Morgunblaðið - 24.09.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1995 21
Morgunblaðið/Guðni
„Við fengum yfir 400 þúsund
pantanir í fyrra, þar af
530 frá íslandi. Það er ekki
svo lítið, því þið eruð
ekki mörg sem búið þar.“
setti upp verksmiðju í Corsicana
fyrir rúmlega þremur árum þar sem
hnetukjarninn er skilinn frá skel-
inni. Þessi verksmiðja er hin nú-
tímalegasta í heiminum, að sögn
McNutt, Jr. og auk þess að vinna
fyrir . bakaríið brýtur hún hnetur
fyrir fjölmörg önnur fyrirtæki, ís-
gerðir, sælgætisverksmiðjur, snarl-
iðjur svo fátt eitt sé talið.
Um 17% af innihaldi kökunnar
eru ananas og er hann ræktaður á
plantekru bakarísins í Costa Rica.
Þeir eru meira en sjálfum sér nógir
og selja umframuppskeruna til Dole
og DelMonte ávaxtafyrirtækjanna.
Um 15% kökunnar eru kirsuber og
öllu þessu er haldið saman af hun-
angsdeigi.
Þriðja dótturfyrirtæki bakarísins
er DataDallas tölvufyrirtækið.
„Gagnavinnslan er mjög mikilvæg-
ur þáttur í rekstrinum," segir
McNutt. „Við settum upp stórt
tölvufyrirtæki sem annast alla
gagnavinnslu, tekur við pöntunum
og þess háttar. Þetta fyrirtæki vinn-
ur auk þess fyrir marga aðra aðila.“
í COLLIN Street Bakery eru
einnig bökuð brauð og kökur af
ýmsu tagi sem seld eru í brauð-
búðinni í Corsicana. Það er til
að bakararnir haft eitthvað að
gera á milli jólakökuvertíða.
Fjöldi ferðamanna alls staðar að
úr heiminum leggur leið sína í
bakaríið og fær sér kaffi og köku
á 6,50 krónur. Þá má fá ýmsa
minjagripi sem tengjast ávaxta-
kökunni frægu.
Til allra landa
Hefur kökuuppskriftin haldist
óbreytt frá upphafi?
„Nei, það voru gerðar tvær breyt-
ingar 1947,“ segir McNutt, Jr. „Þá
var hætt að nota smjör í deigið, því
það vildi þrána, og í staðinn sett
hágæða smjörlíki. Hin breytingin
var sú að í skreytingunni ofan á
kökunni voru fjórar möndlur, en
þær voru teknar burt og settar
pecanhnetur í staðinn."
En hvað fara kökurnar víða?
„Fjórðungur viðskiptavina okkar er
utan Bandaríkjanna," segir
McNutt, Jr. „Við erum eiginlega
hættir að telja löndin. Það var talað
um 196 lönd, en löndunum er alltaf
að fjölga. Til dæmis þegar Sovétrík-
in liðuðust í sundur þá fjölgaði lönd-
unum, þótt um sömu viðskiptavini
væri að ræða. Nú segi ég bara að
við eigum viðskiptavini í öllum lönd-
um heims, nema þremur. íran, írak
og Kúbu. Þangað er enga póstþjón-
ustu að fá frá Bandaríkjunum."
Pantanirnar eru með ýmsu móti,
það hafa komið bréf einfaldlega
stíluð á Ávaxtaköku, Texas og þau
hafa komist til skila. „Við njótum
þess að vera þekkt fyrirtæki og
póstþjónustan er svo góð að koma
þessu áleiðis til okkar," segir
McNutt, Jr. Hann segir að nú sé
unnið að sérstakri markaðssetningu
utan Bandaríkjanna. Fyrir nokkrum
árum var kynningarpési fyrirtækis-
ins þýddur á japönsku og í kjölfarið
margfölduðust viðskiptin þar. Nú
er búið að þýða efnið á spænsku
og búist við auknum viðskiptum frá
spænskumælandi löndum.
Það var komið að lokum heim-
sóknarinnar. L. William McNutt, Jr.
og John Crawford, báðu fyrir kærar
kveðjur til jólakökuunnenda á ís-
landi. Þegar minnst var á að íslensk
tollayfirvöld hefðu skattlagt jóla-
glaðninginn frá Texas, hristi
McNutt höfuðið og sagði að það
hlyti að vera á einhveijum misskiln-
ingi byggt. Slíkt þekktu þeir ekki
úr nokkru öðru landi. „Það er ekki
stórmannlegt að heimta skatt af
jólagjöfum sem fólki eru sendar,"
sagði McNutt, Jr.
I3ICMIEGA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
Aðalfundur
Rauða kross Islands 1995
Aðalfundur Rauða kross íslands verður haldinn á
Hótel Loftleiðum í Reykjavík 27.-29. október nk.
Fundurinn verður settur föstudaginn 27. október
kl. 17.00.
Dagskrá samkvæmt 16. grein laga RKÍ.
Stjórn Rauða kross íslands.
Fræðslumiðstöð Náttúrulækningafélagsins,
Laugavegi 20b, 101 Reykjavík.
Sími 551 4742.
Matreiðslunámskeið - Jurtafœði
Námskeið um jurtafæði verður haldið í Natreiðsluskólanum okkar dagana 27.-28. september
og hefst kl. 18.00 bæði kvöldin. Kennslan byggir á hugmyndafræði í makróbíótík og verður
leiðbeinandinn Gunnhildur Emilsdóttir (frá matstofunni A næstu grösum).
Skráning í síma 5514742 frá kl. 13.00 til 16.00 mánudaginn 25. og þriðjudaginn 26. september.
í SEPTEMBER
í hverjum mánuði frá september fram í
apríl verður sérstakt PLÚS-tilboð mánaðarins
auglýst í fjölmiðlum.
PLÚS-afsláttur nemur
10ðOb
fyrir handhafa almennra VISA-korta.
2000 kr. fvhjón/ferðafélaga.
fyrir handhafa Farkorta \TSA.
4000 kr. f.hjón/ferðafélaga.
kr.
fyrir handhafa Gullkorta VISA.
6000 kr. f.hjón/ferðafélaga.
Frábær ný sólarparadís
við Mexíkóflóa
Glóðheitir dagar, blá- Verð frá
tærar öldur og hreinar
strendur.
71.510
Vönduð gisting. á manninn m.v. 2 í íbúð á
Glæsilegir golfvellir. Santa Maria í 2 vikur.
Hagstætt bílaleiguverð.
* Með 3000 kr. Gull-plús. Innrfalið:
flug, gisting og flugvallarskattar.
Tilboðið gildir til 30. september.
ÆNRVAL-ÚTSÝN
Lágmúla 4: sími 569 9300,
Hafnarfirði: st'mi 565 2366, Keflavík: sími 421 1353,
Selfossi: sírni 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
- og hjá umboðsmönnum utn land allt.
•»!$/•!« NfJ01SV9NISfl9AV VISN11SI