Morgunblaðið - 10.10.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 21
Morgunblaðið/Kristinn
SIGURVEGARINN, finnski pianóleikarinn Henri Sigfridsson, tek-
ur við verðlaunum úr hendi Guðmundar Emilssonar, formanns
dómnefndarinnar, í lok tónleikanna, að^ viðstaddri frú Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta fslands.
Úrslitá
Nord-Sol
TÓNLIST
Iláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Milhaud, Pro-
kofiev og Sibelius Einleikarar: Mark-
us Leoson og Henri Sigfridsson.
Hljómsveitarstjóri: Osmo Vwanska.
Laugardagurinn 7. október, 1995.
ÞÁ ER lokið keppni ungra tón-
listarmanna og er sigurvegarinn
finnski píanóleikarinn Henri Sig-
fridsson, fyrir leik sinn í þriðja
píanókonsertinum eftir Prokofiev.
Sigfridsson hefur eflt með sér af-
burða góða tækni og þó hann hafi
ekki enn þann ásláttarstyrk til ná
vel í gegnum hljómsveitina, var leik-
ur hans glæsilegur og öruggur.
Verkið er mjög erfítt en nokkuð
einlitt í gerð og eins og reyndar
Prokofiev vildi sjálfur, þá er lítið
rými fýrir tilfinningasemi í verkinu,
nokkuð sem tónlistarmenn almennt
höfnuðu á fyrstu áratugum aldar-
innar, sem var eins konar andsvar
við yfirhlaðinni tilfinningasemi
rómantísku stefnunnar.
Önnur verðlaunin féllu í hlut
sænska slagverksmeistarans Mark-
úsar Leóssonar, en hann lék kon-
sert fyrir marimbu, vibrafón og
hljómsveit eftir Milhaud, léttvægt
en vel samið verk, sem Markús lék
af glæsibrag. í leik hans var ekki
aðeins að heyra góða tækni, því
hann gæddi tónmál þess sterkum
tilfinningum og mótaði tónhending-
ar verksins mjög fallega.
Hvað sem þessu líður eru úrslitin
sanngjörn að vissu marki. Danski
píanóleikarinn Christina Bjorkoe er
efnilegur listamaður og hefur ríka
tilfinningu fyrir stíl og hendinga-
mótun, sem kom sérlega vel fram
á fyrstu tónleikunum. Að velja sér
píanókonsert nr. 2 eftir Rakhman-
inov var misráðið af henni, því þrátt
fyrir fallegar og viðkvæmara tónlín-
ur, þarf ,járnkrumlupíanísta“ til að
MORKINNI 3 • SlMI 588 0640
leika þetta verk svo vel sé og til
að halda í við hljómsveitina.
Einn skemmtilegasti þátttakand-
inn, að margra mati, var norski
fiðluleikarinn Katrine ' Buvarp, en
leikur hennar var þrunginn tilfinn-
ingu, svo að eftirtektarvert er, þeg-
ar tekið er tillit til aldur hennar.
Flutningur hennar og samleikara,
Helge Kjekshus, í fyrstu fiðlusónöt-
unni eftir Prokofiev, var stórkostleg
upplifun, hvað snertir túlkun og
músíkalska mótun tónhendinga.
Þátttakandi okkar, Guðrún María
Finnbogadóttir, stóð sig þokkalega,
hún hefur enn hún ekki lokið námi,
en aðrir þátttakendur hafa lokið
ströngu framhaldsnámi og eru í
raun að stíga sín fyrstu skref sem
atvinnumenn. Fyrstu tónleikarnir
voru slakir, miðað við það sem hún
getur, en hún vann á og á undanúr-
slitatónleikunum náði hún sér vel á
strik, einkanlega í síðasta laginu,
úr óperunni Rómeó og Júlíu eftir
Gounod og staðfesti það, að hún
er efnileg söngkona.
Markus Leoson vakti sérlega
mikla athygli fyrir afburðagóðan
leik á fyrstu tónleikunum, því leikur
hans var bæði teknískur og geislaði
af músík. Henri Sigfridsson lék á
sömu tónleikum, Scherzo nr. 4 í
E-dúr, meistaralega vel og sé litið
til leiks hans á öllum tónleikunum,
var leikur hans jafnastur hvað
snertir tækni, en í túlkun var meira
að hafa frá Katrine Buvarp og
Markúsi Leóssyni.
Osmo Vanská stýrði hljómsveit-
inni af öryggi, studdi einleikarana
einkar vel og lauk tónleikunum með
En Saga eftir Sibelius. Vánská náði
að gæða verkið sterkum stemmn-
ingum, svo að flutningur hljóm-
sveitarinnar í heild var mjög góður.
Klarinett-sólóið, sem er eins konar
eftirmáli eða efnislegt niðurlag
verksins, var sérlega fallega leikið
af Einari Jóhannessyni.
Jón Ásgeirsson
Vlltþú
varoandi
krabbamei
Nýttu þér uuhi&a þjói\
K rabbam eiri sfélags in,
som
numer
800 4040
fp B p
S KRABBAMfettvJS
Sraðgjöfin
LISTIR
„Eyktarmörk,
björg & flæði“
legri list, „Art Informel", ásamt
því sem skilgreint hefur verið sem
gagnvirkt málverk (Action paint-
ing), og þó með ýmsum frávikum.
Éva er ekki hrædd við að takast
á við tilfinningar sínar, þótt tilfinn-
ingaflæði hafi verið hálfgert og
hjá sumum algert bannorð í list-
inni um skeið, og helst þær sem
eru barmafullar af ást og lífsfögn-
uði.
. Það eru skil sólarhringsins, sem
Eva gengur út frá í stærstu
verkunum á sýningunni eins og
nöfnin bera með sér; Hádegi, Dag-
málaglenna, Ótta, Miður morgunn,
Náttmál, Nón, Aftann. Allar eru
þær málaðar af miklu tilfinninga-
flæði, og sveifluformaðar litaslett-
urnar liggja laust á myndfletinum,
þannig að líkast er sem þær snerti
hann varla. Það er einkum í mynd-
inni „Nón“ að þær ná að tengjast
innri lífæðum málverksins. Rýnir-
inn er öllu frekar með á nótunum
hvað myndir eins og Björg nr. 124
og 125 snertir, og skyldum vinnu-
brögðum, þar sem formskipanin
er í meira jafnvægi.
Bragi Ásgeirsson
Eva Benjamínsdóttir. Opið frá 14-18
alla daga til 31. desember.
Aðgangur ókeypis.
LISTAKONAN Eva Benjamíns-
dóttir fer ekki troðnar slóðir í vali
sýningarstaða frekar en öðru á
mannlífsvettvangi. Þannig virðist
henni kærar að finna gjörningum
sínum stað þar sem
dijúgur manngangur er,
en að hasla sér völl í
virðulegum og viður
kenndum sýningarsöl-
um, þangað sem úrval
löggiltra
ratar reglulega. Slíkii
eiga það í hættu, að at-
hafnir þeirra
náð fyrir
rýna, sern
bundnir við að skrifa um
viðburði í starfandi list-
húsum, svo sem hvar
vetna tíðkast.
En líta verður til
að hér er um menntaða
og víðförla listakonu að
ræða, sem jafnan kann
að búa út sýningar sínar
í hendur skoðenda sem
umf'jallenda. Þannig
geta menn rólegir skilið
getspekina og skáldgáf-
una eftir heima sem allt-
of oft er nauðvörn er
annað þrýtur. Þá er sýn-
ingin í miðju listhússins
í Laugardal þar sem
birtan er mest og mynd-
verk nutu sín hvað best áður en
rýminu var breytt.
Morgunblaðið/Ásdís
EVA Benjamínsdóttir
Það sem menn hafa nefnt flæði
á myndfleti virðist helst vaka fyrir
Evu um þessar mundir og ekki
einungis á myndfletinum, heldur
einnig á sviði tilfinninga og tíma-
skila á sólarhringnum. Málverk
hennar eru þannig barmafull af
flæði, og helst í þá veru að útaf
flóir, því hér er hún á miklu sviði,
sem krefst þrásetu við myndlistar-
iðkanir og ekki verður höndlað á
afmörkuðu tímaskeiði, eða sem
hugljómun eða blossi er yfir þyrm-
ir. Um er að ræða anga af óform-
...Einn á dag
Línurnar í lag...
Megrunarplásturinn sem sló öll met hjá
Sjónvarpsmarkaðinum nú fáanlegur beint.
4 VIKNA PKN KR. 2.490
8 VIKNA PKN KR. 4.490
TÍTANhf
Lágmúla 7-108 Reykjavík
Sími 581 4077 - Fax 581 3977
Frí heimsending um allt land ef greitt er með VISA/EURO
Le Patch
Nýjar hljómplötur
Tónlist
Jóns Leifs
ÚT ER kominn geisladiskurinn Tár
úr steini með tónlist úr sam-
nefndri kvikmynd Hilmars Odds-
sonar. Kvikmyndin byggist á ævi
tónskáldsins Jóns Leifs og segir
frá árunum milli heimstyijalda og
fram í lok þeirrar seinni. Tónlistin
spannar hins vegar svo til allan
tónsmíðaferil Jóns og sýnir vel fjöl-
breytni tónlistar ha'ns.
Á geisladiskinum eru einnig
verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson
og Jón Ásgeirsson. Hjálmar H.
Ragnarsson hefur rannsakað tón-
list Jóns Leifs undanfarin ár og
var tónlistarstjóri kvikmyndarinn-
ar Tár úr steini. Sumar tónsmíða
hans á diskinum eru byggðar á
verkum Jóns Leifs og samdar í
sama stíl en aðrar eru útsetningar
á íslenskum þjóðlögum.
Jón Ásgeirsson hefur útsett ís-
lenskt þjóðlag og bætt við það
millikafla sem þekktur er undir
heitinu Vísur Vatnsenda-Rósu.
Hjálmar H. Ragnarsson bjó þetta
verk til flutnings í kvikmyndinni
þar sem fyrsti hluti er leikinn á
píanó en síðari hluti af sinfóníu-
hljómsveit. Jón Ásgeirsson er af-
kastamikið tónskáld og hafa út-
setningar hans á íslenskum þjóð-
lögum átt miklum vinsældum að
fagna.
„Margir telja að tónlist Jóns
Leifs hafi að geyma kraft úr nátt-
úru Islands og seið sögunnar og
áhugi á verkum Jóns hefur farið
vaxandi á undanförnum árum
bæði hér heima og erlendis," segir
í kynningu.
Beaver
nylon gallar
mjög slitsterkir,
hrinda vel frá sér
Tvískiptir
Verð: 6.990.-
Stærðir 4-8
Samfestingar
Verð: 5.990.-
Stærðir: 4-8
Litir: Rautt - Blátt - Gult
5% staðgreiðsluafsláttur
Sendum í póstkröfu
»humméP3f
SPORTBÚÐIN
Ármuli 40 sími 581 3555