Morgunblaðið - 06.10.1995, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Helgarsýning
á kirkjulist í
Strandbergi
UM HELGINA mun kirkjulista-
konan Sigrún Jónsdóttir sýna nokk-
ur verka sinna í Strandbergi, safn-
aðarheimili Hafnarfjarðarkirkju við
Strandgötu í Hafnarfirði, en hún er
á leið til Seattle í Bandaríkjunum
til að setja upp víðamikla sýningu á
verkum sínum í Norræna listasafn-
inu þar og verða nokkur þeirra á
sýningunni í Strandbergi.
Sigrún er ein þekktasta kirkju-
listakona landsins, kunn fyrir trúar-
leg verk sín sem hún vefur, saumar
og vinnur í batik. Margir fegurstu
messuskrúðar og altarisklæði hér á
landi eru unnin af henni, auk annars
konar verka sem skírskota þó jafnan
til trúarlegra kennileita og tákna.
Sýningin verður formlega opnuð
í kvöld kl. 18 og verður opin fram
á mánudag frá kl. 14-19. Aðgangur
er ókeypis og er sýningin öllum opin.
ORKA 2x120. Glermynd á
Nesjavöllum eftir Sigrúnu.
MEÐAL bóka sem
koma út fyrir jólin er
íslenskar þjóðsögur:
Álfar og tröll eftir Ólínu
Þorvarðardóttur þjóð-
fræðing. Ólína stundar
nú doktorsnám í ís-
lensku og þjóðfræðum
við Háskóla íslands.
Bókin verður _ prýdd
myndum eftir Ólaf M.
Jóhannesson. Bóka- og
blaðaútgáfan gefur út.
Hér er um að ræða
úrval þjóðsagna frá
ýnsum tímum. Að sögn
útgefanda er bókin
„skrifuð til að kynna fyrir ungu fólki
þá menningararfleifð sem þjóðsög-
umar eru, og um leið að endurvekja
kynni þeirra sem eldri eru af rökkur-
sögum bernsku sinnar“._
íslenskar þjóðsögur. Álfar og tröll
er önnur bók Ólínu Þorvarðardóttur.
Hin er Bryndís — lífssaga Bryndísar
Schram sem kom út
1989. Ólína var spurð
að því hvort hún ætlaði
að snúa sér að ritstörf-
um í vaxandi mæli.
„Ég hef alltaf haft
mikla ánægju af að fást
við skriftir og kljást við
orð,“ sagði Ölína. „Ég
er hugfangin af þessum
þjóðsagnaheimi og
vætta, en hvað ástar-
samband milli mín og
vættanna varir lengi
veit ég ekki. Þjóðsögur
era þjóðarspegill, í þeim
kemst maður að því
hvemig fólk hugsar og kynnist rétt-
lætiskennd þess. Þetta er Mennt með
stóram staf.“
—Er bókin hluti stærra ritverks?
„Mig langar að halda áfram að
gefa út þjóðsögur, en það ræðst af
viðtökum. Þetta hefur þróast upp úr
rannsóknum mínum og námi.“
Spegill þjóðar
Ólína Þorvarðardóttir
FINNSKI rithöfundurinn Antti Tuuri er um
það bil að ljúka við að þýða Njáls sögu á
finnsku en hann hefur áður þýtt Egils sögu.
Njáls saga kemur að öllum líkindum út í
mars næstkomandi, sagði Tuuri í viðtali við
blaðamann, en hann hefur ekki fullklárað
þýðinguna enn. „Sagan var erfiðari í þýðingu
en ég bjóst við. Það hefur til dæmis verið
mjög erfitt að koma til skila öllum lagaflækj-
unum í sögunni og lagahugtökunum sem við
þekkjum auðvitað ekki.“
Tuuri sagðist hafa byijað að Iæra íslensku
í upphafi níunda áratugarins í háskólanum
í Helsinki. „Ég get lítið talað hana en ég
get lesið hana mér til gagns. í þýðingar-
starfi mínu hef ég haft sænskar og enskar
þýðingar á Eglu og Njálu til hliðsjónar þótt
frumtextinn hafi vitanlega alltaf legið til
grundvallar. Svíarnir hafa breytt textanum
aðeins og Englendingar líka; í þýðingu sinni
á Njálu hafa Englendingar til dæmis sleppt
öllum ættartölunum. Ég vildi auðvitað hafa
þær með því sagan verður óskiljanleg án
þeirra."
Tuuri sagði að eftir glímu sína við Njáls
sögu geti hann ekki annað en tekið undir
það sem svo margir hafa sagt í gegnum tíð-
ina að hún sé ein mesta og merkasta bók
bókmenntasögunnar. „Það er svo margt sem
gerir þetta verk að svo mikilli bók. Hún er
sérstaklega vel byggð. Hún er í raun heild-
stæð skáldsaga og það er mikil upplifun fyr-
ir rithöfund eins og mig að kynnast henni
náið. Söguþráðurinn er svo þéttofinn að allir
atburðir sögunnar, stórir sem smáir, hafa
einhverja þýðingu fyrir heildarmyndina. Það
hefur verið mikill skáldsagnahöfundur sem
skrifaði hana.“
Egils saga á metsölulista
Áhugi Finna á íslendingasögum er ekki
verulegur að sögn Tuuri. „Það urðu samt
þó nokkrar umræður í fjölmiðlum um Egils
sögu þegar hún kom út. Hún komst reyndar
á metsölulista hér.“
Eins og áður sagði á Tuuri enn eftir að
hnýta nokkra lausa enda í þýðingu sinni á
Njálu, hann segist þurfa að bera nokkra hluti
undir íslendinga áður en hann gengur endan-
lega frá henni. En hvað var það sem ýtti
honum út í að læra íslensku? „Ég er menntað-
ur verkfræðingur sem er vitanlega afskap-
lega hagnýtt. Mig langaði hins vegar til að
læra eitthvað sem myndi ekki hafa neitt
hagnýtt gildi, ég lærði því íslensku. Það er
lítið gagn að því að kunna hana.“
Njála þýdd
á finnsku
Antti Tuuri
Minningartónleik-
ar um Sigríði og
Ragnar H. Ragnar
MINNINGARTÓNLEIKAR
verða haldnir á ísafírði, sunnu-'
daginn 8. október næstkom-
andi, um hjónin Sigríði Jóns-
dóttur og Ragnar H. Ragnar.
Þar koma fram tónlistarmenn-
irnir Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópransöngkona, Martial
Nardeau flautuleikari og Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanó-
leikari. Tónleikarnir verða i sal
Grunnskóla ísafjarðar og hefj-
ast kl. 20.30.
Ragnar H. Ragnar stjórnaði
Tónlistarskóla ísafjarðar frá
stofnun hans árið 1948 til ársins
1984 og naut til þess dyggrar
aðstoðar Sigríðar, konu sinnar.
Kraftmikil stjórn
í kynningu segir: „Undir
þeirra stjóm varð tónlistarskól-
inn öflug stofnun, landsþekktur
fyrir góða kennslu og kraftm-
ikla stjórn við erfiðar aðstæður.
Þau hjón voru einnig áberandi
í bæjarlifínu á mörgum öðrum
sviðum. Ragnar var m.a. organ-
isti og stjórnaði Sunnukórnum
og Karlakór ísafjarðar um ára-
tuga skeið. Sigríður kenndi við
tónlistarskólann, en var jafn-
framt einn ástsælasti kennari
grunnskólans, auk þess sem hún
var mjög virk í félagslífi á ýms-
um sviðum. Ragnar lést árið
1987, en Sigríður féll frá í mars
1993.
Vart þarf að fjölyrða um
ágæti listafólksins, sem fram
kemur á tónleikunum á sunnu-
daginn. Sigrún Hjálmtýsdóttir
er ein ástsælasta söngkona á
landinu, og hefur hlotið margar
viðurkenningar hér heima og
erlendis og þau Martial Nardeau
og Anna Guðný eru í framvarð-
arsveit íslenskra hljóðfæraleik-
ara_, hvort á sínu sviði.“
Á efnisskránni eru sönglög
eftir Richard Strauss, Rossini,
Rachmaninoff og Charles Go-
unod en einnig íslensk lög, m.a.
eftir ísfirsku höfundana Jónas
Tómasson, Hjálmar Helga
Ragnarsson og Ragnar H.
Ragnar. Martial og Anna Guðný
leika saman sónötu eftir Francis
Poulenc, en tónleikunum lýkur
með Ljóði fyrir sópran, flautu
og þíanó eftir A. Adam - „Brav-
úr“-tilbrigðum við stefíð A-B-
C-D.
Tónleikarnir á sunnudags-
kvöldið njóta stuðnings og
styrkja fjölmargra einstaklinga
og fyrirtækja.
Þessir minningartónleikar
hafa ævinlega verið mjög fjöl-
sóttir og hafa tónlistarunnendur
þannig átt þess kost að heiðra
minningu Ragnars og Sigríðar.
Ath. Forsala aðgöngumiða
verður f Bókaverslun Jónasar
Tómassonar á ísafirði, föstu-
daginn 6. okt. og fyrir hádegi
á laugardag 7. okt. Miðasala
við innganginn frá kl. 20.
Nýjar bækur
Litabók Þorsteins J.
LITABÓK er heiti
ljóðabókar Þorsteins
J. sem kemur út í dag.
Hún er gefin út í 100
tölusettum eintökum,
sem öll eru handskrif-
uð af höfundinum.
„Þetta eru um
margt mjög persónu-
leg ljóð, og mig lang-
aði einfaldlega til að
handskrifa þau,“ segir
Þorsteinn. „Textinn
sjálfur er á svolítilli
hreyfingu; ljóðin hafa
sum hver verið að
breytast, ég felli út
Þorsteinn J,
orð, bæti öðrum við
og þar af leiðandi er
ekkert eintak alveg
eins.“
Samhliða útkomu
bókarinnar, opnar
Þorsteinn sýningu á
síðum úr henni í Gall-
erí Úmbru, í Bern-
höftstorfunni í
Reykjavík. Þar verður
jafnframt hægt að
hlusta á hljóðmyndir
af ljóðunum í hátölur-
um.
Litabók er fyrsta
Ijóðabók Þorsteins.
Minningarsióður Páls Isólfssonar stofnaður
Orgeltónleikar í Hall-
grímskirkju
ORGELTÓNLEIKAR verða haldnir
í Hallgrímskirkju í Reykjavík sunnu-
daginn 8. október kl. 17. Tilefnið er
að Félag íslenskra organleikara er
að stofna Minningarsjóð Páls ísólfs-
sonar og era þetta stofntónleikar
sjóðsins. Markmið sjóðsins verður að
styrkja efnilega orgelnemendur til
náms. Á' tónleikunum koma fram
organistamir Bjöm Steinar Sól-
bergsson, Hörður Áskelsson og Mar-
teinn H. Friðriksson og gefa þeir
allir vinnu sína.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir Pál ísólfsson og Johann Sebast-
ian Bach, en Páll var mikill aðdáandi
Bachs og lék tónlist hans mikið. Eft-
ir Pál leikur Björn Steinar Ostinato
og fúgettu og tvær umritanir fyrir
orgel, Máríuvers og Burlescu. Hörður
leikur Passacaglíu í c-moll BWV 582
og Marteinn leikur Caconne eftir Pál.
Þegar 100 ár voru liðin frá fæð-
ingu Páls Isólfssonar ákvað Félag
íslenskra organleikara að standa fyr-
ir stofnun Minningarsjóðs Páls ísólfs-
sonar sem nýttur skyldi til_ að styrkja
orgelnemendur til náms. Á stofntón-
leikunum geta tónleikagestir gerst
félagar í styrktarfélagi minningar-
sjóðsins auk þess sem allar tekjur
af tónleikunum renna beint til sjóðs-
ins.
Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Norskir listamenn flytja
gerning í Nýlistasafninu
í dag
Gerningur
í Nýlista-
safninu
JÖRGEN Knudsen og Kurt Jo-
hannessen munu flytja gerning
í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b
í Reykjavík, föstudaginn 6.
október kl. 20.30.
Jörgen og Kurt, sem era
búsettir í Bergen, era hér í boði
Fjöltæknideildar Myndlista- og
handíðaskóla Islands. Þeir hafa
unnið saman að gerningum frá
1988 og framið gerninga víða
fyrir utan sitt heimaland.
Jörgen er tónsmiður og vinn-
ur við að semja tónlist fyrir
kvikmyndir, leikrit og dansa.
Kurt er myndlistarmaður og
vinnur hann í ýmis efni.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Norsk brúðu-
mynd í Nor-
ræna húsinu
NORSKA brúðumyndin „Den
hvite selen“, gerð eftir upp-
færslu „Oslo Nye Dukketeater"
eftir sögu Kjersti Germeten, er
næsta kvikmynd sem Nörræna
húsið býður upp á, fyrir bþrn
og unglinga, á morgun sunnu-
dag kl. 14.
Sagan segir fra selnum Kotic
sem er fæddur og uppalinn í
Barentshafi. Þar lifir hann í
sátt og samlyndi við önnur dýr.
En skyndilega raskast allur frið-
urinn á ströndinni því hópur
veiðimanna birtist og þeir era á
höttunum eftir selskinni.
Síðasta sýn-
ingarhelgi
Kristínar
NÚ STENDUR yfir málverka-
sýning Kristínar Geirsdóttur í
Listasafni Kópavogs, Gerðar-
safni. Á sýn-
ingunni, sem
ber heitið
„Blábakki",
sýnir Kristín
13 óhlutbund-
in olíumál-
verk. Hún
sækir áhrifin
í náttúrana, til skammvinnra
fyrirbæra tilverunnar eins og
ljósaskipta, segir í kynningu.
Kristín stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1986-1989 og Myndlista-
skólanum í Reykjavík. Sýn-
ingin er opin frá kl. 12-18 og
lýkur á sunnudag.
Frankog
Margrétí
Galleríi Birgir
FRANK Reitenspiefi og Mar-
grét Magnúsdóttir opna sýn-
ingu í Galleríi Birgir Andrés-
son, Vesturgötu 20, á morgun,
laugardag, kl. 16 og stendur
hún í eina viku, til 15. október.
Fyrir opnunina mun Frank
fremja gjörning sem hann kall-
ar „að aka til baka“ og byijar
hann fyrir framan Stjörnubíó
kl. 15.45 og endar í Galleríi
Birgir Andrésson.