Morgunblaðið - 10.10.1995, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 23
Græskulaust
g'aman
LEIKLIST
L e i k i c I a g
Reykjavíkur í
Borgarlcikhúsinu
TVÍSKINNUNGSÓPERAN
Höfundur og leikstjóri: Agúst. Guð-
mundsson. Meðleikstjóri: Arni Pétur
Guðjónsson. Utsetning tónlistar og
hljómsveitarstjóm: Rikarður Om
Pálsson. Söngstjóm og þjálfun: Osk-
ar Einarsson. Leikmynd: Stígur
Steinþórsson. Búningar: Þórunn El-
ísabet Sveinsdóttir. Dansar og hreyf-
ingar: Helena Jónsdóttir. Lýsing:
Ögmundur Þór Jóhannesson. Leikar-
ar: Eggert Þorleifsson, Felix Bergs-
son, Guðmundur Ólafsson, Jóhanna
Jónas, Magnús Jónsson, Margrét Vil-
hjálmsdóttir, Sóley Elíasdóttir og
Theódór Júliusson. Kón Bima Haf-
stein, Daniel Agúst Haraldsson, Guð-
rún Gunnarsdóttir, Harpa Harðar-
dóttir, Kristbjörg Clausen og Pétur
Guðlaugsson auk Þórunnar Geirs-
dóttur sem statista.
Laugardagur 7. október.
ÞETTA nýjasta verkefni
Leikfélags Reykjavíkur kemur
mjög skemmtilega á óvart. Undir-
titillinn „vísindauppspuni með
söngvum" bendir til að aðstand-
endur taki sig ekki of alvarlega
og tilgangurinn sé fyrst og fremst
að skemmta áhorfendum. Þeim
tekst ætlunarverk sitt fullkomlega.
Verkið er farsi sem er brotinn
upp með tónlist, þ.e. hægt er á
keyrslunni annað veifið og persón-
urnar túlka tilfinningar sínar í
söng. Þetta kann að hljóma ósam-
rýmanlegt, en er í raun mjög vel
til fundið. Þau umfjöllunarefni sem
aðeins er hægt að tæpa á í farsa-
leiknum fá þá meira rými og tíma
og persónusköpunin verður dýpri
og mannlegri.
Það er margt sem helst í hendur
til að þessi uppfærsla er eins góð
og raun er á. Farsi krefst fyrst og
fremst kröftugs leiks og góðrar
tímasetningar. Leikarar í stærri
hlutverkum standa sig fimavel í
þessu og skapa hver sína týpuna
með fýndnum tiktúmm og lát-
bragði. Minna er lagt upp úr
söngnum, enda lögin auðsungin
og krefjast ekki stórsöngvara. Það
sem meira skiptir máli hér er að
textinn kemst vel til skila.
Margrét Vilhjálmsdóttir og Felix
Bergsson eru hér í aðalhlutverkum
og bæta hvort annað upp. Þeim
tekst báðum mjög vel að túlka
umskiptin sem persónur þeirra
verða fyrir, en hlutverk þeirra
beggja krefjast þess að þau leiki
í raun tvær persónur. Felix lýsir
mjög vel viðbrögðum Sólveigar við
því aukna frelsi sem hún hlýtur
sem karlmaður. Margrét á hinn
bóginn sýnir hvernig Þór bregst
við þeim takmörkunum sem honum
eru settar sem kona og sýnir vel
gremju hans við uppivöðslusemi
Sólveigar í karllíkarpanum. Annars
er meginmunurinn á persónum
Þórs og Sólveigar ekki sá að þau
eru hvort af sínu kyninu heldur
að Sólveig er ábyrgðarlaus og fljót-
fær og Þór er traustur og ábyrg-
ur. Það er svo annað mál hvort
höfundur telur þessa eðliseigin-
leika frekar fylgja einu kyninu en
öðru.
Eggert Þorleifsson er hugvits-
maðurinn Jónatan sem með til-
raunum sínum kemur sögunni af
stað. Eggert hefur þegar sannað
sig sem einn snjallasti gamanleik-
ari þjóðarinnar og hér fer hann á
kostum. Hann er í essinu sínu sem
hinn óframfæmi vísindamaður og
tekst með hárfínum leik og tíma-
setningu að kalla æ og aftur fram
hlátrasköll áhorfenda.
Magnús Jónsson leikur Pál
lækni, vonbiðil Sólveigar. Hann er
víða óborganlegur, til dæmis í at-
riðinu við píanóið. Jóhanna Jónas
er Hulda, vinkona Sólveigar og
samkvæmisljón mikið. Hulda er,
eins og nafna hennar í kvæðinu,
að leita að unnusta en finnur eng-
an. Það er kannski erfiðasta hlut-
verkið í farsa að þurfa að vísa til
samúðar áhorfenda þegar aðrir
leikarar geta einbeitt sér að hlátur-
taugum þeirra. Jóhanna tekst að
gefa Huldu einstaka reisn og húm-
or sem kannski er einmitt best
lýst með orðinu grátbroslegt. Sól-
eyju Elíasdóttur tekst að skapa
eftirminnilega persónu úr einkarit-
ara Þórs. Hún er ýkt en má líka
vera það.
Guðmundur Olafsson og Theó-
dór Júlíusson eru í litlum hlutverk-
um frammámanna og eru hæfilega
grínaktugir og góðlegir. Kórinn
gegnir hlutverki gesta í veislum
og er meira en nauðsynleg uppfyll-
ing á sviðinu. Kórsöngurinn er
mjög vel unninn og raddsetning-
amar gefa einföldum laglínunum
lit og líf. Stílfærðar hreyfingar
kórsins á sviði eru glæsilega út-
færðar. Útsetningar Ríkarðs Amar
Pálssonar eru hófstillt útfærsla á
grípandi og einföldum laglínum.
Glæsileikinn er líka allsráðandi
í sviðsmynd og búningum. Tekið
hefur verið á það ráð að nota ekki
allt sviðsrýmið heldur þrengja það
með römmum. Leikmyndin Stígs
Steinþórssonar er tímalaus en samt
nútímaleg og alit í sterkum litum
og eindregnum stíl, jafnt húsgögn
sem listaverk á veggjum. Búning-
arnir em líka stílfærðir og tískan
sótt u.þ.b. aldarþriðjung aftur í
tímann. Þórunn Elísabet Sveins-
dóttir búningahönnuður hefur
ímyndunarafl og sköpunargáfu í
lagi, enda ekki vanþörf á þegar
persónumar þurfa oft að hafa bún-
ingaskipti. Það er auðsjáanlegt að
leikkonurnar njóta þess að bera
einstaka búninga Þórunnar þó að
Margrét Vilhjálmsdóttir beri þar
af og sé ýmist þokkafull eða
stórglæsileg. Ljósin þyrftu á stund-
um að vera sterkari til samræmis
við litadýrðina í sviðsmynd og bún-
ingum. Eins bar á að leikarar
væru ekki nógu vel inni í eltiljósum.
Agústi Guðmundssyni hefur hér
tekist að semja mjög smellinn
farsa, sem kippir í kynið til frænda
sinna hérlendra fyrr á öldinni. Eins
og tilvísanir í texta sýna ætlar
höfundur verkinu að gerast nú á
tímum. Uppsetningin öll vísar hins
vegar á óræðan tíma aðeins fyrr
á öldinni. Hérna er þessi stílfærsla
nauðsyn. Farsi gengur út frá
ákveðnum gildum sem áhorfendur
þekkja og treysta. Persónurnar era
týpur sem er gefið takmarkað svig-
rúm og þá aðeins ef allt fellur í
ljúfa löð í endann. Þetta form er
því lítt fallið til alvarlegrar þjóðfé-
lagsumræðu um samskipti kynj-
anna. Týpurnar sem notast verður
við falla enda lítt að breyttum
' hugmyndum okkar á þessum síð-
ustu og verstu tímum.
Sveinn Haraldsson
KJÖTVÖRUR
GO®?
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
•. Feiti
• Lífræn efni
• Hár /
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Bensínstöðvar
og helstu
byggingavöruverslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 567 7878 - fax 567 7022
- kjarni málsins!
Ævintýrið um
Pál ísólfsson
TONUST
Hallgrímskirkja
ORGELTÓNLEIKAR
Bjöm Steinar Sólbergsson, Hörður
Askelsson og Marteinn H. Friðriks-
son léku verk eftir J.S. Bach og Pál
ísólfsson.
Sunnudagurinn 8. október 1995.
ÆVINTÝRIÐ um Pál ísólfsson,
drenginn sem alinn var upp við
brimgný og boðaföll úthafsöldunnar
er brotnaði á fjörum Stokkseyrar,
drenginn sem ungur fór utan til
nema orgelleik og ná valdi á þrum-
andi hljómkrafti þess, er stórkostlegt
dæmi um það hversu stutt er milli
um þess smáa og stóra, sem er í
raun eitt og hið sama. Af þessum
dreng varð stór saga og þjóðin sá
sjálfa sig í þessu ævintýri og fékk
leiðarsýn að takmarki, sem hún áður
kunni engin skil á. Það fer vel á að
orgelleikarar þessa lands muni vel
hver bar þeim þessi tíðindi og sagði
fyrir um hvar fetað skuli um refil-
stigu listarinnar. og að í nafni hans
sé stofnaður sjóður, til styrktar ung-
um orgelleikurum, sem útþráin hefur
helgað sér.
Tónleikarnir hófust á Ostinato og
fúghettu eftir Pál ísólfsson, rismiklu
en frekar sturru verki sem Björn
Steinar Sólbergsson orgelleikari við
Akureyrarkirkju flutti mjög vel.
Kjartan Siguijónsson, formaður í
Félagi íslenskra orgelleikara, ávarp-
aði tónleikagesti og lýsti yfir, að
með þessum tónleikum væri form-
lega stofnaður minningarsjóður um
Pál ísólfsson dómorganista og tón-
skáld, er hefði það markmið að
styrkja efnilega orgelnemendur til
framhaldsnáms í orgelleik.
Björn Steinar lék síðan tvo sálm-
forleiki eftir Pál, Víst ertu, Jesús,
kóngur klár og Bænin má aldrei
bresta þig, falleg verk sem Björn
Steinar lék fallega. Burlesca er eitt
af píanóverkum Páls, sem Björn
Steinar hefur umritað fyrir orgel og
tekist ágætlega. Umritun Hauks
Guðlaugssonar á Máríá, mild og há,
var hins vegar leikin með of miklum
mun á styrk, svo að tónveikt forspil
og millispil var eins og úr öðru verki
á móti þrumandi laginu.
Hörður Áskelsson lék c-moll pass-
akaglíuna eftir J.S. Bach. Þetta verk
hefur verið nefnt dómkirkja orgel-
tónsmíða, stórt í sniðum og marg-
slungið að gerð, þó það sé unnið
yfir eitt stutt stef, sem gengur eins
og rauður þráður í gegnum allt verk-
ið. Fáir hafa leikið sér að þessu erf-
iða tilbrigðaformi af eins miklum
glæsibrag og Bach og náði Hörður
að móta verkið í samræmi við stór-
leik þess, bæði er varðar formskipan
og tónmál. Hörður Iék einnig stutt
en fallegt forspil eftir Pál ísólfsson.
Tónleikunum lauk með orgelstór-
virkinu Chaconne, sem Páll vann
yfir upphafsstef Þorlákstíða. Þetta
glæsilega verk lék Marteinn H. Frið-
riksson af mikilli reisn og má segja
að Páll hafi í þessu verki spáð fyrir
um að byggt yrði orgel, sem hæfði
þessum stórbrotna tónbálki.
Það er vísast að Klais-orgelið í
Hallgrímskirkju muni ekki aðeins
verða til að gleðja tónleikagesti,
heldur einnig kveikja með ungum
og efnilegum tónlistarmönnum löng-
un til að leika á þetta stórkostlega
orgel og reyna sig við stórvirki orgel-
bókmenntanna. Þá mun Minningar-
sjóður Páls ísólfssonar styðja þar
við, sem á fjárhagslegu hliðina kann
að halla og vonandi verður sjóðurinn
sterkur og til góðs dugandi um
ókomin ár.
Jón Ásgeirsson
ATH!
Tímapantanir:
í síma 551 4711
Lækjargötu 4, Reykjavík
og í síma 462 4123
Hafnarstræti 88, Akureyri
Fjárfesting í betri -
heilsu og vellfðan!
STOÐTÆKNI
Císli Ferdinandsson hf
Arnar Gunnlaugsson,
landsliösmaöur í fótbolta:
„Álagiö á vöðvunum framan á leggjunum
var ofmikið. Þaö var marg búiö aö
spauta mig við því og síöan skera mig
upp. En eftir aö ég fékk sérsmíöuð
inniegg frá Stoötækni hefég ekki fundiö
til í leggjunum og segja má aö þau hafí
bjargað fótboltaferli mínum.“
Bjarki Gunnlaugsson,
landsliðsmaður í fótbolta:
„Á öllum æfíngum og leikjum stífnaði ég
upp í kálfunum sem leiddi til mikilla
verkja í mjóhryggnum. Ég fékk
sérsmíöuö innlegg frá Stoötækni og eftir
það er ég laus við alla verki. “
Lækjargötu 4 ■ 101 Reykjavík ■ Sími 551 4711
Kolbelnn Gíslason, stoötækjafræöingur,
viö greiningarbúnaöinn.