Morgunblaðið - 24.12.1995, Page 26
26 B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
JÓLAMYNDIR KVIKMYNDAHÚSANNA
NÝ ÍSLENSK kvikmynd,
Agnes, er aðaljólamynd
Laugarásbíós en hún er einn-
ig sýnd í Stjömubíói. Leikstjóri er
Egill Eðvarðsson og handritið gera
þeir Snorri Þórisson, sem einnig er
tökumaður og framleiðandi myndar-
innar, og Jón Ásgeir Hreinsson.
Með aðalhlutverkin í myndinni
fara María Ellingsen, Baltasar Kor-
mákur, Gottskálk Dagur Sigurðar-
son og Egill Ólafsson en Agnes
byggir mjög lauslega á atburðum
sem leiddu til síðustu opinberu af-
tökunnar á íslandi, morðinu á Nat-
ani Ketilssyni á Illugastöðum í
Húnavatnssýslu. Aðstandendur
myndarinnar hafa tekið það skýrt
fram í viðtölum að myndin sé ekki
byggð á heimildum og sé ekki heim-
ildamynd heldur skáldverk þar sem
persónur og atburðir lúta í öllu lög-
málum skáldskaparins.
Hugmyndin er komin frá Jóni
Ásgeiri Hreinssyni en hann þekkir
vel til atburðanna á Iilugastöðum
eftir að hafa verið þar í sveit. Hann
kynnti hugmyndina fyrir Snorra
sem leist vel á og saman unnu þeir
handritið og fengu lán út á það hjá
Evrópska handritasjóðnum og styrk
hjá Kvikmyndasjóði Islands en
seinna komu þýskt og danskt fyrir-
tæki inn í myndina sem meðfram-
ieiðendur. Hún kostar á bilinu 140
til 150 milljónir króna og er því ein
af dýrustu myndum sem hér hafa
Laugarásbíó/Stjörnubíó
Sagan af Agnesi
ÁSTARSAGA; Baltasar Kormákur og María Ellingsen í hlutverkum Natans og Agnesar.
verið gerðar enda kostnaðarsamt
að endurskapa nítjándu aldar sveita-
samfélagið.
Þeir Snorri Þórisson og leikstjór-
inn Egill Eðvarðsson unnu síðast
saman árið 1983 þegar þeir gerðu
spennutryllinn Húsið, sem þótti vel-
heppnuð draugamynd. Meðal leik-
ara sem þeir fengu til liðs við sig í
Agnesi má auk áðurnefndra nefna
Hönnu Maríu Karlsdóttur, Árna
Pétur Guðjónsson og Hilmi Snæ
Guðnason. Gunnar Þórðarson semur
tónlistina og er Agnes fyrsta heila
bíómyndin sem hann semur tónlist
við, Steingrímur Karlsson klippti,
Þór Vigfússon sá um leikmynd og
Þorbjörn Erlingsson um hljóðið auk
þess sem Helga Stefánsdóttir gerði
búningana og Ragna Fossberg sá
um hár og förðun.
Önnur jólamynd Laugarásbíós er
tölvuleikjamyndin „Mortal Komb-
at“. Hún er ævintýramynd byggð á
samnefndum tölvuleik og segir frá
hinum iílræmda seiðmanni Shang
Tsung, sem ekki er af þessum heimi
en hefur leitt valdamikinn prins til
sigurs gegn óvinum sínum og vinni
hann tíundu„Mortal Kombat"
keppnina í röð mun hið illa taka sér
bóífestu í heimi hér til frambúðar.
Leikstjóri myndarinnar er Bretinn
Paul Ánderson en með aðalhlutverk-
in fara Bridgette Wilson, Robin
Shou og Linden Ashby auk Chri-
stopher Lamberts.
HASKOLABIO
SAMBIOIN
Náltúran kallar á Carrey
Carrey apabróðir;
Ace Ventura í góð-
um félagsskap.
Sérkenni-
legt ástar-
samband
LISTMÁLARINN og rithöf-
undurinn; Thompson og
Pryce I Carrington.
Bandaríski leikstjórinn Mike Nic-
hols („The Graduate“) sagði um
Jonathan Pryce fyrir 20 árum að
hann væri efnilegasti ungi leikarinn
sem komið hefði fram á sjónarsviðið
síðan Marlon Brando sigraði heim-
inn. Pryce hefur aldrei Iagt áherslu
á kvikmyndaleik heldur einbeitt sér
að leikhúsunum í London og hafn-
aði t.d. Kristshlutverkinu í Síðustu
freistingu Krists þegar Martin Scor-
sese bauð honum það. „Mér leið
ekki nógu kristilega,“ segir hann.
Hann er kannski þekktastur úr
„Brazil" eftir vin sinn Terry Gilliam.
Carrington hefur vakið verðskuld-
aða athygli á þessum hlédræga Ieik-
ara og hann hefur jafnvel verið orð-
aður við Oskarinn fyrir hlutverk sitt.
Önnur jólamynd Háskólabíós er
Presturinn sem einnig fjallar um
homma en mjög á annan hátt. Aðal-
persónan er samkynhneigður ka-
þólskur prestur sem tekur að starfa
í niðumíddu borgarhverfi
og brátt spyrst út
hvernig í málum
liggur.
NÝJASTA gamanmynd vin-
sælasta gamanleikara
samtímans, Jim Carreys,
er ein af jólamyndum Sambíó-
anna. Hún er framhald „Ace
Ventura“ og heitir „Ace Ventura
2: When Nature Calls“ eða Nátt-
úran kallar en hún hefur notið
mikilla vinsælda í Bandaríkjunum
og skilaði tæpum 40 milljónum
dollara fyrstu sýningarhelgina
þar.
Carrey skaust upp á stjörnu-
himininn þegar hann lék
gæludýraspæjarann Ventura í
samnefndri kvikmynd fyrir ekki
mikið meira en tveimur árum og
er nú orðinn einn dýrasti og eftir-
sóttasti kvikmyndaleikarinn í
Hollywood. Myndirnar sem hann
hefur leikið í í millitíðinni hafa
ekki þótt nein afburða listaverk
en þær hafa verið óhemju vinsæl-
ar og eru honum þakkaðar þær
vinsældir. Allar hafa þær verið
sýndar hér við frábæra aðsókn
en þær eru auk „Ace Ventura"
Gríman, Heimskur heimskari og
nú síðast Batman að eilífu þar sem
hann fór með hlutverk Gátumanns-
ins. Talið er að Carrey fái ekki
minna en 20 milljónir dollara fyrir
hveija mynd sem hann leikur í.
Ace Ventura er gæludýraspæj-
ari og gerist framhaldsmyndin í
svörtustu Afríku þar sem okkar
maður leggur fyrir sig dýravernd.
Hann er á höttunum eftir afar
sjaldgæfu náttúrulegu fyrirbrigði,
hvítri leðurblöku, og reynir í leið-
inni að koma í veg fyrir ætt-
flokkastríð. Reyndar hefst leikur-
inn í Tíbet þar sem Ventura dvelst
meðal munka að hætti Rambós
forðum en brátt berst leikurinn
til Afríku þar sem söguhetjan
knáa sést ríðandi á strúti, kemur
út um afturendann á vélknúnum
nashyrningi, beygir sig og lætur
frá sér Tarzanópið út um óæðri
endann, hnerrar á, spýtir og blæs
pappírskúlum á Afríkubúa og
hefur einstaka ánægju af að
syngja Kittý kittý, bang bang.
Handritshöfundur fyrri mynd-
arinnar, Steve Oedekerk, leikstýr-
ir þessari auk þess sem hann
skrifar handritið en skipt var um
leikstjóra þegar tökur voru komn-
ar vel á veg því Carrey treysti
ekki lengur Tom DeCerchio fyrir
starfinu.
Af öðrum jólamyndum Sambíó-
anna má nefna Algjöran jólasvein
með sjónvarpsstjörnunni Tim Al-
len í hlutverki jólasveinsins. Það
er barna- og fjölskyldumynd sem
frumsýnd var í Bandaríkjunum
um síðustu jól og naut mik'illa
vinsælda. Og loks má nefna
spennumyndina Leigumorðingja
með Sly Stallone og Antonio
Banderas í hlutverkum leigu-
morðingja, sem eru ráðnir í að
myrða hvor annan.
HÁSKÓLABÍÓ sýnir nýjustu
Bondmyndina um jólin (sjá
Sambíóin) en auk þess verða
tvær breskar myndir á boðstólunum,
Carrington með Emmu Thompson
og Jonathan Pryce og Presturinn
með Linus Roache í leikstjórn An-
tonia Bird.
Pryce hreppti leikaraverðlaunin á
síðustu kvikmyndahátíð í Cannes
fyrir túlkun sína á samkynhneigða
rithöfundinum Lytton Strachey í
Carrington en myndin rekur ástar-
samband hans og Dóru Carringtön,
sem Thompson leikur, er varði í 17
ár og endaði með hörmulegum
hætti. Þetta er fyrsta myndin sem
hið margrómaða breska leikrita-
skáld Christopher Hampton leik-
stýrir en hann er íslenskum kvik-
myndahúsagestum kunnastur fyrir
handrit „Dangerous Liaisons". Hug-
myndina um bíómynd byggða á sögu
Carringtons fékk hann þegar í lok
sjöunda áratugarins en það hefur
tekið meira en aldarfjórðung að fá
hana á tjaldið. í fyrstu átti Herbert
Ross að leikstýra henni og síðar
Mike Newell (Fjögur brúðkaup og
jarðaför) en hann hætti við á sið-
ustu stundu svo Hampton neyddist
á endanum sjálfur til að leikstýra.
Hafði hann þá nóg á sinni könnu
því jafnframt því að skrifa handrit
og leikstýra Carrington skrifaði
hann handrit „Total Eclipse", sem
fjallar um skáldið Rimbaud, og
handrit „Mary Reilley", sem vinur
hans Stephen Frears hefur leikstýrt.
Lytton Strachey var af einn af
Bloomsburyhópnum sem áberandi
var í listalífi Breta fyrr á öldinni.
Þekktasta saga hans er „Eminent
Victorians" frá 1918. Dóra Carring-
ton var listmálari og lítt þekkt í sinni
tíð. Hún varð yfir sig ást-
fangin af rithöfundinum
og skipti hana engu
sú staðreynd að hann
var hommi. Myndin
rekur hið sérstaka og
ianglífa ástarsamband
þeirra í sex köflum frá
því Strachey laðast að
Dóru fyrir misskilning,
hann heldur að hún sé
karlmaður, og þar til
hann lést árið 1932.