Morgunblaðið - 06.10.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 39
MINNINGAR
ALDIS BJORG
ÁGÚSTSDÓTTIR
OG SUMARLIÐI
HALLGRÍMSSON
+ Aldís Björg Ag-
ústsdóttir var
fædd 25. mars
1912. Hún lést 26.
september síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Ágúst
Sæby og Steinþóra
Barðadóttir. Sum-
arliði Hallgrímsson
var fæddur 2. júní
1904, d. 24. júní
1978. Foreldrar
hans voru Hall-
grímur Indriðason
og Fanney
Tryggvadóttir. Þau
giftu sig 12.11. 1935 og varð
fjögurra barna auðið. Þau eru
Fanney, f. 1937, Steinþóra, f.
1939, Agústa, f. 1945 og Jónas
Freyr, f. 1952
Útför Aldísar verður gerð
frá Siglufjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin kl. 14.
ÞAÐ er orðið langt síðan ég lagði
upp í fyrstu ferð mína til tilvon-
andi tengdaforeldra. Það er furðu-
legt hvað vel ég man þessa ferð,
hve kvíðinn og óttinn hvarf fljótt.
Mér fannst ég hafa átt heima hjá
þeim áður, svo vel var tekið á
móti mér, þó svo mannsefnið hafi
ekki þótt gæfulegt.
Mig langar til að minnast
tengdaforeldra minna, Sumarliða
Hallgrímssonar og Aldísar Bjargar
Ágústsdóttur. Ef til vill vegna þess
að mér finnst ég ekki hafa þakkað
nægjanlega vel fyrir mig meðan
ég gat. Það sannast nú eins og svo
oft að enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur, þó er huggun
í harmi að ég veit að þau fylgjast
með okkur. Þau eru aðeins horfin
frá þessari tilvist.
Ég er ekki viss um að maður
hafi gert sér grein fyrir því á þeim
tíma hversu mikils virði það var
að eiga þau sem foreldra. Það gerði
ég síðar en nú eru þau bæði horfin
og minningarnar streyma í gegn.
Það verður ekki metin sú aðstoð
sem við fengum fyrstu árin er við
sem unglingar vorum að byrja bú-
skap. Það er ekki víst að við hefð-
um komið ósár út úr því basli án
stuðings. Enda var það svo ef
möguleiki var fyrir hendi þá var
stefnan tekin norður bæði í fríum
og eins lítið mál að skreppa eina
og eina helgi, það var alltaf tekið
jafn vel á móti.
Þau voru bæði nákvæmlega eins
og foreldrar eiga að vera, hreinskil-
in og sögðu gjarnan skoðanir sfnar
umbúðalaust og mér fannst Sumar-
liði vera sá klettur sem gæti staðið
af sér allar öldur í lífsins ólgusjó
og ætti að vera mín fyrirmynd. Það
var gaman að hlusta á hann segja
frá, aðallega frá sjónum en sjó
stundaði hann lengst af á öllum
tegundum skipa. Þó svo að tæpt
hafi verið að menn björuðust úr
skipstöpum sem hann lenti í þá
hældi hann sér ekki af því að hafa
átt hlut að máli og gerði lítið úr.
Það var stutt í glettnina og hann
gerði jafnvel grín að alvörunni.
Það hefur verið erfítt að vera
sjómannskona á þessum árum og
ég sé fyrir mér Sumarliða kveðja
fjölskyldu sína í kjallaradyrunum
og halda út í sortann. Það sást
ekki niður á götu hvað þá niður á
bryggju. En Aldís Björg var öllum
þeim mannkostum búin til þess að
sjá um það sem heima var og meir
en það. Oft var unnið utan heimilis
svo sem kostur var frá bömum og
búi. Hún var sjálfstæð og ákveðin
enda þurfti oft á því að halda, eink-
um þegar fjarverur manns hennar
voru langar. Það þarf líka sterk
bein til að hlusta á fréttir að skipið
sem Sumarliði var á, hafi farist úti
fyrir Húnaflóa á svipuðum tíma og
það átti að vera að leggjast að
bryggju.
Enda var það þegar árin færðust
yfir og heilsan bilaði þá var örugg-
leg ekki allt tínt til og harkað af
sér eins og hún hafði oft þurft að
gera. Hún var að mér fannst sann-
ur Siglfirðingur eins og þeir gerast
bestir.
Sumarliði lést fyrir 17 árum og
var það mikill missir fyrir okkur
öll, en þó mestur fyrir Aldísi því
þauvoru ákaflega samrýnd og hann
hafði verið í landi síðustu árin og
komast að því hversu mikils hún
hafði farið á mis. En hún vann sig
út úr þessum harmi og barðist fyr-
ir því að geta séð um sig sjálf þrátt
fyrir heilsubrest og þverrandi sjón.
Hún var ákveðin að verða ekki
neinum byrði og ég er viss um að
það var henni mikill léttir að fá að
fara áður en hún varð ósjálfbjarga.
Dætur okkar áttu góðan afa og
góða ömmu og ég man hvað þær
voru glaðar ef ákveðið var að fara
norður og hvað þeim þótti vænt
um ullarsokkana sem amma sendi.
Það er ekki langt síðan þeir síðustu
komu, það var sama ánægjan þeir
voru svo hlýir. Það fylgdi þeim
ákveðinn hugur.
Ég þakka Guði og forsjóninni
fyrir að hafa kynnst þessum for-
eldrum mínum og fengið að vera
samferða þeim í þessu lífi þó svo
ferðin hefði mátt vera lengri.
Guð blessi minningu þeirra.
Guðjón Pétursson.
Mig langar með örfáum orðum
að minnast ömmu minnar. í æsku
minni kom ég nánast um hveija
helgi frá Akureyri til ömmu og afa
í Suðurgötu 66, Siglufírði. Þangað
var gott að koma og amma var
alltaf til staðar. Oft stóð hún í kjall-
liIUJMS
66*N
Úlpur, gallar,
vesti, peysur,
sokkarog
sokkabuxur.
Frábærar vörur.
Einnig kuldafatnaðurinn
frá66*N.
Opið á laugardag frá kl. 10-17.
BARNASTIGUR
Skólavöröustíg 8, sími 552 1461.
aranum að steikja kleinur og soð:
brauð þegar okkur bar að garði. í
Suðurgötuna voru allir velkomnir
og viðgjörningurinn á því heimili
var ekki af lakara taginu. Amma
var alltaf með útréttan mjúkan
faðminn, hún kenndi mér bænir og
vísur, las fyrir mig og kenndi mér
að prjóna. Oftast fékk ég líka að
lúra hjá henni þegar afí var á sjón-
um.
Tíminn leið, ég var orðin ungl-
ingur og ferðum mínum til Siglu-
fjarðar fækkaði. Ég eignaðist dótt-
ur og 1978 dó afí. Eftir að afi dó
dvaldist amma oft í margar vikur
í senn á heimili mömmu og pabba
í Einholtinu á Akureyri. Þar var
ég líka með litlu dóttur mína, Örnu
Þóru, og nú endurtók sagan sig,
því amma hafði alltaf tíma fyrir
Órnu Þóru.
Elsku amma og langamma, nú
er komið að kveðjustund. Það voru
forréttindi að fá að njóta samvista
við þig og við munum búa að því
alla ævi. Takk fyrir allt.
Aldís Björg og Arna Þóra.
Elsku amma, nú ert þú loksins
búin að fá hvíldina, sem þú hefur
lengi beðið eftir. í sorginni er gott
að vita að þér líður betur.
Margar minningar koma upp í
huga mér um allar stundirnar sem
við höfum átt saman. Okkar fyrstu
stundir voru strax á mínu fyrsta
ári, þegar þú og afí tókuð mig í
fóstur. Foreldrar mínir fóru suður
til að ljúka námi og vinna. Þau
voru mörg jólin sem við dvöldum
hjá þér og afa, meðan þið voruð
bæði á lífí. Það var alltaf gaman
að fá jólapakka frá þér, þeir voru
fúllir af sokkum og vettlingum.
Einnig hafðir þú laumað súkkulaði
eða smáaur í pakkann, og það var
það sem gerði þessa mjúku pakka
svo skemmtilega.
Á sumrin dvöldum við lengi á
Sigló. Þar var alltaf gott veður og
nóg að gera. Þær voru margar ferð-
irnar sem við afi fórum í ber, bara
tvö saman upp í fjall. En einnig
var farið í lengri ferðir og þá fórum
við öll, og höfðum nesti með.
Á þessum árum taldi ég Sigló
vera þann stað sem ég myndi búa
á þegar ég væri orðin stór. Það
breyttist með aldrinum og ferðun-
um fækkaði sem ég fór norður.
Núna, síðustu ár, var farið einu
sinni að sumri, bara til að heim-
sækja þig, en nú ert þú farin.
Með þessum fáu orðum langar
mig að kveðja þig, elsku amma.
Ég vona að guð varðveiti þig vel
og styrki okkur sem eftir sitjum í
sorg.
Þín
Anna Guðbjörg.
I3ICMIEGA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
FIMET
RAFMOTORAR
Eigum til á lager alhliba
rafmótora í stæröunum
1,1 - 90 KW.
Útfærslur: «IP55
•meb fót og flans
Slg. Sveinbjörnsson hf.
Skeiöarási 14
Sími: 565-8850 Fax: 565-2860
'orgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfa-
fundi með Reykvíkingum á næstu vikum.
Fundirnir verða sem hér segir:
/ / /
I Arseli mánudaginn 9. október með íbúum Arbaejar-,
Artúnsholts- og Seláshverfis.
I Langholtsskóla mánudaginn 16. október með íbúum Lækja-,
Teiga-, Langholts-, Sunda- og Vogahverfis ásamt Skeifunni.
*
I Réttarholtsskóla mánudaginn 23. október með íbúum
Háaleitis-, Smáíbúða-, Fossvogs- og Múlahverfis.
í Ráðhúsinu mánudaginn 30. október með íbúum Túna-,
Holta-, Norðurmýrar- og Hlíðahverfis.
í Ráðhúsinu mánudaginn 6. nóvember með íbúum
vestan Snorrabrautar.
Allir fundimir hefjast kl. 20.00.
A fundunum mun borgarstjóri m.a. ræða um áætlanir og
framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og
fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna
borgarinnar. Jafnframt verða settar upp teikningar af
fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru
fróðlegu og myndrænu efni.
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.