Morgunblaðið - 20.08.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 1995 21
Hér á landi voru nýlega
stödd hjónin Adriane og
Stefán Benediktsson.
Stefán er dóttursonur
vestur-íslenska ljóð-
skáldsins Stephans G.
Stephanssonar, Guð-
rún Guðlaugsdóttir
hitti Stefán að máli og
ræddi við hann um störf
hans í olíuiðnaði, minn-
ingu afa hans og sitt-
hvað fleira.
Vildi gjaman vera
hér oglæra
STEFÁN Benediktsson er af
íslensku bændafólki kom-
inn,_ faðir hans var bóndi,
af íslendingum kominn í
báðar ættir en móðir hans, Rósa
Sigurlaug, sem enn er á lífi háöldr-
uð, er ein af átta börnum Stephans
G. Stephanssonar, ljóðskálds og
bónda í Alberta, og konu hans
Helgu Sigríðar Jónsdóttur, en þau
hjón voru systkinabörn. Þau bjuggu
fyrst í Norður-Dakota en fluttu svo
til Markerville. „Afi og amma
bjuggu skammt frá Red Deer, sem
er nálægt Markerville í Alberta, ég
man ekkert eftir afa, hann dó árið
1927 en ég fæddist í Calgary árið
1933. Ég man hins vegar vel eftir
Helgu ömmú minni, hún lifði til
ársins 1940. Þótt afi minn væri
dáinn þegar ég fæddist var minning
hans sterkur þáttur í lífi fjölskyldu
minnar. Móðir mín dáði föður sinn
mikið og vitnaði gjarnan til orða
hans og skoðana. Afi minn var ekki
aðeins áhrifamikiil maður í minn-
ingu fjölskyldu sinnar, hann var
áhrifamaður í sinni byggð í ýmsu
tilliti, veitti m.a. mjólkurbúi for-
stöðu og var sveitarstjóri um tíma.
Nafn hans er mjög vel þekkt þar
enn í dag, enda var hús hans gert
að safni sem margir skoða, fyrir
þeirri framkvæmd barðist móðir
mín mikið,“ segir Stefán Benedikts-
son, þegar hann er spurður um afa
sinn og verk hans. „Ég hef ekki
lesið mikið af verkum afa, aðeins
þau sem þýdd hafa verið á ensku.
Ég hvorki les né tala islensku. Það
var töluð íslenska heima hjá mér
meðan ég var á barnsaldri en því
lauk þegar faðir mirtn dó frá okkur
flórum systkinum, ungum að árum,
árið 1941. Hann var í rauninni
Guðmundsson en fékk Benedikts-
son-nafnið vegna ættleiðingar og
það nafn berum við afkomendur
hans. Pabbi var ættleiddur af
frænda sínum þegar hann missti
föður sinn barn að aldri. Ég er
næstelstur fjögurra systkina, systir
mín Helga íris er elst en tveir yngri
bræður mínir, Konráð og Theódór,
dóu á unglingsaldri.
Útskrifaðist frá Tindastóli
Ég ólst upp við algeng landbún-
aðarstörf, vann við búgarðinn
heima eftir að pabbi dó. Ég fór
auðvitað í framhaldsskóla, það voru
þrír skólar þarna sem báru íslensk
nöfn, Tindastóll, Hekla og Hólar,
ég útskrifaðist frá Tindastóli. Þess-
ir skólar eru nú allir aflagðir. Á
þeim tíma sögðu þessi nöfn mér
næsta lítið en nú hef ég séð bæði
fjöllin sem skólarnir voru kenndir
við og komið að Hólum. Þangað
kom ég í þessari íslandsferð og sá
raunar Tindastól líka núna. Heklu
sá ég hins vegar í annarri af tveim-
ur fyrri íslandsferðum mínum. í
fyrra skiptið kom ég hingað með
syni mínum árið 1968 og fór þá
nokkuð víða, í seinna skiptið kom
ég einn og stansaði stutt.“
Stefán Benediktsson hefur víða
farið vegna starfa sina. „Ég fór
eftir tvítugt til starfa hjá olíufyrir-
tækinu Esso, sem kostaði mig til
náms við háskóla þar sem ég lærði
verkfræði og hjá því fyrirtæki starf-
aði ég í 18 ár eftir að námi mínu
lauk,“ segir Stefán.
Eins og fyrr sagði hefur Stefán
aðeins lesið þau verk afa síns sem
þýdd hafa verið á ensku. eitt ljóða
hans er honum sérstaklega hugleik-
ið. „Meðan ég enn var í mennta-
skóla las ég eitt sinn ljóð eftir afa
í sýnisbók um bókmenntir sem við
vorum látin læra. Kvæðið hans hét
Til Alberta. Þegar að því ljóði kom
í námsyfirferðinni spurði ensku-
kennarinn hvort við þekktum eitt-
hvað til ljóðskáldsins Stephans G.
Stephanssonar. Það gaf sig enginn
fram svo ég rétti hikandi upp hend-
ina, það var dálítið erfitt því ég var
mjög feiminn í þá daga. „Hvað veist
þú um þetta ljóðskáld," sagði kenn-
arinn. „Stephansson var afi minn,“
sagði ég. „Éyrir hvað annað er hann
þekktur," sagði kennarinn þá, -
hann var gamansamur maður.
Hitti alls staðar íslendinga
Sjálfur hef ég ekki skrifað neitt
nema um verkfræðileg efni. Ég
vann við olíuleit og fleira fyrir Esso
eins og áður kom fram. A vegum
þess fyrirtækis fór ég víða um heim,
m.a. til Texas, Ástralíu,
Indónesíu, Argentínu og
Saudi-Arabíu og það
merkilega gerðist að alls
staðar þar sem ég var
hitti ég fyrir einhveija
íslendinga. Seinna varð
ég einn af fram-
kvæmdastjórum annars
stórs fyrirtækis í olíu-
iðnaðinum, Amerada
Hers Corporation, og
loks stofnaði ég mitt
eigið fyrirtæki, Benson
Petroleum LTD, sem
líka starfar innan olíu-
iðnaðarins. Eldri sonur
minn starfar þar mér við
hlið, dóttir mín hefur
haslað sér völl innan
fataiðnaðarins og yngri
sonur minn er myndlist-
armaður.“ Börn sín átti
Stefán með fyrri konu
sinni. Síðari kona hans,
Adriane, er ættuð frá
Hollandi og Kólumbíu
en flutti til Kanada
þriggja ára gömul. Hún
kvaðst í samtali við
blaðamann hafa haft
ómælda ánægju af að
heimsækja Island og
sagði fegurð landsins og hlýhug
íbúanna hafa farið fram úr sínum
glæstustu vonum.
„Við höfum átt yndislegar stund-
ir hér á landi undanfarið,“ sagði
Stefán ennfremur.„Einkum var eft-
irminnilegt að heimsækja heima-
slóðir afa míns í Skagafirði. Ætt-
ingjar mínir þar tóku okkur með
kostum og kynjúm, veittu okkur
af rausn og sýndu okkur mikla
hlýju. Ekki spillti að svipmót sumra
þeirra minnti mig á fólkið mitt í
Alberta. Ég gæti vel hugsað mér
að dvelja hér um tíma og huga að
rótum mínum hér og rifja upp ís-
lenskuna, ég skil þó nokkuð í mál-
inu en get ekkert talað. Ef aðstæð-
ur mínar leyfa mun ég hrinda þess-
ari ráðagerð í framkvæmd síðar.“
Að þessum orðum töluðum sýndi
Stefán Bendiktsson blaðamanni
auglýsingaspjald með mynd af
Stephani G. Stephanssyni. Þar kom
fram að dagana 20. - 22. október
nk. verður í Alberta í Kanada hald-
in þriggja daga hátíðadagskrá þar
sem búferlaflutningum Islendinga
til Vesturheims, sögu þeirra og
menningu verða gerð skil. Islenskum
gestum hefur verið boðið til hátíða-
haldanna, meðal þeirra eru dr. Finn-
bogi Guðmundsson sem flytja mun
upphafsorð. Meðal íslenskra boðs-
gesta eru einnig Haraldur Bessason,
Þorsteinn Gylfason, Páll Skúlason,
Kristján Kristjánsson, Baldur Haf-
stað og Viðar Hreinsson. Einnig mun
Bill Bourne, afkomandi Stephans
G. Stephanssonar, halda tónleika á
umræddri hátíð.
T3he lceÍAndic
Connecnon
FJALLAÐ verður um Stephan G. Step-
hansson í hátíðardagskrá sem senn verð-
ur haldin í Alberta í Kanada.
Haustsólin
Verð frá
29.565 kr.
m.v. 4 (tvo fullorðna og tvö börn 2ja-11 ára
í íbúð á Tropical).
34.400 kr. m.v. 2 í stúdíói á Tropical.
Allt að seljast upp til Portúgals
30. ágúst örfá sæti laus
6. sept. uppselt/biðlisti
13. sept. örfá sæti laus
20. sept. örfá sæti laus
27. sept. uppselt/biðlisti
8. okt. uppselt/biðlisti
URVAL UTSYN
Lágmiíla 4: sími 569 9300,
Hafnarfirði: sími 565 2366, Keflavtk: sími 421 1353,
Selfossi: stmi 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
- og hjá umboðsmönnum um land allt.
Aukaferð 4. sept.
10 sólardagar - heimflug um Barcelona.
49.900 kr. m.v. tvo í gistingu.
17 sólardagar - heimflug um Barcelona.
57.900 kr. m.v. tvo í gistingu.
Aukaferð 11. sepH
10 sólardagar - heimflug um Barcelona.
49.900 kr. m.v. tvo í gistingu.
15 daga ferð til Mallorca 18. sept.
Heimflug um London.