Morgunblaðið - 28.07.1995, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
*?
Fáðu
Moggann
til þín í fríinu
Morgunblaðið þitt sérpakkað
á sumarleyfisstaðinn
Viltu fylgjast með í allt sumar?
Morgunblaðið býður áskrifendum sínum
þá þjónustu að fá blaðið sitt sérpakkað og merkt
á sölustað nálægt sumarleyfisstaðnum
innanlands.
Hringdu í áskriftardeildina í síma 569 1 1 22
eða sendu okkur útfylltan seðilinn og þú
fylgist með í allt sumar.
- kjarni málsins!
Já takk, ég vil nýta þjónustu Morgunblabsins
og fá blaðiö sent á eftirfarandi sölustað
á tímabilinu
frá til
Q Esso-skálinn, Hvalfirði □ Laufið, Hallormsstað
□ Ferstikla, Hvaifirði □ Söluskálar, Egilsstöðum
□ Sölustaðir í Borgamesi □ Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri
□ Baula, Stafholtst., Borgarf. □ Víkurskáli, Vík í Mýrdal
□ Munaöarnes, Borgarfirði □ Hlíðarlaug, Úthiíð, Biskupst.
□ Bitinn, Reykholtsd., Borgarf. □ Laugarás, Biskupstungum
□ Þjónustumiðstöbin Húsafelli □ Bjarnabúð, Brautarhóli
□ Hvítárskáli v/Hvítárbrú □ Verslun/tjaldmiðstöö, Laugarv.
□ Sumarhóteliö Bifröst □ Verslunin Grund, Flúðum
□ Hreðavatnsskáli □ Gósen, Brautarholti
□ Brú í Hrútafirði □ Árborg, Gnúpverjahreppi
□ Stabarskáli, Hrútafirði □ Syðri-Brú, Grímsnesi
□ Illugastaðir □ Þrastarlundur
□ Hrísey □ Ölfusborgir
□ Grímsey □ Shellskálinn, Stokkseyri
□ Grenivík □ Annað
□ Reykjahlíö, Mývatn
NAFN_________________________________________________
KENNITALA__________________I_________________________
HEIMILI______________________________________________
PÓSTNÚMER______________________SÍMI__________________
Utanáskriftin er:
Morgunblaðiö, áskriftardeild, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
Gömlu þjóðlegu vinnubrögðin sýnd gestum í Laufási
Starfsdag-
ur í gamla
bænum
STARFSDAGUR verður haldinn
í gamla bænum í Laufási næst-
komandi sunnudag. Sams konar
dagur var haldinn i fyrra og
komu þá yfir 1.000 manns í heim-
sókn og fylgdust með fólki vinna
hin gömlu sveitastörf, bæði innan
dyra í bænum og úti á hlaði.
Þeir sem sýna gömlu þjóðlegu
vinnubrögðin eru eldri borgarar
víða að úr Eyjafirði og mun fólk-
ið klæðast á svipaðan hátt og var
fyrr á öldinni.
í hlóðaeldhúsinu verður kveikt
upp og bakaðar lummur, í búri
verður unnið úr mjólkinni, bæði
skilið og strokkað og einnig gert
skyr. Baðstofustemmning verður
í baðstofu, lesinn húslestur,
spunnið, ofið og reipi fléttuð,
jafnvel kveðnar rímur og sungið.
I dúnhúsi getur fólk þreifað á
óhreinsuðum dún og gestir fá að
smakka á hangikjöti.
Úti fyrir bænum verður heyjað
Morgunblaðið/Rúnar Þór
GESTUM Laufáss gefst kostur á að fylgjast með fólki vinna
gömlu sveitastörfin á starfsdegi á sunnudag.
að gömlum sið, slegið með orfi
og ljá og konur ganga í flekkinn
og rifja þar og raka, síðan verð-
ur heyið bundið og látið á hest.
Harmóníkuleikarar þenja
nikkurnar og danshópur frá Dal-
vík dansar á hlaðinu.
I sumar hefur verið keppst við
að endurbyggja skemmuna,
syðsta bæjarhúsið í Laufási en á
starfsdeginum er ætlunin að taka
þann hluta bæjarins í notkun.
Þar verður hægt að kaupa hress-
ingu.
Starfsdagurinn er undirbúinn
af starfsfólki Laufásbæjarins í
samvinnu við Minjasafnið á Ak-
ureyri. Hann byrjar kl. 14 og
áætlað að honum ljúki um kl. 17.
Aðgangseyrir er 200 krónur fyr-
ir 12 ára og eldri.
Hafliði Hallgríms-
son sýnir grafíkverk
SÝNING á grafíkverkum eftir
Hafliða Hallgrímsson tónskáld
verður ópnuð í vestursal Lista-
safnsins á Akureyri á laugardag,
29. júlí kl. 16. -
Sellóleikarinn og tónskáldið
Hafliði Hallgrímsson fæddist á
Akureyri árið 1941. Hann útskrif-
aðist frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1962 en stundaði síðan
nám í Róm og Lundúnum. Hann
hefur leikið í hljómsveitum í Eng-
landi og Skotlandi og komið fram
sem sellóleikari í 45 löndum, ýmist
með hljómsveitum, í kammer-
hljómsveitum eða sem einleikari.
Tónverk hans hafa víða verið flutt
og unnið til verðlauna, m.a. Viotti
verðlaunin, Wieniawski verðlaunin
og Tónskáldaverðlaun Norður-
landaráðs. Mörg tónverk hans hafa
verið gefin út af Ricordi og Chest-
er Music í Lundúnum.
Hafliði hefur jafnan stundað
myndlist meðfram starfi sínu sem
tónlistarmaður og notið leiðsagnar
á því sviði við The Arts Guild of
London, Hammersmith School of
Art og St. Martins School of Art.
K
Hlynur og Ásmundur
sýna í Deiglunni
Hlynur Hallsson og Ásmundur
Ásmundsson opna sýningu í Deigl-
unni á morgun, laugárdaginn 29.
júlí kl. 14. Sýningin er einn liður
í Listasumri sem nú stendur yfir.
Þeir félagar eru Akureyringar
og stunduðu nám í Myndlistarskól-
anum á Akureyri og í ij'öltækni
við Myndlistar- og handíðaskóla
íslands en þaðan útskrifuðust þeir
árið 1993. Hlynur stundar nú
framhaldsnám í Þýskalandi en
Ásmundur í Bandaríkjunum.
Báðir hafa tekið þátt í nokkrum
samsýningum og staðið fyrir
gjörningum heima og Hlynur einn-
ig í Noregi, Hollandi og Þýska-
landi. Ásmundur hefur haldið
einkasýningu í Reykjavík og Hlyn-
ur í Þýskalandi og á Akureyri.
Hlynur sýnir að þessu sinni
götumyndir frá Akureyri og texta
en Ásmundur ljósmyndir, skúlp-
túra og málverk.
Sýningin stendur til 10. ágúst
og er opin virka daga frá kl. 11
til 18 og um helgar frá 14.til 18.
Hljómsveitin
SAGA-KLASS
leikur fyrir dansi
Berglindi Björk og
Reyni Guðmundssyni.
íKóteC WEJZ
sími 462 2200.
IIT........
irí
iÓHBIOÖ SH
000 fla0« 10000081
AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir
sýnir í Glugganum, sýningarrými
á vegum Listasumars í verslunar-
glugga vöruhúss KEA í Hafnar-
stræti í eina viku frá og með degin-
um í dag.
í Glugganum sýna í sumar tíu
listamenn og er skipt einu sinni í
viku, á föstudögum.
Aðalheiður útskrifaðist frá
Myndlistaskólanum á Akureyri,
málaradeild, vorið 1993 og hefur
síðan verið starfandi myndlistar-
maður á Akuryeri. Hún hefur hald-
ið þrjár einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum.
Verk Aðalheiðar verður í Glugg-
anum til 3. ágúst næstkomandi.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Hann sýndi á Akureyri árið 1967,
í Norræna húsinu 1970 og 1977,
í Skálholti 1993 og í fyrra sýndi
hann verk sín í Colshester Arts
Festival og í Hallgrímskirkju.
Tónlist eftir Hafliða verður flutt
í Listasafninu á sýningartímanum.
Göngngata opn-
uð bílaumferð
Bæjarráð
, frestar
afgreiðslu
BÆJARRÁÐ frestaði á fundi
sínum í gær afgreiðslu erind-
is frá verslunareigendum og
hagsmunaaðilum við göngu-
götuna í Hafnarstræti og
nágrenni hennar, en þeir
höfðu farið fram á að bæjar-
yfirvöld að gatan yrði opnuð
fyrir akstur bifreiða í til-
raunaskyni. Jafnframt að
komið verði upp lokunarbún-
aði þannig að hægt verði að
loka götunni og stýra umferð
um hana við viss tilefni.
>
i
i
l
i
!
I
i
I
I
I
»
I
I
I
i
t
i