Morgunblaðið - 28.07.1995, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLENT
Orkla ákveður
að selja Hansa
Ósló. Reuter.
NORSKA fyrirtækið Orkla AS
greindi frá því í gær að það hefði
ákveðið í samráði við Volvo í Svíþjóð
að selja brugghúsið Hansa vegna
gagnrýni Evrópusambandsins. Orkla
sagði að salan á Hansa myndi ekki
hafa nein áhrif á áformin um sam-
runa brugghúsana Ringnes, sem er
í eigu Orkla og Pripps, sem er í eigu
Volvo.
Framkvæmdastjóm ESB hafði
harðlega gagnrýnt áform fyrirtækj-
anna um samruna með þeim rökum
að hið nýja fyrirtæki fengi yfirburða-
stöðu á norska markaðnum og því
væri samruninn óleyfilegur sam-
kvæmt reglum EES-samningsins um
hringamyndun. Krafðist fram-
kvæmdastjórnin þess að Hansa, sem
er í eigu Pripps, yrði selt.
Hefur nú verið ákveðið að Hansa,
sem hefur höfuðstöðvar í Bergen,
verði selt á næsta ári.
Samruni Ringnes og Pripps var
liður í víðtækara samkomulagi Orkla
og Volvo frá byijun apríl um að
Orkla keypti matvæladeild Volvo,
Procordia Foods.
Talsmenn Orkla sögðu sölu Hansa
hafa hverfandi áhrif fyrir fyrirtækið
þar sem að velta þess næmi einung-
is 6-7% af heildarveltu hins nýja
drykkjarvörurisa. Með þessu væri
hins vegar tryggt að framkvæmda-
stjórnin myndi leyfa samruna fyrir-
tækjanna.
Að öllu óbreyttu hefðu Ringnes
og Pripps haft 90% markaðshlut-
deild á norska bjórmarkaðnum.
Búist er við að framkvæmdastjóm-
in taki formlega afstöðu til samruna
Pripps og Ringnes í september.
fórSvenfö
QOMT
naringsJivct^^*^-.?.
■n _
»’ TConvergcnskrav racker inte'
Z^rige rtáeto Sgp)
ÞRÁTT fyrir mikla umræðu um myntbandalag Evrópu og önnur
Evrópumál eru hafa Svíar miklar efasemdir um ágæti samstarfsins.
Nýju ESB-borg-
ararnir eru efa-
semdarmenn
Brussel. Reuter.
ÍBÚAR nýjustu aðildarríkja ESB,
Svíþjóðar, Austurríkis og Finnlands,
eru þeir sem mestar efasemdir hafa
um framtíð sambandsins. Kemur
þetta fram í nýrri skoðanakönnun,
sem framkvæmdastjórn ESB gerði
opmbera í gær.
íbúar þessara ríkja hafa minnstan
hug á frekari samruna Evrópusam-
bandsríkjanna og hafa minnstar
áhyggjur af því að ESB kunni að
leysast upp, segir í fréttatilkynningu
frá framkvæmdastjórninni.
Tæplega helmingur þeirra sem
svöruðu í könnuninni sögðu það vera
„gott“ að vera aðilar að ESB og
almennt sýndu menn þróun sam-
bandsins mun minni áhuga en í öðr-
um aðildarríkjum.
Eiga íbúar nýju aðildarríkjanna
mesta samleið með Bretum og Dön-
um hvað varðar afstöðuna til Evr-
ópusambandsins að mati fram-
kvæmdastjórnarinnar.
Einungis 39% Svía, 40% Austur-
ríkismanna og 47% Finna sögðu
aðild vera jákvæðan hlut. í „gömlu“
ESB-ríkjunum var hlutfaliið hins
vegar allt að 57%.
Þá er meirihluti Svía, Finna og
Austurríkismanna andvígur því að
tekinn verði upp sameiginlegur
gjaldmiðill fyrir ESB-ríkin líkt og
gert er ráð fyrir í Maastricht-sátt-
málanum.
Könnunin leiddi einnig í ljós að
einungis 40% íbúa ESB vissu að
Finnland væri orðið að aðildarríki
en rúmlega helmingur hafði áttað
sig á aðild Svíþjóðar og Austurríkis.
Það voru fyrst og fremst Bretar,
Portúgalar, Spánveijar og Hollend-
ingar sem áttu í erfiðleikum með
að nefna nýju aðildarríkin.
64% aðspurðra töldu hins vegar
fjölgun aðildarríkja eiga eftir að
hafa jákvæð áhrif.
Meirihluti vill ESB-stjórn
Brussel. Reuter.
MEIRIHLUTI íbúa Evrópusam-
bandsins er hlynntur því að komið
verði á sameiginlegri ESB-stjórn,
samkvæmt skoðanakönnun á vegum
framkvæmdastjórnarinnar.
Alls sögðust 55% íbúa aðildaríkj-
anna vera hlynntir slíkri stjórn.
Meirihluti var fyrir hugmyndinni í
átta ríkjum en könnunin var fram-
kvæmd í desember er aðildarríkin
töldu ennþá tólf. Niðurstöður henn-
ar voru þó ekki kynntar fyrr en í
gær. Mestur var stuðningurinn í
Belgíu' (63%) en minnstur í Bret-
landi (38%).
Ef þeir sem ekki vildu taka af-
stöðu til málsins eru taldir frá er
einungis meirihluti andvígur hug-
myndinni í Danmörku. 63% Dana
sögðust ekki vilja neina ESB-stjórn.
Reuter
Konan sem heillaði Washington
EKKJA kínverska hershöfðingj-
ans og forsetans Chiang Kai-
sheks er í sex vikna heimsókn í
Bandaríkjunum i tilefni þess að
2. september verður hálf öld lið-
in frá því stríðinu gegn Japan
lauk. Ekkjan kom á miðvikudag
í þinghúsið í Washington og
minntist ræðna sem hún flutti
árið 1943 á Bandaríkjaþingi,
fyrst óbreyttra borgara, þar
sem hún lýsti hetjulegri baráttu
Kínverja og hvatti Bandaríkja-
menn til að styðja þá í stríðinu.
Ræðurnar þóttu afar áhrifa-
rikar og eitt dagblaðanna sagði
hana hafa „tekið borgina með
töfrum en ekki áhlaupi". A
myndinni er ekkjan m.a. með
Caspar Weinberger, fyrrver-
andi varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna (efst t.h.), en á
veggjum móttökusalarins voru
myndir af ekkjunni með Dwight
Eisenhower, Winston Churchill,
Franklin Roosevelt og Harry
Truman og fleiri leiðtogum sem
eru löngu fallnir frá.
írakar vilja
samskipti
við Kúveit
og Saudi-
Arabíu
Rabat. Reuter.
ÍRAKAR eru reiðubúnir að taka á
ný upp samskipti við erkióvini sína
úr Persaflóastríðinu, Saudi-Araba
og Kúveita, eftir fimm ára hlé.
Þetta er haft eftir utanríkisráð-
herra íraks, Mohammad Saeed al-
Sahaf, í marokkósku dagblaði í gær.
Yfirvöld í írak hafa ekki haft
nein bein tengsl við þessi tvö lönd
síðan íraskar hersveitir réðust inn í
Kúveit í ágúst 1990. Bandarískar
hersveitir, sem voru í fararbroddi
alþjóðaliðsins sem hrakti íraka á
brott, fengu að hafa aðsetur í Saudi-
Arabíu í febrúar 1991.
Marokkóska blaðið birti viðtal við
al-Sahaf sem var á ferð þar í landi.
Sagði hann að írakar ættu sam-
skipti við Quatar, Oman og Bahra-
in. Vonir stæðu til að samskipti við
Sameinuðu arabísku furstadæmin
kæmust á innan tíðar. „Við höfum
lýst áhuga okkar á samböndum við
hvaða ríki sem er [við Persaflóa],
þar með talið Saudi-Arabíu og Kú-
veit,“ sagði al-Sahaf.
Hann var spurður hvort hann
teldi líklegt að sættir næðust innan
tíðar við löndin við Persaflóa. „Það
mun taka nokkurn tíma,“ svaraði
hann.
Viðskiptabanni verði aflétt
Al-Sahaf var á ferð í Marokkó
til þess að flytja Hassan konungi
skilaboð frá Saddam Hússein, for-
seta Iraks, varðandi viðskiptabann
sem Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) settu
á landið í kjölfar innrásarinnar í
Kúveit.
„írakar hafa orðið við öllum kröf-
um þjóða heims og SÞ. Það er kom-
inn tími til að Oryggisráðið létti
banninu á landið," sagði al-Sahaf.
Faðir Hendrix hreppir auðinn
Washington. The Daily Telegraph.
SÁTT hefur náðst í langvinnum málaferlum föður
Jimi Hendrix og hann fær allar eignir gítarsnillings-
ins, sem metnar eru á jafnvirði 4,4 milljarða króna.
A1 Hendrix, sem er 76 ára fyrrverandi skrúðgarð-
yrkjumaður, vann loks sigur eftir áralöng málaferli
til að greiða úr fjárhagslegum vandræðum sem gítar-
leikarinn var I þegar hann lést fyrir 25 árum, 27
ára að aldri, eftir að hafa tekið of stóran skammt
af svefnlyfjum í íbúð vinkonu sinnar í Lundúnum.
Aðstoðarmenn Hendrix og umboðsmenn höfðu tekið
stóran hluta tekna hans og hann neyddist nokkrum
sinnum til að fara í hljómleikaferðir um Bandaríkin
og Bretland til að afstýra gjaldþroti. Samkvæmt
sáttinni fær faðirinn allar eignir Jimi Hendrix, með-
al annars útgáfuréttinn og frumeintök af upptökum
hans, en haldið er eftir miklum fjárhæðum til að
lúka gömlum skuldum.
Hendrix var alltaf vinsælli í Bretlandi en Banda-
ríkjunum og eina lag hans sem seldist verulega vest-
an hafs var útgáfa hans af lagi Bobs Dylans, „All
Along the Watchtower“, sem náði 20. sæti á vinsæld-
arlistum. Tekjurnar af útgáfuréttinum vegna platna
hans í öllum heiminum nema þó enn sem svarar
tæpum 200 milljónum króna á ári.
Kínveijar skýra frá afdrifum andófsmanns
Segja Wu viðurkenna fals-
anir í heimildarmynd
Peking. Reutcr.
ANDÓFSMAÐURINN Harry Wu,
sem handtekinn var í Kína fyrir
skömmu, hefur játað að staðreyndir
í sjónvarpsmynd sem tekin var með
leynd í kínverskum vinnufangabúð-
um séu falsaðar, að sögn kínversku
ríkisfréttastofunnar Xhinhua í gær.
Wu er 58 ára gamall, fæddur í Kína
og var sjálfur í 19 ár í vinnubúðum
en fékk bandarískan ríkisborgara-
rétt 1985.
Wu hefur verið atkvæðamikill í
baráttu sinni gegn mannréttinda-
brotum kínverskra stjórnvalda á
opinberum vettvangi í Bandaríkjun-
um síðustu árin. Handtaka hans 19.
júní sl. hefur valdið miklum kryt í
samskiptum Kína og Bandaríkjanna,
ekki síst vegna þess að ekkert var
látið uppi um afdrif hans af hálfu
Kínverja þar til nú.
Á myndbandi, sem Xhinhua birti
og virtist vera tekið án vitundar
Wu, er hann sýndur við yfirheyrslur
virðist hann mjög þreytulegur og
svo lágróma að vart verður greint
hvað hann segir. Myndbandið er
nefnt „Sjáið hvernig Wu Hongda
lýgur".
Kínverjar sögðu í fyrstu að Wu
hefði gerst sekur um njósnir. Hann
laumaðist inn í Kína nokkrum sinn-
um á árinu, stundum í dularklæðum,
til að afla sér upplýsinga um mann-
réttindabrot á föngum. Kínverska
fréttastofan sagði að hann hefði
áður hlotið dóma fyrir þjófnað.
HBChvikar hvergi
Stjórnvöld í Peking segja að Wu
hafi gengist við því að tvær heimild-
armyndir breska ríkissjónvarpsins
BBC, sem gerðar voru með aðstoð
hans, væru falsanir. Þar er m.a.
sagt að vörur, sem fangar fram-
leiði, séu seldar til Vesturlanda, auk
þess séu nýru úr föngum seld nýrna-
þegum í Kína.
„Ég skeytti þeim ekki saman,“
segir Wu á myndbandi Kínveija.
„Þetta er rangt. . . Ég myndi ekki
gera þetta svona.“ Hann minnist á
samtöl við lækna í Chengdu um
nýrnaþegana. „Enginn af læknunum
sagði að nýrun væru úr föngum.
Þeir sögðu allir að þau væru úr sjúkl-
ingum með heiladauða."
Starfsmenn BBC segja að engin
brögð hafí verið í tafli, satt og rétt
sé sagt frá í myndunum. Þar er full-
yrt að þriðjungur af öllum vörum í
verslunum héraðsins Xinjiang sé
framleiddur í vinnubúðum.