Morgunblaðið - 06.10.1995, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.10.1995, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ AÐALBJÖRG _ BJÖRNSDÓTTIR + Aðalbjörg Björnsdóttir fæddist á Bakka í Viðvíkur- sveit í Skagafirði 21. maí 1904. Hún lést á Borgarspítalanum 23. september siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 29. september. > MIG langar með örfáum orðum að i minnast Aðalbjargar Bjömsdóttur frá Á í Unadal. Eg átti heima hjá henni um fimm ára skeið og eignað- _^ist vináttu hennar sem aldrei bar skugga á. Hún var falleg kona, list- feng og smekkvís svo af bar eins og heimili hennar og umhverfi allt vitn- aði um. Aðalbjörg átti lengst af heima á Siglufírði og kenndi kjólasaum við Gagnfræðaskólann þar við miklar vin- sældir. Þótti nemendum hennar t.d. ómissandi að hafa hana með í skóla- ferðalögunum á vorin og héldu síðan sambandi við hana að skóla loknum. Margan samkvæmiskjólinn saum- aði hún handa siglfírskum konum og sáust ekki aðrir glæsilegri þótt víðar væri leitað. Aðalbjörg gat líka brugðið sé í síldargalla og ekki voru margar handfljótari við síldarkassana. Þau Aðalbjörg og Jóhann Þor- finnsson maður hennar áttu jafnan góða hesta og ferðuðust víða, þó mest um Skagafjörð en þar voru æskustöðvar Aðalbjargar. Svo einkennilega vildi til að ég var stödd að Á í Unadal daginn sem hún veiktist og var lögð inn á Borgarspít- alann þar sem hún andaðist eftir stutta legu. Fallegi dalurinn hennar skartaði sínu fegursta þennan dag og mér fannst ég fínna nálægð hennar. Ég minnist hennar með þakklæti og virðingu. Margrét Jónsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasiðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubii og hæfilega línuiengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Útför ÁSTU ÞÓRÐARDÓTTUR frá Bergi, Vestmannaeyjum, fer fram frá Landakirkju, Vestmanna- eyjum, laugardaginn 7. október kl. 14.00. Þórða Berg Óskarsdóttir, Birkir Baldursson, Óskar Eyberg Aðalsteinsson, Margrét Árdi's Sigvaldadóttir, Bjarni Ólafur Birkisson, Ásta Sigriður Birkisdóttir, barnabörn, og Bergþóra Þórðardóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN ÞÓRÐARSON, Árbæ, sem lést 24. september sl., verður jarðsunginn frá Reykhóla- kirkju laugardaginn 7. október kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á dvalarheimilið Barma- hlfð, Reykhólum. Ferð verður frá BSÍ kl. 8.00 árdegis. Fyrir hönd aðstandenda, Elisabet Guðmundsdóttir, börn, tengdadætur og barnabörn. t Útför INGÓLFS MARKÚSSONAR frá Valstrýtu, fer fram frá kapellu Hafnarfjarðarkirkju- garðs mánudaginn 9. október kl. 13.30. Bílferð verður frá Kirkjuhvoli í Hvolhrepp kl. 11.30. Elias Arason, Guðrún Jónsdóttir. + Sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HULDA ARADÓTTIR, Grettisgötu 39, sem andaðist laugardaginn 30. september, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 9. október kl. 13.30. Ari Þórðarson, Erlingur Snær Guðmundsson, Svava Gísladóttir, Þórunn Elisabet Stefánsdóttir, Gísli Jensson, Stefán Stefánsson, Linda Arthur, Birna Rikey Stefánsdóttir, Birgir Eyþórsson, barnabörn og barnabarnabörn. JÓN ÖRN INGVARSSON Jón Örn Ing- varsson var fæddur á Eiríks- stöðum á Jökuldal í N-Múlasýslu 9. júní 1919. Hann var son- ur hjónanna Ing- vars Sigurðar Jóns- sonar bónda og verkamanns, f. 27. sept. 1887, d. 3. okt. 1961, og Kristínar Einarsdóttur saumakonu, f. 18. ágúst 1892, d. 14. nóv. 1985. Hann var skráður matsveinn á mb. Öldunni hinn 14.júní 1934, síðar háseti á ýmsum fiskibát- um og 1. vélsfjóri á mb. Ving- þór, eftir mótornámskeið, þar til nám hófst við vélvirkjun í Landssmiðjunni. Árið 1945 lauk hann vélstjóraprófi frá Vélskól- anum í Reykjavík. Að námi loknu vann hann hjá Skipaút- gerð ríkisins. Hann var vélstjóri á ms. Foldinni 1947-48, en síðan við rafstöðina á Ljósafossi til 1949. Hann var vélstjóri á vs. Maríu Júlíu og vs. Ægi (I) til 1953. Frá 1953 starf- aði hann sem yfirvél- stjóri hjá Skipadeild SIS til starfsloka árið 1986. Hinn 5. apríl 1947 kvæntist Jón Örn Guðbjörgu Guð- mundsdóttur, f. 2. okt. 1925, í Reykja- vík, dóttur Guðmund- ar Jónssonar skó- smíðameistara og Þórunnar Oddsdótt- ur. Börn þeirra eru: 1) Kristín útibússtjóri Islandsbanka á Sel- tjarnarnesi, f. 15 okt. 1947. 2) Guðmundur kennari og rithöf- undur, f. 30. júní 1949, kvæntur Birnu Garðarsdóttur, 3) Ingvar Sigurður, íþróttakennari og íþróttafulltrúi Hafnarfjarðar, f. 20. okt. 1951, sambýliskona Hjördís Sigurbergsdóttir. 4) Þór Örn stjórnmálafræðingur, f. 8. feb. 1958, sambýliskona Bjarnfríður Vilhjálmsdóttir. Utför Jóns Arnar verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. ER VIÐ fréttum af láti afa okkar 30. september síðastliðinn, varð okk- ur mikið um. Þrátt fyrir að andlát hans hafi átt sér aðdraganda, þar sem hann hafði legið nokkurn tíma á sjúkrahúsi og víst var að hann myndi ekki koma heim aftur, var sárt að missa hann. Margar ánægjustundir fengum við þó að upplifa með honum og koma. margar sælar minningar upp í hugann þegar rifjuð er upp liðin tíð. Afi var sjómaður mestaila sína - starfsævi og lengi vel vélstjóri á fragtskipum Sambandsins þar sem hann lauk starfsferli sínum. Hann var duglegur að leyfa börnum og barnabörnum sínum að sigla með sér um heimsins höf. Við bræðurnir vorum svo heppnir að fá að ferðast með honum á millilandasiglingum. Þessar ferðir voru okkur mjög eftir- minnilegar, enda eftirsóknarvert og spennandi að skoða framandi lönd. Alltaf gátum við reitt okkur á hjálpsemi afa hvenær sem var og við hvað sem var. Þegar við vorum yngri gerði hann við reiðhjólin okkar og ekki var nú verra að geta leitað til hans á unglingsárunum með skelli- nöðrumar meira og minna bilaðar. Eftir að hann var kominn á eftirlaun hafði hann ærið starf við að halda bílaflota Ijölskyldunnar gangandi. Er þá fátt eitt talið því hjálpsemi hans voru engin takmörk sett. Aðdáunarvert var hversu vel hann setti sig inn í störf og áhugamál barna og barnabarna sinna, stuðn- ingur hans og áhugi var okkur mik- il hvatning í því sem við tókum okk- ur fyrir hendur. Alltaf var hann til- búinn að gefa sér tíma til að fylgj- ast með áhugamálum okkar, ræða. málin og gefa góð ráð. Ófáar stundir áttum við með hon- um þar sem hann skemmti okkur með gamansögum, hvort heldur frá uppvaxtarárum sínum á Seyðisfirði eða sögum úr ótal ferðum hans um heimsins höf. Af nógu var að taka því bæði var minni hans óbrigðult og frásagnagleði mikil, hann naut sín virkilega þegar hann sagði sögur frá liðnum tíma. Frá því að við munum eftir okkur var afi órjúfanlegur þáttur af jólahá- tíðinni. Þegar svo bar við að hann var á sjó yfir sjálfar hátíðimar fannst okkur alltaf eitthvað vanta í þær, þannig að komandi jól verða væntan- lega tómleg án afa okkar. Afi hafði mikinn áhuga á ljóðum og þykir okkur vel við hæfi að enda þetta á kvæði eftir eitt af uppáhalds skáldum hans. Nú andar suðrið sæla vindum þýðum. Á sjónum allar bárur smáar rísa og flykkjast heim að fögru landi ísa, að fóstuijarðar minnar strönd og hlíðum. (Jónas Hallgrímsson) Jón Örn og Reynir Leví. Þegar vetrar þoka grá þig vill fjötra inni svífðu burt og sestu hjá sumargleði þinni. (Þorsteinn Erlingsson) Kæri frændi. Þegar ég heimsótti þig á sjúkra- húsið þremur dögum fyrir andlát þitt sýndir þú sömu hlýju og umhyggju fyrir okkur systkinunum, börnunum hans Óla bróður þíns, eins og ávallt. Þegar ég hélt í hönd þína rifjuðust upp minningar um Jón frænda sem var í siglingum um allan heim á stóru skipi. Fyrir lítinn sveitadreng var þessi borðum prýddi vélstjóri stór- fenglegur og heimsókn í skipið þitt, þegar landað var í Borgamesi, em enn í fersku minni. Jón frændi í stóra skipinu sínu og allt varð að skoða og yfir öllu undrast. Á eftir voru þegnar veitingar sem voru útlenskir gosdrykkir og sælgæti. Þessi minning er mér einkar kær. Umhyggja þín birtist í áhuga þín- um á börnum og barnabörnum. Það hefur verið undrunarefni körfu- boltaáhugamanna hvernig þú sóttir leiki þriggja liða á síðasta vetri til að fylgjast með Ingvari syni þínum hjá Vai, sonum hans, Jóni Amari og Pétri hjá Haukum og Jóni Erni nafna þínum hjá ÍR. Ekki hefur hestaáhugi og skrif hans Guðmundar þíns síður glatt þig og orðið umræðuefni eða skákáhugi hans Þórs Arnar. Ekki get ég annað en minnst á hana Stínu þína, sem hvert sumar og oft um páska kom með ömmu + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINEY KETILSDÓTTIR (SÍNA), Eiðistorgi 3, Seltjarnarnesi, andaðist í Borgarspítalanum miðvikudaginn 4. október. Jarðarförin auglýst síðar. Örn Þór Halldórsson, Hafþór Snorrason, Anna Margrét Halldórsdóttir, Ragnar Birgisson og barnabörn. Kristínu, nöfnu sinni, í heimsókn til okkar í Borgarfjörðinn. Að fá ömmu í heimsókn var alltaf hátíð hjá okkur systkinunum en ekki síður að fá Stínu frænku sem við systkinin litum á sem eitt af okkur og foreldrar mínir á hana sem eitt af börnum sínum. Og á hún þakkir skildar fyr- ir þá umhyggju sem hún ávallt hefur sýnt foreldrum mínum. Æskuslóðirnar á Seyðisfirði hafa verið þér hugleiknar. Það hefur ver- ið erfítt fyrir ykkur bræður að fara ungir frá Seyðisfirði til náms í Reykjavík. En það sýndi manndóm ykkar og dugnað að ljúka námi, lítt studdir Ijarri heimabyggð. Ég veit að Seyðisfjörður var þér ávallt kær og þangað sóttir þú á stundum síð- ari árin með henni Guðbjörgu kon- unni þinni til að rilja upp gamlar minningar og endurnýja gömul kynni. Þegar ég, ungur maðurinn, sótti eitt sinn hóf Seyðisfirðingafé- lagins í Reykjavík og gerði grein fyrir mér sem syni Ólafs Ingvarsson- ar frá Seyðisfirði kannaðist enginn við manninn. Ekki stóð á viðbrögð- um þegar ég sagðist vera sonur Ola í Magasíninu, bróður Nonna í Mag- asíninu, vissu allir hverra manna ég var en þannig munu Seyðfirðingar minnast ykkar bræðra sem og vinir ykkar. Kæri frændi, þegar ég kvaddi þig á dánarbeðinu hafðirðu þrátt fyrir mikil veikindi og vanlíðan kraft til að faðma mig og óska mér og mínum velfarnaðar í lífinu og þitt þétta og hlýja handtak hafði ekkert breyst. Ég óska þér sömuleiðis velfarnaðar í þinni nýju vegferð, kæri frændi, og að þú hafir það ávallt sem best í nýjum heimkynnum og þar verði vel tekið á móti þér. Um leið vil ég þakka þér samfylgdina í þessu lífi. Tíminn vinnuc, aldrei á elstu kynningunni ellin fínnur ylinn frá æskuminingunni. (Jón S. Bergmann) Samúðarkveðjur vil ég færa Guð- björgu, börnum og barnabörnum. Ingvar Ólafsson. Það er ekki oft þegar maður eign- ist vinkonu að um leið eignist maður heila fjölskyldu, en það gerðist sum- arið 1974. Þá kynntist ég Kristínu og hennar fólki. Allt frá þeim tíma hafa Jón Örn og Bugga, foreldar Kristínar, verið hluti af lífi mínu. Jón Örn var maður sem gustaði af á sinn hægláta hátt. Þetta er vissulega þversögn, en þessi rólegi maður sem tók öllu með stóískri ró, gat orðið æstur, sér í lagi þegar hann var ekki ánægður með framgöngu fram- sóknarflokksins í landsmálum jafnt og sveitarstjórnarmálum. Þegar ég eignaðist stelpurnar mínar fyrir átta árum, og enginn ' afi og amma hér í Reykjavíkinni, voru Jón afi og amma Bugga til staðar. Heimili þeirra í Njörvasundi var alltaf opið dætrum mínum og alltaf fannst þeim jafn gaman og gott að dvelja þar. Þegar amma Bugga þurfti að fara á myndlistarná- mskeiðið sitt, var það Jóni afa ekk- ert mál að vera einn með tvær fjör- miklar 5 ára dömur. Ég og fjölskylda mín höfum verið þátttakendur í stórum stundum í lífi Kristínar og fjölskyldu hennar. Þeg- ar ég horfi til baka stendur ofarlega í huga mínum 75 ára afmælisveisla Jóns sl. vetur. Hlutverk mitt þar var að leika hirðljósmyndara. Þar var talað og hlegið og við fórum með síðustu skipum, því fátt jafnaðist á við gleðistund með Jóni, Buggu og börnunum þeirra. Ég var svo lánsöm að eiga góða stund með Jóni í Njörvasundinu áður en hann fór á spítalann í sep- tember. Þrátt fyrir að hann væri sárþjáður lét hann í ljósi skoðanir á þjóðmál- um, framgöngu R-listans í borgar- málum og öllu því sem var efst á baugi þá stundina. Ég og fjölskylda mín erum þakk- lát fyrir þá gæfu að hafa fengið að eiga hlutdeild í lífí Jóns Arnar. Guð blessi þig. Samúðarkveðjur til Buggu, Krist- ínar og fjölskyldu. _ Maríanna, Ásgeir, Katla og Hildur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.