Morgunblaðið - 28.07.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995 19
LISTIR
Lof borið á
Sigurð Flosason
PLATA Kvintetts Guys Barkers,
Into the Blue, var á þriðjudag til-
nefnd til Mercury-tónlistarverðlaun-
anna, en meðal meðlima er saxófón-
leikarinn Sigurður Flosason.
Mercury-verðlaunin eru ein helstu
tónlistarverðlaun Bretlands og sjald-
gæft er að jassplötur séu tilnefndar.
Platan, sem heitir Into the Blue, og
Verve jassútgáfan sögufræga gefur
út um heim allan, er í hópi tíu platna
sem tilnefndar eru.
Sigurður segir að platan hafi ver-
ið tekin upp í desember í Bretlandi,
en hann hefur farið nokkrar stuttar
tónleikaferðir um Bretland með Bar-
ker frá því á síðasta ári og segir að
ýmislegt sé á döfinni í framtíðinni.
Hann segir að mannaskipan sé í
föstum skorðum, „þetta er nokkuð
alþjóðlegt, píanóleikarinn, Bernardo
Sassetti, er portúgalskur, kontrabas-
saleikarinn, Alex Dankworth, er einn
fremsti ungi bassaleikari Breta í
dag, sonur Cleo Lane og Johns
Dankworths, og trommuleikarinn,
Ralph Salmins, er mikill hljóðvers-
maður, og leikur meðal annars á
Fjórar sýn-
ingar í Ný-
listasafninu
Á MORGUN kl. 20 verða opnaðar
fjórar sýningar í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b í Reykjavík. Sýnendur
í aðalsölum eru Frederike Feldman,
Frank Reitenspiess og Markus Stri-
eder frá Þýskalandi og Gunilla Ban-
dolin frá Svíþjóð. Harpa Árnadóttir
er gestur safnsins í setustofu að
þessu sinni.
Frederike Feldman frá Þýska-
landi sýnir málverk í forsal safnsins
undir yfírskriftinni Persnesk teppi.
Frank Reitenspiess og Markus
Strieder eru með samvinnuverk sem
ber heitið Sól úti og sól inni og er
það annars vegar staðsett í Nýlista-
safninu og hins vegar í borgarrým-
It’s Oh Quiet með Björk Guðmunds-
dóttur."
„Þetta skiptir auðvitað gríðarlega
miklu máli fyrir sölu á plötunni og
alla kynningu á kvintettnum," segir
Sigurður, en platan hefur líka feng-
ið góða dóma. Þannig fær hún mik-
ið lof í breska blaðinu Guardian,
meðal annars er hún valin plata vik-
unnar og blaðið segir að eini ungi
trompetleikarinn sem stenst sam-
jöfnuð við Barker sé Wynton Marsal-
is, en Sigurðar er getið sem stórkost-
legs saxófónleikara.
ínu, nánar tiltekið undir þremur
vegabrúm í Reykjavík.
Sýningarnar eru opnar daglega
frá kl. 14-18 og þeim lýkur sunnu-
daginn 13. ágúst.
-----» ♦ ♦-----
Glugginn
Akureyri
AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir
sýnir í Glugganum á Ákureyri.
Glugginn er sýningarrými á veg-
um Listasumars ’95 í verslunar-
glugga vöruhúss KEA í Hafnar-
stræti. Þar sýna nú í sumar tíu lista-
menn og er skipt einu sinni í viku,
á föstudögum.
Aðalheiður útskrifaðist frá
Myndlistarskólanum á Akureyri,
málaradeild, vorið 1993. Hún hefur
síðan verið starfandi myndlistar-
maður á Akureyri. Aðalheiður hefur
haldið þijár einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum.
Veröld útilegumanna og vætta
Borgarfjörður. Morgunblaðið.
HUGVIT, fijór hugsunarháttur,
glöggt skynbragð á list og verks-
vit er það sem liggur til grundvall-
ar því listasafni sem Páll á Húsa-
felli hefur valið sér. Það kemur
fram í hinni fjölbreyttu sköpunar-
aðferðum sem hann notar við list-
sköpun. Hann notar á hefðbundinn
hátt léreft og steina, gerir högg-
myndir í steina, stóra sem smáa,
hvort sem er harðasta blágrýti eða
mjúka sandsteina.
Hann notar höggmyndir til að
gera steinþrykk á pappír. í raun
og veru er allt sem er í umhverfi
Páls efniviður til listsköpunar. Það
er einungis að koma auga á það
og framkvæma. Það má segja að
óbilandi áhugi reki Pál svo hart
áfram að hann hefur varla tíma
til að líta upp úr hugðarverkefnum
sínum. Árangurinn mælist í mörg-
um listsýningum sem hann hefur
haldið víða um heim.
1994 vann Páll þijú verk í Jul-
ianehaab á Grænlandi. Þar hjó
Páll Eirík rauða út í 10 tonna grjót
ásamt fjallkonunni og Snorra
presti og draugunum þrettán.
Höggmyndasýningin sem Páll á
Húsafelli opnar á morgun, 29. júlí,
er í ishellinum í Surtshelli. Sýning-
in hefst kl. 15 og mun Sverrir
Guðjónsson kontratenór syngja við
opnunina. Segja má að umhverfið
sé hluti af listinni.
Sýning Páls fjallar að þessu
sinni uni veröld útilegumanna og
vætta. í Hellismannasögu er greint
frá 18 skólapiltum frá Hólum sem
lögðust út eftir að hafa drepið
kerlingu eina á staðnum.
Tvær vinnukonur frá Kalmanns-
tungu fengu þeir til liðs við sig og
áttu börn með þeim en drekktu
jafnóðum og þau fæddust. Lifðu
þeir á sauðaþjófnaði og ránum.
Mörg örnefni eru til af nöfnum
þessara manna þar sem þeir voru
PÁLL með eitt verka sinna.
vegnir, eins og Þorvaldur sem
drepinn var á Þorvaldshálsi, Atli
við Atlalæk, Vilmundur við Vil-
mundarstein, Krákur við Krákslá
og svo má lengi telja. Valnastakk-
ur var sá sem mestar vonir voru
bundnar við í bardaga við heima-
menn vegna þess að stakk hafði
hann gert sér úr sauðavölum sem
engin vopn unnu á.
Þó er þeirra frægastur Eiríkur
sem flýði upp á Eiríksnípu á handa-
hlaupum eftir að bændur höfðu
hoggið af honum annan fótinn um
ökkla og þar mun hann hafa kveð-
ið:
Hjartað mitt er hlaðið kurt,
hvergi náir að skeika;
með fótinn annan fór ég burt,
fáir munu’ eftir leika.
HRAUNKARLINN í Hallmundarhrauni sem náttúran
hefur sjálf skapað.
Höggmyndasýning í
upprunalegu umhverfi
BORGARKRINGLAN
OPIÐ VIRKA DAGA 10-1830 LAUGARDAGA 10-16 MATVÖRUVERSLUN OPIN 10-23
Sjónvarpsveisla i Borgarkringiunni
um helgina
Allir sem versla fyrir kr. 1.500,- eöa meira
eiga möguleika á Salora litasjónvarpi.
Dregi6 verbur um 3 sjónvarpstæki þessa helgi
Bobib verbur upp á FRÍA skóburstun og blöbrur fyrir börnin
8 bolla pressukanna
krJ&0,-NÚ kr.2.990,'
Súkkulaðihúðaðar mintubaunir
tiJS&rNú kr. J90,ýÆ
Stál expressókanna, sykurkar,
rjómakanna, bakki
kam-Núkr.5.995,-
Grænt te, ný sending.
99 tegundir af könnum.
Verð frá kr. 340.-
BORGARKRINGLUNNI
sími 568-1223
SUMARTILBOÐj^
tRoijaC CkippcndaCe 24 stlf téassi 18/10 stáC
kr. 27.520,- u k?. 19.990,-
Mikið úrv.al af pottum,
borðbúnaði ofl. frá WiMf
24 stk fassarfrá kj. 10.995.-
Borgarkringlunni, sími 553-6622
Verslunin Barnakot
TfSkOVERSlONlN FLIP
BOBGARgRlNGlONNl, 2. HA®