Morgunblaðið - 28.07.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995 17
ERLENT
Yestur-Evrópa for-
dæmir Bandaríkjaþing
London, Washington. Reuter.
STJÓRNIR Vestur-Evrópu for-
dæmdu niðurstöðu atkvæða-
greiðslu öldungadeildar Banda-
ríkjaþings um að aflétta vopnasölu-
banninu á Bosníu einróma í gær.
Charles Millon, varnarmálaráð-
herra Frakka, sagði að öldunga-
deildin hefði gert „alvarleg mistök“
með því að greiða atkvæði með því
að banninu verði aflétt. „Afleiðing-
arnar fyrir okkur eru ljósar. Verði
banninu aflétt munu friðargæslu-
sveitirnar fara,“ sagði Millon.
Rússar kváðust harma þessa nið-
urstöðu, en kváðust þó ekki hafa
í hyggju að aflétta viðskipta-
þvingunum, sem settar hafa verið
á Serbíu.
Willy Claes, framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, tók
dýpra í árinni og kvað afnám
bannsins geta leitt til allsheijar
stríðs á Balkanskaga. „Það skapar
ekki forsendur friðar að útdeila
fleiri vopnurn," sagði Claes á blaða-
mannafundi.
Malcolm Rifkind, utanríkisráð-
herra Breta, sagði í blaðagrein í
gærmorgun að það væri „undarlegt
að við skulum bregðast við þján-
ingu fólksins í Bosníu með því að
taka frá því þá aðstoð, sem við
getum veitt því, og leyfa átökunum
að aukast".
„Atkvæðagreiðsla öldungadeild-
arinnar er nýjasta dæmið um klofn-
ing Vesturlanda vegna Bosníu,"
sagði Niels Helveg Pedersen, utan-
ríkisráðherra Danmerkur. „Ef
Frakkar og Bretar hverfa á braut
munu aðrar þjóðir fylgja í kjölfarið
og þá er til lítils að hafa norræna
friðargæsluliða i Bosníu."
Bosníustjórn fagnar
Haris Silajdic, forsætisráðherra
Bosníu, fagnaði hins vegar lyktum
atkvæðagreiðslunnar og sagði að
hún væri sigur réttlætisins.
Tyrkir, sem fyrir nokkrum dögum
lýstu yfir því að þeir hefðu gert
frambúðarsamning við Bosníustjóm
um. hernaðarlegt samstarf og voru
aðiljar að yfirlýsingu fundar mús-
limskra ríkja í Genf um að lýsa
vopnasölubannið „ógilt", sögðu
einnig að niðurstaða þingsins væri
lofsverð. Sams konar yfírlýsing
barst frá Egyptum og í Malasíu var
lýst yfír því að stofnaður hefði ver-
ið sérstakur sjóður til vopnakaupa
handa múslimum í Bosníu.
Öldungadeildin samþykkti með
69 atkvæðum gegn 29 að aflétta
banninu. Fréttaskýrandi Reuter-
fréttastofunnar, Nicholas Doughty,
sagði að þessi niðurstaði gæti orðið
upphafið að hinni „raunverulegu
martröð á Balkanskaga“.
Hann tekur fram að Rússar hafi
gagnrýnt afstöðu Vesturlanda og
þeir gætu brugðist við með því að
selja Serbum vopn ef aðrir taka upp
á því að vígvæða bosníska herinn.
Hefur hann því næst eftir
ónefndum stjórnarerindreka að þá
gæti komið upp sú staða að biturt
stríð verði háð í hjarta Evrópu þar
sem Rússa og Bandaríkjamenn
verði í andstöðu hveijir við aðra.
Forseti Tævans fordæmir eldflaugatilraunir Kínveija
Lofar aukínni víg--
va'ðingxi í Tævan
Taipei. Reuter.
LEE Teng-hui, forseti
Tævans, sagði í gær að
Tævanir myndu ekki láta
undan þrýstingi Kínveija
og lofaði aukinni vígvæð-
ingu til að fæla þá frá árás-
um á eyjuna.
Verð hlutabréfa hækk-
aði um 5,55% eftir að Kín-
veijar hættu eldflaugatil-
raunum sínum sem höfðu valdið
verðfalli á íjármálamörkuðum
Tævans.
Spennan milli Tævans og Kína
hefur aldrei verið jafn mikil frá
því þýða hófst í samskiptum ríkj-
anna snemma á síðasta áratug.
Þessi spenna setti mark sitt á
stefnuræðu Lees á tævanska þing-
inu, þar sem hann fordæmdi víg-
væðingu Kínveija og árétt-
aði þann ásetning stjórnar-
innar í Taipei að rjúfa ein-
.angrun Tævans á alþjóða-
vettvangi.
Forsetinn sagði að Tæv-
anir myndu ekki láta und-
an þrýstingi Kínveija og
vísaði til sex eldflauga sem
Lee Teng-hiu Kínveijar skutu í tilrauna-
skyni á svæði sem er aðeins 140
km norðan við eyjuna. „Nokkur
ríki á Asíu-Kyrrahafssvæðinu
hyggjast stækka heri sína. Á með-
al þeirra eru Kínveijar vígreifastir.
Þetta skapar ekki aðeins alvarlega
ógnun, heldur veldur þetta óstöð-
ugleika í nálægum löndum."
„Forgangsverkefni okkar í varn-
armálum er að byggja upp varnar-
mátt sem getur hrætt þá og stöðv-
að og gert Kínveijum ljóst að beiti
þeir hervaldi gegn Tævan geti það
kostað þá fórnir,“ hélt Lee áfram.
Sakaður um pólitíska skynvillu
Kínveijar líta á Tævan sem hér-
að í Kína á valdi uppreisnarmanna
og hafa hótað að beita hervaldi ef
Tævanir lýsa yfir sjálfstæði. Ráða-
menn í Taipei og Peking eru sam-
mála um að Tævan sé hluti af
Kína og eigi að sameinast megin-
landinu, en kínversk stjórnvöld
sökuðu Lee um að vera að und-
irbúa sjálfstæðisyfirlýsingu á laun.
Þeir sökuðu tævanska forsetann
meðal annars um að vita ekki
„hvað Kína er“ og nota „pólitísk
skynvillulyf".
Auknar kröfur til
undirsáta páfa
SÚ REGLA hefur löngum átt við
í Páfagarði að allir starfsmenn
páfa skuli vera rómversk-kat-
ólskrar trúar og honum eilíflega
trúir, hvort sem þeir starfa í frí-
höfn staðarins, eða gegna varð-
mennsku.
í október er ætlunin að ganga
skrefi lengra og krefjast þess að
starfsmenn undirriti „siðferðisyf-
irlýsingu“ og skuldbindi sig til
að virða siðaboð katólsku kirkj-
unnar jafnt í einkalífi sem utan.
Þessar reglur hafa í för með
sér að starfsmenn Páfagarðs
mega að 2.300 leikmönnum með-
töldum hvorki skilja, fá fóstur-
eyðingu, né nota getnaðarvarnir.
Þeim verður einnig bannað að
leggja lag sitt við samtök með
„markmið, sem eru ósamrýman-
leg kenningum og agaboðum
kirkjunnar" og vera með
„óspektir á almannafæri, eða
efna til óspekta".
Þessar ráðagerðir hafa vakið
mikla athygli á Italíu með til-
heyrandi fyrirsögnum í dagblöð-
um. „Engin vinna fyrir fráskilda
í Páfagarði," sagði í einni og
„Páfagarður: tökum aðeins um-
sóknir ofur-katólikka,“ sagði á
öðrum stað.
Leikmennirnir ósáttir
Ólíklegt er að yfirvöld í Páfa-
garði komist að því hvort starfs-
menn noti getnaðarvarnir eða
fari í fóstureyðingu. Hins vegar
finnst talsmanni samtaka leik-
manna, sem vinna í Páfagarði,
hart að láta starfsmenn undirrita
eigið uppsagnarbréf.
Starfsmenn Páfagarðs hafa
ávallt notið ýmissa forréttinda.
Þeir hafa haft aðgang að apóteki
þess og fríhöfn og fengið ódýrt
eldsneyti.
Þessum forréttindum hafa
hins vegar fylgt skyldur. Til
langs tíma var sú óskráða regla
að konur í störfum hjá Banka
Páfagarðs og stofnun um starf
kirkjunnar skyldu ekki ganga í
hjónaband. Röksemdin var sú að
fjölskyldan fengi fyrr eða síðar
forgang hjá giftum konum. Það
ríki er vandfundið á Vesturlönd-
um, sem léti slíka röksemda-
færslu viðgangast á vinnumark-
aðnum.
Byggt á International Herald Tribune.
Vinnu vantar
fyrir 200
millj. manns
Peking. Reuter.
KÍNVERJAR horfa fram á
stórfelld félagsleg og pólitísk
vandamál ef ekki tekst að
finna störf fyrir um 200 millj-
ónir bænda sem talið er að
kunni að verða ofaukið árið
2000, að sögn varaforseta
landsins, Wu Bangguo.
Varaforsetinn sagði í blaða-
viðtali að af 450 milljónum
manna sem vinna við landbún-
að, sé ekkert fyrir um 120
milljónir að hafa og að talið
væri að fjöldinn myndi nema
um 200 milljónum árið 2000.
„Ef við nýtum ekki þessa of-
gnótt vinnuafls á annan hátt
mun það leiða til geysilegra
félagslegra og pólitískra erfið-
leika,“ sagði Wu.
Talið er að af 120 milljónun-
um hafi um 60 milljónir nú
þegar flust til borga og bæja
víðs vegar um Kína. Hafa þess-
ir fólksflutningar dregið mjög
úr skorti á vinnuafli í stórborg-
um og ýtt undir hagvöxt.
Skamper Ferðahús
Reuter
Vönduð - veí búín.
Lœgsta verðíð
á marhaðnum
frá Hr. 585.000
með öllum aukahlutum.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, simi
567-1800
Löggild bílasala
Nýr bíll! Renault Safrane 2.2 VI ’94,
steingrár, sjálfsk., ek. aðeins 1600 km.,
rafm. í öllu, fjarst. læsingar o.fl. V. 2.650
þús.
Honda Civic GTi '89, steingrár, 5 g., ek.
104 þ. km., sóllúga o.fl. V. 695 þús.
„Nýr bfll“ Suzuki Sidekick JXi 16v '95,
steingrár, 5 g., óekinn.
V. 1.950 þús.
Toyota 4Runner SR5 EFI '85, sjálfsk., ek.
25 þ.km. 35" dekk, sóllúga, 5:71 hlutföll
Verð 990 þús.
Nissan Patrol GR Diesel Turbo '94, 5 g.,
ek. 23 þ.km. 33" dekk, álfegur. Toppein-
tak. V. 3,7 millj.
Daihatsu Charade TX ’91, 3 dyra, rauð-
ur, 5 g., ek. 52 þ.km. V. 620 þús.
Toyota Carina II '91, dökkblár, 5 g., ek.
40 þ.km. Rafmagn í rúðum o.fl. V. 1.030
þús.
Toyota Corolla XL Sedan ’88, ek. 149
þ.km. V. tilboð 349 þús.
Honda Civic GL ’85, 3 dyra, toppeintak,
5 g., ek. 124 þ.km. V. 250 þús.
Mercedes Benz 280 SE ’84, sjálfsk., ek.
aðeins 95 þ.km. Toppeintak. V. 1.550 þús.
Daihatsu Feroza ’89 EL-II, 5 g., ek. 121
þ.km. V. 790 þús.
Toyota Celica Supra 2,8i, '84, álfelgur,
geislaspilari o.fl. V. 490 þús.
MMC Lancer GLX ’89, 5g., ek. 88 þ.km.
Rafm. í rúðum, central læsing o.fl. V. 650
þús.
Lada Sport ’95, 5 g., ek. 17 þ.km. Létti
stýri. V. 850 þús. sk. ód.
Toyota Corolla DX '86, hvítur, 3 dyra,
sjálfsk., ek. 92 þ.km. V. 330 þús.
Mercedes Benz 230 E ’82, sjálfsk., ek.
220 þ.km., álfelgur sumar- og vetrardekk
á felgum. Ný hedd pakkning og nýr knast
ási. V. 585 þús. Sk. ód.
Suzuki Swift GL '89, 3 dyra, 5 g., ek
aðeins 63 þ.km. V. 430 þús.
Takið eftir! Cadilac Braugham Limosien
(langur) '88, einn með öllu t.d. sjónvarp,
vídeó o.fl. V. 3.9 millj.
MMC L-300 Minibus '90, grár, 5 g., 8
manna, ek. 101 þ. km. V. 1.280 þús.
Suzuki Vitara JLXi '92, 5 dyra, rauður,
sjálfsk., ek. 140 þ. km. (langkeyrsla), gott
ástand. V. 1.390 þús.
Honda Civic DX ’89, rauður, 5 g., ek. 78
þ. km. V. 580 þ.
Toyota Corolla XL Sedan '91, sjálfsk., ek.
71 þ. km. V. 750 þús.
Grand Cherokee Laredo 4.0 I ’95, sjálfsk.
ek. 8 þ. km., V. 3,8 millj.
Range Rover 4ra dyra '87, grásans, 5 g.
ek. 130 þ. km. Gott eintak. Tilboðsverð
kr. 1.400 þús.
M. Benz 230E ’91, svarblár, sjálfsk., ek
aðeins 41 þ. km., ABS-bremstur, fjarst
læsingar og þjófav., sóllúga, geislasp. o.fl
V. 3,3 millj. Sk. ód.
Volvo 740 GL '87, grænn, sjálfsk., ek. 103
þ. km. Rafm. í rúðum o.fl. V. 980 þús.
Vantar góða bfla á skrá
og á staðinn.
Skógareldar á Spáni
SLÖKKVILIÐSMENN beijast við skógarelda norður af Madrid á
Spáni en þúsundir hektarar lands hafa orðið eldi að bráð að undan-
förnu. Miklir hitar og þurrkar í kjölfarið hafa gert slökkviliðsmönn-
um erfitt fyrir með að hefta útbreiðslu skógareldanna.
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!