Morgunblaðið - 28.07.1995, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
' LISTIR
Verkefni næsta leikárs hjá Leikfélagi Reykjavíkur
Ný íslensk verk
í aðalhlutverki
flokknum síðastliðinn vetur. Leik-
ritið gerist á dvalarheimili aldraðra
á íslandi eftir nokkra áratugi og
segir Sigurður að það geymi tima-
bær skilaboð til samfélagsins. Leik-
stjóri er Inga Bjarnason.
í tilefni af fimmtíu ára afmæli
Línu langsokks eftir Astrid Lind-
gren verður verkið sýnt í leikstjóm
Asdísar Skúladóttur i vetur. Með
hlutverk Línu fer Margrét Vil-
hjálmsdóttir sem hefur verið fást-
ráðinn leikari við Borgarleikhúsið í
eitt ár en er einnig kunn af leik
sínum í söngleiknum Hárinu. Frum-
sýning Línu verður 10. september.
Auk framangetinna verka verða
á stóra sviðinu tekin upp tvö verk
frá fyrra leikári: Við borgum ekki,
við borgum ekki eftir Dario Fo og
rokkóperan Jesús Kristur Súperstar
eftir Tim Rice og Loyd Webber.
Litla sviðið
Verkefni á litla sviðinu verða
aðallega unnin í samvinnu LR við
ýmsa utanaðkomandi leikhópa. Eitt
verkanna er þó að fullu í umsjá
leikfélagsins en það heitir Hvað
dreymdi þig, Valentína? og er eftir
Ljúdmílu Razumovskaju, höfund
Kæru Jelenu sem sýnt var nýlega
við góðar undirtektir í Þjóðleikhús-
inu. Þýðandi vérksins er Árni Berg-
mann en leikstjóri verður Hlín Agn-
arsdóttir. Sigurður Hróarsson segir
þetta átakamikið og dramatískt
verk um mæðgur sem leiknar eru
af Guðrúnu Asmundsdóttur, Sig-
Meðal nýjunga sem
bryddað verður upp á í
Borgarleikhúsinu á
næsta leikári er að þar
verður starfrækt hádeg-
isleikhús í forsal. Þröst-
ur Helgason kynnti sér
starfsáætlun Leikfélags
Reykjavíkur.
Á NÆSTA leikári Leikfélags
Reykjavíkur mun verða bryddað
upp á ýmiskonar nýjungum í starf-
semi félagsins. Borgarleikhúsið
verður ekki aðeins vettvangur hefð-
bundinna leiksýninga. Þar verður
starfrækt hádegisleikhús í forsal, í
þeim sama sal verður einnig leikin
kammertónlist og sýnd myndlist,
húsið mun og standa fyrir tónleika-
röð og ýmsum verkefnum í sam-
starfí við leikskáld. Verkefnaskrá
leikhússins mun auk þess einkenn-
ast af fjölda nýrra íslenskra verka.
Hið ljósa man
Morgunblaðið hefur áður greint
frá því að frumsýndur verður nýr
gamanleikur í byijun október og
er hann eftir Ágúst Guðmundsson
sem einnig semur tónlist og leik-
stýrir. Verkið nefnist Tvískinnungs-
óperan. Þar er á ferðinni leikur um
kynin og kynhlutverkin, ástina,
framhjáhald og ferðalög sálna milli
skrokka. Einnig hefur verið sagt
frá verki Kjartans Ragnarssonar
og Einars Kárasonar, íslensku ma-
fíunni, sem byggt er á tveimur síð-
ustu skáldsögum Einars, Heimskra
manna ráðum og Kvikasilfri. Verk-
ið er í leikstjórn Kjartans og verður
frumflutt um áramót.
Þriðja íslenska leikverkið sem
frumflutt verður á stóra sviði Borg-
arleikhússins næsta leikár er Hið
ljósa man sem er ný leikgerð Bríet-
ar Héðinsdóttur eftir íslandsklukku
Halldórs Laxness. Sýningar á verk-
inu heíjast í mars og segir Sigurður
Hróarsson leikhússtjóri að Bríet
taki þessa alkunnu sögu óvæntum
tökum. „Hér er í brennidepli örlaga-
saga Snæfríðar eftir að hún er orð-
in fulltíða kona, þ.e. eftir að hún
er orðin eiginkona skúrksins Magn-
úsar í Bræðratungu og Ámi er aft-
ur kominn heim. Þetta er leikrit sem
þykir vera afskaplega skemmtilega
og vel samansett hjá Bríeti, þetta
er stórbrotið drama um eilífa ís-
lenska konu.“ Ekki hefur enn verið
gengið frá vali leikara í einstök
hlutverk en leikendur verða sextán.
Kvásarvalsinn og Lína
langsokkur
í lok mars verður frumfluttur nýr
gamanleikur eftir Jónas Árnason,
Kvásarvalsinn, sem er endurgerð
verks sem flutt var af Skagaleik-
FRÁ æfingu á Tvískinnungsóperunni. Felix Bergsson, Margrét
Vilhjálmsdóttir og Magnús Jónsson.
rúnu Eddu Björnsdóttur og Ástu
Arnardóttúr. „Verkið tekur á sígild-
um yrkisefnum eins og ástinni,
hamingjunni, draumunum og
árekstrum þeirra við veruleikann."
Sýningar hefjast um miðjan sept-
ember. Önnur verk á litla sviðinu
verða samstarfsverkefni. I janúar-
lok verður frumsýnt nýtt íslenskt
leikrit eftir Hlín Agnarsdóttur, Kon-
ur skelfa, en það gerist á kvenna-
klósetti skemmtistaðar. í samstarfi
við leikhópinn Bandamenn verður
sett upp verk í mars sem byggt er
á frásögnum af Amlóða í íslenskum
fombókmenntum. Næsta vor verð-
ur sett upp brúðusýning í samstarfi
við barnaleikhús Ásu Hlínar Svav-
arsdóttur og Helgu Arnalds. Leikrit
Samuels Becketts, Beðið eftir God-
ot, verður einnig sett upp næsta
vor á litla sviðinu.
í vetur verður sett upp nýtt verk
í samvinnu við Sigríði Margréti
Guðmundsdóttur og leikhóp hennar.
Sigríður er höfundur leikritsins sem
gengur undir vinnuheitinu Kvenna-
athvarfið og fjallar um ofbeldi gegn
konum; er ætlunin að safna saman
leikhúslistafólki með ólíkan bak-
grunn, leikumm, dönsumm og tón-
listarfólki til að flytja verkið.
Einnig verður sýnd ferðasýning
í samvinnu við Benedikt Erlingsson
leikara sem hyggst semja og flytja
einleik byggðan á Gunnlaugssögu
ormstungu.
Sumarsýning ’96
Næsta sumar verður sett upp
nýtt leikrit eftir Jim Cartwright sem
er höfundur verkanna Stræti, Bar-
Par og Taktu lagið Lóa, sem öll
hafa verið sýnd hér á landi. Nýja
verkið, Stone Free, verður fmmsýnt
í West End í London í lok þessa
árs. Verkið fjallar um hippaárin og
er rokktónlist sjöunda áratugarins
leikin í sýningunni. Leikstjóri verð-
ur Magnús Geir Þórðarson.
I
I
I
)
>
y
>
\
Islensk-spænsk lista-
kona í Galleríi Kaffi 17
MARIBEL Gonzalez Siguijons, ung
íslensk-spænsk listakona, heldur
sýningu á verkum sínum í Galleríi
Kaffi 17, Laugavegi 91, 28. júlí til
11. ágúst. Hún sýnir einþiykks-
myndir og myndir unnar með
blandaðri tækni.
Listakonan stundaði nám við
San Eloy-listaskólann í heimaborg
sinni Salamanca 1981-92 og lauk
prófi í fagurlistum frá háskólanum
í Salamanca. Hún hefur haldið
einkasýningar og tekið þátt í far-
andsýningum víða á Spáni frá 1986
og hlaut verðlaun San Eloy-lista-
skólans í Salamanca 1987. Hún
hefur að auki fengið ýmsar viður-
kenningar fyrir teikningar, grafík,
málverk og höggmyndir. Maribel
Gonzalez Siguijons hefur dvalist
hér á landi í sumar. Sýning hennar
verður opnuð í dag kl. 17.
Perlman Yo-Yo Ma
Seiji Ozawa
heiðraður
BOSTON-sinfónían hélt í vikunni
afmælistónleika fyrir stjórnand-
ann Seiji Ozawa, fíðluleikarann
Ytzhak Perlman og sellóleikarann
Yo-Yo Ma. Ozawa verður sextugur
1. september, Perlman fímmtugur
31. ágúst og Ma fertugur 7. októ-
ber.
MARIBEL Gonzalez Sigurjons
Morgunblaðið/Golli
Tvær
sýningar 1
Hveragerði
ÞORBJÖRG Pálsdóttir og Hannes
I.árusson sýna í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði frá 30. júlí til
september. Á þessari sýningu Þor-
bjargar eru tíu verk sem spanna
um 25 ára tímabil i listsköpun
hennar og er hér að finna flest
af dæmigerðum viðfangsefnum
hennar. Fáein verkanna hafa ekki
verið sýnd opinberlega fyrr og
önnur ekki í yfir tuttugu ár. Á
þessari sýningu Hannesar eru
verk gerð á tíu ára tímabili þar
sem um er að ræða sum af dæmi-
gerðum viðfangsefnum hans. Mest
áhersla er hér lögð á verk unnin
úr tré. Sum eldri verkanna hafa
ÞORBJORG Pálsdóttir:
„Stebbi og Kata með
bolta“ 1983.
verið lagfærð og endurbætt, einn-
ig eru á sýningunni nokkur verk
sem ekki hafa verið sýnd fyrr.
Fólkið er orðið
háð menningunni
VOPNAFJARÐAR-
DAGAR er heitið á
menningarhátíð á
Vopnafírði sem nú er
haldin í annað skipti á
jafnmörgum árum.
Dagskráin verður fjöl-
breytt sem fyrr og
koma þar við sögu jafnt
heimamenn sem og
þjóðkunnir skemmti-
kraftar. Meðal dag-
skráratriða verða
gönguferðir, hestaferð-
ir og sigling auk þess
sem sýnd verða gömul
vinnubrögð til sveita
að Bustarfelli og farin
verður kaupstaðarferð
á hestum að gömlum sið frá Sæ-
mundarseli auk þess sem lands-
kunnar hljómsveitir leika fyrir dansi
um Verslunarmannahelgina. Sigríð-
ur Sverrisdóttir er formaður menn-
ingarmálanefndarinnar sem hefur
haft veg og vanda af skipulagningu
hátíðarinnar.
Sagnameistarakvöld
Hátíðin hefst í dag, laugardag,
með opnun sýningar á málverkum
Sigfúsar Halldórssonar tónskálds
og myndlistarmanns sem verður 75
ára í ár. Að sögn Sigríðar kom
Sigfús, sem er ættaður af staðnum,
til Vopnafjarðar í fyrra og gerði
skissur. Hann hefur notað síðastlið-
ið ár til að vinna málverk eftir þeim
og afraksturinn verður til sýnis í
safnaðarheimilinu til 6. ágúst.
í kvöld hefst svo Sagnameistara-
kvöld í Miklagarði þar sem þekkt
fólk segir skemmtisögur af sér og
öðrum. Sigríður sagðist hafa fengið
hugmyndina að láni frá Kaffíleik-
húsinu í Hlaðvarpanum í Reykjavík
en þangað fór hún á svipað sagna-
kvöld síðastliðinn vetur og skemmti
sér vel. „Ég hef fengið
til liðs við mig þekkta
sagnamenn hér úr ná-
grenninu ásamt leikur-
unum Brynju Bene-
diktsdóttur _ og Erling
Gíslasyni. Ég lagði á
það áherslu þegar ég
valdi sagnamenn að
þeir gætu hæðst að
sjálfum sér og öðrum á
góðlátlegan hátt,“
sagði Sigríður.
Með íslenskuna að
vopni
Hagyrðingakvöld
með undirtitilinn „Með
íslenskuna að vopni“ er
einn hápunkta hátíðarinnar og von-
ast Sigríður eftir að allt að 500
manns mæti á það kvöld enda munu
þar margir landskunnir hagyrðingar
láta gamminn geysa. Ómar Ragn-
arsson skemmtikraftur og sjón-
varpsmaður sér um stjóm kvöldsins.
„Með því að nefna kvöldið þessu
nafni vil ég minna á mikilvægi þess
að við varðveitum tungumálið okkar
og látum það verða okkur að vopni,
því við eigum undir högg að sækja
fyrir enskunni sem er alltaf að verða
ríkari þáttur í umhverfi okkar.“ Hún
segir að fólk út í sal geti lagt fram
fyrriparta og tekið virkan þátt í
kvöldinu og hefur heyrt af mörgum
hagyrðingum sem ætla að mæta,
tilbúnir í slaginn.
Vopnafjarðarhátíðin tókst af-
bragðs vel í fyrra og Sigríður á von
á að svo verði einnig núna enda eru
Vopnfirðingar að verða háðir menn-
ingunni, eins og hún orðaði það.
Menningarviðburðir eru margir og
fíölbreyttir allt árið um kring og
aðsókn að þeim er til fyrirmyndar.
„Ég er stolt af Vopnfirðingum,“
sagði Sigríður að lokum'.
SIGRÍÐUR Dóra
Sverrisdóttir
»
;
>
í
í
I
I
r
i