Morgunblaðið - 24.09.1995, Page 34
34 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og ienni
jyjUDJt Ss/r^ t,
Jhi rrtufc Mwt Mhsi é-
ignjsAajUL do ~nat
Kæri pennavinur. í siðasta bréfi
spurði ég hvort þú ættir hund.
í bréfinu þínu í dag segirðu
að þú eigir ekki hund.
'U)MV U)RITE TO
50MEB0PT WHO
DOESN'T KAVE
A D0&-7
B-/Í
Hvers vegna að vera
skrifa einhverjum
sem ekki á hund?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Veljum traustan
formann
Frá Álfhildi Ólafsdóttur o.fl.:
NÚ stendur fyrir dyrum formanns-
kjör í Alþýðubandalaginu. Kjör for-
manns í stjórnmálaflokki er ætíð
spennandi, þar sem nýr leiðtogi
getur haft veruleg áhrif á stjórnmál
komandi ára. Það veltur mikið á
því hver niðurstaðan verður í kosn-
ingunum. Formannskjörið gefur
félögum í Alþýðubandalaginu tæki-
færi til að hafa áhrif á þróun stjórn-
mála á komandi árum.
Þegar valinn er formaður stjórn-
málaflokks, þá er ekki einungis
verið að velja hópstjóra, heldur
einnig pólitískan leiðtoga. Formað-
urinn skýrir stefnu flokksins, er
andlit hans út á við og bindur hann
saman inn á við. Hann er formaður
fyrir aila flokksmenn, en ekki ein-
ungis fyrir hluta þeirra. Formaður-
inn vinnur að því að lagfæra það
sem betur má fara í innra starfi
og hvetur flokksmenn til verka.
Formaður er mannasættir, en efnir
ekki til ófriðar eða hefur forgöngu
um að auglýsa fyrir almenningi
veikleika flokksins og það sem úr-
skeiðis hefur farið.
Kjör formanns í Alþýðubandalag-
inu vekur áhuga mun fleiri en
skráðra félaga í flokknum. Hópur
fólks á vinstri væng stjórnmálanna
hefur verið í nokkur konar tilvistar-
kreppu undanfarin ár og stofnaði
nýjan flokk m.a. til að sameina
vinstri menn. Sú aðferðafræði að
sundra til að sameina hefur ennþá
einu sinni sýnt hve röng hún er,
enda þótt hún hafi tryggt fáeinum
persónum seturétt á Alþingi næsta
kjörtímabil. Það kemur því ekki á
óvart að fólk úr þessum röðum
standi nú með miklum hljóðum
vegna formannskjörs í Alþýðu-
bandalaginu og reyni að hafa áhrif
á niðurstöðu þess. Það hefði verið
saga til næsta bæjar ef Alþýðú-
bandalagsfélagar hefðu verið með
slíka tilburði til að hafa áhrif á for-
mannskjör í Alþýðuflokknum eða
Framsóknarflokknum. Því er í
hæsta máta undarlegt að flokks-
bundið fólk í öðrum fiokkum skuli
nú reyna að hafa áhrif á formanns-
kjör innan Alþýðubandalagsins og
er auðvelt að ímynda sér með hvaða
hugarfari það er gert.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður í Norðurlandskjördæmi
eystra, hefur sýnt það með verkum
sínum að hann er þess trausts verð-
ur að leiða Alþýðubandalagið til
vaxandi áhrifa í þjóðfélaginu. Fylgi
flokksins í Norðurlandskjördæmj
eystra hefur vaxið og styrkst á
þeim tíma sem hann hefur leitt
flokkinn í kjördæminu. Sem einn
af yngstu ráðherrum í sögu lýðveld:
isins, mikilvirkur þingmaður til
margra ára, varaformaður flokksins
um sex ára skeið og ötull baráttu-
maður fyrir þeim gildum sem hann
trúir á, hefur hann sýnt það að
hann hefur alla burði til að auka
brautargengi flokksins á komandi
árum. Sem talsmaður róttækrar
vinstri stefnu gegnum tíðina er
ho'num manna best treystandi tii
að skerpa áherslur flokksins í þeim
efnum og ná fram aukinni samstöðu
meðal vinstri manna í þjóðfélaginu.
Við viljum því hvetja alla Alþýðu-
bandalagsmenn til að veita Stein-
grími J. Sigfússyni brautargengi í
kjöri til formanns fyrir næsta kjör-
tímabil.
ÁLFHILDUR ÓLAFSDÓTTIR,
bóndi, Vopnafirði.
EINAR PÁLSSON,
kennari, Vesturbyggð.
JÓN VIÐAR JÓNMUNDSSON,
ráðunautur, Reykjavík,,
SIGURBJÖRG GÍSLADÓTTIR;
efnafræðingur, Reykjavík^
* f,
Oviðunandi aðstaða
á bráðavakt! 1
Frá Ingihjörgu Jónsdóttur
ÞANN 19. september sl. fór ég
með leigubíl á bráðavakt vegna
þess að ég veiktist skyndilega þar
sem ég stóð fyrir framan af-
greiðsluborð í apóteki. Afgreiðslu-
fólk apóteksins brást skjótt við
mér til aðstoðar. Lyf|afræðingur
mældi blóðþrýsting minn. Sagði
ég honum að ég hefði nýlega legið
á Borgarspítalnum með bólgur í
líffæri. Niðurstaðan var sú að rétt-
ast væri að ég færi strax á bráða-
vakt þess sjúkrahúss, þar sem
læknir þar hafði sagt mér að hafa
samband ef eitthvað kæmi upp á.
Þegar inn á móttökugang
gjörgæzlunnar kom blöskraði mér
aðstaðan. Frammi á göngum lá
fólk með alls konar meiðsl og sjúk-
dóma, sumir stúkaðir af með skil-
rúmum, aðrir ekki. Þar urðu lækn-
ar að sinna fólkinu, hitamæla, taka
blóðprufur, hjartalínurit o.sv.fv.
Skoðunarherbergi voru augljós-
lega allt of fá og gangar nýttir í
neyð. Aðstaðan til að sinna þeim
■>i
fjölda, sem hjálpar leitar, var öldJ
ungis ófullnægjandi. Mér fannst
hún satt bezt að segja til háborinn-
ar skammar.
Bráðavaktin þarf meira hús-
næði. Það er varla hægt með góðú
móti vegna þrengsla, svo dæmi sé
tekið, að „aka“ sjúklingum út új*
skoðunarherbergjum að næstá
gangvegg. Að auki þarf illa þjáð
fólk oft að bíða hálfan annan og
upp í tvo klukkutíma, jafnvel leng-
ur.
Það verður að finna lausn á
þeim vanda sem þarna er sýnilega
fyrir hendi. Það er hlálegt að knýja
á um enn frekari „sparnað" þar
sem sárþjáðu fólki er þjappað sam-
an eins og síld í tunnu. Ég sá held-
ur ekki betur en starfsfólk væri
dauðþreytt vegna vinnuálags. Þeir
sem fjármálum ráða - og skara að
sögn eld að eigin köku - mættu
gera sjúkrastofnunum betur kleift
að sinna fólki í neyð!
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Þorfinnsgötu 2, Reykjavík
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.