Morgunblaðið - 28.07.1995, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Tekjur íslandsbanka drógust saman á fyrri hluta ársins en á móti komu minni afskriftarframlög
Hagnaður nam um
113 milljónum króna
HAGNAÐUR íslandsbanka hf. á
fyrri helming ársins 1995 nam 113
milljónum króna. Tap varð af
rekstrinum í upphafi árs vegna
erfiðra rekstrarskilyrða en að sögn
Vals Valssonar, Bankastjóra Is-
landsbanka, hafa þau batnað veru-
lega eftir því sem liðið hefur á
árið. Hagnaður af rekstri bankans
fyrstu sex mánuðina í fyrra nam
105 milljónir króna en hagnaður
ársins var 185 milljónir króna.
Minna framlag á
afskriftareikning
Valur segir þetta vera ásættan-
lega afkomu í ljósi aðstæðna. „Mið-
að við erfið rekstrarskilyrði fyrstu
mánuði ársins þá hefur okkur tek-
ist að bæta afkomuna verulega að
undanförnu og ljósi þess er þessi
afkoma vel viðunandi."
Rétt er að hafa fyrirvara á sam-
anburði á milli ára þar sem íslands-
banki hefur hingað til birt uppgjör
eftir fjóra og átta mánuði og eru
tölurnar fyrir 1994 því áætlaðar.
Framlag bankans á afskrifta-
reikning útlána hefur minnkað
töluvert á milli ára. Alls voru 295
milljónir króna lagðar á afskrifta-
reikning á fyrstu sex mánuðum
ársins, en til samanburðar nam
framlagið 561 milljón króna á
sama tíma í fyrra. Valur segir það
hafa verið markmið bankans að
lækka þessi framlög og sé það
ánægjulegt að sjá árangurinn nú.
Þá hefur vaxtamunur bankans
lækkað nokkuð og var hann nú
4,25% af heildarfjármagni til sam-
anburðar við 4,7% árið 1994. Valur
segir helstu ástæður þessarar
lækkunar vera hækkun innláns-
vaxta bankans umfram útlánsvexti
á fyrri hluta ársins vegna vaxandi
samkeppni auk þess sem vaxta-
hækkun á verðbréfamarkaði hafi
leitt til gengislækkunar á markaðs-
verðbréfum í eigu bankans. Þá
hafi Seðlabankinn þrengt mjög við-
skipti sín við bankana sem hafi
leitt til þess að íslandsbanki hafi
aukið mjög útgáfu bankavíxla á
sama tíma og vextir þeirra hafi
farið hækkandi á markaði.
Samkvæmt uppgjörinu hafa
rekstrartekjur bankans dregist
saman sem nemur ríflega 300
milljónum króna eða um 15% mið-
að við fyrstu sex mánuði ársins
1994. Þar af nam samdráttur í
þjónustutekjum bankans um 125
milljónum króna og munar þar
mestu um aukna sjálfvirkni og
aukna samkeppni, þá sérstaklega
í gjaldeyrisviðskiptum. Auk þess
hafa tekjur vegna innistæðulausra
tékka dregist saman um tæplega
þriðjung frá því sem var á sama
tíma í fyrra og segir Valur að til-
koma debetkorta hafi leitt til auk-
innar skilvísi viðskiptavina.
Rekstrarkostnaður lækkaði á sama
tíma um 23 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfall 10,6%
Niðurstöðutölur efnhagsreikn-
ings lækka um tæpa 5 milljarða
króna frá árslokum 1994 og er sú
lækkun að mestu tilkomin vegna
tilflutnings veðdeildar af efnahags-
reikningi bankans á efnahags-
reikning Verslunarlánasjóðs. Eigið
Milliuppgjör y7_
íslandsbanka
Rekstrareikningur (m ,kr.)
1. jan.- 30. júní 1995
jan.-júní jan.-júní Breyting jan.-des.
1995 1994 1994-1995 1994
Vaxtamunur fyrir framlag í afskriftareikning útlána 1.103 1.307 -204 2.637
Þjónustutekjur 755 876 -121 1.811
1.858 2.183 -325 4.448
Rekstrarkostnaður (1.516) (1.539) -23 (3.025)
Dóttur- og hlutdeildarfélög 66 22 +44 103
Rekstrarafgangur fyrir framlag í afskriftareikning utlána 408 666 -258 1.526
Framlag í afskriftareikning útlána (295) (561) -266 (1.341)
HAGNAÐUR 113 105 +8 185
Efnahagsreikningur 30. júní 1995 Eignir: m. kr. Skuldir: m. kr.
Sjóður, innistæður og verðbréf 7.392 Innlán og bankabréf 39.083
Útlán 39.070 Aðrar skuldir 7.961
Ýmsar eignir 3.123 Víkjandi skuldir 700
Varanlegir rekstrarfjármunir 2.782 Eigið fé 4.623
SAMTALS 52.367 SAMTALS 52.367
fébankansvar4,6milljarðarkróna óbreyttar frá árslokum 1994.
í lok júní og nam eiginfjárhlutfall Innra virði hlutafjár er nú um
10,6% og eru þessar tölur nánast 1,19.
Fyrsta tap Boeingí25 ár
54 pantanir frá einum aðila í nýja kynslóð Boeing 737
Seattle. Reuter.
Hlutabréf
hækka enn
íverði
TÖLUVERT líf var á hlutabréfa-
markaði Verðbréfaþings í gær og
urðu viðskipti með hlutabréf í 13
félögum. Fjárhæðir voru þó í allflest-
um tilvikum lágar því heildarvið-
skiptin námu aðeins um 8,5 millj-
ónum og munar þar mest um við-
skipti með bréf í Eimskip fyrir rúm-
ar 2 milljónir.
Verð bréfa hélt áfram að hækka
o g má þar nefna að bréf í Flugleiðum
hækkuðu úr 2,11 í 2,15. Þá hækk-
uðu hlutabréf í íslandsbanka í kjöl-
far þess að birtar voru tölur um
hagnað bankans á fyrri helmingi
ársins. Lokaverð bréfanna var 1,13
og hækkaði það úr 1,08.
Þingvísitala hlutabréfa var skráð
1.116,3 stig við lokun viðskipta og
hafði hækkað um 0,82% yfir daginn.
BOEING-flugvélaverksmiðjumar
hafa skýrt frá fyrsta tapi sínu í
rúman aldarfjórðung vegna
greiðslu upp á 600 milljónir dollara
til starfsfólks, sem þáði boð um
að fara á eftirlaun, en sérfræðing-
ar segja að rekstrarhagnaður fyrir-
tækisins sé meiri en búizt hafi
verið við.
Boeing tilkynnti einnig að fjár-
mögnunarleigan Intemational Le-
ase Finance Corp. hefði pantað 54
þotur af næstu kynslóð gerðarinn-
ar 737 að andvirði 2.25 milljarðar
dollara.
Nettótap Boeing á þremur mán-
uðum til júníloka nam 231 milljón
dollara, eða 68 sentum á hluta-
bréf, samanborið við hagnað upp
á 222 milljónir dollara, eða 65 sent
á hlutabréf, á sama tíma í fyrra.
Þetta var fyrsta tap mesta flug-
vélaframleiðanda heims síðan á
fjórða ársfjórðungi 1969.
Sala Boeing jókst í 5.6 milljarða
dollara úr 5.4 milljörðum dollara.
Án ellilífeyrisgreiðslunnar segir
Boeing að nettótekjur hefðu numið
254 milljónum dollara, eða 74 sent-
um á hlutabréf, en sérfræðingar
höfðu búizt við 45-60 senta hagn-
aði.
Hlutabréf í Boeing hækkuðu um
2,75 dollara í 66,75 dollara í kaup-
höllinni í New York.
Tilboð International Lease Fin-
ance, sem lengi hefur verið búizt
við, er talið bera vott um að sjá
megi fyrir endann á langri niður-
sveiflu í flugvélaiðnaðinum.
Sérfræðingar telja líklegt að
leigufyrirtækið reyni að gera góð
kaup þegar iðnaðurinn sé í lægð
og geymi flugvélar fram á næsta
áratug þegar talið er að eftirspurn
muni aukast.
Intemational Lease Finance vill
fá Boeing-þotur sínar afhentar frá
nóvember 1997 til síðari hluta árs
2004. Þær eru flestar af minnstu
gerð Boeing, 737-600, sem taka
um 100 manns í sæti. ILF áskilur
sér hins vegar til að breyta mörg-
um pöntunum sínum og fá í stað-
inn stærri þotur af gerðunum
737-700 eða 737-800, sem tekur
185 farþega.
ILF pantaði í fyrra margar þot-
ur frá öðrum stærsta framleið-
andanum, Airbus í Evrópu, an at-
hygli vekur að fyrirtækið hefur
ekki sýnt áhuga á vélum frá 3.
helzta framleiðandanum, McDonn-
ell Douglas. Fái McDonnell Dou-
glas ekki pantanir frá ILF er talið
að það muni auka efasemdir um
hvort fyrirtækið muni halda velli.
Þotur með afslætti
Á síðustu mánuðum hefur Bo-
eing slegið af verði flugvéla sinna
til að örva pantanir. Síhækkað
verð flugvéla hefur dregið úr sölu
og nýuppgerðar gamlar vélar hafa
orðið eftirsóknarverðari en nýjar
þotur að sögn Wall Street Journal.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) ÁKR. 10.000,00
1984-1.fl. 01.08.95-01.02.96 kr. 70.935,70
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 28. júlí 1995
S
SEÐLABANKIISLANDS
Canadian Airlines í rekstrarerfiðleikum
Samið við flugmenn
um launalækkun
Calgary, Alberta. Reuter.
FLUGFELAGIÐ Canadian Airlines
hefur komizt að samkomulagi við
1200 flugmenn félagsins um sparnað
upp á 41 milljón Kanadadali (30.3
milljónir Bandaríkjadala).
Samningurinn mun „draga úr
flugmannakostnaði um 24%“ sam-
kvæmt tilkynningu frá báðum aðil-
um. Félagið á eftir að semja við fjög-
ur önnur verkalýðsfélög.
Starfsmenn Canadian Airlines í
Calgary eru um 17.000 og það er
annað stærsta flugfélag Kanada,
næst á eftir Air Canada í Montreal.
AMR, móðurfyrirtæki American
Airlines, stærsta flugfélags Banda-
ríkjanna, á 33% hlut í því.
Síðan í maí hefur Canadian átt í
erfiðum viðræðum við verkalýðsfélög
um að draga úr rekstrarkostnaði um
125 millj. Kanadadollara á ári. í fyrra
var gerð endurskipulagning á fyrir-
tækinu, eins sú víðtækasta sem um
getur í Kanada. Að sögn Kevins
Graystons varaforstjóta hafa viðræð-
urnar við flugmennina snúizt um
breytingar á vinnureglum og „niður-
færslu launa.“ Formaður félags flug-
manna Canadian segir að samning-
urinn muni auðvelda félaginu að
gera rekstur þess ábatasaman á ný
og jafnframt verja „grundvallarhags-
muni“ flugmanna þess.
Flugfélagið var rekið með tapi upp
á 37.8 milljónir Kanadadali 1994 og
hefur ekki skilað árshagnaði síðan
1988. Hlutabréfín seljast á um 5
Kanadadali í Toronto og hafa lækkað
úr 13,25 dölum síðan í september.
Sérfræðingar spá því að Canadian
muni halda velli, þar sem ólíklegt sé
að Kanadstjórn muni sætta sig við
einokun í flugmálum landsins.
Á öðrum ársfjórðungi 1995 mun
Canadian hafa verið rekið með tapi
upp á 20 milljónir Kanadadala sam-
anborið við 1.5 milljóna dala hagnað
á sama tíma í fyrra.