Morgunblaðið - 10.10.1995, Side 32

Morgunblaðið - 10.10.1995, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 AÐSEIMDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Stórbýlastefna - Eyðibýlastefna FÁIR bændur — Stórir bændur! Þetta slagorð í kratastíl sýn- ist á góðri leið með að verða inntakið í ís- lenskri landbúnaðar- stefnu. Hann hefir ekki farið fram hjá neinum, hamagangur þessa síminnkandi stjómmálaflokks, Al- þýðuflokksins, gegn íslenskum landbúnaði og bændum, þá sér- staklega sauðfjár- bændum, sem miklum óþurftarmönnum ís- lensks efnahagslífs. Þar fyrir skal viður- kennt að landbúnaðarkerfi okkar, eins og það hefur verið byggt upp á undanförnum áratugum með óhóflegri miðstýringu, kvótafarg- Við þurfum breytingar, segir Sigurlaug Bjamadóttir, en ekki breytingu sem yrði í reynd eyðibýlastefna. ani og óheyrilegum milliliðakostn- aði, hefir reynst óhagkvæmt og allt- of dýrt bæði fyrir bændur sjálfa og þjóðarheildina og þarf breytinga við. Hvað gerðist? Um ára og áratugabil voru bændur hvattir af stjómvöldum til að stækka búin, byggja stærri fjár- hús og fjós — auka framleiðsluna með styrkjum og hagkvæmum lán- um sem margir kiknuðu þó undir. En meðan þessi bjartsýni og rausn ríkti af hálfu stjómvalda í garð landbúnaðarins var hins vegar, illu heilli, sofíð á verðinum í markaðs- málum, lítt eða ekkert hirt um al- vömleit að mörkuðum fyrir stór- aukna framleiðslu. Birgðir söfnuð- ust upp, kjötfyallið varð tíl. Þá var bændum skipað að fækka, draga saman, og þegar sýnt var að það dugði ekki til var skellt á kvótakerfinu, sem kom þannig út að margir bændur sem hlýðnast höfðu tilskipun um fækk- un búfjár stóðu uppi með smærri bú en líf- vænlegt gat talist á meðan hinir, gjaman þeir sem fjárflestir voru, virtu hana að vettugi, komust upp með það og stóðu keikir eftir sem áður. Framkvæmdin, að því er best varð séð, eftir- litslaus skrifborðs- ákvörðun, sem bitnaði helst á þeim sem síst máttu við skerðingu. Og, að auki, án nokk- urs tillits til landkosta, hvort hætta væri á ofbeit eða gott og van- nýtt haglendi til staðar. Vegið í sama knérunn? Nú virðast teikn á lofti um að samkvæmt nýjum búvörusamningi eigi með stjórnvaldsaðgerðum að vega í sama knérann. Framleiðslu- réttur smærri fjárbænda skal flutt- ur til hinna stærri. Ljóst er að það myndi þýða stórkostlega fækkun bænda og um leið verulega byggða- röskun til viðbótar þeirri sem þegar er orðin. Varla er hægt að ímynda sér að nokkur venjulega þenkjandi íslendingur vilji taka slíka þróun sem góða og gilda, nema kannski hinir forhertustu meðal krata með sína draumsýn um fáein risabú í hverri sveit með yfirgefin eyðibýli á báðar hendur. — Hvað um mann- leg samskipti — og hvað um sjálfa ásýnd landsins? Að snúa dæminu við í ágætri grein í Tímanum 3. okt. sl. eftir Torfa Guðbrandsson fyrrv. skólastjóra í Árneshreppi á Ströndum er velt upp ýmsum hlið- um á vanda sauðfjárbænda. Hann spyr hvort ekki mætti eins snúa dæminu við í búvörusamningnum og færa framleiðslurétt frá fjár- flestu bændunum (þeir gerast all- margir með 5oo-l.ooo eða þar yfir) til hinna smærri sem nú stendur til að kaupa burt af jörðum sínum. Stefnuræða Davíðs Það mun viðtekin skoðun (jafn- vel í sjálfum Bandaríkjunum með Sigurlaug Bjamadóttir sína stóm mælikvarða) að í land- búnaði séu miðlungsbúin hag- kvæmari en stórbúin, mörg sliguð af skuldum vegna gífurlegra fjár- festinga. Það liggur beint við að vitna í þessu sambandi til stefnu- ræðu forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar, á Alþingi nýverið að helsti vaxtarbroddur atvinnulífsins felist í litlum eða meðalstórum fyrirtækjum. Skyldi það ekki líka eiga við um búskap í sveit? Megum við ekki vænta þess að stefnu- mörkun í íslenskum landbúnaði til framtíðar verði einmitt í þessum anda — með jafnvægi byggða og frjálsa, sjálfbjarga bændastétt að markmiði? Því markmiði verður ekki náð fyrr en markaðsmálin eru komin í viðunandi horf og kjötfjallið hverf- ur. Þótt markaðsleit erlendis hafi hingað til skilað minni árangri en vonir stóðu til er óþarfí að fyllast vonleysi og uppgjöf, sbr. grein Sig- hvats Björgvinssonar í Mbl. á dög- unum í sama hallærisdúr og annað sem frá krötum kemur um landbún- aðarmál. Við þurfum einfaldlega að herða róðurinn í stað þess að leggja árar í bát. Það kemur líka að því að íslend- ingar sjálfir læri á ný að meta lambakjötið okkar, besta kjöt í heimi, þótt þjóðin hafi um sinn fall- ið fyrir hamborgurum, pizzum og pöstum. Hér eiga íslensk veitinga- hús og matreiðslumenn stóm hlut- verki að gegna. Hvað gerir Búnaðarþing? Búnaðarþing kemur saman til fundar þessa dagana vegna hins nýja búvörasamnings. Bændur munu þar ráða ráðum sínum, vega og meta kosti samningsins og galla. Niðurstöðu þessa fundar er því beðið með nokkurri eftirvænt- ingu. Það er ljóst að ýmsar breytingar á skipan okkar landbúnaðarmála eru óhjákvæmilegar. Við þurfum breytingar en ekki byltingu sem yrði í reynd eyðibýlastefna, rang- hverfan á stórbýlastefnu krata (og það eru til kratar í öllum flokk- um). Hér er meira í húfi en kann að virðast við fyrstu sýn. Það varðar því miklu að við undirbúning og alla framkvæmd væntanlegra breytinga verði farið að með var- fæmi, sveigjanleik og skilningi á eðli málsins. Mannleg verðmæti og íslensk þjóðmenning er í veði. Höfundur er fyrrverandi alþingis- muður. Hverjir eiga heima í Seltirningabók? ÓLAFUR Björg- úlfsson tannlæknir ritar grein í Morgun- blaðið 29. september, þar sem hann kvartar undan því, að forfaðir hans, Eggert Bjarna- son, Pálssonar land- læknis skuli ekki vera nefndur í Seltiminga- bók, sem út kom árið 1991.. I Seltimingabók er kaflinn Jarðir og ábú: endur á Framnesi. í þeim kafla eru nefnd- ar jarðir og hjáleigur á Nesinu, ábúendur þeirra, þ.e. húsbændur og húsfreyj- ur, frá því um 1700 og þangað til búskapur lagðist af og jörðunum var skipt upp í lóðir undir glæsi- hús. Tilgangur þessa kafla var sá að gefa núverandi íbúum kost á vita eitthvað um sögu þess land- svæðis, sem þeir hafa reist hús sín á. Þar hefði fólk verið að bjástra við búskap og útgerð á fyrri öldum. íbúar við Tjamarstíg geta t.d kom- izt að því, að þar var áður kotið Tjarnarhús, hjáleiga hjá stórbýlinu og um tíma biskups- setrinu Lambastöðum. í áðurnefndum kafla eru Bjarni Pálsson landlæknir og Rann- veig Skúladóttir kona hans að sjálfsögðu nefnd sem ábúendur á jörðinni Nesi. Hins vegar er ekki fjallað um læknisferil Bjama eða rakin ævisaga hans að neinu marki, enda var það ekki ætl- unin. Seltirningabók er ekki ævisögurit eða ættfræðirit. Aðeins í einstaka tilvikum er getið bama ábúendanna og þá helzt, ef þau komu við sögu í mál- efnum Seltirninga eða máttu heita landskunn. En þá eram við komin að mistökum þeim, sem snertu Ólaf skólabróður minn svo illa fyrir fjór- um áram og hafa greinilega setið í honum síðan. í Seltirningabók segir, að af börnum Bjama og Rannveigar, sem vora sjö, hafí að- eins tvær dætur átt afkomendur. Þarna gleymdist Eggert Bjamason, sem ekkert kom við sögu Seltirn- Við þessum mistökum er ekkert annað að gera, segir Heimir Þorleifs- son, en að biðja Ólaf Björgúlfsson og ættboga hans allan velvirðingar. inga, fluttist þaðan á brott 8 ára, en átti fjölda bama með tveimur konum. Við þessum mistökum er ekkert annað að gera en biðja Ólaf Björgúlfsson og ættboga hans allan velvirðingar. Þeim má hins vegar vera það nokkur huggun, að vilji menn leita upplýsinga um ævi og afkomendur Bjama landlæknis hafa menn í miklu ítarlegri rit að leita en Seltirningabók. Þar er sér- staklega að nefna ævisögu Bjama eftir Svein Pálsson lækni, tengda- son hans. Höfundur er sagnfræðingvr. Heimir Þorleifsson Alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur, 10. október Geðheilbrigði - góð fjárfesting ÞRATT fyrir stór- stígar framfarir vantar enn mikið á að geðsjúk- ir njóti fulinægjandi þjónustu og meðferðar. Því hafa Alþjóðasam- tök geðvemdarfélaga og Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin gengist fyrir því, að heilbrigðisyfir- völd í hveiju landi gerðu 10. október að alþjóðlegum geðheil- brigðisdegi. Nú hefur heilbrigðismálaráð- herra, frú Ingibjörg Pálmadóttir, ákveðið að þessi dagur skuli einnig á íslandi vera sérstaklega helgaður geðhéilbrigðismálum. Ákvörðun ráðherra er mjög mikil- væg fyrir geðsjúka og"iðstandendur þeirra til þess að vekja athygli á vanda þeirra og nauðsyn þess að úr verði bætt. Þróun geðheilbrigðisþjónustu Á síðustu þijátíu áram hefur geð- heilbrigðisþjónustan gjörbreyst hér á landi. í stað sérstaks geðsjúkra- húss eru nú komnar geðdeildir við stóru sjúkrahúsin í Reykjavík og á Akureyri. Með byggingu geðdeildar Landspítalans lauk formlega að- skilnaði geðlækninga frá öðrum sér- greinum lækninga. Þá var stigið mjög stórt skref til að eyða fordóm- um gegn geðsjúkum með því að þeir gátu sótt meðferð á sama sjúkrahús og aðrir sjúklingar. Áður höfðu verið tekin minni skref í sömu ástæðu örorkunnar. Stór hluti annarra ör- yrkja hefur einnig geð- traflun, sem eykur ör- orku þeirra. Það er því mikið í húfí fyrir ein- staklingana og þjóðar- búið að sjúklingamir fái góða meðferð nógu snemma, nógu lengi og samfellt, til að koma í veg fyrir örorku eða aðrar alvarlegar afleið- ingar sjúkdómannna. Kostnaður Þrátt fyrir að geð- traflanir séu algeng- ustu sjúkdómar sem hijá fólk á besta aldri og gera megi ráð fyrir að 40—50 þús. Islendingar hafí ein- hveija geðtruflun á hveijum tíma, fóru á árinu 1992 lauslega áætlað ekki nema 1,8 milljarðar króna eða 5,2% af útgjöldum heilbrigðisþjón- ustunnar til meðferðar þessa sjúkl- ingahóps. Óbeinn kostnaður er þó sennilega miklu meiri. í Bandaríkj- unum hefur verið áætlað að árlegur kostnaður vegna geðklofa sé um 65 milljarðar dala, þar af beinn með- ferðarkostnaður um 18,6 milljarðar. Umreiknað og miðað við fólksfjölda ætti meðferðarkostnaðurinn hér á landi fyrir þennan eina sjúklingahóp að vera um 1,3 milljarður króna. Mikið vantar á að svo sé. Ef hægt er að bæta meðferðina með auknum íjárframlögum, ættu þau að skila sér margfalt í minni óbeinum kostnaði og aukinni framleiðni þjóðarbúsins. Tómas Helgason Geðtruflanireru meðal Fjárskorturogiok.nirdeiida algengustu sjúkdóma, segir Tómas Helgason, en með réttri meðferð er hægt að bæta flesta. átt, fyrst með því að geðsjúklingar voru teknir til endurhæfingar að Reykjalundi og síðar með opnun geðdeildar Borgarspítalans. Sjúkrarúmum hefur fækkað, en í þeirra stað eru komin meðferðar- heimili, dagdeildir og umfangsmikl- ar göngudeildir. Þá hefur sjálfstætt starfandi geðlæknum og sálfræð- ingum flölgað veralega. Geðfatlaðir hafa fengið húsnæði á vegum hús- sjóðs Öryrkjabandalagsins, félags- málastofnana og svæðisstjóma. Geðvemdarfélag Islands, Geðhjálp, Rauði kross íslands og Kiwanis- hreyfíngin veita geðsjúkum einnig mikilvæga aðstoð. Þrátt fyrir þetta vantar vemlega á að geðvemd sé nægjanlega sinnt og að geðtruflanir séu nægjanlega vel greindar og meðhöndlaðár. Sjúkdómar ungs fólks Þó að geðsjúkdómar séu algengir á öllum aldri, eru þeir hlutfallslega miklu algengari meðal yngra fólks en aðrir sjúkdómar sem þarfnast sérfræðilegrar meðferðar. Þetta sést meðal annars á því, að árið 1993 vora 70% sjúklinga á geðdeild Landspítalans undir fimmtugsaldri, en á lyflækningadeild spítalans vora aðeins 23% undir þessum aldri og 35% á handlækningadeild. Geðtraflanir era meðal algeng- ustu sjúkdóma. Með réttri meðferð er hægt að bæta flesta. En stundum tekst það ekki og sjúkdómurinn leið- ir til örorku. Einnig era dánarlíkur þeirra sem fá geðsjúkdóma auknar, einkum í byijun, og era þeir aðalor- sök sjálfsvíga meðal ungs fólks. Vegna þess hve sjúkdómarnir era algengir meðal yngra fólks, verður öryrkjahópurinn stór. Um fjórðung- ur þeirra, sem fá fullan örorkulíf- eyri, hefur geðtraflun sem aðal- Geðlækningar era tímafrekar og aðallækningatækin era vel menntað og þjálfað starfsfólk. Hátækni sem mikið kveður að við meðferð ann- arra sjúkdóma, skiptir tiltölulega litlu i meðferð geðsjúkra. Þunglyndi verður ekki læknað með línuhraðli og hugvillur verða ekki læknaðar með holsjá. Þekking og þjálfun góðra starfs- manna og tími sem þeir geta verið með sjúklingunum skiptir öllu máli, auk réttrar lyfjameðferðar. Því skýt- ur það skökku við, að fé skuli svo naumt skammtað að ekki skuli vera hægt að ráða þann lágmarksmann- afla til starfa sem heimilað var fyr- ir fimmtán áram. Á þessu ári tók steininn úr, þegar loka varð í sex vikur 58 af 84 rúmum á bráðadeild- um geðdeildar Landspítalans vegna fjárskorts, auk bamageðdeildar og annarra geðdeilda. Þetta Ieiddi til ómældra óþæginda fyrir sjúkling- ana og aðstandendur þeirra, auk ofurálags á starfslið þeirra deilda sem vora opnar. Slíkt má ekki end- urtaka og er vonandi að þeir sem fjárveitingum ráða sjái til þess. Framtíðar geðvemd Ætla má að geðlæknar sjái um 8.000 sjúklinga á ári. Tölur um lyfjasölu á árinu 1994 benda til, að 5% landsmanna fái daglega einn skilgreindan dagskammt af geðlyfj- um öðram en svefnlyfjum. I Reykja- vík er aðeins fímmtungi þessara lyfja ávísað af geðlæknum. Sam- kvæmt þessu má gera ráð fyrir að 30—40% þeirra, sem þurfa aðstoð vegna geðtraflana á hverju ári, fái einhveija úrlausn, en því miður oft ófullnægjandi. Þeir sem verða út undan era m.a. böm, unglingar og foreldrar þeirra, þ.e.a.s. ungt fólk með miklar tilfínningalegar truflanir, kviða og depurð, sem háir því í starfi og einkalífí. Geðvemd framtíðarinn- ar felst í að veita þessu fólki góða, samfellda meðferð og aðstoð núna. Höfundur er prófessor í geðlækn- isfræði við H&skóla tslands ogfor- stöðulæknir geðdeildar Landspít- alans.------—--------

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.