Morgunblaðið - 06.10.1995, Síða 1
100 SÍÐUR B/C/D
227. TBL. 83. ÁEG. FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fallist á vopnahlé o g við-
ræður um frið í Bosníu
Hefst nk. þriðjudag o g friðarviðræðurnar verða í Washington og París
N óbelsverðlaun
í bókmenntum
Þriðja
írska
skáldið
Stokkhólmi. Reuter.
ÍRSKA ljóðskáldið Seamús
Heaney hlaut í gær bók-
menntaverðlaun Nóbels. Til-
kynnt var um
þetta í
Stokkhólmi í
gær en að
sögn útgef-
anda Hean-
eys veit hann
líklega ekki
af hinum ný-
fengna heiðri
þar sem hann
er á ferðalagi
einhvers
staðar í Grikklandi.
Heany hlaut verðlaunin, eina
milljón dala, fyrir „verk ljóð-
rænnar fegurðar og fagur-
fræðilegrar dýptar, sem upp-
heija hversdagsleg kraftaverk
og hina lifandi fortíð“.
Heaney er þriðji Irinn sem
hlýtur nóbelsverðlaunin, Will-
am Butler Yeats hlaut þau
1923 og Samuel Beckett árið
1969.
Dáður af löndum sínum
Heaney er prófessor í ljóðlist
við háskólann í Oxford og hef-
ur flutt fyrirlestra í Harvard-
háskóla í Bandaríkjunum.
Hann hefur hlotið frábæra
dóma gagnrýnenda og almenn-
ings fyrir verk sín og nýtur
vinsælda í landi sínu.
■ Ljóðið, sagan/26
Washington. Reuter.
DEILUAÐILAR í Bosníu hafa fallist
á vopnahlé í Bosníu fyrir milligöngu
Bandaríkjastjórnar og á það að taka
gildi nk. þriðjudag, 10. október. Bill
Clinton, forseti Bandaríkjanna, til-
kynnti þetta í gær og sagði, að
stjórnvöld í Bosníu, Serbíu og Kró-
atíu hefðu einnig samþykkt að hefja
viðræður um friðarsamning í Banda-
ríkjunum 25. þessa mánaðar.
„Fulltrúar allra deiluaðila hafa fall-
ist á vopnahlé í allri Bosníu-
Herzegovínu frá 10. október nk. að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum,"
sagði Clinton á fréttamannafundi,
sem boðað var til sérstaklega í Hvíta
húsinu. Sagði hann, að friðarviðræð-
urnar myndu fara fram skammt frá
Washington og síðan fram haldið „á
alþjóðlegri friðarráðstefnu í París“.
Nokkur skilyrði
Vopnahléið á að standa í tvo
mánuði eða þar til friðarviðræðum
lýkur. Sandy Vershbow, sem sæti á
í þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna,
sagði, að það hæfist eina mínútu
yfir miðnætti aðfaranótt 10. októ-
ber, að því tilskildu, að opnað yrði
fyrir gas og rafmagn til Sarajevo
og fyrir flutninga þaðan til Gorazde.
Drægist það myndi vopnahléið drag-
ast að sama skapi.
Clinton sagði, að um væri að
ræða mikilvægan atburð í „þján-
ingarfullri sögu Bosníu" en lagði
áherslu á, að það, sem máii skipti,
væri hvað menn gerðu, ekki hvað
þeir segðu. „Við erum á réttri leið
en erum ekki komnir í áfanga-
stað.“
Þessi árangur, sem þegar hefur
náðst í átt til friðar í Bosníu, er
fyrst og fremst þakkaður Richard
Holbrooke, aðstoðarutanríkisráð-
herra og sérlegum sendimanni
Bandaríkjastjórnar í Júgóslavíu
fyrrverandi. Er hann einstakur
samningamaður, opinskár og
ákveðinn, og virðist ætla að takast
það, sem sáttasemjarar Evrópusam-
bandsins gáfust upp við.
„Hann hefur það umfram þá, að
hann er Bandaríkjamaður, hefur
Bandaríkjastjórn að baki sér og hef-
ur raunverulegt umboð til að sernja,"
er haft eftir fréttaskýrendum.
Ágreiningur um stuðning
við Bosníuher
Varnarmálaráðherrar NATO-ríkj-
anna komu saman í Williamsburg í
Virginíu í gær til að ræða um vænt-
anlegt friðargæslulið bandalagsins,
tugi þúsunda manna, í Bosníu og
einnig þá tillögu Bandaríkjastjórnar,
að jafnframt verði tekinn upp beinn
stuðningur við bosníska stjórnarher-
inn hvað varðar þjálfun og herbún-
að. Eru Bretar og Frakkar mjög
andvígir því.
Stjórnvöld í Bretlandi og Frakk-
landi fögnuðu í gær vopnahléstil-
kynningunni og jafnt hermenn sem
óbreyttir borgarar í Banja Luka, einu
höfuðvígi Serba í Bosníu, lýstu yfir
mikilli ánægju með tíðindin. „Guði
sé lof. Allir hermennirnir á vígvellin-
um hafa beðið lengi eftir þessu,“
sagði ungur hermaður.
Reuter •
RICHARD Holbrooke, aðstoðarutanríkisráðherra og samningamaður Bandaríkjastjórnar, skýrði frá
vopnahléssamkomulaginu í bandaríska sendiráðinu í Zagreb í Króatíu skömmu eftir að Bill Clint-
on, forseti Bandaríkjanna, hafði tilkynnt um það í Washington.
Reuter
Samningum mótmælt
Makedóníumenn leita sátta við Grikki
Þingið samþykk-
ir nýjan þjóðfána
Skopje. Reuter.
NATO
Stækkun
frestað?
WiIIiamsburg, Brussel. Reuter.
HEIMILDARMENN hjá Atlantshafs-
bandalaginu, NATO, telja að varnar-
málaráðherrar bandalagsins muni á
tveggja daga fundi sínum í Bandaríkj-
unum, sem hófst í gær, samþykkja
að fresta í tvö ár öllum áætlunum
um að veita nýjum ríkjum aðild. Verði
reynt að nota tímann til að draga úr
andstöðu Rússa við stækkun banda-
lagsins.
Heimildarmenn segja að boðað
verði til leiðtogafundar NATO 1997
og þar verði einnig fulltrúar þeirra
ríkja sem talin verða fullnægja settum
skilyrðum fyrir aðild.
Rússnesk stjómvöld fullyrða að
stækkun bandalagsins geti ógnað friði
en nýfrjálsu þjóðimar í A-Evrópu vilja
tryggja öryggi sitt með aðild og vísa
til þess að ástand sé ótryggt í Rúss-
landi. Þar hvetja æstir þjóðemissinnar
til innlimunar Eystrasaltsríkjanna.
■ Sefa Rússa með frestun?/23
ANDSTÆÐINGAR friðarsamn-
inga ísraela og PLO, Frelsis-
samtaka Palestínumanna,
efndu til mikilla mótmæla í
Jerúsalem í gær en þá stóðu
yfir umræður á þingi um samn-
ingana. Var búist við atkvæða-
greiðslu um þá í nótt en Yitz-
hak Rabin, forsætisráðherra
ísraels, lítur á hana sem
traustsyfirlýsingu þótt stjórnin
þurfi í raun ekki að leita sam-
þykkis þingsins við samningun-
um. Talið var, að mjótt gæti
orðið á mununum og niðurstað-
an oltið á einu atkvæði.
ÞING Makedóníu samþykkti í gær
að verða við kröfu grísku stjórnar-
innar um að taka upp nýjan þjóð-
fána og greiddi þannig fyrir afnámi
18 mánaða viðskiptabanns Grikkja.
Albanski minnihlutinn í
Makedóníu, sem er um 21% lands-
manna, gagnrýndi nýja fánann, sól
á rauðum bakgrunni, en aðeins einn
þingmaður greiddi atkvæði gegn
honum.
Grikkir settu viðskiptabannið
fyrir 18 mánuðum þar sem þeir
telja að í nafni, fána og stjórnar-
skrá Makedóníu felist tilkall til
Makedóníu-héraðs í norðurhluta
Grikklands. Gamli fáninn var með
Vergínu-stjörnu, sem er fornt
grískt tákn, og stjórn Makedóníu
féllst á það í samningaviðræðum á
vegum Sameinuðu þjóðanna og
Bandaríkjanna í New York í síð-
asta mánuði að taka upp nýjan
þjóðfána. Grikkir samþykktu hins
vegar að aflétta viðskiptabanninu.
Sættir í sjónmáli
Constantine Bikas, talsmaður
gríska utanríkisráðuneytisins,
sagði í gær að samkomulag væri
í sjónmáli í viðræðum um að koma
samskiptum ríkjanna í eðlilegt horf.
Fyrri lotu viðræðnanna lauk í
Aþenu í fyrrakvöld og sú seinni
hefst í Skopje á þriðjudag.
Ríkin hafa samþykkt að efna
síðar til viðræðna á vegum Samein-
uðu þjóðanna um helsta deilumál
sitt, nafn Makedóníu.
■ Vonast eftir efnahagsbata/22