Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 18
18 D FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins hafði 1. október reitt af hendi húsbréf fyrir 8,8 milljarða króna en í ár hefur stofnunin heim- ild til að gefa út húsbréf fyrir 13 milljarða. Sigurður E. Guðmunds- 'son framkvæmdastjóri stofnunar- innar sagði á öðrum ársfundi stofnunarinnar sem haldinn var sl. þriðjudag að sú ákvörðun að gefa út tvo flokka húsbréfa hefði átt þátt í hnökralausu starfi hús- bréfadeildar og hún hefði verið jöfn og þétt allt árið. Páll Péturs- son félagsmálaráðherra sagði að gert væri ráð fyrir 13,5 milljarða króna húsbréfaútgáfu næsta ár sem hann taldi duga þrátt fyrir breytingar á kerfínu vegna þess að eldri húsbréf væru orðin veru- legur gjaldmiðill í viðskiptum með eldra húsnæði og að líkur væri að draga myndi úr nýbyggingum. Auk Páls og Sigurðar fluttu erindi á ársfundinum þeir Hákon Hákon- arson formaður húsnæðismála- stjómar og Stefán Thors skipu- lagsstjóri. Um síðustu áramót námu heild- arútlán Húsnæðisstofnunar 169,1 milljarði króna að teknu tilliti til afskriftareiknings og áfallinna vaxta. Til samanburðar má geta þess að heildarútlán allra innláns- stofnana á landinu í dag nema um 213 milljörðum króna, sagði Sig- urður E. Guðmundsson meðal ann- ars í erindi sínu. Fjöldi lána er 132 þúsund og greiðendur eru 56 þús- und talsins. Sigurður vakti athygli á skýrslu sem Jón Rúnar Sveins- son tók saman fyrir stofnunina um þróun á byggingarstarfsemi og framvindu á fasteignamarkaði árin 1988 til 1994 en hún var lögð fram á fundinum. Kemur fram í henni að opinbert húsnæðislána- kerfí hefði tryggt nokkum veginn jafna og samfellda húsbyggingar- starfsemi hérlendis undanfarin sjö ár á sama tíma og einkarekin húsnæðislánakerfí í Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku hafa ekki ráðið við að halda uppi jafn öflugri íbúðabyggingastarfsemi og áður var meðan þau vom ríkisrekin. A áranum 1990 til 1994 hefur ný- byggðum íbúðum fækkað um rúm 50% í Danmörku, um tæp 60% í Finnlandi og um 63% í Svíþjóð. Sagði Sigurður þessar tölur stað- festa gildi þeirrar stefnu sem rek- in hefði verið hér á landi og þýð- ingu hennar fyrir byggingariðnað- inn. Halda uppi atvinnu í byggingariðnaði Þá gerði Sigurður að umtalsefni þá skoðun talsmanna byggingar- iðnaðarins sem oft heyrðist í Qölmiðlum að besta ráðið til að auka almennar húsbyggingar væri að draga stórlega úr byggingu félagslegra íbúða, þá muni allt falla í ljúfa löð. „Sannleikurinn er þó sá, að það era einmitt íbúða- byggingar á vegum félagslegra framkvæmdaaðila, sem hafa í ríkum mæli haldið uppi atvinnu í byggingariðnaðinum um land allt, síðustu árin. Hafa byggingaverk- takar vitaskuld notið þess í ríkum mæli. Oðram húsbyggingafram- kvæmdum virðist hins vegar hafa hnignað, bæði á vegum ein- staklinga og byggingarfyrirtækja, sem reist hafa íbúðir til sölu á almennum markaði. í því sam- bandi er vert að hafa í huga verðhran það, sem orðið hefur á almennum íbúðum í dreifbýli og virðist fremur hafa aukist en hitt. í mínum huga er engin spurning um að það lága íbúðaverð, sem víða'er fyrir hendi af völdum þess, hefur örðu fremur orðið til að grafa undan byggingariðnaði mjög víða í dreifbýli. Hefði bygging félagslegra íbúða ekki átt sér stað væri byggingastarfsemi í dreifbýli sennilega mjög víða úr sögunni. Og almennt séð eiga þær stóran þátt í því, að byggingariðnaðinum hefur, þrátt fyrir allt, tekist að halda miklu betur í horfínu hér á þrotaleiðin. Lánardrottni kemur betur að fá hluta skuldar en ekki neitt og sálræn áhrif gjaldþrots era ekki góð fyrir skuldara og fjöl- skyldu hans. Samkvæmt upplýs- ingum héraðsdóms Reykjavíkur greiðist ekkert upp í kröfur 99% þrotabúa.“ Félagsmálaráðherra sagði að líkur væru á að kveðnir verði upp hálft sjötta hundrað gjaldþrotaúr- skurða á þessu ári, í lok ágúst hefðu þeir verið orðnir 326. „Gjaldþrotabeiðendur greiða 150 þúsund eða um 80 milljónir á ári. Ríkissjóður greiðir 80% þess kostnaðar og fær ekkert í staðinn í 99% tilvika. Það er mikil góðsemi við lögfræðinga," sagði ráðherr- ann. 200 óseldar félagsíbúðir Hákon Hákonarson formaður húsnæðismálastjórnar sagði að í viðræðum við sveitarstjómarmenn hefðu komið fram áhyggjur þeirra af endursölu á félagslegum eignar- íbúðum. „Líklegast er að minnkandi ráðstöfunartekjur margra heimila ásamt hækkun vaxta í félagslega kerfinu úr 1% í 2,4% geri það að verkum að nú sé orðið erfítt fyrir sumar fjölskyldur að búa í félagslegum eignaríbúðum. Þá hefur einnig verið rætt opinberlega um mis- munandi húsnæðiskostnað þegar bornar eru saman íbúðir sem era í Búsetakerfínu annars vegar og þeirra sem búa í félagslega eignar- íbúðarkerfínu hins vegar. Sumir hafa gengið svo langt að tala um óeðlilega mismunum á milli þegn- anna eftir því í hvaða kerfí þeir hafa valið sér að búa. Sjálfsagt er að skoða þessi mál og ef til vill fleiri þætti svo fljótt sem auðið er en leggja verður ríka áherslu á ábyrgð sveitarfélaga og félagasamtaka sjálfra í málinu, sem er sú að haga framkvæmdum við öflun félagslegs húsnæðis með þeim hætti að þau komist ekki í þrot með íbúðimar þegar á móti blæs um stundarsakir. í lauslegri athugun félagsíbúðadeildar á þessu vandamáli í ágúst s.l. kom í ljós að í heildina hefur sveitarfé- lögum ekki tekist að selja um 200 eignaríbúðir og þar af stóðu um 60 íbúðir auðar.“ Nauðsyn að efla rannsóknir Stefán Thors ræddi í erindi sínu um skipulagsmál til framtíðar. Sagði hann sérfræðinga velta mjög fyrir sér hvaða áhrif fólksfjölgun muni hafa í heiminum eftir 50 ár. Á sama hátt þyrftu sveitarstjómir að velta fyrir sér hvemig á 20 til 30 árum mætti t.d. draga úr þörf á einkabíl. „Það er ljóst að langan tíma tekur að breyta því byggða umhverfí sem við höfum í dag og aðlaga það betur hugmyndum um sjálfbæra þróun. Til þess að það geti orðið mögulegt þarf að horfa til lengri tíma og gera langtímaáætlanir. Til að ýta undir slíkar áætlanir þarf að skapa nýja framtíðarsýn sem hvorki er bundin af skamm- tímasýn eða tæknilegum tak- mörkunum. Hvaða möguleika býður það t.d. upp á að ísland skuli liggja mitt á milli Evrópu og Ameríku? Hefur strjálbýli á íslandi hugsanlega einhveija kosti sem mætti nýta á hagkvæmari hátt?“ Stefán sagði nauðsynlegt að auka rannsóknir, samræmda þær og gerða aðgengilegar fyrir sveitarstjómir og hönnuði til að stuðla að því að skipulagsáætlanir verði byggðar á íslenskum aðstæð- um og að hönnun íbúða miðist við raunveralegar þarfír. í lokin greindi hann frá fyrirhugaðri ráð- stefnu eða skipulagsþings á næsta ári og hugmyndasamkeppni um ísland árið 2018 þegar öld er liðin frá fullveldisstofnun. Verður þátt- takendum þar ætlað að fjalla um landnotkun, byggð og búsetu eða einstaka þætti sem fjalla um skipulagsmál. Húsnæðisstofnunar ríkisins í vikunni. Jóhannes Tómasson kynnti sér efni erindanna sem m.a. fjölluðu um væntanlegar aðgerðir ríkis- stjómarinnar og framtíðarsýn í skipulagsmálum. Morgunblaðið/Kristinn ÁRSFUNDUR Húsnæðisstofn- unar rikisins var ágætlega sótt- ur. Formaður húsnæðismála- stjómar ræddi nui. vanda sumra sveitarstjóma vegna óseldra félagslegra eignar- íbúða. landi, síðustu árin, en gerst hefur í nágrannalöndunum." Páll Pétursson félagsmálaráð- herra sagði frá stefnu og aðgerð- um í húsnæðismálum á komandi vetri sem eru m.a. að auka sveigj- anleika í húsbréfakerfínu með því að bjóða uppá 15 og 40 ára lán auk 25 ára lánanna, verið væri að semja framvarp til laga um skuldaaðlögun, endurskoða þyrfti félagslega húsnæðiskerfið og að lækka ætti viðmiðunarmörk vegna húsbréfalána til endurbóta úr 1.080 þús. kr. í 500 þúsund krón- ur. Þá sagði hann það í undirbún- ingi að skipa nefnd til að kanna kosti þess að flytja húsnæðislána- kerfíð til bankakerfísins. Ekki reynst efnalitlu fólki skjól Um félagslega húsnæðiskerfíð sagði ráðherrann: „Það hefur ekki reynst efnalitlu fólki það skjól sem því var ætlað að vera. Ibúðimar hafa orðið of dýrar, eignamyndum íbúa mjög hæg, þeir hafa átt bágt með að standa undir lánunum og gefíst upp og látið sveitarfélögin yfírtaka þær. Kaupskyldan er að sliga mörg sveitarfélögin og fjöldi félagslegra íbúða stendur auður víða um land. Ég sé ekki önnur ráð skárri til að færa þær niður í verði en að afskrifa hluta lánanna þannig að þær verði seljanlegar á almennum markaði eða sveitar- félögunum verði unnt að reka þær sem leiguíbúðir með hóflegri leigu,“ sagði ráðherrann en nefnd er nú að störfum í málinu í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga. „Ég tel að við ættum að fara okkur hægar við byggingu félagslegra íbúða í bili enda ásóknin mjög að minnka í þær. Hinsvegar þarf greinilega að styrkja leigu- markaðinn þannig að leiguíbúðir verði aðgengilegri kostur. Einnig tel ég að huga þurfi betur að búseturéttarkerfinu.“ Um lagaframvarp um skulda- könnun sagði ráðherrann: „Þar verður um að ræða að veita ein- staklingum sem eiga í alvarlegum greiðsluerfíðleikum möguleika á að koma nýrri skipan á fjármál sín með því að sækja um skulda- könnun og koma þannig á skulda- aðlögun anna hvort með samning- um við lánardrottna (frjáls skulda- aðlögun) eða með staðfestingu héraðsdómara (þvinguð skuldaað- lögun). Við framkvæmd á mark- miðum laganna skal tryggja að viðkomandi skuldari greiði skuldir sínar að því marki sem konum er unnt og gjafnframt að verðmætum í hans eigu verði dreift milli kröfu- hafa. Ég tel að verði þetta að lög- um sé skuldaaðlögunarleiðin miklu skynsamlegri bæði fyrir skuldara og lánadrottna heldur en gjald- Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum Félagslega hús- næðiskerfið endur- skoðað - húsnæðis- kerfið í bankana Fjórir fyrirlesarar ræddu ýmsar hliðar húsnæðismála á ársfundi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.