Morgunblaðið - 05.07.1995, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
FlNNSf&HS óeþAÞ
HAFt VE&DÍ GAX SBM GG
OTS KScJFADíSr FZU t>ESSUM
'oO
01995. THbune MedSa Servteet, loc.
01995 TMbuneMeda
AJI Rights Reserved.
Grettir
Tommi og Jenni
Ferdinand
Smáfólk
Að afhenda
forræðið
Frá Páli V. Daníelssyni:
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í
handbolta er að baki og spennan sem
henni fylgdi fallin. Væntingar fyrir
íslenska liðið voru miklar en stóðust
ekki og skal ekki súta það heldur
vonast eftir að
betur gangi næst.
Talið er að vel
hafi tekist til um
framkvæmd
keppninnar. Þó
skyggði það mjög
á keppnina í heild
hvað hún var
tengd áfengis-
fyrirtæki og að
hún skyldi vera
snar þáttur í
markaðssetningu ákveðinnar bjórteg-
undar er algert hneyksli. Áfengi og
íþróttir eiga ekki samleið og þvi var
hér um mikið áfall að ræða fyrir ís-
lenska íþróttahreyfmgu. Fólk hefur
treyst henni fyrir bömum og ungling-
um og að það skyldi líðast að leyfa
það að bjórfyrirtæki fengi að mark-
aðsetja vöru sína í íþróttahúsunum
er fráleitt. íþróttahreyfíngin þarf
virkilega að taka sig á til að hrinda
af sér ámæli í þessu efni og vinna
glatað traust margra.
Forsvarsmenn keppninnar áttu að
búa yfir þeirri reisn og hollustu í
garð íslenskrar æsku að fara ekki
fram á leyfi til bjórsölu í íþróttahús-
unum og sveitarsijómimar hefðu átt
að sýna þann manndóm að hafna
slíkri beiðni. Þar brást það vamar-
virki íslenskrar æsku. Meira að segja
gekk svo langt að krafist var auka-
fundar í einni sveitarstjóminni til að
gefa bjórfyrirtækinu kost á markaðs-
setningu framleiðslu sinnar í íþrótta-
húsi á staðnum. Trúlega er hér um
heimsmet að ræða sem geta mætti í
heimsmetaskræðum. Það getur verið
gott að vera frægur en þá má frægð-
in ekki vera endemum tengd.
Við íslendingar emm gjamir á að
apa eftir útlendingum og slæðist þá
margt með sem ekki er af góðum
fordæmum sprottið. Jafnvel eigum
við agenta sem vilja að útlendingar
marki stefnu okkar í áfengismálum
og það þjóðir sem halda þannig á
eigin málum í þessu efni að 500 þús-
und manns i Evrópu liggja í valnum
fyrir aldur fram á ári hveiju vegna
áfengisneyslu.
Opinberir aðilar hafa forræði í
áfengismálum og ættu þeir að sjá
sóma sinn í því að vemda íþrótta-
og æskulýðsstarfsemi fyrir áfengis-
neyslu. A þeim vettvangi á ekki að
hafa áfengið í hávegum hvorki al-
mennt né á góðri stund. Það er
brenglaður hugsunarháttur, eða á
að kalla það andlegan alkóhólisma,
að standa að slíku.
Hér í Hafnarfirði hefur þrívegis
verið sótt um að fá vmve'tingaleyfi
í golfskálann. Það er rökstutt með
því að annars staðar, heima og er-
lendis, tíðkist slíkt. Ekki nóg með
það heldur voru þau rök tíunduð við
afgreiðslu málsins að áfengi hafi
alltaf fylgt golfíþróttinni og er þá
trúlega óijúfanlegur fömnautur
hennar. Og svo er þessi íþrótt styrkt
sem almenningsíþrótt af opinberu
fé og m.a. ungt fólk hvatt til að
taka þátt í henni. Að nota áfengi á
þennan hátt í íþróttum er meirihátt-
ar öfugmæli og tilheyrir varla heil-
brigðu fólki.
Þegar svo er komið málum okkar
Íslendinga að við látum útlendinga
segja okkur hvernig við eigum að
stjórna, afhenda þeim forræði okkar
áfengismálum, þá er niðurlægingin
alger. Það þótti ekki gott að vera
neyddur til að skríða undir jarðar-
menið á árum áður en verra er þó
að bijóta stolt sitt svo að skríða
sjálfviljugur torfu neðar.
PÁLL V. DANÍELSSON,
viðskiptafræðingur.
Páll V.
Daníelsson.
Áskorun til ráðherra
Frá Eiði Sveinssyni:
HAFRÉTTARSTEFNA íslendinga
stendur á brauðfótum og tek ég heils
hugar undir þá skoðun Ónundar Ás-
geirssonar í Morgunblaðinu 4. maí
að við höfum ekki um neitt að semja
við Norðmenn í fiskveiðimálum í
Norður-Atlantshafi. Þegar ég skrifa
þessar línur erum við staddir að veið-
um á Flæmska hattinum og erum að
reyna að draga björg í bú og skapa
íslensku þjóðnni gjaldeyristekjur, en
eins og allir vita er ekki nægur fiskur
í sjónum fyrir alla á íslandsmiðum.
Mér svíður að heyra að félagar mínir
sem staddir eru norður við Svalbarða
verða að láta skipin reka vegna að-
gerðarleysis íslenskra stjómvalda.
Þannig er nefnilega mál með vexti
að utanríkis- og sjávarútvegsráðu-
neytið hafa hvatt til veiða við Sval-
barða og sagt að við séum í sé á
þeim stofni. En viti menn um leið og
það reynir á rétt okkar er farið fram
á að ekki sé veitt á meðan réttar-
staða okkar er könnuð. Hverslags
vinnubrögð eru þetta hafa menn ekki
haft nægan tíma til að kanna, hefur
sem sagt ekkert verið gert? Það er
nefnilega þannig að ef við eigum að
ná rétti okkar verðum við að vinna
að þvi en ekki hopa eins og lúbarðir
hundar í hvert skipti sem norska ljón-
ið hvæsir á okkur. Ég held að ráðherr-
ar okkar sem vinna eig að þessum
málum ættu að fara að hysja upp um
sig buxumar og standa á rétti okkar
því þaðan koma gjaldeyristekjumar
sem dreginn er fiskur úr sjó og veitir
víst ekki af ef allir eiga að hafa vinnu
á íslandi. Ég skora hér með á ráð-
herra sjávarútvegs- og utanríkismála
að klára þetta mál og það strax svo
ekki tapist meira en orðið er. Ég vil
og nefna mál eins og útvarp til sjó-
manna á hafi úti, ég held satt að
segja að ekki séu þeir orðnir beysnir
sendamir sem fréttimar eru sendar
út á, því það er eins og allur kraftur
sé úr þeim þegar fréttatíminn er
hálfnaður og held ég að mætti nú
fara að fjárfesta í nýjum sendum
þannig að minnsta kosti væri hægt
að heyra hvað er að gerast á landinu
en eins og allir vita eru íslendingar
fréttaþyrstir mjög.
Ég bið svo kærlega að heilsa héðan
úr suðurhöfum.
EIÐUR SVEINSSON,
skipstjóri,
Skólavegi 85, Fáskrúðsfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.