Morgunblaðið - 28.07.1995, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995 29.
sem tengdadóttir þín til margra ára
og varð engin breyting þar á þrátt
fyrir breyttar aðstæður.
Þú elskaðir lífíð og þér leið hvað
best á ferðalögum og innan um fólk.
Veislurnar þínar líða okkur seint úr
minni, því svo rausnarlegar voru þær.
í gegnum veikindi þín hefur hvað
best komið í ljós hvernig manneskja
þú varst. Þú barðist svo hetjulega
við sjúkdóminn, en að lokum eftir
tæp þijú ár sofnaðir þú frá þessu
lífí. En sterk varstu og jákvæð, þó
þú hafír gert þér grein fyrir hvert
stefndi, ferðaðist út í heim á milli
þess sem þú þurftir að vera í lyfja-
meðferð. Mig grunar að þú hafír
meðal annars verið að kveðja ailt
fólkið sem þú þekktir erlendis.
Ég man það svo vel hvað þú hafð-
ir gaman af að leiða mig um ævin-
týraborgina Hong Kong þegar við
fórum þangað tvær fyrir nokkrum
árum og skemmtum okkur svo vel
saman.
Elsku Kristinn, íris, Haraldur og
fjölskyldur sem og allir sem þóttu
vænt um Ingibjörgu, það er erfitt
framundan en lifum áfram í anda
Ingibjargar, jákvæð og lífsglöð.
Ég kveð þig elsku Ingibjörg, far
þú í friði.
Þegar maður hefír tæmt sig af öllu, mun
friðurinn mikli koma yfir hann. Allir hlut-
ir koma fram í tilvistina, og menn sjá þá
hverfa aftur. Eftir blóma ævinnar fer
hvað eina aftur til upphafsins. Að hverfa
aftur til upphafsins er friðurinn, það er
að hafa náð takmarki tilvistar sinnar.
(Bókin um veginn.)
Áslaug K. Pálsdóttir.
Þá er komið að kveðjustundinni
og alltaf er hún jafn sár þó að ég
gerði mér grein fyrir því að Ingi-
björg vinkona mín væri á förum. Á
stundu sem þessari rifjast upp end-
urminningar og ég staldra við.
Fyrir 50 árum var ég að taka á
móti föður mínum úr túr frá Eng-
landi. Um borð er ung móðir með
lítið barn sitt og faðir minn kynnir
okkur. Við tókumst í hendur og urð-
um vinir frá þeirri stundu. Við leigð-
um okkur herbergi hlið við hlið og
studdum hvor aðra. Ógleymanleg er
ferð okkar til stranda Frakklands í
tvær vikur, þá giftar með börn í
blóma lífsins og lífsgleðin eftir því.
Mörgum árum seinna vika í París
fyrir utan að við hittumst oft í New
York, hún sem flugfreyja og ég í
innkaupaferð fyrir búðina mína.
Mikill samgangyr var á milli heim-
ilanna og við töluðum saman dag-
lega. Ef erfíðleikar komu upp sóttum
við ávallt ráðleggingar og kjark hjá
hvor annarri. Ingibjörg alltaf sama
tryggðatröllið, alltaf tilbúin að að-
stoða mig. Og núna mitt í veikindum
hennar komu upp veikindi í fjöl-
skyldu minni. Ég varð hrædd og
hringdi strax í vinkonu mína og
spurði hana ráða eins og svo oft
áður. Hún svaraði mér veikri röddu
sinni en þegar hún heyrði erindi
mitt var eins og einhver óskiljanleg-
ur kraftur kæmi til og hún ráðlagði
mér styrkri röddu hvað væri best
að gera. Röddin breyttist öll, hugsun
eðlileg, hún skildi mig og hug-
hreysti, alltaf sami vinurinn, traust
og sterk kona.
Aldrei kvartaði hún í veikindum,
hún bar sig vel, var regluleg hetja
fram í það síðasta.
Elsku vinkona mín, þakka þér
samfylgdina og tryggð þína við mig
og mína í gegn um árin.
Mínar innilegustu samúðarkveðju
sendi ég Kristni vini mínum, sem
stóð eins og klettur við hliðina á
Ingibjörgu alla tíð, svo og börnum
og barnabörnum.
Hittumst heilar,
Bára Sigurjónsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Dóttir okkar,
SÓLVEIG VILHJÁLMSDÓTTIR,
andaðist á Skálatúnsheimilinu fimmtudaginn 26. júlí.
Sigríður Ingimarsdóttir, Vilhjálmur Árnason.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HÉÐINNSVEINSSON
vélsmíðameistari,
Engihlfð 14,
lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 26. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ólína Danfelsdóttir,
Þórunn Héðinsdóttir, Örn Hólmjárn,
Ólína Ágústsdóttir, Charles Pogozelski,
Margrét Ágústsdóttir, Símon Gissurarson,
Vilborg Hólmjárn,
Héðinn Hólmjárn
og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐRÚN Á. EDVARDSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 41,
andaðist í Borgarspítalanum 26. júlí.
Jóhanna M. Guðnadóttir, Þorgeir P. Runólfsson,
Edvard G. Guðnason, Kristfn G. Guðmundsdóttir,
Sigurlaug Þ. Guðnadóttir, Óskar Hrafnkelsson.
+
Ástkær faðir minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR ÁSGEIR ERLENDSSON,
fyrrv. bóndi og vitavörður frá Hvallátrum,
verður jarðsunginn frá Breiðavíkurkirkju laugardaginn 29. júlí kl.
14.00.
Stella Ásgeirsdóttir, Aðalsteinn Guðmundsson,
Kristinn Guðmundsson, Margrét Ingvadóttir
og fjölskyldur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR GUÐNASON,
Bárðarási 14,
Hellissandi,
sem lést í Sjúkrahúsi Akraness 21. júlí,
verður jarðsunginn frá Ingjaldshóls-
kirkju laugardaginn 29. júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Steinunn R. Kristjánsdóttír.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför
SIGRÍÐAR K. SIGURÐARDÓTTUR,
Hjallabrekku 43,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við stjórn og
starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð.
Guð blessi ykkur öll.
Kristján B. Jósefsson,
Ása Benediktsdóttir, Stefán JónatanSson,
Sigrún Stefánsdóttir, Sigurður B. Stefánsson,
Svanhvít Stefánsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts og jarðarfarar
ÓSKARS ÓSBERGS,
Strandgötu 11,
Akureyri.
Aðstandendur.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ARNHEIÐUR GÍSLADÓTTIR,
Keldulandi 1,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laug-
ardaginn 29. júlí kl. 13.30.
Hörður Jóhannsson,
Sigmar Jóhannesson,
Agnes Karlsdóttir,
Sævar Larsen,
Þórarinn Grímsson,
Arni Jóhannesson,
Valgerður Jóhannesdóttir,
Jóhanna Sóley Jóhannesdóttir, Guðjón Skúlason,
Anna Sólrún Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar og ömmu,
ÖNNU JÓNÍNU SVEINSDÓTTUR
frá Viðfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjartur Guðmúndsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýndan vinarhug við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐMUNDÍNU LILJU
ÞORKELSDÓTTUR
frá Vestmannaeyjum;
Reykjahlíð 10,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Skjóli
fyrir alla þá alúð og umönnun sem það sýndi henni.
Stefán Þórðarson,
Þóra Maria Stefánsdóttir,
Ólöf Stefánsdóttir, Hannes Þór Ragnarsson,
Oktavía Þóra Ólafsdóttir, Jón Finnbogason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndú okkur samúð og hlýhug
við andlát og.útför
AGNARS HALL ÁRMANNSSONAR,
Tindum,
Neskaupstað.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Örn Agnarsson, Bryndís Magnúsdóttir,
Rut Agnarsdóttir, Stefán Sigurvaldason,
Ármann Hallur Agnarsson, Ingibjörg Guðnadóttir,
Óla Steina Agnarsdóttir,
Hilmar Ægir Agnarsson,
barnabörn og
Erla Ármannsdóttir,
Kolbrún Ármannsdóttir,
Randver Ármannsson.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og lang-
afa,
PÁLS SIGURBJÖRNSSONAR,
Hamraborg 26,
Kópavogi.
Pálína Andrésdóttir,
Hjörtur Pálsson, Ragnhildur Hermannsdóttir,
Bryndis Garðarsdóttir, Sigurður Johansen,
Davið Garðarsson, Gerd Garðarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Búiasaumsefni
1.000 nýjar gerðir frá helstu framleiðendum voru að koma.
Ávallt 400 bókatitlar á staðnum.
Sími 568-7477
&VIRKA
Mörkin 3
‘y V.ý við Suðurlandsbraut.
■>Pið
^ 10^ÍQÖSt.