Morgunblaðið - 10.10.1995, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Dagur frímerkisins
Frímerkj asafn
unglings keppir
í Bandaríkjunum
DAGUR frímerkisins var haldinn
hátíðlegur um allan heim í gær,
mánudag, og hér hélt Félag frí-
merkjasafnara m.a. frímerkja-
sýningu í Síðumúla 17. Þar var
sýndur þverskurður af því sem
félagar eru að safna um þessar
mundir og á sýningunni var til
dæmis safn Gunnars Garðarsson-
ar, Ránfuglar í útrýmingar-
hættu, sem innan tíðar verður
sent til Bandaríkjanna á meist-
arakeppni ungra frímerkjasafn-
ara.
Þetta er í fyrsta sinn sem frí-
merkjasafn í eigu íslensks ungl-
ings nær þeim árangri að keppa
við bestu söfn i Bandaríkjunum
og að sögn Garðar Jóhanns Guð-
mundarsonar, formanns félags-
ins, er þetta einnig mikil viður-
kenning fyrir unglingastarf á
íslandi. „Frímerkjasöfn íslenskra
unglinga hafa unnið margvís-
legfra verðlauna, bæði hér og
erlendis, en þetta boð er þó ein-
stakt. Þess má geta að íslenskir
unglingar vörðu Norðurlanda-
meistaratitil sinn í frímerkja-
fræðum í Þrándheimi 7. október
síðastliðinn og hlutu 55 stig.
Norðmenn voru í 2. sæti með 53
stig, Finnar með 51 stig, og Svíar
og Danir með
Fyrsti hluti ritverksins „Land-
námsmenn, ásatrú, frímerki,
stimplar" kom út á degi frímerk-
isins, en Garðar Jóhann hefur
unnið að því undanfarin ár.
„Þessi bók tengir íslensk frí-
merki og dagstimpla frá upphafi
til miðs árs 1994 við ásatrú og
landnámsmenn, þar á meðal
Ævar hinn gamla,“ segir höfund-
urinn.
Silfurstimpill í Mosfellsbæ
Landssamband Islenskra frí-
merkjasafnara hefur haft þann
sið undanfarin ár að veita því
pósthúsi, sem best hefur stimplað
póstsendingar, svokallaðan silf-
urstimpil. Að þessu sinni fékk
Pósthúsið í Mosfellsbæ silfurst-
impilinn og veitti Þorgeir Ingva-
son, stöðvarsljóri honum viðtöku
á degi frímerkisins.
Vetrardagskrá félagsins hefur
nú veríð gefin út og verður opið
hús alla laugardaga kl. 14-17 á
Morgunblaðið/Kristinn
SAFN Gunnars Garðarssonar, Ránfuglar í útrýmingarhættu,
verður innan tíðar sent til Bandaríkjanna í meistarakeppni
ungra frímerkjasafnara.
skrifstofu félagsins í Síðumúla
17. „Þar gefst fólki kostur á að
koma saman, rabba um frímerki,
fletta verðlistum, tímaritum eða
frímerkjablöðum," segir Garðar
Jóhann. „Einnig er vert að geta
byrjendafunda, sem eru einkum
ætlaðir þeim sem eru að hefja
frímerkjasöfnun og vilja leið-
sögn. Næsti byijendafundur er
fimmtudaginn 12. október. Auk
þess eru ýmiskonar fundir reglu-
íega, til dæmis safnafundir, þar
sem safn einhvers félaga er sýnt
og efni þess og uppsetning út-
skýrð.“
Eldur í geymslu
Listasafns Islands
Morgunblaðið/Júlíus
SLÖKKVILIÐSMENN unnu fram eftir sunnudegi við að
reyklosa húsakynni Myndlista- og handíðaskóla íslands
og Listasafns Islands.
NOKKUÐ tjón varð á húsi því, sem
Sláturfélag Suðurlands byggði við
Laugarnesveg og er nú í eigu ríkis-
ins, í eldsvoða á sunnudagsmorg-
un. Eldur kom upp í rafmagns-
töflu og barst reykur víða um
húsið, m.a. í geymslu og efnislag-
er Listasafns íslands.
Að sögn Beru Nordal, forstöðu-
manns Listasafns íslands, hefur
listasafnið efnislager sinn í húsinu
og einnig nokkuð af höggmyndum.
Hún sagði að komið væri í Ijós að
tjón væri minna en óttast var í
fyrstu, og ekkert hefði skemmst
sem ekki væri hægt að bæta. Ljóst
væri þó að leggja þyrfti í kostnað
við viðgerðir og endurbætur. Með-
al þess sem geymt er á efnislag-
ernum er ýmis dýr búnaður sem
notaður er við flutning listaverka.
Reykkafarar frá Slökkviliði
Reykjavíkurréðu niðurlögum elds-
ins á skömmum tíma eftir að út-
kall barst frá öryggismiðstöð
Vara, sem annast öryggismál í
húsinu.
Að því loknu þurfti að tjalda til
öllum reykiosunarbúnaði slökkvi-
liðsins að reykræsta húsið þar sem
eitraður svartur reykur hafði náð
upp á hæðir þess úr kjallaranum
þar sem eldurinn kom upp við raf-
magnstöflu.
íslenskir unglingar í
N or ðurlandakeppni
frímerkjasafnara
Frímerkja-
elgurinn
aftur til
*
Islands
Hrísey - íslenska unglingalandslið-
ið sem keppti á Norðurlandamóti í
Þrándheimi í Noregi um það hvetjir
vissu mest um frímerki og frí-
merkjafræði, sigraði í dag, 7. októ-
ber, þriðja árið í röð og vann farand-
verðlaunin, sem er silfurelgur, og
kemur því með hann aftur til ís-
lands.
Liðsstjóri hópsins er Kjartan Þór
Þórðarson, úr Klúbbi Skandinavíu-
safnara, en aðrir í liðinu eru_ þeir
Steinar Friðfinnsson, Guðni Áma-
son og Björgvin Ingi Ólafsson.
I mjög svo tvísýnni keppni urðu
úrslit þau að ísland hlaut 55 stig,
Noregur hlaut 53 stig, Finnland
hlaut 51 stig, en Svíþjóð og Dan-
mörk hlutu hinsvegar 47 stig, hvort
land.
Keppni þessi fór fram á Frí-
merkjasýningunni „NORDJUNEX-
95“, en umboðsmaður íslands á
þeirri sýningu er Kjartan Þór Þórð-
arson, sem einnig var liðstjóri ís-
lenska liðsins, sem varð svo sigur-
sæll.
Söfn íslenskra unglinga
Þá voru einnig á sýningunni söfn
íslenskra unglinga, sem þlutu þar
verðlaun. Safn Guðna Árnasonar
hlawt hæstu verðlaun í sínum aldurs-
flokki, eða B flokki. Það hlaut 81
stig, gyllt silfur og heiðursverðlaun.
Safn Björgvins Inga Óláfssonar
hlaut 76 stig og stórt silfur ásamt
heiðursverðlaunum í þessum sama
flokki. Ennfremur hlaut safn Stein-
ars Friðfinnssonar 71 stig, og silfur-
verðlaun.
í C-flokki hlaut svo safn Péturs
H. Ólafssonar 67 stig og silfrað
brons.
Eins og áður getur eru þeir Pét-
ur, Steinar og Björgvin Ingi allir í
íslenska liðinu, sem verið hefir svo
sigursælt undanfarin þrjú ár.
íslenski dómarinn á sýningunni
„NORDJUNEX-95" var svo Sigurð-
ur R. Pétursson forstjóri.
Frímerkjasýningin „NORD-
JUNEX-95" fór fram í Þrándheimi
í Noregi, en á síðasta ári var hún
haldin á Kjarvalsstöðum í Reykjavík,
þar sem mesta almenna norræna
frímerkjasýningin, „NORDIA-96",
verður einnig haldin næsta sumar.
I
i
í
I
I
Tillaga um tilvísanakerfi ekki meðal tillagna tilvísunarnefndar en heimilislæknar vilja tilvísanakerfi
Fagráð hafi yfirlit
yfir kostnað lækna
TILVÍSANAKERFI er ekki meðal
tillagna frá nefnd um tilvísanakerf-
ið sem skilaði af sér síðastliðinn
föstudag. Guðmundur G. Þórarins-
son, formaður nefndarinnar, segir
að sá spamaður sem fyrirhugaður
var með upptöku tilvísanakerfis
náist með þeim bráðabirgðasamn-
ingi sem gerður hefur verið við
lækna með þeim breytingum sem
nefndin leggur til að verði gerðar.
Bráðabirgðasamningur sem
gerður var við lækna, þar sem sett
er þak á greiðslur til sérfræðinga,
rennur út um áramótin. Guðmundur
segir að hann hafi að margra mati
fordæmisgildi og sé fyrirmynd að
því sem á eftir komi. Vinna sé að
hefjast við gerð nýs samnings og
Guðmundur segir að nú sé unnið
að því að tillögur nefndarinnar komi
inn í þann samning.
Læknabréf dragi úr
ofrannsóknum
Guðmundur segir að ekki hafi
verið einhugur í nefndinni um hvort
komi beri á tilvísanakerfi eða ekki.
Fulltrúi heimilislækna í nefndinni
skilaði séráliti, einn nefndarmanna,
og lagði til að því yrði komið á.
Nefndin einbeitti sér hins vegar 'að
því að ná samkomulagi um ýmsar
aðrar úrbætur á því kerfi sem nú
er við lýði. Guðmundur segir að-
margar af tillögunum vinni mjög
að því að efla faglega stjórn og
boðskipti lækna.
Nefndin leggur til að í næsta
samningi verði nánari ákvæði um
læknabréf. Með þeim telur hún
unnt að draga úr Iíkum á oflækn-
ingum og ofrannsóknum. Tillagan
gerir ráð fyrir að í samningnum
verði skýrara ákvæði um hvenær
eigi að senda læknabréf og jafn-
framt hvernig brugðist skuli við því
ef þau eru ekki send. Lagt er til
að dregið verði úr greiðslum til sér-
fræðinga sendi þeir ekki bréfin og
alvarlegri frávik varði uppsögn
samnings.
Nefndin leggur til að inn í samn-
inginn komi ákvæði um staðgengil
sérfræðings og ákvæði um að sér-
fræðingar taki að sér að veita þjón-
ustu úti á landi óski heilbrigðisráðu-
neytið eftir því. Þá er lagt til að
vinnuhópur verði þegar í stað skip-
aður sem kanni hvernig hægt sé
að koma á auknu samráði heilsu-
gæslulækna og sérfræðinga þannig
að heilsugæslulæknar úti á landi
geti með símasambandi og netteng-
ingum fengið aðstoð sérfræðinga á
höfuðborgarsvæðinu við greiningu,
túlkun og meðferð. Með því telur
nefndin að unnt verði að draga úr
kostnáði vegna ferða og uppihalds.
Árangur einstakra lækna
Nefndin leggur til að sett verði
á fót svonefnt fagráð sem hafi yfir-
lit yfir kostnað og starfsemi ein-
stakra lækna, læknastofa og heilsu-
gæslustöðva og tryggingarkostnað
sjúklinga. Tillagan felur í sér að
læknar fái upplýsingar um það einu
sinni til tvisvar á ári hve miklu
þeir ávísi af lyfjum og rannsóknum
í samanburði við meðaltal slíkra I
ávísana. |
„Ávísi einstakir læknar mun
meira af lyfjum og rannsóknum en
aðrir getur samráðsnefnd Trygg-
ingastofnunar og lækha óskað eftir
skýringum á því og gripið til að-
gerða ef þær eru ekki táldar full-
nægjandi,“ sagði Guðmundur.
Nefndin leggur til að vinnuhópur
undirbúi stofnun gæðaráðs. Því er |
ætlað að stuðla að gerð árangurs- |
kvarða sem notaður verður til að Jj
meta árangur íslenska heilbrigðis- |
kerfisins í samanburði við ná-
grannalöndin. Einnig verði hann
notaður til að meta árangur ein-
stakra lækna og hvort einhveijir
þeirra skeri sig úr. Guðmundur seg-
ir að með þessu gæti orðið unnt
að beina viðskiptum til þeirra lækna
sem bestum árangri ná.
„Þetta er framtíðarmál sem er
ábyggilega mjög mikilvægt fyrir |
læknastéttina og íslendinga alla,“ |
sagði Guðmundur.