Morgunblaðið - 28.07.1995, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
SKAFTÁRHLAUP
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
HÉR sést jökulbeljandinn þar sem hann er að í óða önn að grafa burt jarðveginn á vestri bakka árinnar móts við Skaftárdal. Undir
venjulegum kringumstæðum er steinboginn fallegi langt frá árfarveginum. í baksýn sjást bæjartún Skaftárdals.
Eitt stærsta
hlaup frá
upphafi
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VEGURINN í Skaftárdal er í sundur á um 200 metra kafla. Elztu
menn minnast þess ekki að hafa séð Skaftá í öðrum eins ham.
| i..'
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hér tekur Halldór Blöndal samgönguráðherra á móti ferðamönn-
um, sem þótti vissara að kanna vaðið fótgangandi þar sem flætt
hafði yfir veginn á leið þeirra suður Skaftártungu.
HLAUPIÐ í Skaftá náði há-
marki í gær, en það telst vera
eitt hið stærsta frá upphafi.
Rennslið í ánni mældist um
1.400 rúmmetrar á sekúndu
þegar mest var, sem er um 10
sinnum meira en meðalrennsli.
„Ég hef ekki séð það stærra,"
sagði Gísli Vigfússon frá
Skálmabæ, þegar hann leit á
Skaftána upp við Skaftártungu
í gær, en Gísli hefur fylgst með
flestum Skaftárhlaupum á þess-
ari öld.
Hlaupið nú kom úr eystri sig-
katli Skaftárjökuls, en hlaupið
í fyrra kom úr vestri katlinum
og var mun minna. Heimamenn
í Skaftártungu prísa sig sæla
fyrir að hlaupið skuli skiptast
á nokkra farvegi. Verulegur
hluti vatnsmagnsins í Skaftánni
sjálfri fer um farveg Eldvatns,
sem sameinast Tungufyóti, auk
þess sannaðist það í þessu
hlaupi, að hlaup úr Skaftátjökli
leita líka í Hverfisfljót, sem fór
einnig mikinn í gær.
í gærkvöldi var hlaupið í rén-
un, rennslið í Skaftá mældist
þá komið niður í um 1.200 rúm-
metra á sekúndu. Gert er ráð
fyrir að áin komist aftur í eðli-
legt hoif eftir 3-4 daga.
Hlaupið ber með sér ógnar-
magn af aur og leðju, sem situr
eftir út um hraun og móa þegar
það er um garð gengið. Eyði-
leggingin sem hlaupið leiðir af
sér felst í fyrsta lagi í rofinu á
jarðvegi, sem beljandinn ber
burt, og hins vegar verður allur
framburðurinn sem eftir situr
seinna efni í sandfok sem spill-
ir gróðri í kring. Margir hekt-
arar lands spilltust á þennan
hátt i hlaupinu nú.
Vegasamband rofið við
Skaftárdal
í stórum hlaupum sem þessu
verða vegamannvirki óhjá-
kvæmilega fyrir skemmdum.
Verst varð vegurinn í Skaftár-
dal úti, en hann var á um
200 m breiðum kafla algerlega
borinn burt af jökulbeljandan-
um. Óttast var, að Fjallabaksleið
nyrðri hlyti svipuð örlög, en
skemmdimar á henni munu
vera minniháttar, svo ekki
reyndist nauðsynlegt að loka
veginum.
Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra lagði leið sína að
Skaftá í gær og barði eyðilegg-
ingarmátt náttúrunnar augum.
Það stafaði köldum blæ og
hverafnyk af jökulbeljandan-
um, sem Iét jörðina titra undir
ráðherranum sem og öðrum
forvitnum gestum þessa sjónar-
spils náttúrunnar.
FRÉTTIR
Hræringar
við Hengil
Búist við
kippum
áfram
RAGNAR Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur Veðurstofu
íslands, segir að búast megi
við áframhaldandi jarðhrær-
ingum við sunnanverðan
Hengilinn á næstu dögum
með nokkrum fjölda smá-
skjálfta sem náð geti svipuð-
um styrkleika og í hrinunni
síðustu daga.
Þannig sé ekki ólíklegt að
næstu daga verði vart ein-
stakra jarðskjálftakippa af
styrkleika um það bil 3 á
Richter.
í fyrrinótt var lítið um jarð-
hræringar á svæðinu en frá
7-10 í gærmorgun varð vart
við nokkra tugi smærri kippa,
undir 2,5 á Richter. Eftir há-
degi mældust hins vegar að-
eins 1-2 kippir á klukkustund.
Ekki afgerandi áhrif
Ragnar sagði aðspurður að
þær jarðhræringar, sem nú
væru á þessu svæði, væru
ekki taldar hafa afgerandi
þýðingu varðandi spár um
Suðurlandsskjálfta. Áhrif
þeirra séu ekki það afgerandi
að þær auki eða dragi úr
hættu á hræringum annars
staðar.
Húsnæðisstofnun
Skulda-
bréfa
athugun
í ATHUGUN er að Húsnæðis-
stofnun taki aftur upp beina
sölu skuldabréfa í haust til
að fjármagna byggingarsjóð-
ina, en stofnunin hætti í fyrra
að bjóða út húsnæðisbréf þar
sem þau seldust ekki á sömu
vöxtum og boðnir voru á ríkis-
skuldabréfum.
Ríkissjóður hefur fjár-
magnað Húsnæðisstofnun frá
síðasta hausti og nemur sú
fyrirgreiðsla alls 3,25 millj-
örðum króna.
Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra segir að verið
sé að ræða við þá aðila sem
málið varðar, hvort ekki sé
hugsanlegt að stofnunin taki
aftur upp beina sölu skulda-
bréfa. „Þá verðum við hugs-
anlega að sætta okkur við
önnur vaxtakjör en hjá ríkinu
þegar það býður út sín skulda-
bréf,“ sagði Friðrik.
Tekjur
ÁTVR
minnka
HAGNAÐUR Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins er
nokkru lægri, það sem af er
árinu, en áætlað var.
Stafar það einkum af því
að bjórsala hefur aukist á
kostnað sterkari drykkja, en
gjald til ríkisins fer eftir
áfengislítrum.
Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra segir að þessar
neyslubreytingar virðist vera
varanlegar og fjármálaráðu-
neytið þurfi greinilega að end-
urmeta áætlanir sínar og
sætta sig við minni tekjur af
áfengissölu.