Morgunblaðið - 23.07.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ1995 B 15
ATVINNUAUGl YSINGAR
Sjóntækjafræðingur
Sjóntækjafræðingur óskast. Æskilegt að
umsækjendur hafi þekkingu á kontaktlinsum.
Gleraugnamiðstöðin,
Laugavegi 24.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39-108 Reykjavík - Sími: 588 8500 - Fax: 568 6270
Forstöðumaður
mötuneytis
Laus er staða forstöðumanns mötuneytis við
dvalar- og hjúkrunarheimilið Seljahlíð, Hjall-
aseli 55. Umsækjendur þurfa að hafa lokið
sveinsprófi í matreiðslu. Starfsreynsla nauð-
synleg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem allra fyrst.
Umsóknarfrestur er til 29. júlí og skal skrifleg-
um umsóknum skilað til forstöðumanns
Seljahlíðar, Hjallaseli 55, sem einnig veitir
nánari upplýsingar milli kl. 11 og 12 næstu
daga í síma 557 3633.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Seljahlíðar og á skrifstofu Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkur, Síðumúla 39.
Meðferðarfulltrúi -
framtíðarstarf
Meðferðarfulltrúa vantar til starfa á nýtt fjöl-
skyldumeðferðarheimili. Æskilegt er að við-
komandi hafi háskólamenntun á uppeldis-,
sálfræði- eða félagssviði, auk reynslu. Um
er að ræða vaktavinnu.
Nánari upplýsingar veitir Helga Þórðardóttir,
forstöðumaður, í síma 552 5881, milli kl. 10
og 12 næstu daga.
Umsóknum skal skila fyrir 31. júlí nk. til for-
stöðumanns eða starfsmannastjóra Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar,
Síðumúla 39.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Félagsmálastofnunar, Síðumúla 39.
Frá Háskóla Islands
Laust er til umsóknar hálft starf skrifstofu-
stjóra við guðfræðideild Háskóla íslands.
Starfið felst m.a. í að framvæma ákvarðanir
deildarfunda og deildarforseta; svara erind-
um í nafni deildarinnar; hafa umsjón með
skjalavörslu deildarinnar; leiðbeina nemend-
um um nám og hafa eftirlit með ýmsum
þáttum er varða próf og stundarskrárgerð;
aðstoða við gerð fjárhagsáætlunar, ganga
frá efni deildarinnar í kennsluskrá og annast
samskipti við ýmis innlend og erlend félaga-
samtök. Gert er ráð fyrir að ráða í starfið frá
1. september 1995.
Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið há-
skólaprófi, búi yfir góðri kunnáttu í norður-
landamáli og ensku auk þess að hafa reynslu
af skrifstofu- eða stjórnunarstörfum. Nánari
upplýsingar veitir forseti guðfræðideildar,
Jón Sveinbjörnsson, í símum 525 4345 og
553 3493.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 1995 og
skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs
Háskóla íslands, Aðalbyggingu við Suður-
götu, 101 Reykjavík.
Skólastjóra- og
kennarastaða
Stöður skólastjóra og kennara við Barna-
skóla Staðarhrepps í Hrútafirði eru lausar til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 28. júlí 1995.
Skólinn okkar er fámennur skóli, staðsettur
við Reykjaskóla (skólabúðirnar), miðja vegu
milli Reykjavíkur og Akureyrar. Nemendur
eru að jafnaði 15-20 á aldrinum frá 6-12 ára.
Kennsluaðstaða er einkar góð og skólinn vel
í sveit settur. Byggingar (skólahús og skóla-
stjórabústaður) eru nýlegar og allar lóðir
frágengnar og grónar.
Gott samstarf er með skólunum í sýslunni.
Árlega eru haldnir sameiginlegir íþrótta- og
leikjadagar á þeirra vegum og nýlokið er við
gerð sýslunámsskrár (þróunarverkefnið
Samverk).
Við erum að leita að áhugasömu fagfólki,
sem vill vinna með og fyrir íbúa sveitarinnar
og héraðsins.
Nánari upplýsingar veita Aðalheiður
Böðvarsdóttir, formaður skólanefndar, í síma
451 0015 og Kristinn Breiðfj., skólastjóri, í
símum 451 0025 eða 451 0030.
Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra,
Suðurlandi
auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður á
Meðferðarheimilinu Búhamri í Vestmanna-
eyjum. Annars vegar er um að ræða stöðu
forstöðumanns, sem er afleysingastarf til
eins árs, og hins vegar stöðu
þroskaþjálfa eða leikskólakennara.
Á Búhamri eru fötluð börn og unglingar á
aldrinum 2-14 ára í dagvistun alla virka daga
og í skammtímavistun 1 helgi í mánuði.
Starf forstöðumanns gerir kröfur um:
- Fjölbreytileg samskipti.
- Sveigjanleika.
- Ákveðni.
- Fagleg vinnubrögð.
Æskilegt er að umsækjandi hafi þroskaþjálfa-
menntun eða aðra sambærilega uppeldis-
menntun og hafi góða þekkingu á málefnum
fatlaðra.
Ráðningartími forstöðumanns er frá og með
15. sept., en ráðningartími þroskaþjálfa eða
leikskólakennara frá og með 1. sept.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma
481 2127, til 21. júlí, eða í síma 482 1839.
Hjúkrunarfræðingar
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað óskar
að ráða hjúkrunarfræðinga í föst störf nú
þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Mjög góð vinnuaðstaða er í nýlegu hús-
næði. A sjúkrahúsinu er rekin handlækninga-
og lyflækningadeild, svo og sjúkraþjálfun. Á
sjúkradeild og fæðingardeild eru samtals 32
rúm og að auki er rekin 11 rúma þjónustu-
deild í tengslum við sjúkrahúsið. Stöðugildi
eru 63 og að jafnaði eru 85 starfsmenn í
vinnu. Þjónustusvæði sjúkrahússins er Mið-
austurland og árlega eru innlagnir um 740
og legudagar 14000. Ódýrt húsnæði er í
boði og aðstoð veitt við flutning á búslóð.
í Neskaupstað er leikskóli, grunnskóli, fram-
halds- og verkmenntaskóli og tónskóli. Fjöl-
breyttir möguleikar til tómstundaiðkana eru
fyrir hendi.
Áhugasamir hafi samband við hjúkrunarfor-
stjóra í síma 477 1403 eða framkvæmda-
stjóra í síma 477 1402, en þeir veita allar
nánari upplýsingar.
Framkvæmdastjóri.
Kvensjúkdóma-
læknir
Óskum að ráða kvensjúkdómalækni á Sjúkra-
hús. Vestmannaeyja sem fyrst. Um er að
ræða 75% stöðugildi. Nánari upplýsingar
gefur Gunnar K. Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri, í síma 481 1955.
Umsóknir sendist stjórn Sjúkrahúss
Vestmannaeyja, Þósthólf 400, 902
Vestmannaeyjum.
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Æskulýðsfulltrúi
Blönduósbær óskar eftir að ráða æskulýðs-
fulltrúa.
Starfið felst í að annast alla starfsemi félags-
miðstöðvarinnar Skjólsins og vinna að fé-
lagsmálastarfi í grunnskólanum og stuðningi
við nemendur.
Æskilegt er að viðkomandi hafi háskóla-
menntun og/eða reynslu af störfum með
unglingum. í boði er skemmtilegt og fjöl-
breytt starf við krefjandi verkefni. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf eigi síðar en
1. september nk. Á Blönduósi búa yfir 1.000
manns og er einsetinn grunnskóli með um
200 börn. Lögð hefur verið áhersla á að hafa
í boði næga afþreyingu fyrir börn og ungl-
inga á sviði íþrótta og æskulýðsmála.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Blönduósbæjar í síma 452 4181 og af um-
hverfis- og íþróttafulltrúa, Ágústi Þór Braga-
syni, í heimasíma 452 4611.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí nk.
Hugbúnaðarþróun
Kerfisfræðingur
/forritari
EIMSKIÞ leitar að áhugasömum starfsmanni
til starfa við hugbúnaðarþróun í upplýsinga-
vinnslu fyrirtækisins.
Upplýsingakerfi EIMSKIÞS eru notuð bæði á
íslandi og erlendis. Tölvuumhverfið er byggt
upp af nettengdum einkatölvum ásamt IBM
AS/400 tölvum, sem hafa samskipti milli
landa um X-25 gagnaflutningsnetið.
Útstöðvar eru yfir 400 talsins og staðsettar
í 10 löndum.
Við sækjumst eftir:
• Menntun á tölvusviði og/eða reynslu í
kerfishönnun og forritun.
• Þekkingu á IBM AS/400 umhverfinu.
• Þekkingu á NT Server netstýrikerfi, ásamt
Windows.
• Reynslu í hlutbundinni forritun.
• Áhugasömu fólki, sem er reiðubúið til að
leggja sig fram við krefjandi verkefni.
Þeir, sem hafa áhuga á að starfa með
okkur, leggi vinsamlegast inn umsóknir i
Starfsþróunardeild Eimskips,
Pósthússtræti 2, fyrir 1. ágúst nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum umsóknum verður svarað.
EIMSKIP