Morgunblaðið - 10.10.1995, Síða 33

Morgunblaðið - 10.10.1995, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 33 AÐSENDAR GREINAR Stefnumótun í búsetumálum geðfatlaðra Loftur Reimar Gissurarson Búsetuvandræði eru eitt höfuð- vandamál fatlaðra sem leita til Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra í Reykja- vík. í dag eru 220 manns á biðlista eftir húsnæði hjá Svæðis- skrifstofu Reykjavíkur, þar af eru 60 geðfatlað- ir skjólstæðingar. Fleiri og fleiri geðfatlaðir ein- staklingar leita til skrif- stofunnar í þeirri von að fá þak yfír höfuðið. Alls sóttu 105 geð- fatlaðir einstaklingar um búsetu hjá Svæðis- skrifstofu Reykjavíkur á tímabilinu 1980-1993 (1). Árið 1994 hafði einungis tekist að leysa um 60 af þessum málum, ýmist með beinu búsetuúrræði á veg- um skrifstofunnar eða fundin var hentug búseta í samvinnu við aðrar stofnanir (2). Þess ber að geta að höfuðvandinn við að koma til móts við búsetuþarfír fólks felst ekki í húsnæðinu sjálfu heldur í skorti á rekstrarfé fyrir stöðum starfsmanna til að veita nauðsynlega aðstoð. Samkvæmt skýrslu samstarfshóps Svæðisskrifstofu Reykjavíkur, Hús- sjóðs Öryrkjabandalagsins og Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkurborg- ar voru 227 geðfatlaðir einstaklingar í þörf fyrir viðunandi búsetuúrræði árið 1994 í Reykjavík (3). Eftir því sem vitað var, reyndust: 38 einstakl- ingar á götunni, 12 bjuggu á gisti- heimilum, 134 í óöruggu húsnæði og 43 á áfanga- og langlegudeildum. Á móti hverri konu reyndust þrír karlar á listanum í búsetuhallæri en það gerðist hlutfallslega helmingi sjaldnar að konur enduðu á gisti- heimili eða á götunni en að karlar gerðu það. í dag rekur Svæðisskrifstofa Reykjavíkur eitt sambýli fyrir geð- fatlaða með næturvalrt. Áuk þess veitir skrifstofan um 15 geðfötluðum einstaklingum þjónustu í 10 félags- legum íbúðum í formi frekari lið- veislu. Annað sambýli fyrir geðfatl- aða er að taka til starfa um þessar mundir en þar verður ekki nætur- vakt. Um þessar mundir standa Svæðisskrifstofa Reykjavíkur, Hús- sjóður Öryrkjabandalagsins og Fé- lagsmálastofnun Reykjavíkurborgar að sameiginlegu átaki í búsetumálum geðfatlaðra. Þróunin hefur verið í þá veru að bjóða geðfötluðum sem og öðrum fötluðum sem búa á sam- býlum og/eða í foreldrahúsum upp á einstaklingsíbúðir eða íbúðir með öðrum og þeim veitt nauðsynleg að- stoð. Hið breiða blik Stefnan í búsetumálum fatlaðra hjá Svæðisskrifstofu Reykjavíkur er fjölbreytni í úrræðum; að geta boðið sem flestum skjólstæðingum upp á búsetuúrræði eftir þörfum og óskum hvers og eins. Við höfum kallað þessa framtíðarsýn Breiðablik og lítum svo á að hér sé um framhald að ræða af hugmyndafræðinni um blöndun (normalíseringu). I framtíðinni verður vonandi hægt að bjóða einstaklingum upp á fleiri úrræði og þá af margvís- legri toga en nú tíðkast. Nýverið hefur verið gerður þjón- ustusamningur milli Svæðisskrif- stofu málefna fatlaðra í Reykjavík og Félagsmálaráðuneytisins annars vegar og Geðhjálpar hins vegar um rekstur áfangastaðar sem mótaður er að þörfum geðfatlaðra einstakl- inga með atferlisfrávik. Tíu einstakl- ingar hafa nú fengið húsnæði á þess- um áfangastað og um 30 til viðbótar fá stuðningsþjónustu sem m.a. miðar að því að aðstoða viðkomandi við að komast i húsnæði. Ljóst er að mikið vantar enn upp á að þjónusta við geð- fatlaða sé fullnægjandi. Áfangastaðir nýtast ekki sem skyldi þegar varanleg búsetuúrræði eru ekki til staðar. At- hugum það sem vantar strax í uppbyggingu á þjónustu við geðfatlaða: • Mikill skortur er á hefðbundnum sambýl- um með næturvakt fyr- ir fólk sem er illa sjálf- bjarga vegna geðfötl- unar. • Það vantar fleiri félagslegar íbúðir. Einnig mætti gefa geð- fötluðum kost á og tækifæri til að eignast eigin íbúð. • Sumar íbúðir gætu verið í nánum tengslum við geðsambýli. Þannig skapast visst öryggi og minni hætta er á félagslegri einangrun. • Eins er þörf á sérbýlum, eða sam- býlum þar sem hvert herbergi er í raun íbúðarígildi með eldhúskrók og snyrtiaðstöðu. Þessi lausn virð- ist henta ýmsum geðfötluðum skjólstæðingum. • Af geðfötluðum í reiðileysi virðast ýmsir vera vímuefnaneytendur. Hefðbundnum úrræðum fylgja skilyrði. Úrræði eins og gistiheim- ili þar sem einungis væri boðið upp á næturgistingu og menn ættu aðgang að þrátt fyrir að vera undir áhrifum myndi ekki Mikið vantar enn upp á, segir Loftur Reimar Gissurarson, að þjón- usta við geðfatlaða sé fullnægjandi. Staða geðverndar- mála barna og unglinga ÁSTÆÐA er til í tengslum við alþjóð- legan geðverndardag 10.10. 1995 að gera nokkra grein fyrir stöðu geðverndarmála þegar um er að ræða þjónustu við börn og unglinga, sem eru jú tæpur þriðjungur þjóð- arinnar. Það er skemmst frá því að segja að sú þjónusta sem heilbrigðiskerfið hefur upp á að bjóða fullnægir á engan hátt þeirri þörf sem er til staðar. Því miður er það ekki svo að önnur Valgerður Baldursdóttir un deildanna og losað- ur þannig mannafli upp á tvo til þijá fag- menn til þess að sinna göngudeildarþjónustu fyrst og íremst. Eftir sátu deildirnar með mjög lítinn sérhæfðan starfskraft. Sú þróun hefur átt sér stað alls staðar í sjúkrahúskerfinu að legutími hefur styst og stærri hluti þjón- ustunnar fer fram án þess að um sólar- hringsinnlagnir sé að ræða. Ýmis ný úrræði hafa komið til á undan- leysa vanda þessa fólks, en það fengi a.m.k. gistingu og hægt væri að fylgjast með því. • Reynslan sýnir að sumir einstakl- ingar eru það atferlistruflaðir og ógnandi að þeir taka litlum sem engum sönsum. Þetta fólk hlítir ekki reglum eða skilyrðum, of- sækir aðra og ögrar umhverfinu. Það er tímaspursmál hvenær það mun skaða aðra. Ekkert úrræði er til fyrir þessa einstaklinga. Sogn getur ekki tekið við þessum mönnum því þeir hafa enn ekki brotið af sér. Lítill vafí leikur á því að hér þarf að koma til lokað meðferðarheimili. • Loks ber að nefna áfallahjálp fyr- ir aðstandendur. Þegar geðfatlað- ur einstaklingur verður alvarlega veikur heima hjá sér lenda flestir aðstandendur í stökustu vand- ræðum við „apparatið". Mikil- vægt er að hefjast handa við að móta hugmyndir um sólarhrings áfallahjálp fyrir aðstandendur þar sem þeir geta haft aðgang að teymi sem er í tengslum við lög- reglu og geðdeildir og veitt getur ráðgjöf og aðstoð við slíkar að- stæður. Það er alveg ljóst að úrræðin sem eru fyrir hendi í dag eru alltof fá og taka ekki til nema hluta af þeim vandamálum og þörfum sem geðfatl- aðir hafa og aðstandendur þeirra. Hið breiða blik þarf að koma til — til að mæta ólíku fólki og ólíkum þörfum. Ótalin eru öll þau verkefni er tengjast dagvistarúrræðum, at- vinnumálum og tómstundum geðfatl- aðra, en þar er næstum óunnið verk- efni fyrir höndum. Höfuiidur er yfirsálfræðingur á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík kerfí sem koma að málefnum bama geti bætt upp þá þjónustukreppu sem ríkir J heilbrigðiskerfínu, því þau eiga einnig fullt í fangi með að sinna sínum hlutverkum. Rétt er að gefa nokkra mynd af þeirri einu stofnun sem ætlað er að sinna geðheilbrigðismálum bama, en það er Bama- og ungl- ingageðdeild Landspítala. Deildin á 25 ára afmæli um þessar mundir. Hún var sett á laggirnar einkum til að mæta meðferðar- og vistunar- þörf alvarlega veikra barna. Skipu- lag hennar frá upphafí hefur verið í samræmi við hina hefðbundnu sjúkrahúsfyrirmynd, þar sem sjúkl- ingurinn leggst inn til rannsóknar og meðferðar og er síðan útskrifað- ur með eftirfylgd í skamman tíma, eins og gerist á þeim sjúkrahúsum sem fást fyrst og fremst við líkam- lega sjúkdóma. Stofnunin mætti þeim vanda sem við var að etja fyrir 25 árum, en fljótlega fór þörf- in fyrir göngudeildarþjónustu fram úr því sem hún gat annað með góðu móti. Oft er þörf fyrir vinnslu mála jafnvel til lengri tíma án þess að innlögn sé nauðsynleg. í reynd er þessi tegund þjónustu sú sem heppilegust er í flestum málum sem berast til stofnunarinnar, en ein- göngu ætti að grípa til innlagnar ef annað þrýtur. Þessi aukna ásókn í göngudeildarþjónustu varð fljót- lega til þess að dregið var af mönn- förnum árum sem gerir þá þróun mögúlega að nýta enn betur en áður dýr sjúkrarými. Þetta hefur einnig gerst þegar um böm og ungl- inga er að ræða með geðræn vand- kvæði. Áður dvaldi til dæmis viss hópur bama oft lengi inni á deildun- um, jafnvel allt upp í nokkur ár. í dag fer þjónustan við sama hóp oftast fram án innlagnar. Þetta þýðir að undanfarin ár hefur gegn- umstreymið um leguplássin aukist, en eins og gefur að skilja kallar það á aukinn mannafla, sem hefur látið á sér standa. Þjóðfélagsbreytingar undanfar- inna 30 ára hafa haft í för með sér aukið álag á líf bama. í nágranna- löndum okkar hefur þjónusta, sam- bærileg við þá sem hér um ræðir, vaxið jafnt og þétt til að mæta aukinni þörf einkum fyrir göngu- deildarþjónustu, sem er og verður minna sýnileg en almennt gerist um þörf fyrir heilbrigðisþjónustu. Bama- og unglingageðdeild Land- spítalans er að mestu í sömu sporum og fyrir 25 ámm, ef frá er talin legudeild sem opnuð var fyrir ungl- inga árið 1987. Hvorki sú deild, né þær sem fyrir voru, hafa haft mann- afla til að fylgja eftir nema hluta þeirra sem lagst hafa inn á deildim- ar. Enn þann dag í dag hafa ekki komið stöðugildi sem sérstaklega er ætlað að sinna göngudeildar- vinnu, sem sýnir sig meðal annars Barna- og unglingageð- deild Landspítala er eina stofnunin hér á landi, segir Valgerður Bald- ursdóttir, sem ætlað er að sinna geðheilbrigðis- málum bama. í því að við komumst ekki í snert- ingu við nema um tíunda hluta þeirra bama sem nágrannaþjóðir okkar telja nauðsynlegt að fái þjón- ustu á svona göngudeildum, og hafa þó upp á að bjóða umfangs- meiri þjónustu við börn á öðmm sviðum. Bama- og unglingageðdeild hef- ur hafíð innri skipulagsbreytingar sem einkum snúast að því að aðlaga flölda leguplássa þeim mannafla sem við höfum til að sinna innlögð- um bömum. Þetta þýðir í reynd fækkun leguplássa. Eftir situr að auka fjölda fagfólks til að sinna göngudeildarstarfsemi. Hér er í gangi mjög mikilvæg fagleg þróun meðal annars hvað varðar þjónustu við ofvirk'böm. Sú sérhæfíng sem á sér þannig stað, fer að miklu leyti fram í frítima starfsfólks. Við höf- um ýtt þessari þjónustu úr vör, en komum aðeins til með að sinna fá- mennum hópi við núverandi að- stæður. Margir fleiri hópar þurfa sárlega á þjónustu að halda, svo sem börn sem hafa orðið fyrir hvers kyns ofbeldi, andlegu, líkamlegu og kynferðislegu. Hér er mikill vilji til að þróa sérhæfð meðferðartilboð fyrir þessa hópa. Þjónustukreppan, sem felst í vöntun á fleiri stöðugild- um fagfólks, er því miður stað- reynd, en það geta bæði samstarfs- aðilar og foreldrar borið vitni um, enda þótt málið sé þeim of við- kvæmt til að bera það á torg. Höfundur er yfirlæknir á Barna- og unglingageðdeild Landspítala. I Við byggjum upp fðlk og fóUdð byggir upp fyrirtœkin I Dale Carnegie® námskeiðið kjálpcir þér að: • Verða hœfari í starfi. • Öðlast meiri eldmóð. I • Verða hetri í mannlegum samskiptum. • Losna við áhyggjur og kvíða. • Skerpa minnið. • Verða hetri rœðumaður • Setja þér markmið. KYNNINGARFUNDUR MIÐVIKUDAG KL. 20:30 AÐ SOGAVEGI 69, REYKJAVÍK FJÁRFESTING í MENNTUN SKILAR ÞÉR ARÐIÆVILANGT Innritun og upplýsingar í síma: Dale Camegie® þjálfunin hefur nýst mér vel bœði í starfi og með fjöbkyldunni. Eg skipulegg tima minn betur en áour og afköstin hafa aukist til muna. Auk þess skilar þjálfunin sér í meira sjálfsöryggi og þar með meiri vellíðan. Jón Sigfússon. Bóksali. Á Dale Camegie® námskeiðinu hlaut égþjálfun í að tjá mig af einlægni og öryggi, vera ég sjálf. Það hefur margfaldað árangur minn í vinnu og i félagsstani. Best var þó að uera leiðir tiíað njóta þess að vera til. Þetta erfrábær þjálfun. Fríður Birna Stefánsdóttir. Sölu- og markaðsstjóri. I I 5812411 r Dale Carnegie* Þjálfun Fólk-Árangw-Hagmður. Einkaumboð á íslumli O STJÓRNUNARSKÓLINN Konráð Adolplisson Mikill uppgangur hefur verið i fyrirtækinu sem égstjóma og þakka ég það m.a. Dale CamegieíB námskeiðinu sem égsótti. Hjá minu fyrirtceki er öllum gefinn kostur á slíku námskeioi þar sem mannleg samskipti eru gifuriega mikuvæg i allri þjónustustarfsemi. Ómar Sigurðsson. Iramkvœmdastjóri. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.