Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 D 25 4ra hcrb 96 m2 4ra hcrb t 05 rr»2 Komdu við á skrifstofu okkar að Funahöfða 19 eða hringdu í síma 587 3599 Landsbréf gagnrýna verðlagningu eldri flokka húsbréfa FESTING Félag Fasteignasala Kaupverð 7.235.000 Undirritun samnings 200.000 Húsbréf 70% 5.064.500 Lán seljanda' 1.000.000 Við afhendingu 970.500 Meðal greiðslubyrði á mán.“ 37.887 *Veitt gegn traustu fasteignaveði **Ekki tekið tillit til vaxabóta sem geta numið allt að 10-15.000 kr á mán. Kaupverð 7.780.000 Undirritun samnings 200.000 Húsbréf 70% 5.446.000 Lán seljanda' 1.000.000 Við afhendingu 1.134.000 Meðal greiðslubyrði á mán. " 40.176 Armannsfell hf. Funahöföa 19 • sfmi 587 3599 1 9 6 5-1 995 KAUPA FASTEIGN ER ÖRUGG FJÁR- Raöhús 1 50 mz Kaupverð 11.490.000 Undirritun samnings 400.000 Húsbréf 6.468.500 Lán seljanda 1.000.000 Samkomulag 3.621.500 4ra herb íbúöir Vallengi AVÖXTUNARKRAFA hús- bréfa hefur verið áberandi í umræðunni að undanförnu og hafa verðbréfafyrirtækin verið að lækka sig nokkuð á undanförnum tveimur vikum. í nýjasta frétta- bréfi Landsbréfa kemur hins vegar fram gagnrýni á þá venju að ávöxtunarkrafa húsbréfaflokka hækki þegar viðkomandi flokki hefur verið lokað, óháð því hvaða nafnvexti hann ber. Þar er því haldið fram að ávöxtunarkrafan hljóti að miðast við nafnvexti bréf- anna en ekki hvort um opinn eða lokaðan flokk sé að ræða. Hætta á útdrætti ekki nægjanleg rök Óttar Guðjónsson, hagfræðing- ur hjá Landsbréfum, segir að reglulegur útdráttur húsbréfa hafi verið notaður sem fyrirsláttur fyr- ir þessum mun. „Ef fjárfestir á húsbréf með 6,0% nafnvexti, en ávöxtunarkrafan er undir 6% líkt og hún hefur verið að undanförnu, þá tapar sá hinn sami af því að vera dreginn út of snemma, þar sem markaðsvirði bréfanna er lægra en nafnvirði þeirra. Þetta á hins vegar ekki við ef fjárfestir á bréf með 4,75% vöxtum því sá hinn sami híýtur að græða á því að vera dreginn út snemma, miðað við núverandi ávöxtunarkröfu. Okkur fínnst því ekki rökrétt að hækka ávöxtunarkröfuna á bréf- unum eingöngu vegna þess að við- komandi flokk hefur verið lokað.“ Ásgeir Þórðarson, forstöðumað- ur verðbréfamiðlunar VÍB, tekur í sama streng og bætir við að í raun ættu nafnvextir bréfanna ekki að skipta máli hvað þetta varðar. „Fyrir vel dreifðan fjár- festi sem á eitthvert safn af bréf- um í hverjum flokki er meðaltals- ávöxtun pakkans í heild hin sama, að teknu tilliti til útdráttarfyrir- komulagsins, óháð því hvort að nafnvextir bréfanna eru undir eða yfir ávöxtunarkröfunni. Það er því varla hægt að rökstyðja hærri ávöxtunarkröfu á eldri flokkunum og í raun væri auðveldara að rökstyðja að ávöxtunarkrafa þeirra væri lægri þar sem líftími þeirra er styttri, líkt og raunin er með vaxtaferil spariskírteina Rík- issjóðs.“ Minni eftirspurn veldur hærri ávöxtunarkröfu Ingólfur Helgason, forstöðu- maður hjá Kaupþingi, segist sam- mála því að lítil rök séu fyrir hærri ávöxtunarkröfu á lokuðu flokkunum. „Þetta hefur hins veg- ar fyrst og fremst snúist um af- stöðu kaupenda. Staðreyndin er sú að fjárfestar hafa heldur sóst eftir nýrri bréfum heldur en þeim eldri og okkur hefur því hingað til gengið verr að selja þau á sömu ávöxtunarkröfu. Því hafa menn farið út í það að kaupa þessi bréf á hærri kröfu til þess að geta gert þau að betri söluvöru til kaup- enda. Þetta eru þau rök sem liggja að baki verðlagningunni hjá okk- ur.“ Uppgert hús ►ÞESSAR tvær myndir sýna danskt hús sem er einangrað og svo klætt með sér- stökum plötum sem heita Etemit. Veggir hússins voru áður að sögn lekir og illa ein- angraðir og tígul- steinaþakið óþétt. Undurfurðulegir stólar ►þessir stólar eru örðuvísi en aðrir stólar. Fyrirmynd sína sækja þeir i barokktím- ann,hönnuður þeirra er Hanne Marie Leth-Anders- en. Sá til vinstri heitir Commodus en til hægri er Serafina. Stórar íbúðir á viðráðanlegu verði Nýjar fullbúnar íbúðir við Vallengi og Starengi í Grafarvogi Rúmgóðar íbúðir með öllum innréttingum, gólfefnum, sérinngangi, þvottahúsi og frágenginni lóð. Raðhús Starengi Engin rök að baki hærri ávöxtunarkröfu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.