Morgunblaðið - 07.01.1996, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 07.01.1996, Qupperneq 36
36 B SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Lífeyrissjóðurinn Framsýn Nýr lífeyrissjóður hefur nú verið stofnaður, Lífeyrissjóðurinn Framsýn. Frá og með 1. janúar 1996 hefur hann tekið við réttindum og skyldum sex lífeyrissjóða, sem eru þessir: Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar, Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar, Lífeyrissjóður Sóknar, Lífeyrissjóður verksmiðjufólks, Lífeyrissjóður Félags starfsfólks í veitingahúsum og Almennur lífeyrissjóður iðnaðarmanna. Þessir lífeyrissjóðir hafa nú allir hætt starfsemi sinni og sameinast í hinum nýja lífeyrissjóði. í lok árs 1995 er hrein eign Lífeyrissjóðsins Framsýnar um 26 milljarðar króna. Virkir sjóðfélagar eru um 28.000 talsins og 90.000 einstaklingar eiga réttindi í sjóðnum, er hann því fjölmennasti lífeyrissjóður landsins. Að Lífeyrissjóðnum Framsýn standa eftirtalin félög; Verkamannafélagið Dagsbrún, Verkakvennafélagið Framsókn, Verkamannafélagið Hlíf, Verkakvennafélagið Framtíðin, Starfsmannafélagið Sókn, Iðja - félag verksmiðjufólks, Félag starfsfólks í veitingahúsum, Bakarasveinafélag Islands, Bifreiðastjórafélagið Sleipnir, Félag hárgreiðslu- og hárskerasveina og Vinnuveitendasamband íslands. Með stofnun Lífeyrissjóðsins Framsýnar er lagður grunnur að öflugum lífeyrissjóði sem tryggja skal sjóðfélögum sínum besta mögulegan lífeyri samfara markvissri ávöxtun iðgjalda og hagkvæmum rekstri. Stœrð er styrkur! LÍFEYRISSJÓÐURINN FRAMSÝN Skrifstofa Lífeyrissjóðsins Framsýnar er að Suðuriandsbraut 30,108 Revkjavik. Skrifstofan er opin írá kl. 9 til 17 alla virka daga. Sími: 5334700. Fax: 5334705. Kt.: 561195-2779. HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.