Morgunblaðið - 06.10.1995, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
S'E5,MAAM..I WAS WONDERINé
IF I MI6HT HAVE A DESK
IN THE BACK ROU)..
no,ma'am..i umderstanp..
THAT'S LIPE...
LAST ROU), UPPER DÉCK
AT THE BALLPARK..
FIRST ROU) IN THE CLA5SROOM
~zr
L
Já, kennari... mér var að detta
það í hug hvort ég mætti fá borð
í öftustu röðinni...
Nei, kennari... ég skil.
er lífið ...
Aftasta röð, efsti pallur á vellin-
um ... fremsta borð í skólastof-
unm.
BREF
UL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Skortur á
upplýsingiun?
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
HEYRST hefur, að reykingar ung-
menna fari vaxandi. Hvað veldur
þessu'eiginlega? Sumir segja, að
skortur á upplýsingum valdi þessu.
Fræðslurit um skaðsemi reykinga,
og tóbaksneyslu yfir -höfuð, Tak-
mark, hætti að koma út. Því var
um árabil dreift í alla grunnskóla
landsins, og mun hafa gert sitt
gagn. Leitt var að svona skyldi fara,
og víst er að sparnaður sá sem
þama var framkvæmdur hefur ver-
ið vanhugsaður.
Samt sem áður er um upplýs-
ingastreymi að ræða. Svonefndir
reyklausir dagar hafa verið árlegir
síðustu árin, og í sambandi við þá
hefur verið miðlað upplýsingum um
skaðsemi þessa hættulega ávana,
sem árlega veldur, að talið er,
hundruðum dauðsfalla, fyrir utan
vanheilsu, sem af honum leiðir.
Á hveijum vindlingapakka er
áminning um hættu þá sem af tób-
aksreykingum leiðir. Þetta virðist
reykingafólk ekki sjá. Aðeins orð á
blaði, en við vitum nú, að vægi hins
talaða og ritaða orðs fer hraðm-
innkandi. Aðeins aðgerðir em það
sem dugir, samanber verkföll. „Orð,
orð innantóm", eins og skáldið sagði
forðum (H. Hafstein). Sagt var að
einhver sem ekki virti hið talaða
orð, vaknaði fyrst til skilnings þeg-
ar skylli í tönnum. Hart, ef fólk
þarf fyrst að veikjast af lungna-
krabbameini og hjartasjúkdómum
til að skilja skaðsemi reykinga.
Víst er að skortur á upplýsingum
er ekki orsök þess að reykingar
unglinga fara jafnvel vaxandi seinni
árin. En ég hvet Krabbameinsfélög-
in til að herða áróðurinn gegn reyk-
ingum og tóbaksneyslu almennt.
Árið 1988 hét Krabbameinsfé-
lagið verðlaunum fýrir bestu vísur
eða erindi, sem ort væru gegn reyk-
ingum. Ég var einn af þeim sem
sendu ljóð, og fékk smáverðlaun.
Tekin var mynd af verðlaunahöfum
í brekkunni við hús Krabbameinsfé-
lagsins í Skógarhlíð. Aldrei birtist
sú mynd í blaði, eins og ætlunin
var. Áróðursgildi þessarar verð-
launasamkeppni var að mínum dómi
illa nýtt.
Að lokum set ég hér mitt stutta
erindi, sem hlaut nokkurra króna
verðlaun:
Ef þú tóbak
alveg látið ósnert getur,
lifirðu bæði
lenpr - og betur!
AUÐUNN BRAGISVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, Reykjavík.
Glansmyndin
Frá Sigurði Magnússyni:
ÞEGAR ég sá myndina af Alfreð
Þorsteinsyni í Morgunblaðinu 28.
sept. síðastliðin minntist ég þess að
í ársskýrslu Rafmagnsveitu Reykja-
víkur fyrir síðasta ár, er skær glans-
mynd af stjóm veitustofnana, þar
sem Alfreð Þorsteinsson er formað-
ur og trónir við enda borðsins. Mér
datt í hug þegar ég sá myndina
hvort allt ætti að vera með sama
glans og á honum er, þar sem hann
situr? En það er ekki mikill glans
yfír hækkun gjaldskrá SVR, en þó
reynir hann í grein sinni að halda
glansi Reykjavíkurlistans, með ós-
annindum, því það eru mikil
ósannindi hjá Alfreð að gjaldskrá
annarra sveitarfélaga sé hærri.
„Gjaldskrá SVR er hæst allra“ sé
miðað við fólksfjölda og stuttar
vegalengdir hér í borginni. Borgin
á að bjóða öryrkjum, skólabörnum,
verkafólki og atvinnulausum frítt
með strætó.
Hæstu fargjöldin eru hjá SVR!
Svo kemur pistill frá formanni
hverfisfélags Regnbogans, Samtaka
Reykjavíkurlistans í Vesturbæ, Ingi-
björgu Stefánsdóttur. Þar segir hún
SVR bjóða lægstu fargjöld á Norð-
urlöndum, sem ekki er rétt ef miðað
er við hlutfall af tímakaupi sóknar-
konu og starfssystur hennar í Ósló.
Ég vil spyrja þig, Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, lætur það ekki nokkuð
nærri lagi að sóknarkonan sé helm-
ingi lengur að vinna sér inn and-
virði strætómiðans hér í Reykjavík
en kynsystir hennar í Ósló? Ef það
er rétt þá er strætómiðinn, hér á
landi, langdýrastur í Reykjavík.
Svo kemur vital við forstjóra SVR
í Morgunblaðinu 30.sept. síðastlið-
inn til að kynna hugmyndir stjómar
SVR um bætta þjónustu.
Hvað kemur til að svona margir
„talsmenn og vinir fargjaldahækk-
ana“ SVR skuli þurfa að koma af-
sökunum á framfæri fyrir gerðum
Reykjavíkurlistans í fargjaldahækk-
unum? Er samviskan slæm?
Rafmagnsveita Reykjavíkur
Ég vil segja þér, Alfreð, að það
þarf ekki að hækka fargjöld SVR,
aðeins ef þú stuðlar að sparsemi hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur þar
sem þú ert stjómarformaður. Þar
getur þú stuðlað að sparsemi uppá
30- 40. milljónir króna á ári hvetju.
Ég vil minna þig á grein sem ég
skrifaði í Morgunblaðið í desember
1994 um þessi mál. Og til að minna
þig enn frekar á kom ég tvisvar á
skrifstofu þína í fyrrahaust og benti
þér á hvemig hægt væri að spara.
Að lokum minni ég þig á að „at-
vinnulausir, skólabörn, öryrkjar og
verkafólk" þurfa að ferðast milli
staða. Ég skora á þig Alfreð að
stoppa óþarfar álögur og að þú
stuðlir að ráðdeild og sparsemi hjá
þjónustufyrirtækjum borgarinnar.
Hvað kostaði glansmyndin?
SIGURÐUR MAGNÚSSON,
Skólavörðustíg 16a, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.