Morgunblaðið - 10.10.1995, Síða 16

Morgunblaðið - 10.10.1995, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Verðhækkun á bílum vegur þyngst í aukinni verðbólgu Um 5% verðbólga sl. þrjá mánuði VÍSITALA neysluverðs miðað við verðlag í októberbyijun reyndist vera 174,9 stig og hafði hækkað um 0,5% frá því í september. Jafngildir það um 5,7% verðbólgu á heilu ári. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi- talan hækkað um 2,4% og undan- fama þrjá mánuði nemur hækkunin 1,2% sem jafngildir 5% verðbólgu á ári. Þetta er meiri verðbólga en Seðlabankinn hafði spáð og hafa verðlagshækkanir á þriggja mánaða tímabili ekki mælst jafnmiklar frá því í október 1993. Tómatar hækkuðu um 32,8% Nýjar bifreiðar hækkuðu um 3,8% í október sem hafði í för með sér 0,29% vísitöluhækkun og hækkun á bensíni um 2,1% olli 0,08% hækkun vísitölunnar. Strætisvagnafargjöld hækkuðu um 21,3% sem hækkaði vísitölu neysluverðs um 0,05%. Þá hækkuðu grænmeti og ávextir um 4,2% sem olli um 0,10% vísitölu- hækkun. Af einstökum verðbreyt- ingum á grænmeti og ávöxtum má nefna að agúrkur hækkuðu um 22,5% sem olii 0,05% hækkun vísi- tölunnar. Tómatar hækkuðu um 32,8% sem hækkaði vísitöluna um 0,03%. Appelsínur og mandarínur hækkuðu um 37,8% sem olli 0,05% vísitöluhækkun og gulrætur iækk- uðu um 32,5% sem hafði í för með sér 0,04% vísitölulækkun. Hækkun á kjöti og kjötvörum um 1,4% olli 0,05% vísitöluhækkun. Kartöflur lækkuðu um 20,7% sem olli 0,10% lækkun vísitölu neysluverðs. Vísitala neysluverðs í október gildir til verðtryggingar í nóvember. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbinding- ar, sem breytast eftir lánskjaravísi- tölu, er 3.454 stig fyrir nóvember. Verðbólgan í ríkjum Evrópusam- bandsins var 3,1% að meðaltali frá ágjist 1994 til sama mánaðar í ár, lægst í Finnlandi 0,5%, 1,3% í Belg- íu og 1,5% í Hollandi. Verðbólgan á Islandi á sama tímabili var 1,8%. Umboðsmaður skuld- * ara í Islandsbanka ODDUR Ólason, lögfræðingur, hef- ur verið skipaður umboðsmaður skuldara í íslandsbanka. Með þess- ari nýju stöðu verður reynt að tryggja það að mál þeirra sem tekið hafa lán hjá bankanum hljóti sann- gjarna umfjöllun. Einstaklingar sem lent hafa í verulegum greiðsluerfið- leikum og telja sig ekki hafa fengið eðlilega úrlausn sinna mála varðandi skuldir sínar 1 íslandsbanka geta skotið máli sínu til umboðsmannsins. Fram kemur í frétt frá bankanum að Oddur hefur mikla reynslu í úr- lausn erfiðra skuldamála, fyrst í lög- fræðideild Útvegsbankans og síðan íslandsbanka og nú síðustu árin í lánaeftirliti bankans. Honum er ætlað að ieiðbeina þeim einstaklingum sem til hans leita eða beita sér sjálfur fyrir lausn mála. Þá geta ábyrgðarmenn skulda sem farið hafa i vanskil leitað eftir ráðgjöf. Umboðsmaður stendur utan við al- menna umflöllun um iánamál og tek- ur hvert mál til sjálfstæðrar skoðunar. Verðbólga í nokkrum ríkjum Hækkun neysluverðsvísitölu frá ágúst 1994 til ágúst 1995 Bandaríkin Kanada Noregur Sviss ísland Japan | 3 -€,3% land ítalia* Spánn 'ortúgal Bretland Sviþjóð íríand Austurriki kkland •mborg kaland inmörk Holland Belgia nland Meðaltaí ESB* 3 8,7% ] 5,6% *Bráðabirgðatölur Helmild: Eurostat _JI_ nr- 15% 10% 5% Breytingar á vísitölu neysluverðs frá 1993 Umreiknaðar til árshækkunar m.v. hækkun vísitölunnar: Síðustu 3 mánuði og síðustu 12 mánuði 0% -5% JFMAMJJÁSOND 1 993 J FMAMJ JÁSOND 1994 I—h—t—t—-t—t—I I I--I S JFMAMJJÁSO S 1995 1 Ávöxtunarkrafa hús- bréfa lækkar enn Á V ÖXTUNARKRAFA húsbréfa lækkaði enn frekar hjá Skandia og Kaupþingi á föstudag og er hún nú komin niður í 5,90%. Fyrir rúmri viku nam ávöxtunarkrafan hjá þessum verðbréfafyrirtækjum 6,0% og hefur hún því lækkað um 10 punkta á einni viku. Þá hafa Landsbréf einnig lækkað ávöxtun- arkröfu sína frekar og er hún nú 5,96%. Þessi vaxtalækkun getur skipt seljendur húsbréfa talsverðu máli. Þannig fær aðili sem selur 3 milljónir í húsbréfum 25.575 krón- um meira fyrir bréfin í dag miðað við 5,9% ávöxtunarkröfu heldur en hann hefði fengið fyrir bréfin ef ávöxtunarkrafan væri 6,0% líkt og hún var fyrir rúmri viku síðan. Þessar tölur eru fengnar frá Skan- dia að teknu tilliti til þóknunar. Vextir hækkaðir til að verja fra.nka.nn London. Reuter. FRAKKAR gripu til neyðarráðstaf- ana til varnar frankanum í gær og lækkuðu skammtíma lánsvexti um 1,1% í til þess að stöðva lækkun hans. Erfiðleikar frankans höfðu áhrif á erlendum verðbréfamörkuðum, einkum í New York, þar sem Dow Jones vísitalan lækkaði um 50 stig. Hækkun Frakklandsbanka á 24 tíma vöxtum í 7,25% hafði þau áhrif að frankinn seldist á um 3,51 þýzkt mark við lokun í stað 3,53 um morguninn. Verð á hlutabréfum lækkaði hins vegar um 1,32% í París og ástandið var lítið skárra í Frankfurt, London og New York, þar sem mikil sala var á tækniverð- bréfum. Verkfall fimm milljóna Verkfall fimm milljóna opinberra starfsmanna hefst í Frakklandi í dag og kunnugir óttast að hremm- ingar frankans muni aukast. Jean Arthuis fjármálaráðherra spáði því þó að vaxtalækkunin yrði skammvinn og lýsti því yfir að gjaldeyriserfiðleikar mundu ekki gera stjórnina sveigjanlegri í við- ræðum við ríkisstarfsmenn. Sólar- hringsverkfall þeirra er hið víðtæk- asta í Frakklandi í 10 ár. í Washington fékk frankinn ein- dregnar stuðningsyfirlýsingar frá leiðtogum, sem sitja árlegan fund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Al- þjóðabankans. Þýzki seðlabankinn gaf út stuðn- ingsyfirlýsingu, sem er sjaldgæft, og forsætisráðherra ítala, Lam- berto Dini, og fjármálaráðherra Þjóðveija, Theo Waigel, sögðu að staða frankans væri traust í grund- vallaratriðum. Kaupmannasamtökin Auglýst eftir framkvæmdastj óra KAUPMANNASAMTOKIN munu auglýsa eftir nýjum fram- kvæmdastjóra strax í þessari viku, en fulltrúaráð samtakanna samþykkti fyrir sitt leyti uppsögn fyrrum framkvæmdastjóra þeirra, Magnúsar E. Finnssonar, á fundi sínum síðastliðinn laugar- dag. Benedikt Kristjánsson, vara- formaður Kaupmannasamtak- anna, segir að nauðsynlegt hefði verið að bíða með auglýsinguna uns fulltrúaráðið hefði afgreitt málið en nú yrði reynt að hraða ráðningu nýs framkvæmdastjóra eins og unnt væri. Hann segir niðurstöðu fulltrúaráðsins hafa verið mjög afdráttarlausa. Stjórn- in hafi flutt skýrslu sína um þetta mál og að því Ioknu hafi verið gengið til atkvæðagreiðslu sem lyktað hafi með því að 28 hafi greitt atkvæði með uppsögninni, 2 hafi setið hjá en 2 hafi greitt atkvæði á móti. Yfirmenn Daiwa Bank segja af sér Tvö dótturfyrirtæki hafa tapað á ólöglegum viðskiptum Tókýó. Reuter. BANKASTJORI og tveir aðrir yfirmenn Daiwabanka í Japan sögðu af sér í gær vegna taps útibús bankans í New York á ólöglegum verðbréfaviðskiptum, sem var haldið leynd- um. Um leið hefur komið í ljós að annað dóttur- fyrirtæki bankans { Bandaríkjunum, verð- bréfasjóður sem hann hefur starfrækt lengi í New York, hefur leynt tapi á viðskiptum með bandarísk skuldabréf. Fulltrúar Daiwa sögðu á blaðamannafundi að nokkrir bankastarfsmenn hefðu verið viðr- iðnir fyrra braskið í útibúinu í New York, sem var fyrst skrifað á reikning eins verðbréfasala. Að sögn starfsmanns japanska fjármála- ráðuneytisins var nýuppgötvuðu tapi verð- bréfasjóðsins haldið leyndu fyrir bandarískum jafnt sem japönskum yfirvöldum og sérfræð- ingar segja að bandarísk bankayfirvöld muni KOICHI Kunisada (t.v.) og Yasuhisa Katsuta, yfirmenn Daiwa Bank, niðurlútir á blaðamannafundi þar sem tilkynnt var um afsagnir yfir- manna bankans. líta það mjög alvarlegum augum. Ekki sé víst að þau telji nógu langt gengið með af- sögn Akira Fujita bankastjóra og tveggja annarra yfirmanna. „Daiwa neyðist ef til vill til að hætta starf- semi sinni í Bandaríkjunum,“ sagði Yushiro Ikuyo, varaforstjóri Smith Barney Internat- ional Inc. „Matrtröð Daiwa er hvergi nærri lokið. Málið verður líklega upphafið að endur- skipulagningu á bankakerfinu í Japan.“ Leyfissvipting hugsanleg Verðbréfasjóður bankans í New York, Daiwa Bank Trust Co. tapaði 31 milljón doll- ara á viðskiptum með bandarísk ríkisskulda- bréf 1984 og tapinu var haldið leyndu í 10 ár. Síðan hefur sjóðurinn tapaði 96-97 millj- ónum dollara á öðrum verðbréfaviðskiptum, sem einnig hefur verið haldið leyndum. Sérfræðingur í erlendum verðbréfum kvað hugsanlegt að bandarísk yfirvöld sviptu Daiwa leyfi til að stunda bankastarfsemi í Bandaríkjunum. Japanska fjármálaráðuneytið er í erfiðri aðstöðu, þar sem það hefur viðurkennt að hafa vitað um tap Daiwabanka talsvert löngu áður en bandarískum yfirvöldum var tilkynnt um það að sögn sérfræðinga. I I í S > ) ) ) ) ► ) \ I ) ) I )

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.