Morgunblaðið - 23.07.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1995 B 13
maður Morgunblaðsins rakst til að
mynda á toppfyrirsætuna Helenu
Christensen, þar sem hún var að
ljúka sjónvarpsviðtali og spurði
hana hvað hún væri að gera á Hró-
arskeldu. Þegar hún svaraði því til
að hún væri að hlusta á tónlist, lét
hann það ekki slá sig út af laginu
og spurði hvort hann fengi ekki að
taka stutt viðtal við hana.
Hann hélt síðan glaður í bragði
á tónleika Van Halen á stóra svið-
inu, með fyrirheit um að fá að spyija
hana nokkurra spurninga á bamum
baksviðs á eftir, og leiddi hugann
hjá því að hann 'hefði ekki bak-
sviðspassa. Á leiðinni hitti hann
Dana og sagði honum frá fundi sín-
um og Helenu Christensen. Daninn
varð vantrúaður á svip, enda leit
blaðamaðurinn sjálfsagt ekki út
fyrir að vera í slagtogi fyrirsæta,
né annars fyrirfólks í tískuheimin-
um. Blaðamaðurinn hélt engu að
síður sínu striki og sagði frá loforði
fyrirsætunnar um að hitta sig á
bamum baksviðs eftir tónleikana.
Þá leit Daninn brosandi upp og
sagði: „Já,- og síðan vaknaðirðu."
PJ. HARVEY vann hug
og hjarla þeirra sem
hlýddu á söng hennar.
ÞAD FER varla á milli mála
hverrar þjáóar þessir Hrö-
arskeldugestir eru.
A< guóum og minni
spámönnum
Á hátíðinni að þessu sinni bar
hæst sveitina R.E.M. sem tróð upp
á stóra sviðinu fyrsta kvöldið.
Geysilega góð stemmning myndað-
ist meðal áhorfenda, enda sannkall-
að gæðarokk í yfirveguðum flutn-
ingi Michaels Stipe og félaga. Eftir
á að hyggja falla þeir tónleikar í
skuggann á frammistöðu söngkon-
unnar P.J. Harvey í bláa tjaldinu.
Hún var í ægiþröngum hrópandi
silfurlitum galla og sviðsframkom-
an var á þann veg að einhveijum
varð að orði að þar væri kominn
„guð í kvenlíkama“. Þá var söngur-
inn kraftmikill og ögrandi; engu lík-
ur.
ÞESSARI þokkasnót virtist ekki leióast
á Hróarskeldu, frekar en öórum. Eins
og sjá má af svip stráksins til hcegri
vió hana, átti hún sér leynda aódáend-
ur sem skemmtu sér engu síóur.
að leggja og lifir í[ ljóma
fortíðarinnar. Meðlimir
Offspring eru á dálítið
öðrum slóðum en sveitir
pönktímabilsins, en
byijuðu á svipaðan hátt.
Þeir tóku þá ákvörðun
að mynda hljómsveit og
áttu þá hvorki hljóðfæri
né kunnu nokkuð fyrir
sér: „Við þjösnuðumst
bara áfram og það hefur
tekið okkur dágóðan
tíma að komast á topp-
inn.“ Blur hefur allt sem
þarf til að öðlast vin-
sældir hjá unglingun-
um; grípandi lög, góða
sviðsframkomu og fjóra
sykursnúða í hljóm-
sveitinni.
Shane MacGowan
vakti upp tryllta
stemmningu fyrir fram-
an stóra sviðið. Hann
var sem kunnugt er rek-
inn úr The Pogues fyrir
drykkjuskap og stofnaði
þá nýja sveit sem hann
nefndi The Popes. Af
tónleikunum mátti
merkja að hann er enn
við sama heygarðshom-
ið, ekki aðeins hvað við-
kemur tónlistarstefnu
heldur líka lífsstíl.
VINKONURNAR Svaia Heióberg, sem varó 24 ára á laugar-
deginum, og Hrafnhlldur Halldórsdóttir sem sótti Hróar-
skelduhátióina i fimmta skipti.
YASMIN Björnsdóttir, Bryndis Dúa
Guómundsdóttir, Guórún Dadda Ás-
mundardóttir og Soren Bjarno kunnu
vel vió sig i hitanum.
Af öðrum hápunkt-
um hátíðarinnar má
nefna eilífðarhippann
Bob Dylan, hrokagikk-
ina í Oasis, frábæra
tónleika Echobelly og
The Cardigans, raf-
magnaða tónleika
Tricky, Prodigy og Eat
Static, kraftmikið rokk
sveitarinnar Sick Of It
All, hljómsveitina Belly
sem kom á óvart og enn
frekar Terrell frá
Bandaríkjunum, sem
leysti danska þunga-
rokksveit af hólmi. Þeir
léku mjög frambæri-
lega tónlist og viðbrögð
áheyrenda vora eftir
því. „Þið eruð frábær,“
hrópaði Terrell, söngv-
ari og lagahöfundur
sveitarinnar. „Þið hafið
ekki einu sinni græna
glóru um hveijir við
erum!“
Hróarskelduhátió i
jólagjöf
Þrátt fyrir látlausa sviðsfram-
komu verður ekki litið fram hjá því
að tónlist Sinead O’Connor hefur
sterk áhrif. Má raunar líkja flutn-
ingi hennar við lestur ljóðskálda,
þar sem textinn fær að njóta sín.
Þar leitast hún við að koma hugðar-
efnum sínum á framfæri og tekst
það á afgerandi hátt, jafnvel svo
að kaþólska kirkjan situr ekki þegj-
andi hjá. Þegar ómþýð söngröddin
og grípandi hljómfallið bætast við
er það hrein unun á að lilýða.
Hrokagikkir, sykursnúóar og
fyllibyttur
Nefna má nokkrar aðrar hljóm-
sveitir og listamenn til sögunnar.
The Cure hafði fátt nýtt til málanna
Það setti óneitanlega leiðinlegan
svip á hátíðina að 22 ára Norðmað-
ur lét lífið þegar hann klifraði yfir
girðinguna umhverfis svæðið, lenti
á þjóðveginum og varð fyrir bíl.
Annars bar fátt út af. Gæsla var
til fyrirmyndar og er fáheyrt hversu
skipulagðir og agaðir gestgjafarnir
voru að öllu leyti. Þá heppnuðust
tónleikarnir mjög vel og er því spáð
að á næsta ári muni um 150 þús-
und manns sækjast eftir miðum.
Framboðið verður ekki aukið og því
er vissara fyrir þá sem ætla sér á
hátíðina að kaupa miða með góðum
fyrirvara. í Aftenposten var því til
dæmis velt upp hvort hægt væri
að hugsa sér betri jólagjöf handa
ástvinum sínum.
Ástarþakkir til allra þeirra, sem heiðruðu mig
á niutíu ára afmœli mínu 6. júlí sl. með heim-
sóknum, gjöfum, blómum og heillaskeytum.
Aldís Pálsdóttir,
Litlu - Sandvík.
Ódýrt þakjárn,
LOFTA- OG VEGGKLÆÐNINGAR
Framleiðum þakjárn, lofta- og veggklæðningar á
hagstæðu verði. Galvaniserað, rautt, hvítt og koksgrátt.
TIMBUR 06 STÁL HF.
Smiðjuvegi 11, Kópavogi.
Símar 554 5544 og 554 2740, fax 554 5607.
EINNIG KERAMIK
OG STÁL HELLUBORÐ
VEGGOFNAR OG
OFNAR UNDIR BORD
ELDUNAR-
IN FRÁ FAGOR
HAFA HLOTIÐ
EINRÓMA LOF
KRÖFUHARÐRA
NOTENDA
VIKUTILBOÐ
FAGOR HE-414
BLÁSTURSOFN MEÐ GRILLI - VERD STAÐGREITT KR.
L& Y i
H
V
V r
V.
Jx f
AFBORGUNARVERÐ KR. 28.400 - VISA OG EURO RAÐGREIDSLUR
eNnfre^uR ;,ar
„pppVOTTAVE
UPPP,...íd4R OG
kæu