Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hlutur innlends bjórs hefur dregist saman um 10% frá síðasta ári
Bjór-
salan
eykst
um 12%
MARKAÐSHLUTDEILD innlendu
bjórframleiðendanna tveggja held-
ur áfram að dragast saman á sama
tíma og ýmsar erlendar bjórteg-
undir sækja í sig veðrið. Þannig
hafði innlendi bjórinn um 56% hlut-
deild á markaðnum í september
samanborið við tæplega 67% hlut-
deild í sama mánuði í fyrra.
Þegar litið er yfir fyrstu níu
mánuði ársins kemur í ljós að hlut-
ur innlenda bjórsins hefur dregist
saman úr um 70% í 60%. Þar veg-
ur þungt nokkur samdráttur hjá
Viking hf. á Akureyri. Fyrirtækið
seldi rúmlega 1,7 milljónir lítra í
ár borið saman við tæplega 1,9
milljónir lítra á sama tíma í fyrra
og tapaði um 6,5 prósentustiga
hlutdeild. Betur hefur tekist til hjá
Ölgerðinni sem jók sína sölu milli
ára en hélt þó ekki í við öran vöxt
á heildarmarkaðnum.
Á fyrstu níu mánuðunum var
salan samtals rösklega 6,1 milljón
lítra, sem er um 12% aukning frá
því í fyrra.
Löwenbrau á í
vök að verjast
Baldin Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Viking hf., segir að
aukningin á markaðnum hafi eink-
um komið fram í aukinni sölu á
ýmsum smærri innfluttum tegund-
um. Þessi sala hafi bitnað mjög á
stærri tegundunum. „Það er ágæt
staða á okkar stærstu tegund, Vik-
ing-bjór, og salan er enn í vexti.
Við höfum hins vegar átt í vök að
verjast með Löwenbráu sem var
mjög vinsæll hér áður. Tegundin
er í litlum dósum en neyslan hefur
verið að færast yfir í hálfs lítra
dósir. Við höfum sótt um að Löw-
enbrau-bjór verði einnig á boðstól-
um í hálfs lítra dósum og érum á
biðlista hjá ÁTVR.“
Enn eykst bjórneyslan
■ -:m35.2%
Markaðshlutdeild framleiðenda í janúar-sept. 1994 og 1995:
ÖlgerðinE.S.'ÍHS
Viking hf.1
Becks1
Heineken1
Holsten'
Pripps1
Anhauser1
Aðrir[
Markaðshlutdeild bjórtegunda í janúar-sept. 1994 og 1995:
9,8%
Egils Gull L- ■■■ '
ujbinn iksáffánt 12,0%
u ; 11.8%
Tuborg Grænn Œ
Becks
Thule
Holsten
Heineken
Löwenbráu
Budweiser
Pripps
lce bjór
Aðrar tegundir
121,6%
24,5%
________li
ling
ölu 1995
[im- Jan.- sept., Jan.-sept.,
lítrar lítrar
11,7%!
ir 3.734.355 3.215.296
Jkur 841,800 953.150
-llö. 477,038 307.316
ir } 1.063.798 1.002.214
r.Ta 1595
M 6.146.991 5.477.976
Oljósthvort
vextir á húsbréf-
um lækka frekar
ÁV ÖXTUNARKRAFA húsbréfa
hefur farið lækkandi á undanförn-
um dögum og er hún nú komin
niður í 5,93% hjá nokkrum verð-
bréfafyrirtækjum en fyrir viku stóð
ávöxtunarkrafa þeirra flestra í um
6%. Skiptar skoðanir eru þó á því
hvort svigrúm sé til frekari lækkana
á næstunni.
Minni þrýstingur á
lánsfjármarkaði
Að sögn Árna Odds Þórðarsonar,
forstöðumanns hjá Skandia, er
ávöxtunarkrafan í ágætu jafnvægi
nú en ýmislegt bendi þó til þess að
ávöxtunarkrafan geti lækkað enn
meira á næstunni. „Ef forsendur
fjárlagafrumvarpsins munu stand-
ast þá kemur lánsfjárþörf ríkisins
til með að minnka um 4 milljarða
króna á næsta ári. Sú lækkun kem-
ur til með að létta nokkuð á innlend-
um lánsfjármarkaði, á sama tíma
og sveitarfélögin eru rekin með
minni halla. Lífeyrissjóðirnir eru að
stækka á sama tíma og eftirspurn
þeirra eftir bréfum fer vaxandi."
Ámi Oddur bendir á mikla eftir-
spum eftir 20 ára verðtryggðum
spariskírteinum máli sínu til stuðn-
ings og segir hana benda til þess að
fjárfestar hafi ekki trú á því að raun-
vextir geti haldist svona háir til langs
tíma litið. „Það eina sem gæti komið
Fimm lífeyrissjóðir hafa sett á stofn ráðgjafarfyrirtæki
Annast ráðgjöf í fjár-
festingum sjóðanna
FIMM lífeyrissjóðir hafa sett á stofn sérstakt ráðgjafarfyrirtæki, Ráðgjöf
hf., sem mun hafa með höndum flárfestingarráðgjöf og annast ýmis önnur
verkefni fyrir sjóðina. Að stofnun fyrirtækisins standa Lífeyrissjóður Norður-
lands, Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar, Lífeyrissjóður verkalýðsfé-
laga á Suðurlandi, Lífeyrissjóðurinn Hlíf og Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga.
Fyrirtæki óskast
Erum að leita að fyrirtæki til kaups fyrir fjórsterkan aðila úti ó
landi. Mó vera í sjóvarútvegi, iðnaði eða annarri starfsgrein.
Skilyrði að hægt sé að flytja meginstarfsemi fyrirtækisins út ó
land, sé það starfrækt nú ó höfuðborgarsvæðinu.
Tilboðum eða hugmyndum ber að koma ó framfæri við okkur
fyrir 11. október nk. Nónari upplýsingar veitir Einar Kristinn
Jónsson, rekstrarhagfræðingur, í síma 588 7474.
Markviss, fjármála- og rekstrarrábgjöf,
Kringlunni 4, 123 Reykjavík,
sími 588 7474, fax 588 7478.
Fyrirtækinu er m.a. ætlað að
aðstoða sjóðina við stefnumótun
varðandi fjárfestingar í skuldabréf-
um, hlutabréfum og erlendum verð-
bréfum. Jafnframt er fyrirhugað
að fyrirtækið veiti ráðgjöf um ein-
staka þætti verðbréfaviðskipta, t.d.
við mat og samanburð einstakra
fjárfestingarkosta. Það mun einnig
eftir atvikum annast samskipti
sjóðanna við erlenda fjárvörslu-
aðila.
Guðbjöm Maronsson, viðskipta-
fræðingur, Msc. Finance-Invest-
ments og löggiltur verðbréfamiðlari,
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins. Hann hefur frá
áramótum annast ýmis störf fyrir
Lífeyrissjóð Dagsbrúnar og Fram-
sóknar m.a. vegna sameiningar þess
lífeyrissjóðs við fjóra aðra lífeyris-
sjóði. Guðbjörn gegndi áður starfi
sjóðsstjóra hjá Landsbréfum hf.
Kári Amór Kárason, formaður
stjómar Ráðgjafar hf. og forstöðu-
maður Lífeyrissjóðs Norðurlands,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
lengi hefði verið í umræðunni meðal
lífeyrissjóðanna að stofna ráðgjafar-
fyrirtæki sem yrði óháð verðbréfa-
fyrirtækjum. „Verðbréfafyrirtæki
hafa iðulega mikilla hagsmuna að
gæta sem söluaðilar verðbréfa sem
hlýtur að setja sitt mark á ráðgjöf
þeirra. Svokallaðir „Kínamúrar" era
oft fremur þunnir hjá þessum fyrir-
tækjum. Við ákváðum að gera þessa
tilraun. Margir sjóðir hafa lýst yfir
áhuga á að taka þátt í fyrirtækinu
síðar en vilja sjá fyrst hvers megn-
ugt það er og hvaða þjónustu það
sé fært um að veita. Síðan verður
það einfaldlega að koma í Ijós hvort
sjóðirnir nýta þessa þjónustu."
Hann sagði að ætlunin væri að
fyrirtækið sækti um leyfi til verð-
bréfamiðlunar þannig að það gæti
tekið að sér verkefni á því sviði.
Óskum eftir
fyrirtækjum ú skró!
Skiphoti 50B ,T; ® 551 9400
í veg fyrir vaxtalækkun er að ríkið
muni leita í auknum mæli inn á inn-
lendan lánsfjármarkað."
Aukin eftirspurn eftir
fjármagni
Það kveður við nokkuð annan tón
hjá Ásgeiri Þórðarsyni, forstöðu-
manni verðbréfamiðlunar VIB.
Hann telur litlar líkur á því að
ávöxtunarkrafa húsbréfa muni
lækka eitthvað frekar á næstunni.
Meiri líkur séu á því að hún muni
hækka lítillega. „Við reiknum ekki
með miklum breytingum á fjórða
ársfjórðungi en geram þó frekar ráð
fyrir einhveijum hækkunum upp á
u.þ.b. 10 punkta eða svo. Ef við
skoðum árið í heild hafa húsbréfin
verið á bilinu 5,85%-6,05%, sem er
ótrúlega þröngt bil. Við teljum að
þetta verði með svipuðum hætti
áfram.“
Ásgeir segist heldur ekki sjá nein
teikn á lofti sem bent geti til vaxta-
lækkana til lengri tíma litið. „Það
er ákveðin þensla í þjóðfélaginu og
sem betur fer sér ekki fyrir endann
á henni enn. Það er því tiltölulega
mikil eftirspurn eftir peningum og
á meðan að svo er sjáum við ekki
fram á neina stórkostlega lækkun
og teljum frekar að þetta verði á
því bili sem við höfum séð að undan-
förnu."
Egils-
staðabær
í ábyrgð
fyrir KH
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
BÆJARSTJÓRN Egilsstaða-
bæjar gekkst í einfalda
ábyrgð fyrir Kaupfélag Hér-
aðsbúa vegna skuldabréfa-
útboðs félagsins að upphæð
kr. 40 milljónir króna. Til
tryggingar setti félagið allt
Iand félagsins í Egilsstaðabæ.
Skuldabréfin voru gefin út til
12 ára og seld í lokuðu útboði.
Ákvörðun tekin eftir mat
hlutlausra aðila
Einar Rafn Haraldsson
formaður bæjarráðs sagði að
Egilsstaðabær hafi látið meta
þetta mál af óháðum aðila
og tekið afstöðu í samræmi
við það. Bæjarstjórn var ein-
róma samþykk þessari
ákvörðun. Ábyrgðin er talin
trygg og bæjarfélagið stend-
ur mjög vel að vígi til að taka
þátt í atvinnulífi staðarins
með þessum hætti. Kaupfélag
Héraðsbúa er stærsti at-
vinnurekandi staðarins.
Salan gekk vel
Ingi Már Aðalsteinsson
kaupfélagsstjóri sagði að
Kaupþing hefði annast sölu
bréfanna eftir lokað útboð og
salan gengið mjög vel. Til-
gangur með útboðinu var að
skapa svigrúm til að hagræða
í rekstri og gera félagið betur
í stakk búið til að ráðast í
nýjar framkvæmdir. Með út-
boðinu náðust mun hagstæð-
ari vaxtakjör en félaginu
stóðu áður til boða.