Morgunblaðið - 06.10.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 35
HILDUR VALBORG
KARLSDÓTTIR
■+■ Hildur Valborg
* var fædd á Eski-
firði 5. júlí 1911.
Hún lést á heimili
sínu í Reykjavík 29.
september síðast-
liðinn. Móðir henn-
ar var Ingibjörg
Árnadóttir og faðir
hennar Karl Andr-
és Jóhannesson.
Systkini hennar eru
Auðunn, Ásta (bú-
sett erlendis frá
unga aldri), Klara
og Jón, sem öll eru
á lífi. Einnig átti
hún tvær systur, Málfríði og
Guðrúnu, sem dóu ungar. Þeg-
ar Hildur Valborg var aðeins
sex ára missti hún móður sína
og var þeim systkinum búið
heimili hjá fósturforeldrum.
Hún ólst upp frá því þjá hjón-
unum Guðnýju og Jóni Gísla-
syni, ásamt
bræðrunum Guðna
og Gísla. Leiðin Iá
til Reykjavíkur.
Þar hitti Valborg
mann sinn, Þórð A.
Jóhannesson, og
giftust þau árið
1937. Þau eignuð-
ust þrjár dætur,
Ólafíu Guðnýju,
Klöru Ingibjörgu
og Onnu Auði, en
áður hafði hún
eignast dótturina
Elínu Hildi. Elín
Hildur ólst upp hjá
móðurbróður Valborgar í Vest-
mannaeyjum. Þórður lést árið
1974. Seinni maki Hildar var
Guðni S. Guðnason, sem lést
25.2. 1993.
Útför Hildar verður gerð frá
Langholtskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
SNVRTIVORUVERSLUMK
GLÆSígÆ
sími 568 5170
H Y G E A
.»nyrtti'tfru rer^lun
Austurstrœti 16, sími 511 4511
Kynning
föstudag og laugardag
Með 50 ml Existence
kremi fylgir snyrtitaska*
- Varagloss
- 50 ml hreinsir
- Spectacular
augnháralitur
- Augnhlaup
- Styrkjandi vökvi
'Takmarkað magn meðan birgðir endast
im
HÚN amma Bogga eins og við
kölluðum hana er dáin. En eftir
sitjum við og vissan um að blíða
brosið og létta lundin hennar ljómi
nú á nýjum stað meðal vina hjálp-
ar okkur að kveðja hana í dag.
Þegar ég var lítil stúlka hugsaði
ég sem svo að amma yrði alltaf
hjá mér, svo hlý og góð. Ég man
fyrst eftir ömmu Boggu og afa
Þórði þegar við áttum saman stund
á jólunum. Amma var jólabarn, og
jólaljósin og skrautið hjá henni
fylltu húsið sem var heillandi fyrir
okkur systkinin. Alltaf gaf hún
okkur tíma þegar við þurftum á
að halda og alltaf tók hún vel á
móti okkur með kökum og heitri
mjólk svo enginn hætta væri að
maður fengi kvef.
Amma var mjög trúuð og leitaði
hún mikið í trúna og veitti mörgum
hjálp á erfiðum stundum. Hún
mátti ekki heyra að einhvers stað-
ar þyrfti einhver á hjálp að halda
því þá þurfti hún að koma til að-
stoðar.
Árið 1974 varð afi minn bráð-
kvaddur og varð þá mikið tóm í
hennar lífi. En hún varð svo lánsöm
að eignast annan lífsförunaut sem
var sambýlismaður hennar til
margra ára, hann Guðni S. Guðna-
son, sem lést 1993. Guðni eða
Gauji eins og við kölluðum hann
var okkur eins og afi og var hann
ömmu og ættingjum hennar mikið
góður.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að vera búsett hjá henni
ömmu minni meðan ég var í
menntaskóla og veittu hún og afi
Guðni mér mikinn styrk og hjálp
á þessum árum. Oft áttum við
góðar stundir í borðstofunni á
kvöldin þegar þau sögðu mér frá
æskuárunum heima á Eskifirði en
þar var margt brallað og til gam-
ans gert. Amma sagði mér frá
þessum árum með ljóma í augum
og örlitlum söknuði.
Síðastliðin þijú ár átti amma við
veikindi að stríða og voru síðustu
vikurnar henni erfiðar og varð hún
undir í þeirri baráttu og lést í faðmi
fjölskyldunar á heimili sínu. Amma
mín, nú er komið að kveðjustund-
inni og vil ég og fjölskylda mín
þakka þér allt það sem þú gerðir
fyrir okkur.
Guð veri með þér, amma mín.
Sigrún Bjarnadóttir.
Elsku amma Bogga.
í dag kveðjum við þig í hinsta
sinn, því nú er kallið komið. Það
verður erfitt að hafa ekki lengur
hlýjan faðm þinn að halla sér að.
En þangað vorum við alltaf velkom-
in. Við þökkum þér alla þá um-
hyggju og ást sem þú veittir okk-
ur. Og þær góðu stundir sem við
áttum hjá þér og afa Gaua.
Minningarnar um þig munu vara
að eilífu í huga okkar og við munum
alltaf sakna þín.
Elsku amma Bogga.
Guð geymi þig.
Það voru alltaf þín orð.
Ó, sú stund á efsta degi,
er ég hverf til Frelsarans,
Hann ég lít á himnavegi,
Hann, sem bar minn þymikrans.
Bráðum kemur kallið hreina,
kröfug raust að nyrsta pól.
Opin stendur brautin beina,
borg með nýrri dýrðarsól.
(Kristján Kristmundsson)
Þín langömmubörn,
Einar Bjarni, Þórður Freyr,
Eyþór Hólm, Ingibjörg Ólafía,
Ásdís Rún og Guðni Sigþór.
Amma Bogga.
Nú hefur hún elsku amma mín
fengið hvíldina sem var orðin henni
kærkomin. Ég var svo lánsöm að
fyrstu æviár mín bjuggum við hjá
henni og afa, og þannig hélt barns-
sálin að það yrði alltaf. Eftir þau
ár notaði ég hvert tækifæri til að
dvelja hjá þeim.
Til ömmu var gott að koma. Hún
átti allt það er börnum þykir best,
þolinmæði, umhyggju og hlýju.
Alltaf var hún heima tilbúin að
taka á móti okkur með útbreiddan
faðm af kærleika og ást. í höndum
hennar lék allt, hvort sem það var
að prýða heimilið, baka eða vinna
handavinnu. Það var oft mikið að
gera við pijónavélina, því einhver
staðar var von á barni eða vetur í
nánd. Þannig var hún amma.
Hún var ung í anda og létt i
lund, fylgdist vel með tímans rás.
Skildi unga fólkið og unglingana
svo mikið vel.
„Förum til ömmu Boggu og afa
Gaua“ voru oft orð drengjanna
minna. Þeir hafa misst mikið, en
minninguna um þau varðveita þeir
mjög vel og verður þeim gott vega-
nesti.
Trúin var ömmu leiðarljós í
gegnum lífið, og mikill styrkur í
gegnum veikindin. „Ó góði Guð
gefðu mér styrk“ var henni tamt
að segja.
Amma mín hafðu þökk fyrir allt
sem þú kenndir mér um lífíð, kær-
leikann og trúna. Ég kveð þig með
sárum söknuði. Guð geymi þig,
elsku amma mín.
Elsku besta amma mín
minning þín um mig streymir
samt við munum sakna þín
en nú hann Guð þig geymir.
Ég vil koma á framfæri hjartan-
legu þakklæti til þeirra er önnuð-
ust hana síðustu vikurnar, fyrir
frábæra umönnun og hlýju í henn-
ar garð.
Þórhildur Bjarnadóttir.
Vel búinn
„Þetta er vel búinn bfll og þess verður
strax vart um leið og sest er inn.“ 2)
„Búnaður er nokkuð ríkulegur, samlæsingar,
I rafstilling htiðarspegla, útvarp og rafmagnsrúður" 1)
Verð; 1 .395.000
kr. ú götuna
l)Mbl. 17. scptcmber. - 2)D.V. Bílar 25. septcmber.
Nýja vélin er sprækari
„Eitt helsta tromp Elantra er nýja „beta“ vélin.“
„f raun má því segja að þessi nýja vél sé einstaklega
vel heppnuð fyrir þennan bfl.“ 2)
Snotur að innan
| „Þegar sest er inn verður flest
1 til ánægju....“ 1)
Góður kostur
I „I heild verður að segja að þessi nýja Elantra
i er allgóður kostur á þeim harða markaði sem
1 íslenskur bflamarkaður er nú.“.... 2)
m
f „.... þetta er vel búinn bfll sem býður af sér
góðan þokka, fullvaxinn bfll í millistærðarflokki,
f og ekki sakar að útlitið er ( góðu lagi. “ 2)
HYUriDfll
...til framtíðar
ÁRMÚLA 13
SlMI: 568 1200
BEINN SlMI: 553 1236
Gagnrýnendur eru á
einu máli um ágæti nýja
Hyundai Elantra
og viðbrögð almermings hafa verið í samræmi við það.
Öruggur
,,....þá hefur við hönnun einnig verið lögð áhersla á öryggið.".... 1)
Nýr
„Frá grunni, laglega hannaður
og vel búinn“ 2)
- kjarni málsins!