Morgunblaðið - 28.07.1995, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
STJÖBM
ÓD> 1 * XUÐLEG ÁST pbl.
Sýnd kl. 4.45.
LITLAR KONUR
Sýnd kl. 6.55.
•k'k'Á M*gu uiwiáiiO 9
Sýnd kl. 7.20 í Asal. B.i. 16.
Síðasta sinn.
ÆÐRI MENNTUN
Nýjasta kvikmynd
leikstjórans
Johns Singleton
18.000 NEMENDUR
32 ÞJÓÐERNI
6 KYNÞÆTTIR
2 KYN
1 HÁSKÓLI
ÞAÐ HLÝTUR AÐ
SJÓÐA UPP ÚRM!
Miðinn gildir sem 300 kr. af-
sláttur af geislaplötunni Æðri
menntun
(„Higher Learning") frá Músík
og myndum.
Sýnd kl. 9 og 11.25. B. i. 14 ára.
STJÖRNUBIÓLÍIMAN
Sími 904 1065.
Cynthia selur
öskjuLennons
CYNTHIA Lennon, fyrri eiginkona bítilsins Johns Lennons, hef-
ur ákveðið að selja öskju nokkra sem var í eigu hans um tíma.
Öskjuna notaði hann undir birgðir sínar af eiturlyfinu marijú-
ana. Búist er við að um það bil 40 þúsund krónur fáist fyrir
gripinn, sem verður til sölu á uppboði Christie-fyrirtækisins í
Lundúnum í september næstkomandi.
Amold hrósar sigri
►FRÆGÐARSÓLIN getur á stundum
valdið stjörnunum sólbruna, þegar mis-
vitrir aðilar reyna að auka veg sinn á
upplognum óförum þeirra. Það fékk
svipbrigðaleikarinn Arnold Scwarzen-
egger að reyna nýlega, þegar franskt
blað hélt því fram að hann hefði verið
einn viðskiptavina vændismóðurinnar
Heidi Fleiss.
En dómstólarnir eru gjarnan í hlutverki
hins föðurlega læknis, sem ber græðandi
smyrsl á sárin. Fyrirtækið Prisma Presse,
sem gefur umrætt blað, „Voici“, út,
hefur verið dæmt til að greiða
Arnold háar skaðabætur.
Fijálshyggjumaðurinn
Schwarzenegger hefur ákveð-
ið að þær renni beint í sjóð
„Special Olympics", eða
Ólympíuleika þroskaheftra,
sem næst verða haldnir í
Frakklandi.
„Frægt fólk verður
oft og títt fórnarlömb
illkvittinna sögu-
sagna. Þegar slúður-
blöð birta slíkar frá-
sagnir af mér, bregst
ég hratt og örugglega
við til verndar góðu
mannorði mínu,“ sagði
leikarinn í yfirlýsingu vegna
þessa máls.
Auðvitað í
Boltamanninum!
Reebok Pyro
Gæöa skokkskór
m/ loftpúöa í hæl
á frábæru veröi.
Aöeins kr. 5.490,-
Nýtt kortatímabil.
Sendum í póstkröfu.
LAUöAVSGI 23 • SÍMI 551 5599
Biddu um Banana Boat
ef þú vilt spara 40-60%
Þegarþú kaupirAloe Vera gel.
□ Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlítra af Aloe geli
þegar þú getur fengiö sama magn af Aloe Vera geli frá
Banana Boat á um 700 k.r eöa tvöfalt meira magn af Banana
Boat Aloe Vera geli á 1000kr.
□ Hvers vegna að bera á sig 2% af rotvamarefnum þegar þú
getur fengið 99,7% 1100%) hreint Banana Boat Aloe Vera gel?
□ Banana Boat næringarkremið Brún-án-sólar í úðabrúsa eða
með sólvöm 18,
□ Stýrðu sólbrúnkutóninum með t.d. hraðvirka Banana Boat
dökksólbrúnkuoliunni eða -kreminu eða Banana Boat
Golden oliunni sem framkaliar gyllta brúnkutóninn.
o Hefur þú prófað Naturica húðkremin sem allir eru að rala um,
uppskrift Birgittu Klemo, eins virtasta húðsérfæðings
Norðurlanda? Naturica ðrt-krám og Naturica Hud-krSm.
Banana Boat og Naturica fást í sólbaðsstofum, apótekum,
snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavikur.
Banana Boat E-gelið fæst lika hjá Samtökum psoriasis-og
exemsiúklinqa.__________________________________
Heilsuval - Barónsstíg 20 ® 562 6275
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Krissy, til vinstri, ásamt syst-
ur sinni, Niki, árið 1993.
Dánar-
orsök ljós
NÚ HEFUR komið í ljós að fyrirsæt-
an Krissy Taylor þjáðist af astma á
háu stigi, en sagt var frá skyndileg-
um dauðdaga hennar í Morgunblað-
inu fyrir skömmu.
Krissy, sem náði aðeins 17 ára
aldri, féli niður á heimili sínu þann
2. júlí síðastliðinn. Systir hennar, Niki,
sem einnig er þekkt fyrirsæta, kom
að henni skömmu seinna. Hún hringdi
í neyðarlínuna og hóf lífgunartilraun-
ir samkvæmt leiðbeiningum í gegn
um síma, en allt kom fyrir ekki.
Krufning hefur leitt í ljós að Krissy
þjáðist af slæmum astma sem dró
hana til dauða. Uppi höfðu verið
grunsemdir um að dánarorsök henn-
ar hefði verið notkun innöndunarlyfs-
ins Primatene, en ekki er að fullu
ljóst hver þáttur þess var í sorgarsög-
unni.
'0/Joiav*
TONLEIKAR
ALDARINNAR
ÚR myndinni Að eilífu Batman.
Að eilífu Batman
frumsýnd í dag
SAMBÍÓIN og Borgarbíó, Akur-
eyri, hafa tekið til sýninga kvik-
myndina „Batman Forever" eða Að
eilífu Batman eins og hún hefur
verið nefnd á íslensku.
Að eilífu Batman er sjálfstætt
framhald fyrri myndanna tveggja
um Leðurblökumanninn og ævintýri
hans og kynnir nú til sögunnar fjöl-
margar nýjar sögupersónur. Nýr
Ieikari leikur Batman og nýr leik-
stjóri er við stjórvölinn.
Með aðalhlutverk fara Val Kil-
mer, Jim Carrey, Tommy Lee Jo-
nes, Nicole Kidman, Chris O’Donnel
og Drew Barrymore. Leikstjóri er
Joel Schumacher.
Að eilífu Batman var forsýnd um
helgina á þremur stöðum á landinu.
Uppselt var á nær allar sýningar í
Keflavík og á Akureyri og uppselt
á allar sýuningarnar í Sambíóunum
í Reykjavík. Samkvæmt upplýsing-
um Sambíóanna mættu nálægt
fjögur þúsund manns um helgina á
forsýningarnar. Myndin hefur feng-
ið metaðsókn bæði í Bandaríkjunum
og á Bretlandi.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
EINSTÆÐI faðirinn Jack.
Háskólabíó frumsýnir
Jack & Sarah
KVIKMYNDIN Jack & Sarah, með
Richard E. Grant og Samantha
Mathis í aðalhlutverkum, verður
frumsýnd í dag, föstudag, í Há-
skólabíói.
Myndin fjallar um ungan mann,
Jack að nafni, sem er á miklum
tímamótum í lífi sínu. Hann er í
ábyrgðarmiklu starfi, nýbúinn að
kaupa sér hús og síðast en ekki
síst nýorðinn einstæður faðir og
barnið er á bleiualdri. Jack, eins
og margir ungir menn, hefur ekki
minnstu hugmynd um hvað snýr
fram eða aftur á bami en verður
engu að síður að axla þessa nýju
ábyrgð ofan á allt annað, og þá
hefst gamanið.
Myndin var frumsýnd í Bretlandi
í síðasta mánuði. Leikstjóri
myndarinnar er Tim Sullivan en
með aðalhlutverk fer Richard E.
Grant en hann hefur nýlega leikið
í myndum eins og „The Player"
eftir Robert Altman, „Dracula" eft-
ir Francis Ford Coppola og „Age
of Innocence“ eftir Martin Scors-
ese.