Morgunblaðið - 06.10.1995, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLUIM
Business Week enn í banni
Cincinnati. Reuter.
UMDÆMISDÓMARI í Cincinnati
hefur úrskurðað að »Business Week
megi ekki birta grein um málshöfð-
un Procter & Gamble gegn fyrir-
tækinu Bankers Trust New York á
þeirri forsendu að tímaritið hafi
komizt yfir innsigluð skjöl með
ólöglegum hætti.
Business Week hyggst birta
fréttina í næsta tölublaði. America
Online og fleiri tölvuþjónustur
kunna einnig að birta hana.
Útgefandinn, McGraw-Hiil Cos
Inc., heldur því ákveðið fram að
tímaritið hafi komizt yfir upplýsl-
ingarnar á löglegan hátt og ætlar
Allar tilraunir tíma-
ritsins til þess að fá
greinina birta hafa
verið unnar fyrir gíg.
að halda áfram að berjast gegn
upphaflegum úrskurði Johns Fei-
kens dómara 13: september um að
ekki megi birta greinina.
Vekur mikla athygli
Forlagið skaut máli sínu til um-
dæmisdómstólsins í Cincinnati á
þeirri forsendu að úrskurður
dómarans væri brot á stjórnar-
skránni.
Málið hefur vakið mikla athygli,
en allar tilraunir tímaritsins til þess
að fá greinina birta hafa verið unn-
ar fyrir gíg.
Sami áfrýjunardómstóll vísaði
málinu frá í september og hæsta-
réttardómari neitaði einnig að af-
létta banninu.
Báðir aðilar sögðu útgefendunum
að vísa málinu aftur tii Feikens
dómara. Nú þegar úrskurður hans
liggur fyrir geta útgefendurnir
áfrýjað til æðri dómstóla.
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 25
E^E^E^E^E^E^E^E3^E^E^E^C^E2^|
AflflE3S!CANA 95
llCKVlW
VINSÆLASTl SÖNGLEIKUR ALLRA TÍMA
U
BRIMBORG
ATRIÐI UR ROCKY HORROR BRIMBORG KLI3:00
OG NÓATÚN AUSTURVERI KL 14:00
□ □□□□E3E3E3E3E3E3E3
Ritstjóri
Daily
Telegraph
hættir
London.
MAX HASTINGS hefur látið af
starfi aðalritstjóra brezka blaðsins
The Daily Teleghraph, sem hann
hefur gegnt í 10 ár, og verður
ritstjóri Lundúnablaðsins Evening
Standard.
Hann tekur
við af Stewart
Steven, sem hef-
ur verið ritstjóri
Standards síðan
1993. Nýr rit-
stjóri Te-
legraphs hefur
ekki verið ráð-
inn.
Hastings stjórnaði flutningi Te-
legraph-blaðanna frá Fleet Street,
fyrrverandi bækistöðvum stór-
blaðanna í Bretlandi, 1992. Hann
var valinn „ritstjóri ársins“ 1988.
Conrad Black, stjórnarformað-
ur Telegraph, kvaðst harma af-
sögn Hastings og sagði að undir
hans stjórn hefði The Daily Te-
legraph komizt í aðstöðu, sem
ætti sér ekki fordæmi.
Black sagði að framlag Hastings
hefði einkum verið mikilvægt á
síðustu tveimur árum, þegar
keppni um útbreiðslu hefði harðn-
að. A þessum tíma hefði The Da-
ily Telegraph tekizt að halda for-
ystu sinni á markaðnum og verið
rekið með hagnaði.
--------------
Siiddeutsche
og FT með
faxblað
Míinchen. Reuter.
ÞÝZKA dagblaðið Siiddeutsche Zeit-
ung hyggst hleypa af stokkunum
faxblaði á þýzku í samvinnu við
brezka blaðið Financial Times.
Nýja blaðið verður kallað SZ Fin-
anz og hefur göngu sína 6. október
samkvæmt tilkynningu frá forlaginu
Súddeutscher Verlag GmbH.
Blaðið verður viðbót við aðalblaðið
og flytur nánari fréttir um innlend
og erlend fjármál og viðskipti, sem
berast kvöldið eða nóttina eftir að
blað næsta dags fer í prentun.
Síðustú forvörð til að koma frétt-
um í SZ Finanz verður kl. 02.30 að
staðartíma og áskrifendur fáþrí- eða
fjórblöðung myndséndan.
KJÖTVÖRUR
Halogenljós stök og í settum, dæmi:
2 Ijós, spennir og perur frá 3.390 kr
3 Ijós, spennir og perur frá 6.490 kr.
6.900 kr.
2.99U kr. ih perum
3.420 kr.
Frá 2.890 kr.
f§ veggljós í stíl/8 litir
HÚSASMIÐJAN
Skútuvogi 16 • Sfmi 568 7710
osa
3
noralux
=a=
Þú finnur Ijósið sem þú leitar að í nýrrí og gkesilegrí Ijósadeild
Húsasmiðjunnar. Þar kviknar áperunni í œvintýralegu úrvali.
Ljósin eiga það öll sameiginlegt aö vera gœðaframleiðsla á
sanngjömu verði.
OSRAM
Antíkljós
Borðlampar
Skermar
Veggljós
CáíhaJjós
Lofdjós
ÚtiJjós
BaniaJjós
HalogeiJiJjós