Morgunblaðið - 24.12.1995, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Það eru komin j ól
JÓLIN eiga sér langan aðdrag-
anda og að mörgu þarf að
huga. Ekki eru allir jafn for-
sjálir og kona sem ég þekki,
sem byijar að undirbúa jólin þegar
í janúar. A mínu heimili er það
ekki fyrr en klukkan slær sex á
aðfangadagskvöld sem fólk getur
andað léttar. Þá hefur mikil vinna
verið lögð af mörkum og umbunin
er gómsætasta máltíð ársins, spari-
klæddir pakkar í tugavis, hring-
dans í kringum jólatréð og síðast
en ekki síst ánægjusvipur á andlit-
um bamanna í fjölskyldunni. í mín-
um huga leikur enginn vafi á að
þetta er helgasta stund ársins og
víst er að Andrés H. Valberg er
mér sammála.
Jójásnjórinn þallargreinar þekur
á þöglu kvöldi glitrar hélurós.
í skammdeginu skugga burtu hrekur
skin frá mána og þúsund stjömuljós.
Andrés er mér eldri maður og á
öðruvísi minningar um jólin. Hann
er á þeirri skoðun að þrátt fyrir
dauf og blaktandi ljós og norðan-
byi sem næddi í gegnum húsakynn-
in hafi jólin verið best eins og þau
voru i gamla daga.
„Hjá mörgum snúast jólin núna
aðeins um peninga og aftur pen-
inga. Það eru gervijól," segir hann:
Þó sjaldan birtist blessuð sólin
og berði moldarkofann hrið,
einhvem veginn era jólin
ekki eins björt i seinni tíð.
Ormur Ólafsson, félagi Andrésar
úr Kvæðamannafélagþnu Iðunni,
kann vel að meta nútímaþægindi.
Engu að síður stafar líka ljóma af
æskujólum hans:
Þó eigi fleiri aura til,
einnig mýkri stóla,
meðan lifi minnast vil
minna bemskujóla.
En víkjum sögunni aftur fram á
okkar daga. Þegar mestu herleg-
heitin á aðfangadagskvöld eru af-
staðin er komið að þeirri stund sem
ég kann einna best að meta. Þá
sest ég niður með fjölskyIdunni,
slappa af yfir kaffíbolla og maula
konfektmola. Þá fer faðir minn
stundum með þá jólavísu sem hon-
VISNATORG
Að þessu sinni setur það svip á Vísnatorg-
ið að hátíð er gengin í garð. Pétur
Blöndal fjallar um vísur sem borist hafa
þættinum af því tilefni og lýsir sinni
reynslu af jólunum.
Það er gamall og góður siður
hjá hagyrðingum að hripa niður
kveðju á jólakort í bundnu máli.
Sigurður Sigurðarson rækir þann
sið á þessum jólum:
Snjóinn hreina loks má líta
leggjast mjúkt á grand og hól
og klæða allt í kjólinn hvíta.
Komin era blessuð jól,
Jólakveðja Jóns Gissurarsonar
um síðustu jól var hringhend og
hljóðaði svona:
um þykir vænst um. Hana yrkir
Jón Þorsteinsson á Arnarvatni í
Mývatnssveit þar sem hann situr
yfír fénaði sínum að kvöldi að-
fangadags:
Nei, hér er þá dálítil hjörð á beit
og hjarðsveinn á aldri vænúm.
í hverri einustu íslands sveit
og afkima fram með sænum
nú stendur hún jólastundin há
með stjömuna yfir bænum.
Næst rennur upp sú stund sem
ungir og aldnir hafa beðið með
hvað mestri óþreyju, - að fjölskyld-
an spreyti sig í keppni og þrautum.
Þegar leikurinn stendur hvað hæst
er ekki að sjá að nokkur aldurs-
munur sé á keppendum. Oftast eru
hinir eldri þó sleipastir í að ráða
vísnagátur og standast þar fáir afa
mínum snúning, sem kominn er á
tíræðisaldur. Jólagátan sem hann
fær að spreyta sig á í kvöld er
svohljóðandi:
Lítinn grætir labbakút,
lata henti í skólum.
Fer og kemur að og út,
ómissandi á jólum.
Skáldið mikla
Trúðu á tvennt í heimi,
tign sem hæsta ber,
Guð í alheims geimi,
Guð í sjálfum þér.
etta er erindi úr
ljóðinu Lífshvöt
eftir skáldið mikla
Steingrím Thor-
steinsson," segir
Séra Árni Pálsson,
sem er aufúsugestur
á Vísnatorgi á að-
fangadag. „Ég vel
erindið vegna þess
að afi minn, og lang-
afi þinn, Séra Árni
Þórarinsson, var góður vinur
hans.“ Ég kinka kolli pg hann
heldur áfram: „Séra Árni sagði
mér að peir hefðu tekið tal sam-
an og Steingrímur hefði sagt:
- Veistu Árni, að ég hef aldrei
séð jafn mikið eftir neinu eins
og því að hafa ort
þetta erindi vegna
þess að svo margir
nota það til að afs-
aka trúleysi sitt.“
Árni lítur á mig
þýðingarfullu
augnaráði: „Þú
skilur hvað hann á
við. Það eru svo
margir sem segja:
- Ég trúi á mig
sjálfan.
I staðinn fyrir að
trúa á Guð í gegn-
um Jesú Krist nota
þeir erindið sem
afsökun fyrir trúleysi sinu og
sinnuleysi um trúmál. Þetta er
byggt á misskilningi vegna þess
að Steingrímur á við að maður
sé fæddur með hæfileika til að
nálgast Guð og þjóna honum í
verkum sínum."
Yfir liðinn lítum veg
létt við kliðar óður.
Árs og friðar óska ég
er það siður góður.
Jóhannes Sigfússon fékk vísu á jóla-
korti í fyrra frá Óttari Einarssyni,
skólastjóra á Svalbarði. Óttar dvald-
ist í Reykjavík yfir hátíðamar:
Borgin glitrar upplýst öll
ótal gervisólum
meðan Þistilfjarðarfjöll
falda hvítu á jólum.
Óli Halldórsson á Gunnarsstöð-
um sendi Skúla Ragnarssyni bónda
á Ytra-Álandi kveðju á jólum. Þetta
munu hafa verið síðustu jólin sem
Óli lifði:
Heilla óskar hugur minn,
hljóttu gleði sanna.
Breiðist yfir bæinn þinn
blessun Guðs og manna.
„Ég held svolítið upp á tvö vers
með sjálfum mér,“ segir séra
Hjálmar Jónsson. „Þau fjalla um
kyrrð aðventunnar þegar kalt er
úti við og snjórinn fellur í stórum
flygsum til jarðar.“
Hægt fijósa vötn og vök,
vært leggur snjókoman þök.
Birtan sér leitar að leið.
Lausnarans koma er greið.
Brátt mun í byggðum sagt
bam sé í jötuna lagt.
Stjömuskin lýsir á leið.
Lausnarans koma er greið.
Grímur Lárusson frá Gríms-
tungu lést í haust sem leið. Hann
var snjall hagyrðingur og orti fyrir
nokkrum árum:
Ungur verð ég enn á ný
allir skuggar dvína,
þegar jóla helgin hlý
hrifur sálu mína.
Halldóra Magnúsdóttir er fædd
að Hrísási í Melasveit. Bærinn er
kominn í eyði fyrir margt löngu,
en lifir þó ennþá í minningunni:
í litlum bæ á lágum hól
lengst fæ geymt í minni
hvað við áttum indæl jól
og auð í fátæktinni.
í síðasta þætti var kastað fram
fyrripartinum:
Jólasveinar fjöllum frá
fara að koma bráðum
Edda Vilhelmsdóttir er fyrst til
að botna:
yfir fönn og freragljá,
frost í tötram snjáðum.
Þá Rannveig Sigurðardóttir:
En Grýla fylgist grett á brá
grannt með sínum snáðum.
Móri lætur líka að sér kveða:
Gaman væri að gleðja þá
með Guðs og manna ráðum.
Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem
sendu botna og vísur fyrir að leggja
þættinum lið. Við sjáumst á Vísna-
torgi að hálfum mánuði liðnum.
Um leið og ég óska lesendum gleði-
legp'a jóla og gæfuríks komandi árs
er rétt að kasta fram fyrriparti:
Við áramótin fjölmörg fæðast
fyrirheit um betra líf
Hafsteinn Stefánsson leggur
þættinum til fallega jólavísu og
vart er hægt að hugsa sér betri
lokaorð:
Drottinn sendu sátt á þingum
og sameiningu heims um ból,
gefðu öllum íslendingum
auðnurík og farsæl iól
•Unj w QiQaoaTBVisme-i
• Póstfang þáttarins er:
Vísnatorg/Morgunblaðinu,
Krínglunni 1, 103 Reykjavík