Morgunblaðið - 10.10.1995, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Ferdinand
... og tilfinningin sem það veitir,
að vita, að maður hafi flutt
sandinn í sinn eigin sandkassa...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjávík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Kópavogskirkja
— vetrarstarf
Frá Ægi Fr. Sigurgeirssyni:
VETRARSTARF Kársnessóknar í
Kópavogi er hafið og verður það
fjölbreytt og líflegt í vetur eins og
undanfarin ár. Hér á eftir verður
gerð grein fyrir helstu þáttum þess.
Guðsþjónustur
Guðsþjónustur eru í Kópavogs-
kirkju alla sunnudaga kl. 11. Kór
kirkjunnar syngur við guðsþjón-
ustumar en stjórnandi hans og org-
anisti er Örn Falkner.
Kyrrðar- og bænastundir
Alla miðvikudaga eru kyrrðar-
og bænastundir í kirkjunni kl.
17.30. Þar er lögð áhersla á helgi,
kyrrð og fyrirbæn. Fyrirbænaefn-
um má koma til sóknarprests eða
kirkjuvarðar í síma 554-1898 kl.
11.30-17, þriðjudaga og föstu-
daga.
Barnastarf
Bamastarf Kársnessóknar er i
Safnaðarheimilinu Borgum á
sunnudögum kl. 11 og em foreldrar
hvattir til þátttöku með bömum
sínum. Þegar jólin nálgast verður
m.a. boðið jólaföndur. Börnin í
bamastarfinu taka þátt í íjölskyldu-
guðsþjónustum í Kópavogskirkju
sem eru mánaðarlega yfir veturinn.
Þar syngja þau og setja sinn
skemmtilega svip á guðsþjón-
ustumar. Börn úr Skólakór Kárs-
ness taka einnig þátt í fjölskyldu-
guðsþjónustunum en stjórnandi
þeirra er Þórunn Björnsdóttir kór-
stjóri. Umsjón með barnastarfi hafa
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir og
Vilborg Ólafsdóttir en undirleik
annast Edda Borg.
8-9 ára starf
í vetur er í fyrsta skipti boðið
sérstakt starf fyrir börn á aldrínum
8-9 ára. Samverur þeirra verða í
Safnaðarheimilinu Borgum á
fimmtudögum kl. 16.45-18.
Áhersla verður lögð á þroskandi og
uppbyggilegt starf. Umsjón hafa
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir og
Óskar Óskarsson.
10-12 ára starf (TTT)
Undanfarin ár hefur verið mjög
góð þátttaka í starfí 10-12 ára
krakka og vona ég að svo verði
áfram. Samverur þeirra verða í
Safnaðarheimilinu Borgum á
fimmtudögum og hefjast kl. 18.
Umsjón hafa Dóra Guðrún Guð-
mundsdóttir og Óskar Óskarsson.
Mömmumorgnar
Á þriðjudögum kl. 10-12 koma
mæður saman í Borgum með börn
sín og eiga notalega stund saman
yfír kaffíbolla. Öðru hveiju koma
gestir í heimsókn, flytja erindi eða
miðla fróðleik á annan hátt. Þrátt
fyrir að nafnið mömmumorgnar
höfði fremur til mæðra en feðra þá
eru þeir að sjálfsögðu velkomnir.
Umsjón hefur Sigríður Baldursdótt-
ir.
Starf með eldri borgurum
Eins og undanfarin ár verður
starf með eldri borgurum í Safnað-
arheimilinu Borgum á fimmtudög-
um kl. 14-16.30. Boðinn er akstur
til og frá heimili. Umsjón hafa
Margrét Sigtryggsdóttir og Sigríð-
ur Baldursdóttir.
Fræðslufundir — Biblíulestrar
Fræðslunefnd Kársnessóknar
mun í vetur eins og undanfarna
vetur beita sér fyrir fræðslufundum
um áhugaverð og uppbyggileg efni.
Fræðslufundirnir verða að venju í
Safnaðarheimilinu Borgum og
verða þeir auglýstir sérstaklega
hveiju sinni svo og annað fræðslu-
starf á vegum sóknarinnar þ.m.t.
Biblíulestrar.
ÆGIR FR. SIGURGEIRSSON
sóknarpregtur.
Klámbrandarar
og aulahúmor
Frá Bjarka Bjarnasyni:
SKEMMTIKV ÖLD var haldið í Rós-
enbergskjallaranum þann 29. sept-
ember sl. á vegum Fjölbrautaskól-
ans í Garðabæ. Ég var þar staddur
í hópi nemenda minna og hlustaði
á gamanmál þeirra Radíus-bræðra.
Þeir félagar eru sæmilegir leikarar
en því miður komast þeir sjaldan
upp úr nærbuxunum og aulabrand-
arar þeirra einkennast oft af klámi,
mannfyrirlitningu og guðlasti.
Davíð Þór Jónsson stud.theol.
velti til dæmis vöngum yfir því
hvort María mey hefði orðið þunguð
af völdum asna og Steinn Armann
gaf nemendum gott ráð til að koma
í veg fyrir þungun, og lýsti hvernig
það væri gert á mjög klámfenginn
hátt.
Þessir listamenn(?) gætu kannski
gert það gott einhvers staðar, en á
almennum mannamótum eru þeir
ekki gjaldgengir að mínu mati. Og
gjaldið? Fyrir „skemmtunina" tóku
þeir 50 þúsund kall. Látum ekki
lélega og óprúttna klámkalla hafa
okkur að féþúfu með „skemmtisög-
um“ sem eru ekki fimm aura virði.
BJARKI BJARNASON,
kennari við Fjölbrautaskólann í
Garðabæ.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.