Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 19
Heimildir í frönsku leyniþjónustunni segja herferð sprengjutilræða 1 vændum
Ótti við samstarf hryðju-
verkahópa múslima
París. Reuter, The Daily Telegraph.
FRÖNSK stjómvöld kanna nú hvort fullyrðingar
í yfirlýsingu sem um helgina var send út í nafni
alsírska hryðjuverkahópsins Hinn vopnaði hópur
islams, GIA, eigi við rök að styðjast. Hópurinn
segist bera ábyrgð á sjö sprengjutilræðum í
Frakklandi frá því í júlí. Sjö manns hafa látist
í tilræðunum og um 130 slasast.
Jacques Toubon, innanríkisráðherra Frakk-
lands, sagði um helgina að sprengjutilræðin
undanfarna mánuði gætu verið verk nokkurra
hópa múslima. Þeir ættu sér það sameiginlega
markmið að reyna að þvinga frönsk stjórnvöld
til að draga úr baráttunni gegn leynilegum hreyf-
ingum múslima. Heimildarmenn í frönsku örygg-
isþjónustunni óttast að framundan sé löng her-
ferð sprengjutilræða þessara hópa og muni sum-
ir þátttakendur verða menn sem hlotið hafa þjálf-
un í skæruliðaárásum í Alsír, Afganistan og
Bosníu.
Frakkar hafa stutt við bakið á ríkisstjóm
Alsírs sem aflýsti kosningum 1992 er ljóst þótti
að bókstafstrúarmenn myndu sigra. Talið er að
allt að 40.000 manns hafi síðan fallið í átökum
í landinu og kenna bókstafstrúarmenn Frökkum
um að stjórnin heldur enn velli. Jacques Chirac
Frakklandsforseta sótti Túnismenn heim á föstu-
dag og hét því að herða enn baráttuna gegn
hryðjuverkamönnum úr röðum múslima.
Heilög barátta múslimskra
bókstaf strúarmanna
Yfirlýsing GIA var undirrituð af leiðtoga hóps-
ins, Abu Abdelrahman Amin. „Við höldum áfram
... heilagri baráttu okkar og hernaðaraðgerð-
um, að þessu sinni í hjarta Frakklands og stærstu
borgum landsins til að sýna fram á að ekkert
getur stöðvað okkur meðan við beijumst fýrir
Allah,“ segir í yfirlýsingu GIA. Hún er dagsett
23. september en var send fjölmiðlum með sím-
bréfí frá Kaíró á laugardag.
International Herald Tribune segir að í yfirlýs-
ingunni sé einnig skýrt frá því að 19. ágúst,
tveim dögum eftir eitt sprengjutilræðið í París,
hafi samtökin sent Chirac með leynd bréf og
hvatt hann til að gerast múslimi „en refurinn
slægi neitaði, hann hreykti sér frammi fýrir þjóð-
inni. Við erum staðráðnir í að valda ykkur óþæg-
indum, jafnvel meðan þið sofið, við munum binda
enda á þægindalíf ykkar og islam mun verða
ráðandi í Frakklandi".
Lítil sprengja sprakk við járnbrautarteina
skammt frá París í gær en olli litlum skemmdum
og enginn slasaðist. Embættismenn töldu að til-
ræðið hefði ekki verið liður í herferð GIA, m.a.
hefði sjálf sprengjan verið af allt annarri gerð
en fyrri sprengjur.
Bandaríkjaþing
Nunn
hyggst
hætta
Atlanta. Reuter.
SAM Nunn, er situr í öldungadeild
Bandaríkjaþings fyrir demókrata,
hyggst hætta þingmennsku á næsta
ári. Hann hefur um árabil verið
talinn einn helsti sérfræðingur
þingsins um varnarmál.
Nunn er 57 ára að aldri, hefur
verið þingmaður fyrir Georgíu í ald-
arfjórðung og var lengi formaður
hinnar valdamiklu varnarmála-
nefndar þingdeildarinnar. Hann
segist ætla að hætta á þingi af
persónulegum ástæðum.
Akvörðun Nunns er talin draga
enn úr líkunum á því að demókröt-
um takist að endurheimta meiri-
hlutann í öldungadeildinni á næst-
unni.
Reuter
7 9 manns
farast
í skjálfta
AÐ MINNSTA kosti 79 manns
biðu bana í landskjálfta sem reið
yfir fjallabæinn Sungai Penuh
og nágrannaþorp á Sumatra í
Indónesiu á laugardag.
737 manns urðu fyrir alvarleg-
um meiðslum í skjálftanum, sem
mældist sjö stig á Richters-
kvarða. Ibúarnir hafa þurft að
hafast við í tjöldum og yfirvöld
lofuðu að endurreisa hús sem
eyðilögðust.
Yfirvöld sendu 45 tonn af hrís-
grjónum og fatnað til fórnar-
lamba skjálftans og um 300 her-
menn voru á svæðinu til að leita
að líkum og hreinsa rústir húsa
sem hrundu.
A myndinni situr maður í illa
skemmdu húsi sinu í þorpinu
Semurup.
Þrýstingurinn á Claes eykst
Framkvæmdastjóri NATO hefur ekki
átt sjö dagana sæla í erfiðu starfi
Brussel. Reuter.
ÖLL spjót standa á Willy Claes,
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), um þessar
mundir og er búist við því að hann
neyðist brátt til að segja af sér
vegna Agusta-þyrluhneykslisins.
Sérstök belgísk þingnefnd íhugar
nú hvort svipta beri Claes þing-
helgi, sem hann nýtur frá ráðherra-
tíð sinni í Belgíu, til þess að hægt
verði að sækja hann til saka fyrir
spillingu, falsanir og svik. Claes
er belgískur stjórnmálamaður og
hann er sagður vera mislyndur
vinnufíkill, sem liggi ekki á skoðun-
um sínum.
Flæmska er móðurmál Claes, en
hann talar bæði frönsku og ensku
reiprennandi, sem hefur aflað hon-
um trausts jafnt meðal Vallóna og
Flæmingja í Belgíu. Framkoma
Claes, sem tryggði honum pólitísk-
an frama í tuttugu ár í refskák
belgískra stjórnmála, hefur hins
vegar ekki notið jafn mikillar hylli
innan Atlantshafsbandalagsins.
Ólíkt hinum dagfarsprúða forvera
sínum, Manfred Wörner, þykir Cla-
es jaðra við að líta niður á viðmæl-
endur sína þegar hann ræðir við
þá með gleraugu sín á nefbroddin-
um. Gagnrýnendur segja einnig að
hann sé þijóskur og taki ekki ráð-
gjöf.
Claes var utanríkisráðherra
Belgíu fyrir hönd sósíalista þegar
hann var gerður að framkvæmda-
stjóra NATO í september 1994 eft-
ir að Wörner lést af krabbameini.
Nokkrum mánuðum eftir að Claes
tók við blossaði Agusta-hneykslið
upp. Agusta er ítalskur þyrlufram-
leiðandi, sem sakaður er um að
hafa mútað flokki Claes, flæmskum
sósíalistum, þegar hann gegndi
embætti efnahagsráðherra. Mút-
urnar greiddu fyrir því að belgíski
herinn keypti þyrlur af Agusta árið
1988. Claes er ekki vændur um að
hafa þegið mútuféð, en hann kom
sér í vandræði með því að neita
allri vitneskju um málið í fyrstu
og segjast síðar aðeins muna óljóst
eftir því.
Umdeild ummæli
í febrúar setti Claes arabaheim-
inn á annan endann þegar hann
hélt því fram að svipuð hætta staf-
aði af íslömskum bókstafstrúar-
mönnum og áður stafaði 'af komm-
únismanum.
Claes heldur því staðfastlega
fram að hann hafi ekki komið ná-
lægt Agusta-málinu og aðstoðar-
menn hans segja að hann hafi ver-
ið steini lostinn þegar það komst í
hámæli. Margir fóru hins vegar að
hallast að því .að Claes myndi ekki
endast í embætti þegar Frank
Vandenbroucke, sem tók við utan-
ríkisráðherrastólnum af honum og
var leiðtogi flæmskra sósíalista,
neyddist til að segja af sér í mars.
NATO í mótun
Claes hefði ekki átt náðuga daga
í NATO þótt hann hefði verið laus
við Agusta-málið. í hans tíð hefur
NATO staðið fyrir mestu hernaða-
raðgerð í sögu bandalagsins. Ihn-
ræðan um stækkun NATO í austur-
átt hefur verið vandasöm, einkum
vegna þess tillits, sem þurft hefur
að taka til Rússa. Nú stendur fyrir
dyrum að senda 50 þúsund manna
friðargæslulið til Bosníu og banda-
lagið þarf síst á leiðtogakreppu að
halda í þeirri stöðu.
Belgískir fjölmiðlar fjölluðu mik-
ið um málið um helgina, en í gær
virtist vera að draga úr stríðsfyrir-
sögnunum. Dagblaðið, Het Belang
van Limburg, sem gefið er út í
hinu gamla kjördæmi Claes, birti í
gær skopmynd þar sem hann er í
sigti skotvopns og undir stóð:
„Arásum á skotmörk NATO haldið
áfram".
Tekur Elleman-Jensen við?
Umræður hafa þegar hafist um
það hver eigi að taka við af Claes.
Uffe Elleman-Jensen var nefndur
fyrstur til sögunnar og í gær var
því haldið fram í dagblaðinu Politi-
ken að dönsk stjórnvöld væru reiðu-
búin til að leggja fram nafn utan-
ríkisráðherrans fyrrverandi neydd-
ist Claes til að fara frá.
Einnig hefur verið leitt getum
að því að Ruud Lubbers, fyrrum
forsætisráðherra Hollands, og
Anibal Cavaco Silva, fráfarandi
forsætisráðherra Portúgals, taki
við af Claes.
Valdataka
Kims
tilkynnt
RÚSSNESKA fréttastofan ít-
ar-Tass sagði í gær að valda-
taka Kims Jong-ils í Norður-
Kóreu yrði tilkynnt formlega
í dag þegar haldið verður upp
á 50 ára afmæli kommúnista-
flokksins. Fréttastofan hafði
þetta eftir heimildarmönnum í
sendiráði Norður-Kóreu í Pek-
ing. Hún sagði að Jiang Zem-
in, leiðtoga kínverska komm-
únistaflokksins, hefði verið
skýrt frá ákvörðuninni. Kim
er elsti sonur Kims Il-sungs,
sem lést í júlí í fyrra eftir að
hafa stjórnað landinu með
harðri hendi í tæp 50 ár.
Andreotti-
málið tefst
DÓMARINN í réttarhöldunum
yfir Giulio Andreotti, fyrrver-
andi forsætisráðherra Ítalíu,
var frestað í gær í átta daga,
til 17. október. Dómarinn not-
ar þennan tíma til að ákveða
hvort verða eigi við beiðni sak-
sóknara um að þeir megi
leggja fram skjöl um vitnis-
burð fimm ítala, sem eru nú
látnir, og yfirheyrslur yfir
mafíuforingjanum Gaetano
Badalamenti í Bandaríkjunum.
Veijendur Andreottis, sem er
sakaður um samstarf við sikil-
eysku mafíuna, leggjast gegn
því að skjölin verði lögð fram
sem sönnunargögn í málinu.
„Fimmti mað-
urinn“ látinn
JOHN Cairncross, sem hefur
verið nefndur „fimmti maður-
inn“ í frægum njósnahring í
Bretlandi, er látinn, 82 ára að
aldri. Þrír njósnaranna - Guy
Burgess, Harold „Kim“ Philby,
og Donald Maclean - létust í
Moskvu eftir að njósnir þeirra
voru afhjúpaðar á sjöunda ára-
tugnum. Fjórði njósnarinn, Sir
Anthony Blunt, dó árið 1983.
Sósíalistar
öflugri með
Gonzalez
MEIRIHLUTI Spánveija, eða
57%, telja að ef Felipe Gonz-
alez forsætisráðherra byði sig
ekki fram í kosningunum á
næsta ári myndi það draga úr
sigurlíkum sósíalista. 14%
voru þeirrar skoðunar að sig-
urlíkur stjórnarflokksins
myndu aukast, samkvæmt
könnun dagblaðsins EI País.
49% aðspurðra töldu best fyrir
Gonzalez að hann drægi sig í
hlé, en 33% voru á öndverðri
skoðun.
Mannskæður
jarðskjálfti
í Mexíkó
AÐ minnsta kosti fjórtán
manns fórust í hörðum jarð-
skjálfta í Jalisco-héraði í vest-
urhluta Mexíkó í gær. Fullyrt
var á einni útvarpsstöð að 44
hefðu farist en sú tala hefur
ekki fengist staðfest, þrátt
fyrir að óttast sé að hún muni
jafnvel hækka. Tugir manna
slösuðust og miklar skemmdir
urðu í jarðskjálftanum sem
mældist 7,6 stig á Richter.