Morgunblaðið - 10.10.1995, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 25
MÖRGSLYS
- LÍTIL MEIÐSLI
Opinberar slysatölur segja þá sögu að tvö- til þrefalt fieiri slasist
*
í umferðinni hér á landi en í nágrannalöndunum. I samantekt
Helga Bjamasonar kemur hins vegar fram að slíkur samanburð-
ur er ekki marktækur vegna þess hvað lítill hluti slysanna kemur
fram á opinberum skýrslum. Þó eru vísbendingar um að slys hér
séu fleiri en ekki eins alvarleg og á hinum Norðurlöndunum.
ERFITT er að fá svar við
því hvort slys á fólki eru
tíðari eða meiri í umferð-
inni hér en í nágranna-
löndunum. Upplýsingarnar liggja
víða og eru oft misvísandi. „Þú ert
að biðja um hið ómögulega. Þú
færð þessu hvergi svarað,“ segir
Ólafur Ólafsson landlæknir og for-
maður slysavamaráðs þegar spurn-
ingin er borin upp við hann. Harald-
ur Sigþórsson, deildarverkfræðing-
ur hjá umferðardeild borgarverk-
fræðingsins í Reykjavík, tekur í
sama streng en hann fjallaði um
umferðarslys í doktorsritgerð við
háskólann í Karlsruhe í Þýskalandi.
Eftir að FÍB birti samanburð á
iðgjöldum bílatrygginga hér og á
hinum Norðurlöndunum urðu .hörð
skoðanaskipti milli forsvarsmanna
félagsins og fulltrúa tryggingafé-
laganna um ástæður mikils verð-
munar. Talsmenn tryggingafélag-
anna sögðu að hærri iðgjöld hér
stöfuðu af meiri tjónakostnaði og
bentu á tölur sem sýna mun fleiri
slys hér á landi en í nágrannalönd-
unum. Talsmenn FÍB sögðu að
slysatölurnar væru ekki saman-
burðarhæfar og gæfu ekki til kynna
að fleiri slys eða hærri tjónagreiðsl-
ur væru á íslandi. Þá voru menn
ekki sammála um það hvort slysum
hér á landi væri að fjölga eða
fækka.
Hægt er að bera slysafjölda sam-
an með ýmsum hætti. í þessari
umfjöllun er farið yfir opinberar
slysatölur og skýrt frá vanköntum
þeirra og slysaskráning í heilbrigð-
iskerfmu einnig athuguð. Ljóst er
að niðurstaða hverrar skráningar
segir sína eigin sögu. Upplýsingar
tryggingafélaganna um heildartjó-
nagreiðslur og ijölda slysa segja
enn eina söguna en farið verður
yfir það í grein sem birtist hér í
blaðinu á morgun.
Fjölgun slysa samkvæmt
opinberum tölum
Svokallaðar opinberar tölur um
umferðaróhöpp og slys á fólki eru
unnar af Umferðarráði upp úr lög-
regluskýrslum. Erfitt er að bera
þær saman milli ára eða tímabila
vegna þess að gerðar hafa verið
breytingar á skráningunni. Arið
1988 var bytjað að nota tjóna-
skýrslur sem fólk á sjálft að fylla
út án þess að kalla til lögreglu,
þegar um minniháttar óhöpp er að
ræða. Og í ársbyijun 1992 var
gerð breyting á vinnubrögðum.
Umferðarráð á nú að fá afrit af
öllum lögregluskýrslum en ekki
einungis þeim skýrslum þar sem
lögreglan tilgreinir meiðsli á fólki.
Starfsmaður Umferðarráðs fer yfir
allar skýrslurnar og flokkar slys
og óhöpp. Niðurstöðurnar eru birt-
ar í árlegri skýrslu um umferðar-
slys.
Ef litið er á tímabilið frá 1989
sést að umferðaróhöppum í heild
fækkaði næstu árin á eftir, hugsan-
lega hefur tekið einhver ár að venja
fólk við tjónstilkynningar. Fjöldinn
var svipaður til 1993 en jókst þá
aftur.
Ef aðeins er litið á umferðar-
óhöpp sem hafa leitt til slysa á
fólki sýna tölurnar stöðuga aukn-
ingu á fjölda slasaðra á þessum
sex árum. Árið 1989 var 831
skráður slasaður eða látinn en á
síðasta ári var fjöldi slasaðra og
látinna talinn vera 1.485. Mikil
aukning varð á milli áranna 1991
og 1992 þegar fjöldi slasaðra fór
úr 1.155 í 1.348. Órn Þorvarðarson
sem annast slysaskráninguna á
skrifstofu Umferðarráðs telur að
tölur um fjölgun skráðra slysa á
undanförnun árum gefi ekki rétta
mynd af raunveruleikanum vegna
þeirrar breytingar sem orðið hefur
á vinnubrögðum við skráninguna.
Skráðum slösuðum hefur þó áfram
fjölgað, eða um 8% 1993 og 2% á
síðasta ári. Og enn er aukning í
ár, fyrstu átta mánuði ársins eru
skráð slys 5% fleiri en á sama tíma
á síðasta ári.
Fjölgom hjá lögreglunni
Eftir að tjónstilkynningarnar
voru teknar upp gerði lögreglan í
Reykjavík skýrslur um 2.300 til
2.500 umferðaróhöpp á ári,
1989-91. Skýrslum fækkaði svo
heldur en á síðasta ári stóijókst
fjöldinn en þá voru gerðar 2.750
skýrslur um umferðaróhöpp. Skráð-
um umferðaróhöppum með slysum
á fólki hefur fjölgað mjög á þessum
árum, samkvæmt lögregluskýrsl-
um. Þau voru innan við 400 á árinu
1989 en 661 í fyrra. Ómar Smári
Ármannsson segir að aukningin sé
mest í minniháttar meiðslum.
Vegagerðin tekur árlega saman
skýrslu um umferðaráhöpp á þjóð-
vegum landsins, utan þéttbýlis.
Upplýsingarnar eru byggðar á lög-
regluskýrslum og eru fengnar hjá
Umferðarráði. Um 900 umferðar-
óhöpp voru skráð á þjóðvegunum
árið 1989 en 877 á síðasta ári. 324
voru taldir slasaðir í fyrra sem er
svipaður fjöldi og fyrir sex árum.
Minni slysura fjölgað
Ekki er hægt að sjá þróun slysa
lengra aftur í tímann í opinberum
slysatölum vegna breytinga í skrán-
ingu eins og fyrr er vikið að. Ef
litið er á síðustu sex ár sem telja
verður nokkuð samanburðarhæf
með fýrirvara um hugsanlega óná-
kvæmni í flokkun virðist mega
álykta sem svo að slysum á fólki
hafi heldur fjölgað á þessum tíma.
Og þeim hefur fjölgað á árunum
1993, 1994 og það sem af er þessu
ári, samkvæmt opinberum tölum,
en ekki er ágreiningur um að skrán-
ingin hefur verið samræmd frá
1992. Óli H. Þórðarson, fram-