin
um hádegi í gær. Enginn afli
hafði fengist á tíunda tímanum
í gærkvöldi.
Viðtalið við for-
seta íslands
Blaðakon-
an stend-
ur við sitt
BLAÐAKONAN Yu-hui Chen
frá dagblaðinu United Daily
News í Tævan segir að frú
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, hafi ekki boðið Lee
Teng-hui í heimsókn, hún
hefði sagt að hann væri vel-
kominn jafnt og aðrir í einka-
heimsókn til landsins.
Chen segist hafa skilið
ummæli frú Vigdíar sem
hennar persónulegu skoðun.
Chen segir hún hafi haft rétt
eftir forsetanum og hafi við-
talið verið tekið upp á segul-
band.
Chen segist hafa spurt Vig-
dísi hvort mögulegt væri fyrir
forseta Tævans að koma í
einkaheimsókn til íslands og
þá hafí forsetinn svarað að
allir væru velkomnir í heim-
sókn til íslands og því ekki
hann líka. Chen segist þá hafa
spurt hvort Vigdís myndi hitta
Lee Teng-hui og hafí forseti
íslands ekki neitað því.
Hvað varði þau ummæli að
forseta íslands fyndist óhygg-
ið af Kínveijum að reyna að
koma í veg fyrir heimsóknir
Lee Ting-hui til annarra landa
segir Chen að þetta séu henn-
ar eigin orð, en ekki forset-
ans. „Þetta voru mín orð,“
segir Yu-hui Chen, og bætir
við að Vigdís hafi ekki mót-
mælt þegar hún hafí sett þetta
fram.
Fyrirsögnin vandamálið
Chen segir að vandamálið
við greinina liggi í fyrirsögn-
inni eins og hún birtist í Un-
ited Daily News og hljóðaði
þannig: Forseti íslands býður
forseta Tævans velkominn.
Chen skrifaði fyrirsögnina
ekki sjálf og segir hún að
ummælin um að allir væru
velkomnir til íslands hefðu
verið notuð á þennan hátt.
Chen segir að henni sé ekki
illa við forseta íslands og vilji
ekki á neinn hátt ráðast gegn
henni. „Það getur vel verið
að henni hafi sámað eða að
henni hafi fundist ég hafa
notað hana,“ segir blaðakon-
an. „Ég var ekki að því. Ég
var bara að sinna starfí mínu.
Ég skrifaði bara það sem hún
sagði mér.“
Ráðning borgar-
ritara staðfest
RÁÐNINGARSAMNINGUR milli
Helgu Jónsdóttur, sem ráðin hefur
verið í stöðu borgarritara, og Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur, borg-
arstjóra, var staðfestur á borgarráðs-
fundi í gær og sátu borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins hjá við atkvæða-
greiðsluna.
I ráðningarsamningnum kemur
fram að Helga sé ráðin í stöðu borg-
arritara eins og starfínu er lýst í
samþykkt um stjórn Reykjavíkur-
borgar og í nýsamþykktu skipuriti.
Verði staðan lögð niður fái hún
laun í sex mánuði, ef hún hefur starf-
að skemur en í tíu ár, en tólf mán-
uði, ef hún hefur starfað lengiir.
Þá geti hún fengið lausn með sömu
réttindum verði gerð umtalsverð
breyting á verkefnum, kjörum eða
stöðu borgarritara. Verði Helgu sagt
upp störfum án sakar eigi hún rétt
á launum í 1 ár.
Það heyrir til undantekninga ai
ráðningarsamningar séu afgreiddi
af borgarráði. Ingibjörg Sólrún seg
ist hafa talið eðlilegt að allt lægi ;
borðinu við afgreiðslu málsins.
Réttarstaðan tryggð
„I raun er verið að tryggja réttar
stöðu hennar við þessar aðstæður,
segjr hún. „Það er að hennar eigii
ósk, enda er hún að láta af störfun
hjá ríkinu þar sem forsetaskipui
tryggir rétt hennar verulega. Þá e
hún að ráða sig í starf sem ákveðii
óvissa er um, eftir þær umræður ser
átt hafa sér stað um þetta mál.“
„Eg er þó sannfærð um að þa
muni ekki á þetta reyna einfaldleg
vegna þess að það stendur ekki t:
að skipta um meirihluta í borginn;
Auk þess held ég að borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins hafi áttað sig
frumhlaupi sínu í málinu."