Morgunblaðið - 10.10.1995, Page 35

Morgunblaðið - 10.10.1995, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 35 + Ingibjörg S. Jó- hannesdóttir fæddist á Hallbjarn- areyri í Eyrarsveit á Snæfellsnesi 12. maí 1918. Hún Iést á Borgarspitalanum 3. október síðastiið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðjón Jóhannes Jónsson, bóndi, f. 29.7. 1893, d. 11.10. 1947 og Guðríður Sigurðardóttir, f. 3.6. 1891, d. 17.9. 1985. Systir Ingi- bjargar er Una, f. 3.1. 1924, búsett í Bandaríkjun- um. Bróðir hennar var Magnús, f. 13.4. 1928, d. 3.3. 1948. Ingibjörg giftist Þórði I. Þórðarsyni hinn 9. september 1945. Börn þeirra eru Jóhannes í DAG er kvödd hinstu kveðju Ingi- björg tengdamóðir mín og aðeins ljúfar minningar koma upp í hugann er ég hugsa til baka þau 35 ár sem við höfum átt samleið, og er mér efst í huga allar þær góðu viðtökur, gestrisni og hlýhugur í minn garð frá fyrstu tíð, og ekki var það verra þegar við uppgötvuðum að við vorum úr sömu sveit og höfðum um ýmis- legt að ræða um menn og málefni sem tengdust Grundarfirði. Æskustöðvarnar voru svo ofarlega í huga hennar. Inga, eins og hún var kölluð, fluttist til Reykjavíkur rúm- lega tvítug að aldri og vann hin ýmsu störf. Hún giftist Þórði í. Þórð- arsyni og áttu þau þrjú böm. Fljót- lega byggðu þau sér sitt eigið hús- næði á Sogavegi 152. Eftir nokkurra ára hjúskap slitu þau samvistir. Um Guðmundur, f. 1. júní 1943, Huida Magnea, f. 28. júní 1944, gift Þorvaldi Þórðarsyni, og Jóna Guðríður, f. 4. mars 1950, gift Þorsteini Eyjólfs- syni. Ingibjörg og Þórður slitu sam- vistir 1958. Ingi- björg starfaði á Alafossi á sínum yngri árum, en síð- ar vann hún í Sænsk-íslenska frystihúsinu og á Kleppsspítalanum. Hún bjó lengst af á Sogavegi 152 en hin síðari ár á Klepps- vegi 28. Utför Ingibjargar fer fram frá Áskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. þær mundir hófst mjög erfiður tími í hennar lífí, þar sem hún var orðin aðalfyrirvinna heimilisins, langur vinnutími í erfíðri vinnu. Komu þá enn betur í ljós þrautseigjan og seigl- an, sem alla tíð einkenndu hana, ásamt mikilli ábyrgðartilfínningu. Móður sína tók hún að sér og sá um hana í 37 ár. En með útsjónarsemi og dugnaði gekk allt upp. Inga var einstaklega róleg mann- eskja, hafði yfirvegaða og hlýja framkomu og gott var að vera í ná- vist hennar. Eins og oft vill verða þegar aldurinn færist yfir vill heilsan bila. Fyrir nokkrum árum fór Inga að fínna fyrir hjartabilun sem var mjög slæm tvö síðustu árin og var hún oft flutt upp á hjartadeild Borg- arspítalans og dvaldi þar meira og minna í sumar. Við aðstandendur hennar þökkum læknum og hjúkrun- arfólki góða umönnun. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Blessuð sé minning þín. Þorvaldur Þórðarson. í dag kveðjum við ömmu og minn- ingarnar um hana eru það eina sem við eigum eftir og eru þær alla góðar. Amma hugsaði alltaf fyrst um aðra, hún var hógvær, hláturmild, geðgóð og blíðlynd og öllum leið vel í návist hennar. Sem börnum fannst okkur gott að koma til hennar, það var svo mikil ró yfír heimilinu, enda dvöldum við þar oft við lestur og leik. Amma hafði alltaf tíma til að spjalla við okkur. Hún unni tónlist og dansi og fór létt með að spila hvað sem var á munnhörpuna sína og ólíkt öðrum ömmum hafði hún jafnvel gaman af hörðu rokki. Hún kunni öll lög og texta og var einstaklega lagviss. Elsku amma, nú er einni perlunni færra í kringum okkur, við kveðjum þig með söknuði og ást. Hvíldu i friði. Inga, Einar og Linda. Okkur systumar langar til að minn- ast ömmu okkar í nokkrum oi-ðum. Núna er hún elsku amma dáin eftir erfið veikindi. Við sitjum hérna saman og rifjum upp hvað það var gaman að koma í heimsókn til ömmu, einkum þegar við vomm litlar. Þar var svo margt spennandi að leika sér með og byggðum við þar margar spilaborgirnar. Það sem einkenndi hana ömmu okkar var hlýja og lífs- gleði. Hún hafði einlægan frásagn- arstíl og hafði gaman af að segja okkur frá hinum ýmsu atvikum sem hentu hana. Þegar við síðan hugsum til baka er það hláturmildi hennar sem stendur upp úr. Hvíl þú í friði, elsku amma. Eins og faðir sýnir miskunn bömum sínum, eins hefur Drottinn sýnt miskunn þeim er óttast hann. Því að hann þekkir eðli vort, minnist þess að vér emm mold. (Sálmur) Kolbrún, Hrafnhildur og Berglind. Ingibjörg Sigríður var heitin eftir móðurforeldrum sínum, þeim Ingi- björgu Hákonardóttur og Sigurði Guðmundssyni, ábúendum á Ber- serkjahrauni í Helgafellssveit. Inga var hún ætíð kölluð. Hún bar yfirbragð móðurfólks síns, var hæglát' og ljúflynd í allri umgengni, brosmild og stutt í hlát- urinn. Inga var fædd að vori, fyrsta barn foreldra sinna, sem þá höfðu hafið búskap á Hallbjarnareyri þar sem þau bjuggu alla tíð. Sængurlega móðurinnar var ekki löng, aðeins þrír dagar, því að mörgu þurfti að hyggja, vorverk stóðu fyrir dyrum og einyrkjahjón urðu að treysta á sjálf sig. Ung að árum fór Inga að taka fullan þátt í bústörfum. Hún var orðin fullgildur sláttumaður um fermingu, en það gat verið erfitt verk að standa liðlangan daginn við orfið. Önnur störf vann hún af sömu elju, jafnt úti sem inni. Rúmlega tví- tug hleypti hún heimdraganum og hélt til Reykjavíkur. Þar vann hún ýmis störf, meðal annars var hún ráðskona í verbúð suður með sjó. Þetta starf heyrir nú sögunni til. Inga var eftirsóttur vinnukraftur venga þes hve vandvirk hún var og velvirk. Hún starfaði um áraraðir í býtibúri eldhússins á Kleppi og jafn- framt sinnti hún börnum og aldraðri móður sinni, en hún bjó hjá henni frá árinu 1948 og til dauðadags 1985. Guðríður var við rúmið síðustu tuttugu og fimm árin sem hún lifði. Inga stundaði móður sína af mikilli ósérhlífni og alúð. Hún gat sjaldan farið af bæ vegna fötlunar móður sinnar. Mjög kært var með Ingu og bömum hennar. Jóhannes sonur hennar bjó með henni síðustu árin. Hann var móður sinni miki! stoð og dætumar voru ekki síðri. Inga barðist við erfíðan hjartasjúkdóm síðastliðin fímmtán ár og var oft hætt komin. Inga var einkar ljúf og hljóðlát koná. Ég man aldrei eftir því að hún hækkaði róminn, en hún stóð fast á meiningu sinni ef því var að skipta. Heimiii hennar bar snyrtimennsku hennar vott. Þar var alltaf allt hreint og i röð og reglu og andinn þar var svo góður að manni leið strax. vel þegar inn var komið. Inga varð fyrir þeirri þungu sorg að missa föður sihn og bróður með nokkurra mánaða millibili. Faðir hennar var hlýr maður og glaðlynd- ur. Hann varð bráðkvaddur við vinnu sína úti í skemmu í október 1947, og hjá honum var þá Jóhannes, son- ur Ingu, aðeins fjögurra ára gamall. í mars 1948 dreymdi Ingu fyrir láti bróður síns. Hann lést í hörmulegu bílslysi 3. mars 1948, aðeins nítján ára gamall. Hann var þá heitbundinn og lét eftir sig eina dóttur, Guðnýju. Milli Ingu og Unu systur hennar hefur ætíð verið mjög kært. Una giftist William Antrim árið 1947 og hefur alla tíð síðan búið í Bandaríkj- unum. Hún á tvo syni og hefur rækt- að samband sitt við ættingja og vini á Fróni. Þær mæðgur, Guðríður og Inga, voru miklar hannyrðakonur og sátu sjaldan auðum höndum. Inga sýndi mér alltaf mikla elsku- semi. Hún var mér ætíð sem stór' systir frá því ég dvaldi á heimili for- eldra hennar sem bam. Feður okkar voru bræður og milli þeirra voru sterk og innileg ættartengsl sem við börnin þeirra nutum óspart. Inga og Þórður, maður hennar, bjuggu um tíma á heimili foreldra minna og þar fæddist Hulda dóttir þeirra, okkur systrunum til mikillar ánægju. Ég vil þakka minni elskulegu frænku fyrir ástúð og hlýju í minn garð. Innilegar samúðarkveðjur til afkom- enda hennar og systur. Guðlaug Hraunfjörð. INGIBJORG S. JÓHANNESDÓTTIR LyklaborðsskútÍHr kr. 1.900,- Skjásíur kr. 3.990,- Videó- og sjónvarpskort kr. 33.990,- llarðir diskar frá kr. 15.393,- Uisklingar í plasthulstri kr. 816,- Við erum í Mörkinni 0 • Sími 588 2001 • Fax 588 2062 BGDEIND Ontiqucst verð launaskjái r 15" kr. 37.180,- 17" kr. 65.953,- Internettenging og mótald frá kr. 8.881,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.