Morgunblaðið - 28.07.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995 15
ÚRVERINU
Versnandi afkoma Útgerðarfélags Akureyringa á fyrri hluta ársins
Stefnir í 100 milljónatap
TAP varð á rekstri Útgerðarfélags
Akureyringa hf. á fyrri hluta árs-
ins. Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er útlit fyrir að heildartap árs-
ins verði á annað hundrað milljón-
ir kr. ef ekki tekst að bæta rekst-
urinn en að því hafa stjórnendur
félagsins unnið. Lakari afkoma en
á síðasta ári er meðal annars rak-
in til verkfalls sjómanna og lækk-
unar á gengi Bandaríkjadals.
Stjórn ÚA hefur fengið til um-
íjöllunar bráðabirgðatölur um af-
komu félagsins fyrstu sex mánuði
ársins en endanlegar tölur hafa
ekki verið kynntar. Samkvæmt
þeim er útlit fyrir verulegt tap á
rekstrinum. Á síðasta ári var 155
milljóna kr. hagnaður af rekstri
fyrirtækisins.
Verkfall og
lækkun dollars
Lakari afkoma en í fyrra er að
stórum hluta rakin til tekjutaps í
verkfalls sjómanna í vor. Þá selur
ÚA stærri hluta framleiðslu sinnar
í Bandaríkjadölum en mörg önnur
frystihús þar sem það framleiðir
mikið fyrir Bandaríkjamarkað.
Tekjur félagsins hafa því lækkað
af þeim sökum. Loks hefur mikill
samdráttur í grálúðuafla haft
slæm áhrif á reksturinn.
Kostnaður minnkaður
Stjórn félagsins og starfsmenn
hafa gripið til ákveðinna ráðstaf-
ana til að minnka tapið. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins hefur
verið reynt að minnka yfirvinnu
og spara í veiðarfærum togaranna
en ekki hefur komið til uppsagna.
Þá hefur verið áframhaldandi
vinna við að bæta framleiðsluna
til að auka verðmæti hennar. Góð-
ur karfaafli ísfisktogaranna að
undanförnu hefur einnig haft já-
kvæð áhrif á reksturinn í júlí og
dregið eitthvað úr taprekstrinum,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Ekki náðist í Gunnar Ragnars
framkvæmdastjóra eða Jón
Þórðarson stjórnarformann í gær.
Nýtt frystiskip
bætist í flotann
Sindri VE 500, sem er 1.040
brúttólesta frystiskip í eigu Meitils-
ins hf. í Þorlákshöfn og Vinnslu-
stöðvarinnar hf. í Vestmannaeyj-
um, kom til landsins síðstliðinn
fimmtudag. Skipið, sem er keypt
frá Frakklandi, er nú í sinni fyrstu
veiðiferð.
Á Sindra verður 25 mann áhöfn
sem aðallega verður frá Þorlákshöfn
og Vestmannaeyjum. Skipstjóri er
Helgi Ágústsson frá Vestmannaeyj-
um, 1. stýrimaður er Hilmar Stef-
ánsson og 1. vélstjóri er Ólafur
Kristjánsson. Helgi Ágústsson skip-
stjóri sagði að sér litist mjög vel á
skipið, það hefði reynst vel á heim-
leiðinni. Þótt ekki hefði reynt á sjó-
hæfnina sökum góðs veðurs væri
hann viss um að Sindri væri gott
sjóskip. Darri Gunnarsson útgerð-
arstjóri sagði að ekki væri fyrir-
fram ákveðið hvar skipað yrði upp
úr skipinu heldur réðist það af því
hvar það væri hagkvæmast hveiju
sinni. Hann sagði að Sindri væri
11 ára en hann hefði verið gerður
upp og sett í hann ný vinnslulína.
Fyrirtækin tvö í Þorlákshöfn og
Vestmannaeyjum eiga jafnan hlut
í skipinu en auk þess á Olíufélagið
hf. 4%.
Morgunblaðið/Silli
Málað þegar
kvótinn
er búinn
SAMDRÁTTUR í anaheimildum
undanfarinna ára kemur bæði
við útgerðarmenn lítilla fiski-
skipa og stórra. Smám saman
er að herða að hjá mönnum
enda aðeins liðlega mánuður
eftir af kvótaárinu. „Það er ekki
skemmtilegt að vera að mála í
þessari blíðu, þótt þess þurfi
auðvitað með. En kílóin eru búin
og júlí ekki búinn,“ sagði hinn
þekkti trillukarl á Húsavík,
Þórður Ásgeirsson, í samtali við
fréttaritara niður við höfn.
Þórður gerir út aflamarksbát
og er búinn að veiða þann kvóta
sem í hans hlut kom á árinu.
Hagkaupsútsalan
heldur áfram . . .
Enn meiri verðlækkanir
Herrapólóbolur Dömupeysa
Stærðir: S-XL Stærðir: M-L
Áður kr. 1.495,-
nú kr. 569.
Áður kr. 3.995,-
nú kr.1,499
Stúlkna-
leggingsbuxur
Stærðir: 128-170
Áður kr. 1.795,-
nú kr.669,-
Dömu-
ökklaskór
Stærðir: 36-41
Áður kr. 2.995,-
nú kr. 1.195,
Strátaska
Áður kr. 1.295,-
nú kr. 499.-
Ungbarna-
dress
Stærðir: 62-86
Áður kr. 1.495,-
nú kr.969.'
Þetta eru aðeins örfá dæmi um frábær verð á útsölunni
HAGKAUP
fyrir fjölskylduna