Morgunblaðið - 24.12.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 1995 B 11
Telur að Powell kynni
að skipta um skoðun
ÞRATT fyrir að Colin Powell
hershöfðingi hafi lýst yfir því að
hann verði ekki i framboði í for-
setakosningunum í Bandaríkjun-
um næsta haust, telur Bob Dole,
sem líklegastur þykir ti að verða
frambjóðandi Repúblíkanaflokks-
ins, að Powell myndi fallast á að
gefa kost á sér sem varaforseti.
Dole sem er leiðtogi repúblík-
ana í öldungadeild Bandartíkja-
þings, lét þessi orð falla í sjón-
varpsviðtali. Hann kvaðst að-
spurður telja að Powell myndi
taka fyrri yfirlýsingar til baka
þegar „skyldan kallaði".
Nokkrar líkur voru taldar á að
Powell færi fram og höfðu kann-
anir gefið til kynna að slíkt fram-
boð yrði sigurstranglegt. Powell
lýsti hins vegar yfir því í fyrri
mánuði að hann hefði afráðið að
sækjast ekki eftir embætti forseta
Bandaríkjanna og tók sérstaklega
fram að hann yrði heldur ekki í
framboði sem varaforseti.
Dole fór ekki leynt með það i
viðtalinu að hann hefði mikið álit
á Powell og að hann teldi að það
myndi styrkja framboð sitt veru-
Iega ef hann yrði í framboði sem
varaforseti. Powell hefði sýnt það
að honum væri umhugað um
framtíð Bandaríkjanna og vildi
stuðla að sátt þeirra kynþátta sem
byggju í Ameríku.
Skýrt kom fram í máli Dole að
hann teldi yfirlýsingu Powells frá
8. nóvember ekki endanlega. Af-
staða hans kynni að breytast
kæmi slík beiðni frá þeim manni
sem útnefndur hefði verið til að
vera frambjóðandi repúblíkana.
„Það er mjög erfitt að hafna bón
forsetans, þess sem tilnefndur
hefur verið,“ sagði Dole.
Talsmaður Powells kvað þetta
mál ekki hafa verið rætt og minnti
á að Powell hefði tekið fram að
ákvörðunin gilti bæði um embætti
forseta og varaforseta.
Viltu verða förðunarfræðingur?
Dulúð vetrarins
6 vikna til 3ja mánaða
námskeið í förðun hefst
miðvikudaginn 10. janúar
1996. Kennsla fer fram á
kvöldin frá kl. 19 til 23.
Kennd eru öll
undirstöðuatriði förðunar,
tísku og Ijósmyndaförðun,
litasamsetning og litgreining
með tilliti til förðunar.
Leiðbeinendur eru: Anna
Toher, förðun og litgreining.
Erla Björk Stefánsdóttir,
förðun og litgreining
Ásta H. Valdimarsdóttir,
förðun.
Gestaleiðbeinendur eru
Biggi hártæknir og
Rósa Þorvaldsdóttir,
snyrtifræðingur
Að námskeiði loknu fær
nemandinn
viðurkenningaskjal og
myndamöppu.
Kennsla hefst 10. janúar.
MAKE UP FOR EVER
Allar nánari upplýsingar og námskrár fást í MAKE UP FOR EVER búðinni
i Borgarkringlunni, sími 588 7575 eða á skrifstofu, simi 588 7570.
máli
Förðunarskóli i MAKE UP FOR EVER
Eg þakka öllum sem minntust mín á 95 ára
afmœli mínu meÖ gjöfum, kveÖjum, heimsókn-
um og góðum óskum.
Ég óska ykkur gleðilegra jóla og GuÖs blessunar.
OddnýJ. Þorsteinsdóttir.
Blóðbankinn óskar öllum blóðgjöfum og
velunnurum símun gleðilegra jóla og góðs komandi
árs með þökk fyrir hjálpina á liðnum árum.
BLÓÐBANKINN