Morgunblaðið - 13.10.1995, Síða 27

Morgunblaðið - 13.10.1995, Síða 27
* MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 D 27 HÚSNÆÐISBYLTINGIN heitir mynd sem Húsnæðis- stofnun ríkisins lét framleiða í tilefni af 40 ára afmæli stofn- unarinnar og var hún frum- sýnd á ársfundinum í vikunni. Þessar myndir er úr afmælis- riti stofnunarinnar sem út kom í vor þegar afmælisins var minnst. Nýjar íbúðir á einum besta stað í Reykjavík i i i » ) ) ) 9 9 9 9 9 9 9 9 k Húsnæðis- byltingin - af- mælismynd Húsnæðis- stofnunar ríkisins Nú stendur yfir sala íbúða í þessu fallega og nýstárlega fjölbýlishúsi í nýja Kirkjutúnshverfinu.* Um er að ræða afar vandaðar íbúðir í vel skipulögðu hverfi miðsvæðis í borginni. Stutt er í helstu verslanir og skóla og íþróttasvæðið í Laugardal er á næsta leiti. Húsið er átta hæða með fjórum íbúðum á hæð og er lyftu og stigagangi komið fyrir í miðju þess með opnu og björtu rými milli hæða. Það verður einangrað að utan, klætt með innbrenndu lituðu áli og gluggar álklæddir að utan þannig að viðhald verður í lágmarki. Svalir eru á öllum íbúðum. AFMÆLISMYND Húsnæðis- stofnunar ríkisins var frum- sýnd á ársfundi hennar síðast lið- inn þriðjudag. Myndin er gerð í tilefni af 40 ára afmæli stofnunar- innar 20. maí. Myndin er rúmlega hálfrar klukkustundar löng og er þar lýst hver hefur verið þróun í húsnæðis- málum, nefndir helstu áfangar og nýjungar sem orðið hafa til að auðvelda íbúðakaup almennings, svo sem samningar um félagslegar íbúðir, kjarasamningar sem ollu tímamóturp varðandi húsnæðismál og fleira. í myndinni er m.a. rætt við Guðmund J. Guðmundsson, Magn- ús L. Sveinsson, Sigurð E. Guð- mundsson og Ólöfu Ríkharðsdótt- ur. Framleiðandi myndarinnar er Myndbær og sá Markús Örn Ant- onsson um hana og þulur er Sigur- jón Fjeldsted. Hugmyndin er að bjóða skólum myndina sem fræðsluefni og einn- ig er í ráði að sýna hana í Ríkis- sjónvarpinu á næstunni. íbúöirnar eru 2ja til 4ra herbergja og verða seldar fullbúnar án gólfefna en baðherbergi verða með flísalögðu gólfi. Allar innréttingar verða íslenskar og mjög vandaðar. íbúðirnar verða afhentar næsta haust og kostar þriggja herbergja meðalíbúð um 8,8 milljónir króna. Kynnið ykkur spennandi húsnæði á frábærum stað! ÍSTAK ÁLFTÁRÓS Sími 562 2700 Sími 564 1340 *Kirkjutúnshverfið markast af Sigtúni í suðri, Nóatúni í vestri, Kringlumýrarbraut í austri og Borgartúni í norðri. Súðavík Frágangur félags- legra íbúða boðinn út ísafjbrður YRIR helgina var hafist handa við að reisa þakviði húsanna sem Loftorka hf. er að byggja í nýrri Súðavík. Að sögn Ágústs Kr. Björns- sonar, sveitarstjóra í Súðavík, var sett upp mjög stíf framkvæmdaáætl- un sem hefur staðist fullkomlega. Búið er að bjóða út frágang húsanna að innan og verða tilboðin opnuð 18. október nk. íbúðunum, sem eru félagslegar íbúðir, hefur ekki enn verið úthlutað til væntanlegra íbúa. Einungis tveir einstaklingar eru að byggja á al- mennum markaði í nýrri Súðavík, en þeir eigendur misstu hús sín í snjóflóðunnm í vetur og hafa fengið bætur fyrir þau. Aðrir Súðvíkingar verða að bíða eftir niðurstöðum Of- anflóðasjóðs um hvort hús þeirra verði keypt eða ráðist í byggingu vamarmannvirkja. „Staðan er sú að við höfum sent stjóm Ofanflóðasjóðs gögn um varn- armannvirki og uppkaup. Þar er ver- ið að meta gögnin en engin niður- staða verið tekin. Við erum að vona að niðurstaða liggi fyrir í þessari viku. Fyrr en þær ákvarðanir koma er ekki möguleiki fyrir fólk að fara af stað með húsabyggingar“, sagði Ágúst. Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson FRAMKVÆMDIR við nýjar félagslegar íbúðir í nýrri Súðavík ganga samkvæmt áætlun og verða íbúðimar tilbúnar fyrir jól.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.